Austurglugginn


Austurglugginn - 16.12.2021, Blaðsíða 23

Austurglugginn - 16.12.2021, Blaðsíða 23
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 16. desember 23 Héraðsbúar tóku vel á móti okkur meðan við reyndum að átta okkur á hvað gerðist,“ segir Aðalheiður. Sigfinnur segir að lítið hafi verið hugsað um jólahald næstu dagana og lýsir síðastliðnum jólum sem „hinum auðgleymanlegustu sem jólum“. Þau segja aðalmálið hafa verið hvort íbúum í Miðtúni yrði leyft að snúa aftur fyrir jól en dóttir þeirra, Björt, býr þar ásamt fjölskyldu. Það var leyft á Þorláksmessu og þar hélt fjölskyldan úr Múla saman jól. Fannst hún þurfa að vera í vinnunni Aðalheiður fór í frí úr vinnunni fyrst eftir skriðurnar en var samt á svæðinu, til dæmis þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar komu í heimsókn þann 22. desember. Aðalheiður tók á móti þeim í félagsheimilinu Herðubreið sem varð fjöldahjálparmiðstöð Seyðfirðinga. „Mér fannst erfiðast að þurfa að kúpla mig út. Ég var með hugann við vinnuna og fannst ég eiga að vera hér en staðreyndin er að ég varð ekki að neinu gagni.“ Alla og Siffi eru sammála um að miklu hafi skipt að Seyðisfjörður hafði sameinast inn í Múlaþing. „Ég hefði ekki viljað að við hefðum verið ein á báti, fólk eins og ég með brotna getu til að takast á við hlutina. Múlaþing stökk snarpt inn. Kortéri eftir skriðu var Hugrún komin hingað með lið til að taka til, allir aðrir starfsmenn voru settir í að útvega húsnæði. Á jóladag komu Björn og Óðinn (Gunnar Óðinsson, skrifstofustjóri) hingað og funduðu um hvernig hægt væri að halda Herðubreið opinni til að sinna fólki. Stelpurnar þar, Celia (Harrison) og Sesselja (Hlín Jónasdóttir) tóku ótrúlega vel utan um þá sem höfðu enga eldunaraðstöðu, til dæmis erlenda listamenn sem misst höfðu leiguhúsnæði og þar var matur öll jólin. Það var dásamlegt.“ Tók að ræða framtíð búsetunnar Líkt og aðrir Seyðfirðingar horfðu Aðalheiður og Sigfinnur fram á spurningar um framtíð búsetu sinnar. „Umræðan um að þessu svæði yrði lokað fyrir búsetu kom fljótt upp í samfélaginu, fólk leist ekkert á að hér yrði búið. Mér fannst spurningin um hvort við fengjum að flytja aftur í húsið eða hvort það yrði flutt erfið og var lengi sorgmædd yfir henni. Ég veit að hús er bara hús, en við erum tengd húsinu. Mér fannst heldur ekki koma til greina að færa það. Ég ætlaði annað hvort að búa hér eða fara. Maður var mjög ringlaður. Sjokkið varði í margar vikur og heilinn í mér var dofinn. Maður upplifir atvikið aftur eins og það sé raunverulega að gerast. Síðan róast maður þegar rykið sest og vinnan við enduruppbygginguna hefst. Ég fór aftur í vinnuna eftir áramótin og þá var fólk að koma til að fá aðstoð. Þá kviknuðu líka áhyggjurnar af atvinnulífinu, frystihúsinu og þeim sem höfðu misst aðstöðu og við fórum að vinna í því,“ segir Aðalheiður. Hún þurfti líka að færa vinnuaðstöðuna. Bæjarskrifstofurnar voru á lokaða svæðinu og því var komið upp bráðabirgðaaðstöðu í Herðubreið. Sorglegt um að litast á skriðusvæðinu Það var loks í febrúar, eftir langa bið, sem þau fengu að fara aftur heim í Múla. „Við vorum í gistiheimilinu Við Lónið frá í byrjun janúar. Það var mjög skrýtið, maður var óöruggur, vissi ekki hvað beið,“ segir hún. „Það var skrýtið að vera ekki heima hjá sér þótt maður væri ekki á staðnum. Það var samt ekki stórmál því við sáum alltaf hvað verið var að gera. Við vissum að það væri verið að vinna í svæðinu á fullu og að við myndum jafnvel bara flækjast fyrir,“ bætir hann við. Síðan kom að því að bæjar- skrifstofurnar voru aftur fluttar á sinn stað. „Þá þurfti ég að labba í gegnum skriðusvæðið í vinnuna. Það var sorglegt. Ég var sorgmædd yfir öllu tjóninu og hugsaði um hvað yrði um bæinn,“ segir Aðalheiður. Vont en venst að rýma Það sem af er ári hefur nokkrum sinnum verið rýmt vegna skriðuhættu. Sigfinnur og Aðalheiður voru meðal þeirra sem þurftu að vera í viku að heiman í október þegar óttast var að jarðvegsfleki við Búðarána færi af stað. „Það er sannarlega óþægilegt að þurfa að rýma en það venst,“ segir hún. „Það var búið að tala um að þetta þyrfti að gerast meðan verið væri að læra á nýju mælitækin og allt saman. Maður fylgist vel með veðurspánni,“ bætir hann við. „Það hafa komið 2-3 rigningar þar sem börnin okkar hafa viljað að við færum úr húsinu en við höfum þrjóskast við. Þá höfum við verið búin að skoða veðurspána. Þetta hljómar líka stundum verr en það er. Þegar talað var um fleka héldu allir að verið væri að tala um það sem við við köllum Afríkufleka (utan við skriðusárið hangir mikill jarðvegsfleki eins og Afríka í laginu),“ segir Alla. Aðalheiður og Sigfinnur framan við Múla. Mynd: GG Aðalheiður tekur á móti Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í Herðubreið eftir skriðurnar. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.