Austurglugginn


Austurglugginn - 16.12.2021, Qupperneq 26

Austurglugginn - 16.12.2021, Qupperneq 26
26 Fimmtudagur 16. desember AUSTUR · GLUGGINN Jólastússið hefur verið með lágstemmdara hætti nú en nokkru sinni fyrr að sögn Önnu Einarsdóttir, skólastjóra Fellaskóla í Fellabæ. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda að mestu í hefðirnar enda fólk vanafast í skólanum. Fyrsti föstudagur í aðventu hófst á söng þar sem kennarar tónlistarskólans fóru á kostum í undirleik við söng nemenda. Jólaföndur var á sínum stað og glimmeri stráð í allar áttir. Nemendur skreyttu piparkökur, perluðu skraut og föndruðu jólasveina og jólakort. Sumir glugguðu í bók en aðrir fengu útrás fyrir sköpunargleðina með allskonar efnivið. Jólabíódagur er ómissandi í desember en sú hefð er frá þeim árum þegar ekkert bíó var á Austurlandi. Þrátt fyrir annað og betra aðgengi nemenda að slíku í dag heldur Fellaskóli í þessa hefð og enginn sem vill breyta því. Útinám er hátt skrifað í skólanum og í desembermánuði var meðal annars farið í sleðaferðir og snjóaleiki hvers kyns auk þess sem farið var í gönguferðir í nágrenninu til að skoða meðal annars skreytingar og jólaljós og kanna hvaða dýr gætu verið á ferðinni á þessum árstíma. Nemendur hófu undirbúning jólanna snemma með þátttöku í Jól í skókassa verkefninu og safnaðist saman í 50 jólaskókassa fyrir fátæk börn. Anna segir að fyrir þessi jólin sé sérstaklega tekið mið af Barnasáttmálanum. „Áhersla er lögð á umhyggju og þakklæti fremur en neyslu og stress í jólaundirbúningi. Nemendur á yngsta stigi horfa á hverjum degi á SOS jóladagatalið og lesa bókina Rúnar góða og ræða saman til að skilja líf annarra betur og velta fyrir sér hvað þau geta gert til að hjálpa og gleðja aðra.“ Í tengslum við það hafa nemendur verið að klippa út myndir, taka ljósmyndir og semja sögur og ljóð fyrir gerð dagatals 2022. Áætlað er að bjóða áhugasömum að kaupa slíkt dagatal gegn frjálsu framlagi til til styrktar börnum í Malaví á vegum SOS barnaþorpanna. AE Umhyggja og þakklæti í stað stress og neyslu í Fellaskóla Útinám og útivera er stór þáttur í starf i Fellaskóla og þá ekki síður í jólamánuðinum. Innandyra í skólanum er lögð áhersla á að nemendum líði eins vel og hægt er í aðdraganda jólanna. FJARÐABYGGÐARHAFNIR Fjarðabyggðarhafnir senda viðskiptavinum sínum, íbúum Fjarðabyggðar og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökkum fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Ljósmynd: Kristín Hávarðsdóttir

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.