Austurglugginn - 16.12.2021, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 16. desember AUSTUR · GLUGGINN
REIKNAÐU
hvað skógur bindur hratt
reiknivel.skogur.is
C 2
MIKIÐ KOLEFNI
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Reiknaðu hvað skógur bindur hratt mikið kolefni-2021.pdf 1 23.11.2021 09:09:17
Sendum íbúum Fljótsdalshrepps
og Austurlands okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur,
Þökkum ánægjuleg samskipti
á árinu sem er að líða.
Fljótsdalshreppur
Jón Pálsson er hægt og rólega
orðinn einn afkastamesti
rithöfundur á Austurlandi en hann
hefur verið búsettur á Seyðisfirði
nokkur undanfarin ár. Núna á
dögunum sendi hann frá sér sína
fimmtu skáldsögu, en hefur að auki
sent frá sér fjórar ljóðabækur.
Undanfarin ár hefur Jón einbeitt
sér að glæpasagnaskrifum en hann
hefur sent frá sér þrjár bækur í
sagnabálkinum Valdamiklir menn.
Hans nýjasta afurð nefnist hins vegar
Dýrmundur og málið með soninn
og þar tekur Jón upp þráðinn frá
sinni fyrstu skáldsögu sem nefndist
Dýrmundur og málið með veginn.
Sem fyrr er það fyrst og fremst
Dýrmundur Dýrmundsson, frá
Dýra í Dýrafirði sem lætur gamminn
geysa á síðum bókarinnar.
Óræði tíminn
Dýrmundur er nokkuð sérkennilegur
fýr, holdgervingur hins íslenska
sveitasamfélags og veikburða
tilrauna þess til að aðlagast veruleika
20. og 21. aldanna. Það er nefnilega
ekki alveg ljóst hvar Dýrmundur
er staðsettur í tíma. Á stundum
er eins og hann hafi persónulega
upplifað þjóðfélagsbreytingar upp
úr aldamótunum nítjánhundruð,
en á sama tíma glímir hann einnig
við að venjast farsímabyltingunni og
fleira sem breytt hefur tilveru okkar
síðustu tvo áratugina eða svo. Hinn
pólitíski veruleiki sem Dýrmundur
hrærist í, og sagan hverfist að
töluverðu leyti um, er hins vegar
veruleiki sem einkenndi helst síðari
hluta 20. aldar (eða hvað?).
Annars þjónar kannski ekki
miklum tilgangi að reyna að staðsetja
söguna í tíma. Annars vegar vegna
þess að höfundur leyfir sér óspart
að teygja sögusviðið aftur í tímann í
gegnum sögur af ýmsum forfeðrum
og ættmennum Dýrmundar, sem
geta þó allt eins í raun verið sami
maðurinn. Hins vegar vegna þess að
sagan er skopstæling af veruleika og
þannig saga tekur bara tíðaranda að
láni eins og henni þóknast.
Dælan gengur
Eins og fyrr segir er hér þráðurinn
tekinn upp úr fyrri bók um Dýrmund,
og er það gert svo kyrfilega að hún
byrjar á kafla 49. Nokkrum sinnum
er vísað til atburða úr fyrri bókinni,
sem getur aðeins truflað lesandann.
Sá sem hér ritar hana las fyrri bókina
þegar hún kom út, árið 2014, og það
var farið að fenna nokkuð í sporin
um atburði hennar. En þetta kemur
kannski ekki svo mjög að sök. Það
er nefnilega ærin áskorun að fylgja
Dýrmundi eftir í frásögn hans,
enda maðurinn málgefinn og veður
miskunnarlaust úr einu í annað.
Þetta er ekki missmíði af hálfu
höfundar, heldur stílbragð, og hentar
frásögninni ágætlega þó að þetta geri
svolitlar kröfur til lesandans. Besta
leiðin er að ég held að láta sig bara
berast með straumnum og þá gerir
ekkert til þó að nokkrir atburðir úr
fyrri bókinni fari fyrir ofan garð og
neðan.
Ærslafengin skemmtisaga
Að meginstefnu til held ég að
Dýrmundur og málið með soninn
verði að teljast skemmtisaga, jafnvel
ærslafengin sem slík, og það var oft
hægt að brosa yfir lestrinum og
jafnvel hlæja upphátt. En innan
um leynast líka góðir punktar, bæði
pólitískir og heimspekilegir, sem
geta vakið lesandann til umhugsunar
um ýmislegt. Og þó að Dýrmundur,
sem fulltrúi gamla tímans, verði oft
dálítið skoplegur í ljósi samtímans þá
fer ekki hjá því að samtíminn verði
stundum líka dálítið skoplegur í
meðförum og kastljósi Dýrmundar.
Það er alveg óhætt að mæla með
þessari skáldsögu Jóns Pálssonar.
Sérstaklega fyrir þá sem hafa dálítið
gaman af gamla sveitasamfélaginu,
án þess að sjá það í rósrauðum
bjarma, og fyrir þá sem hafa sæmilega
þolinmæði fyrir sögumönnum sem
láta dæluna ganga.
Stefán Bogi Sveinsson
Vitleysisgangur með vísdómi í bland
Um skáldsöguna Dýrmundur og málið með soninn eftir Jón Pálsson