Austurglugginn


Austurglugginn - 16.12.2021, Page 47

Austurglugginn - 16.12.2021, Page 47
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 16. desember 47 Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ Logo tillaga fyrir SÚN, Samvinnufélag útgerðarmanna Neskaupstað Hönnun: Hanna Gyða Þráinsdóttir Svart/hvítt Miðvangi 1 ~ 700 Egilsstaðir ~ 471 1449 print@heradsprent.is ~ www.heradsprent.is HÉRAÐSPRENT SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ Pantone 7477 C senda starfsfólki sínu, viðskiptavinum og öðrum Austfirðingum hugheilar jóla- og nýárskveðjur. Þökkum samstarf og viðskipti á árinu sem er að líða. arionbanki.is Starfsfólk Arion banka Egilsstöðum Gleðilega hátíð Humarsúpa að hætti húsfrúarinnar í Stekkjartröð Hvítlaukur, paprikukrydd, humarskel, sellerí 2-4 stilkar, steinseljubúnt, stórlaukur, nokkrar gulrætur, tómatpúra í dós, 2dl hvítvín, 2-2 ½ l vatn, salt og pipar, kjúklingakraftur 2 teningar, fiskikraftur Ég brúna humarskelina þar til hún verður gullbrún. Set síðan allt í pott og sýð í 4-5 klst. Þegar soðið er tilbúið er súpan bökuð upp og humarinn settur út í og alls ekki spara rjómann. Set einnig dálítið af rifnum parmesan út í súpuna. Set síðan slettu af þeyttum rjóma rétt áður en súpan er borin fram. Hamborgarhryggur a la mamma Ca 2kg hamborgarhryggur, 750ml kók, 1 peli rjómi, 1 laukur, 3-4 gulrætur, hálfdós ananassneiðar, 1 msk paprikuduft, 1 bolli tómatsósa, síróp. Hryggurinn settur í ofnpott, kókið sett út í og 1l að vatni. Grænmetið saxað og sett í pottinn, ásamt tómatsósu og paprikudufti. Þetta er soðið í 30-40 mín, þá er hryggurinn tekinn upp úr pottinum, losaður frá beininu og síðan settur á beinið aftur. Ananas raðað á hrygginn og safanum úr dósinni hellt yfir. Því næst er sírópi hellt yfir og bakað í 12-15 mín við 200 gráður. Síðan er soðið sigtað og sósan bökuð upp. Sósan er bragðbætt með kjötkrafti og rjóma. Við notum gulræturnar og laukinn sem sigtaður er frá soðinu með sem meðlæti, sem er alveg svakalega gott. Rjúpur Byrja á því að brúna rjúpurnar í potti við lágan hita í ca 1 klst, upp úr smjöri, einiberjum, salti og pipar. Ég spara ekki einiberin, mer þau í morteli og set meira en minna af þeim í pottinn. Síðan eru rjúpurnar soðnar í um 2 klst og set ég lítið vatn í pottinn. Soðið er síðan sett í pott, ég sigta ekki soðið heldur helli því bara beint í pottinn og baka upp sósuna. Í sósuna set ég rjóma og rifsberjahlaup. Jólauppskriftir Slakað á gamlárskvöld Á gamlárskvöld hefur aðeins verið slakað í hefðunum í tengslum við aðalréttinn en þau halda sig alltaf við sama forréttinn. Það er steiktur humar upp úr smjöri og hvítlauk og léttsteikt Parmesanskinka vafin um mozzarella á spínat-beði. Það hefur verið breytilegt hvað er í aðalrétt á milli ára, léttreyktur hryggur oftast verið og hefur sjaldan klikkað. Reimar segir best að hann sé af veturgamalli kind úr Smjörfjöllum sem aldrei hefur sinnt móðurhlutverki, sé slátrað heima og pækluð og reykt af reynslumiklum bændum af Jökuldal. Á áramótunum er stundum fjölmennt í mat í Stekkjartröðinni ef við fáum vinafólk til okkar. Það er mikið skotið upp til að kveðja gamla árið. Skreytt á gamla mátann Það er ekki bara haldið í matarhefðir heldur er jólaskreytingahefð líka, en á þorláksmessu fer Reimar í að hengja upp síðasta jólaskrautið en það er loftskraut eins og var í sveitinni í gamla daga sem þá var meira í músastigastíl en við höfum uppfært það aðeins. Reimar hefur lagt sig fram við að finna skraut erlendis frá og pantað það í stórum stíl og á yfirleitt slatta á lager. AE

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.