Austurglugginn


Austurglugginn - 16.12.2021, Blaðsíða 4

Austurglugginn - 16.12.2021, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 16. desember AUSTUR · GLUGGINN Á jóladag verða 170 ár liðin frá vígslu Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu. Hún er næstelsta kirkjan í Austurlandsprófastsdæmi – aðeins Skeggjastaðakirkja í Bakkafirði er fáeinum árum eldri – og með elstu timburkirkjum landsins. Guðshús hefur raunar staðið mun lengur á Kirkjubæ, líkt og nafn staðarins bendir til, jafnvel allt frá upphafi kirkjuskipanar í landinu, að því er talið er, og prestssetur var þar um aldir. Síðasti prestur á staðnum var sr. Sigurjón Jónsson, en eftir að hann lét af embætti árið 1956 var sókninni lengi þjónað frá Eiðum en undanfarin ár frá Egilsstöðum. Kirkjan sem nú stendur á Kirkjubæ er einkar vandaður og reisulegur helgidómur með mikið menningarsögulegt gildi, fjölsótt af ferðafólki. Nokkrum sinnum á ári fara þar fram guðsþjónustur og aðrar kirkjulegar athafnir, sem jafnan eru vel sóttar af sóknarfólki og fleirum. Hlé yfir sláttinn Kirkjubæjarkirkju lét sr. Jón Þorsteinsson þáverandi prestur á staðnum reisa. Sem yfirsmið fékk hann frænda sinn, Jón Jónsson frá Vogum í Mývatnssveit (Voga-Jón), sem þá var nýkominn úr smíðanámi í Kaupmannahöfn. Var kirkjan reist árið 1851 og unnu sjö menn rösklega að smíðinni það ár, að átta vikna hléi yfir sláttinn undanskildu. Byggingunni lauk skömmu fyrir jól og kirkjan var svo vígð á jóladag þetta sama ár, 1851. Þrátt fyrir góð rekaítök Kirkjubæjar var megnið af timbrinu í kirkjuna keypt af sjö seljendum, mest þó frá Vopnafirði. Til stóð að það timbur yrði flutt á Ker, sem er lending undan Landsenda við norðanverðan Héraðsflóann. Ekki reyndist það þó unnt vegna illviðra og var timbrinu því skipað upp í Fagradal en menn úr sókninni drógu það á sjálfum sér yfir fjallið að Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð. Kirkjunni hefur í gegnum tíðina verið vel við haldið. Á níunda áratug síðustu aldar fóru fram nokkuð umfangsmiklar endurbætur á henni, og í framhaldinu viðgerðir innandyra, með tilstyrk Húsafriðunarnefndar. Voru endurbæturnar í umsjá Auðuns H. Einarssonar smíðakennara, undir leiðsögn Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar og Harðar Ágústssonar listmálara. Var þá, til að mynda, ásjóna kirkjunnar færð aftur til síns upprunalega dökka litar, sem æ síðan er eitt af sérkennum hennar. Lauk öllum viðgerðum fyrir 150 ára afmæli kirkjunnar árið 2001. Á undanförnum árum hafa svo hjónin Kristjana Agnarsdóttir og Snorri Guðvarðsson, málarar á Akureyri, komið í nokkur skipti og unnið að málningarvinnu innandyra í kirkjunni af mikilli list. Kaþólska varðveitt í hönnuninni Eitt af sérkennum Kirkjubæjarkirkju, sem forðum var helguð Maríu Guðsmóður, er að þar er enn varðveitt forn, kaþólsk hefð, í formi þilsins sem skilur að framkirkjuna og kórinn, sem fyrr á öldum afmarkaði hið allra helgasta rými hinna vígðu þjóna. Kórþil þetta var þó að nokkru fjarlægt á 20. öld. Kirkjubæjarkirkja á margt góðra gripa og ber þar fyrstan að nefna predikunarstólinn, sem er talinn vera smíðaður skömmu eftir siðaskipti og vera elsti predikunarstóll, sem enn stendur í kirkju hérlendis. Á honum eru myndir af Davíð konungi úr Gamla testamentinu, postulunum Pétri og Páli, Lúkasi guðspjallamanni, og dönskum konungshjónum frá 16. öld, Friðriki II og Soffíu drottningu hans. Altaristafla kirkjunnar, sem sýnir Krist upprisinn birtast Maríu Magdalenu við gröfina, er olíumálverk eftir Anker Lund frá árinu 1894. Koparkertastjakar á altari eru frá 19. öld en skreyttir ljósahjálmar úr kopar frá fyrri hluta 18. aldar. Kaleikur og patína úr silfri eru sömuleiðis dýrgripir, taldir vera frá lokum 18. eða upphafi 19. aldar. Skírnarskálin er eftir Ríkarð Jónsson útskurðarmeistara, frá 1951. Altarisdúk saumaði Gunnhildur Björnsdóttir í Heiðarseli og gaf kirkjunni 1970. Hljóðfæri kirkjunnar, sem er norskt frá Brödrene Torkildsen, er hið upphaflega frá 1891. Fyrsti organistinn var Jón Snorrason í Dagverðargerði en hann lést árið 1894. Kirkjubæjarkirkja var guðshús íbúa í Jökulsárhlíð jafnframt Hróarstungu uns kirkja reis í Hlíðinni (að Sleðbrjót) 1927. Þorgeir Arason (Heimildir: Hjörleifur Stefánsson og Lilja Árnadóttir: Kaflar um Kirkjubæjarkirkju í ritinu Kirkjur Íslands. 24. bindi (2015). Vigfús Ingvar Ingvarsson: Kirkjur og kirkjugöngur í Múlaprófastsdæmi (2011).) Kirkjubæjarkirkja í 170 ár Tímamót Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkju á æfingu fyrir messu á Kirkjubæ. Organistinn og kórstjórinn, Jón Ólafur Sigurðsson, leikur á hið upprunalega hljóðfæri Kirkjubæjarkirkju frá 1891. Mynd: Þorgeir Arason Útsýni til Dyrfjalla úr kirkjugarðinum. Mynd: Þorgeir Arason Kirkjubæjarkirkja og sáluhlið. Mynd: Þorgeir Arason Kirkjubæjarkirkja á síðsumri 2021. Mynd: Þorgeir Arason

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.