Austurglugginn - 02.12.2021, Qupperneq 12
Fréttabréf AFLs Starfsgreinafélags
Partístand og byssulæti
Útgerðin hagnast en neitar að deila með sjómönnum
Um starf og stöðu trúnaðarmanna verkalýðsfélaga
Síðustu vikur hefur verið óvenju
mikið um partístand og ólæti í
sumarhúsum á Einarsstöðum.
Því miður hefur þurft að kalla til
lögreglu og jafnvel fjarlægja fólk
úr húsunum um miðjar nætur.
Það er því rétt að vekja athygli
félagsmanna enn á ný á því að það
á að vera komin á ró í byggðina eftir
klukkan tíu á kvöldin og í næstu
húsum er fjölskyldufólk með ung
börn. Því er alls ekki ásættanlegt að
ekki fáist næturró vegna drykkjuláta
úr nærliggjandi húsum.
Þegar kvartanir berast eru
partíhaldarar settir í bann og
geta ekki leigt bústað eða íbúðir
félagsins í allt að tvö ár, eftir því
hvað brotið er alvarlegt.
Vitaskuld eru ekki allir
ólátabelgir félagsmenn AFLs en á
Einarsstöðum eru hús í eigu margra
verkalýðsfélagar. Engu að síður á
AFL um helming húsanna og eru
meirihluti gesta um helgar.
Þá hefur slæmur viðskilnaður
aukist þannig að umsjónarmenn
byggðarinnar eru oft uppteknir
fram í miðja viku við að gera bústaði
hreina og leiguhæfa eftir helgarnar.
Orlofsbyggðin innheimtir fyrir
öll aukaþrif og AFL innheimtir
þann kostnað beint af leigutaka ef
viðkomandi var í húsi AFLs.
Það er og óþolandi siður hjá fólki
að hrækja út tóbakspúðum hvar sem
það stendur. Umsjónarmenn tína
þessa púða upp í kringum bústaði
og innheimta fyrir vinnu við það.
Það er ekki bjóðandi að fólk þori
ekki að leyfa ungum börnum að
leika sér úti vegna sóðaskapar af
þessu tagi.
Þegar þessi aukaþrif eru á húsum
AFLs þá innheimtir félagið fyrir
alla þessa aukavinnu og aukaþrif
hjá leigutakanum – og þeir sem
höfðu bústaðinn á leigu geta ekki
leigt orlofseign á ný fyrr en þessu
kostnaður hefur verið greiddur.
Þá er rétt að benda byssumönnum
í AFLi og öðrum félögum á að
fara að lögum varðandi meðferð á
skotvopnum. Í fyrsta lagi eiga allar
byssur að vera óhlaðnar og í öðru
lagi eiga menn ekki að meðhöndla
skotvopn innan byggðarinnar og
alls ekki undir áhrifum áfengis.
Öll meðferð skotvopna sem
ekki samrýmist lögum verður
hér eftir tilkynnt til lögreglu –
enda hefur á síðustu árum tvisvar
verið hleypt af slysaskoti innan
byggðarinnar þegar menn voru
með hlaðnar byssur en héldu að þær
væru óhlaðnar. Sem betur hlupu
bæði skotin af innandyra og ollu
minni skemmdum en ætla mætti.
Félagsmenn AFLs sem staðnir
verða að því að fara óvarlega með
skotvopn – verða útilokaðir frá
byggðinni næstu misserin á eftir.
Útgerðin hefur skilað 36 milljarða
króna hagnaði að meðaltali
síðustu fimm ár. Engu að síður
neita útgerðarmenn eðlilegri
kröfu sjómanna um sambærileg
lífeyrisréttindi og annað launafólk
nýtur – en það myndi kosta
útgerðina innan við milljarð
króna að hækka mótframlag í
lífeyrissjóð um 3,5% þannig að
lífeyrissparnaður sjómanna yrði
eins og annarra launþega.
„32. þing Sjómannasambands
Íslands, haldið 4. og 5. nóvember
2021, vítir Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi harðlega fyrir
að í áraraðir sé ekki gerður
kjarasamningur við sjómenn um
þau sjálfsögðu réttindamál sem
önnur samtök launafólks hafa þegar
samið um. Nú eru liðin tæp 2 ár
frá því kjarasamningar sjómanna
runnu út. Vegna þvergirðingsháttar
útgerðarinnar er ekki útlit fyrir
að samningar náist án átaka,“
segir m.a. í ályktun nýafstaðins
Sjómannasambandsþings.
Á þinginu var Valmundur
Valmundarson endurkjörinn
formaður Sjómannasambandsins.
Í Sambandsstjórn eiga sæti tveir
fulltrúar AFLs – Sverrir Albertsson
formaður Sjómannadeildar AFLs
og Grétar Smári Sigursteinsson,
sjómaður á Höfn.
AFL átti 5 fulltrúa á þinginu sem
fram fór á Grand Hótel í Reykjavík
í byrjun nóvember.
Starf trúnaðarmanna hefur verið
nokkuð til umræðu síðustu vikur.
AFL Starfsgreinafélag og forysta
þess telur nauðsynlegt að árétta þá
mikilvægu en jafnframt viðkvæmu
stöðu sem trúnaðarmenn geta lent í.
Trúnaðarmenn eru fyrst og fremst
trúnaðarmenn samstarfsfólks –
þ.e. kjörnir af samstarfsfólki til að
koma fram fyrir þeirra hönd og
gæta hagsmuna þeirra.
Því er mikilvægt að trúnaðar-
maður, sem stígur fram með
sameiginleg mál samstarfsmanna,
finni alltaf að hann/hún hafi
fullan stuðning frá félaginu og að
samstarfsfólk standi með honum/
henni.
AFL Starfsgreinafélag hefur
alltaf lagt áherslu á að veita
trúnaðarmönnum félagsins þann
stuðning sem þeir hafa þörf á og
vilja þiggja. Félagið gerir það alla
jafna með því að bjóða aðgang að
þeim námskeiðum sem í boði eru
og sérstakur starfsmaður AFLs
annast samskipti við trúnaðarmenn
þannig að þeir geti alltaf leitað eftir
stuðningi og handleiðslu þegar á
þarf að halda.
Formaður og aðrir í forystu
félagsins mæta síðan með trúnaðar-
mönnum á vinnustaðafundi eða á
fundi með stjórnendum vinnustaða
þegar þess er óskað. Þetta er
mikilvægt til að trúnaðarmenn
skynji það bakland sem félagið
veitir í deilum við launagreiðendur.
Það er og ekki síður mikilvægt
að hinn almenni félagsmaður sýni
trúnaðarmanni sínum stuðning og
standi með honum í deilum sem
upp kunna að koma – þannig að
launagreiðandi skynji þungann
af félagasamtökunum en telji sig
ekki bara þurfa að eiga við „einn
uppivöðslusaman“ starfsmann.
Því miður eru nokkur dæmi
þess að trúnaðarmenn hafi hætt
þar sem þeir fengu aldrei stuðning
vinnufélaga þegar á hólminn var
komið – að þegar verkstjórar
gengu á samstarfsfólkið varðandi
þau umkvörtunarefni sem þau sjálf
höfðu beðið trúnaðarmann um að
annast – að þá kannaðist enginn
við neitt og sögðu allt í himnalagi.
Þá stendur trúnaðarmaðurinn eftir
einn og berskjaldaður og lítur út
eins og einhver vandræðamaður
sem hefur verið að efna til illinda.
Þá hætta trúnaðarmenn og
vinnustaðurinn er í verri stöðu á
eftir.
Stöndum með trúnaðar-
mönnunum okkar.
Orlofshús AFLs á Einarsstöðum.