Austurglugginn - 02.12.2021, Síða 11
Fréttabréf AFLs Starfsgreinafélags
Félagakerfið sjálft
Frá því að orlofskerfið var skrifað
2012 – 2013 var lítið um viðbætur
við kerfið þar til 2015 var tekin
ákvörðun um að fullgera kerfið sem
félagakerfi. Austurnet tók einnig
þann bolta, undir forystu Garðars og
Sigurðar. Það verkefni var hins vegar
það stórt að kalla þurfti fleiri að því
og komu þá einnig Guðmundur
Rúnar Einarsson og Kristján
Krossdal að borðinu. Í ársbyrjun var
móttaka skilagreina tilbúin og sett í
gang og í mars var farið að afgreiða
styrki og sjúkradagpeninga úr hinu
nýja félagakerfi. Undir lok árs var
alveg hætt að nota Bóta.
Frá 2016 hefur svo verið unnið
að ýmiskonar endurbótum og
viðbótum að félagakerfi AFLs. Um
síðustu áramót litum við svo á að
kerfið væri fullgert – þrátt fyrir að
ýmsar viðbætur væru á óskalistanum
– þá fullnægði kerfið öllum þörfum
okkar .
Nýjasti starfsmaður Austurnets er
Guðný B. Kjartansdóttir Briem – og
hefur hún síðustu mánuði aðallega
unnið við að koma „mínum síðum“
félagakerfisins yfir á fleiri tungumál
og önnur verkefni sem tengjast
mínum síðum.
Kynni AFLs af Guðnýju hófust
2018 þegar hún ásamt þremur
samnemendum í fjarnámi í
tölvunarfræði við Háskóla Íslands
unnu lokaverkefni sitt í náminu
með því að gera „málakerfi“ fyrir
verkalýðsfélag. Við sátum nokkra
rýnifundi með þessu austfirska
nemendateymi og gáfum þeim
aðgang að vinnuumhverfi félagsins
í gegnum Austurnet. Ekki varð þó
úr að við innleiddum þeirra vinnu
en Guðný kom síðan til starfa
fyrir Austurnet að námi loknu og
hefur verið virkur þátttakandi í
áframhaldandi þróun félagakerfisins.
Í boði fyrir önnur félög
Síðastliðið vor var „Jóakim“,
félagakerfi sem mörg verkalýðsfélög
hafa notað, til umfjöllunar í
fréttaskýringaþættinum Kveik
vegna gjaldtöku fyrir notkun
þess. Í kjölfarið tók AFL saman
kynningarefni um félagakerfi okkar
og bauð nokkrum verkalýðsfélögum
að skoða kerfið.
Í haust hófst vinna við að gera
kerfið „fjölnotendavænt“, sem hefur
reynst talsverð. Um leið hafa ýmsir
smáhlutir verið lagfærðir og bættir.
Þegar þetta fréttabréf er ritað eru
starfsmenn Hlífar þegar komnir
inn í kerfið og farnir að undirbúa
að taka það fullkomlega í notkun
um áramótin.
Eftir að innleiðingu Hlífar lýkur
upp úr áramótum verður mögulega
hafin innleiðing tveggja til þriggja
félaga til viðbótar enda ryður
þátttaka Hlífar ýmsar brautir og
er „lærdómsferill“ fyrir bæði AFL
og Austurnet. Bæði er þá komin
reynsla á að flytja gögn úr Jóakim
yfir í nýja kerfið og eins notar Hlíf
DK bókhaldskerfi á meðan AFL
notar Navision. Nú er að ljúka
endurskrifum á tengingum við
bókhaldskerfi.
Félagakerfið Tótal
Kerfi AFLs hefur fengið nafn
og nefnist nú Félagakerfið Tótal.
AFL vinnur að stofnun sérstaks
rekstrarfélags sem mun annast
útleigu og sölu á kerfinu, enda ekki
við hæfi að verkalýðsfélag standi
í rekstri á samkeppnismarkaði.
Stofnverð hins nýja rekstrarfélags
verður bókfært virði hugbúnaðarins
sem settur er í nýja félagið, sem AFL
mun eiga að fullu.
Stefnt er að því að kerfið verði
orðið algjörlega sjálfbært innan fárra
ára og að AFL fái mögulega til baka
stóran hluta stofnkostnaðar.
Ef áætlanir ganga eftir væru
mögulega 5 – 10 þokkalega stór
verkalýðsfélög orðin notendur af
kerfinu innan þriggja ára. Þá verður
þeim mögulega boðið að ganga inn
í hið nýja rekstrarfélag og kaupa
eignarhluta í kerfinu. Þetta eru þó að
mestu vangaveltur nú. Bókfært verð
kerfisins er um 80 milljónir króna og
hefur sá kostnaður stofnast á síðustu
11 árum.
Síðustu ár hafa afnotagjöld af
öðrum kerfum sparast auk þess
sem stjórn félagsins telur að með
þessu kerfi hafi sparast eitt til tvö
stöðugildi sem annars væri þörf á
við rekstur félagsins. Mjög mikil
sjálfvirkni er í kerfinu sem sparar t.d.
að mestu allan innslátt félagsgjalda,
bæði í félagakerfi og bókhaldskerfi.
Að auki afgreiða félagsmenn sig
að verulegu leyti sjálfir bæði í
orlofskerfi og vefverslun sem léttir
mjög álagi af skrifstofum félagsins.
Þá er aðgangskerfi félagsins algerlega
sjálfvirkt og opnast því aðgangskort
félagsmanna sjálfkrafa – um leið og
leiga er greidd.
Alfarið Austfirskt hugvit
Allur hugbúnaður AFLs er skrifaður
á Austurlandi og undir forystu
þeirra Garðars Vals og Sigurðar hjá
Austurneti. Fyrirtækið hefur tekið
nokkrum breytingum á ferlinu en
kjarninn hefur samt alltaf verið sá
sami. Þeir forritarar sem mest koma
að málum AFLs eru þeir tveir félagar
og svo Guðný og Guðmundur Rúnar
Einarsson. Þá skrifaði Kristján
Krossdal skilagreinakerfi félagsins
að mestu. Eins hefur Þórunn
Hálfdanardóttir einnig komið að
málum og verið félaginu til aðstoðar
sérstaklega í vefmálum. Einnig undir
merkjum Austurnets er Unnar
Erlingsson, grafískur hönnuður,
hann hefur bæði verið útlitsteiknari
félagsins og veitt ráðgjöf um útlit á
vef og kerfunum sjálfum.
Þróun hugbúnaðar sem er jafn
umfangsmikill og kerfi félagsins
eru – kallar á mikla yfirlegu og
rýnivinnu. Starfsfólk félagsins hefur
lagt mikið á sig – setið marga og
stranga rýnifundi og tekið virkan
þátt í þróun kerfisins.
Á mikilvægum tímamótum
í þróuninni hefur starfsfólkið
haft beinar línur til forritara og
minniháttar lagfæringar jafnvel
framkvæmdar nánast jafnóðum og
um þær er beðið. Þannig hefur verið
reynt að sníða kerfið eins mikið að
þörfum og óskum starfsfólks og
hægt er.
Mínar síður félagsmanna eru sífellt
mikilvægari þáttur í gagnvirkum
samskiptum félagsmanna við félagið.
Því hefur einnig átt sér stað rýnivinna
með einstökum félagsmönnum til að
kanna hvað betur mætti fara.
Aldrei búin
Við teljum nú að félagakerfið okkar
sé fullbúið - en gerum okkur samt
grein fyrir því að þessu verkefni lýkur
aldrei. Umhverfið breytist í sífellu og
við verðum að bregðast við. Það er
samt góð tilfinning að vera ekki að
elta þróunina heldur vinna samhliða
henni.
Mínar síður AFLs Starfsgreinafélags verða fljótlega aðgengilegar á
spænsku. Spænskumælandi félagsmaður AFLs hefur tekið að sér að
þýða helstu orð og orðatiltæki sem fyrir koma á mínum síðum.
Nú er hægt að velja 7 tungumál á mínum síðum: íslensku, pólsku,
tékknesku, rúmensku, litháísku og serbnesku/króatísku.
Þýðendur eru í flestum tilfellum félagsmenn AFLs sem hafa náð góðum
árangri í íslensku en eru að þýða á móðurmál sitt.
Mínar síður næst á spænsku
Starfsmenn Austurnets. Frá vinstri: Garðar Valur, Þórunn, Guðmundur Rúnar og Guðný. Á myndina vantar Sigurð Pál.