Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Qupperneq 5

Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Qupperneq 5
Fréttamolinn Fréttamolinn Þeir eru niargir verðlaunagripirnir hennar Brvndísar. Árnað heilla 27. október s.l. gerðist sá atburður að Þórmundur Guð- mundsson á Selfossi varð áttræð- ur að aldri. Þórmundur mun hafa tekið á móti gestum í veitingahúsinu Inghól. Þór- mundur er mörgum Sunnlend- ingum góðkunnur frá því hann starfaði í bifreiðasmiðjum Kaup- félags Árnesinga á Selfossi. en þar starfaði hann um langt ára- bil. Hinn mikli hagyrðingur Grímur Ögmundsson á Syðri- Reykjum í Biskupstungum var einn af þeim fjölmenna hóp er sótt' Þórmund heim þennan dag. Bim. Fréttamolans tókst með klókindum sínum að komast yfir eftirfarandi kveðskap er Grímur kvað við þetta tækifæri, afmælis- barninu til handa: Pú munt orðinn Pórmundur, á þessum degi áttræður, þó íundu ódeigur uð áliti þinna granna. Ferðu enn ífótspor ungra manna. Létturá fæti enn þú ert, árin hafa þérlítiðgert, hvorki önd né skapið skert, né skellt þérá hálu svelli. Hefurðu lítið hopað fyrir elli. Bættirðu vélar húandmanns, burtu flæmdirraunirhans sveitavarginn Sunnanlands sviftirðu fárigrandi og lagaðir margan bíl í bágu standi. Pér vil ég þakka liðna tíð, þess ég bið að ár og síð leiki við þig lukkan blíð. Lifðu íheillagengi kæri vinur. vel og talsvert lengi. q q „Alltaf jafn spennt“ Bryndís Ólafsdóttir sundkona tekin tali á bakka sundlaugarinnar í Þorlákshöfn. Vart hefur farið framhjá nein- um að í Þorlákshöfn er mikið afreksfólk í sundíþróttum þrátt fyrir að aðeins eru fjögur ár síöan sundlaugin var tekin í notkun. Ber þar hæst þau syst- kinin, börn Olafs Guðmunds- sonar og Hrafnhildar Guð- mundsdóttur, en þau hjón voru mikið í sundíþróttum hér á árum áður og þá sérstaklega Hrafn- hildur sem mun hafa átt íslands- met í öllum sundgreinum. Mörg önnur sundefni inunu þegar hafa litið og eru að líta dagsins Ijós, en að öllu öðru sundfólki hér í Þorlákshöfn ólöstuðu, Jiá ákvað blm. að taka Bryndísi Olafsdótt- ir tali að þessu sinni, þar sem mest hefur borið á henni nú á allra síðustu misserum. Bryndís er aðeins 16 ára gömul og hefur lagt að baki fjölda íslandsmeta og unniö til fleiri verðlauna en hún hefur tölu á, eða allavega 120 eins og hún orðaði það. -Hvað varst þú gömul þegar þú byrjaðir að synda ? -Ætli ég hafi ekki verið 12 ára gömul þegar ég byrjaði, eða þegar sundlaugin kom hérna. -Varst þú strax í bernsku ákv- eðin í þvf að verða sunddrottn- ing? -Já ég held ég megi segja það að ég hafi snemma stefnt að því og þá hef ég trúlega orðið fyrir einhverjum áhrifum frá móður minni, síðan fór ég á mitt fyrsta keppnismót strax um haustið ’81 og keppti þá í meyjaflokki og kom með þrjú gullverðlaun heim, sem varð mér strax mikil hvatning. -Nú hlýtur að liggja mikil vinna á bakvið þennan mikla árangur. Verður þú ekki að dvelja langdvölum í sundlaug- inni dag hvern? -Nei ég segi það ekki, en það er misjafnt hversu mikið við æfum og það fer eftir því hvaða mót eru framundan hverju sinni, en við syndum allt frá tveimur og upp í tólf kílómetra á dag núorð- ið. Það má segja að við höfum byrjað á sundæfingum í litlum mæli árið '82 en ekkert í líkingu við það sem nú er. Eftir það fór ég að sækja unglingameistaramót, þessi minnstu sem eru haldin, en ’83 má segja að þetta hafi farið að breytast þannig að ég gat farið að taka þátt í stórum mótum og þá um sumarið fékk ég að taka þátt í utanhússmeistaramóti Is- lands sem, allir gátu tekið þátt í og ekki var bundið við aldurs- hópa. Þá varð ég nr. þrjú í 100 m skriðsundi og nr. 3 í bak- og flugsundi. Þannig að mér gekk afskaplega vel þrátt fyrir mjög litlar æfingar. En um veturinn ’83-’84 gekk allt eins og í sögu. Ég bætti mig og bætti, nær tak- markalaust og var alltaf að setja met, og mér er óhætt að segja að ég hafi ekki haft mikið fyrir því, ég æfði tiltölulega lítið miðað við aðra og eftir þetta fór eðli- lega að vera mjög gaman hjá mér þar sem maður sá alltaf fram á bættan árangur. Sumarið ’84 gekk mjög vel, þá fór ég tvisvar sinnum í keppn- isferðir út, fyrst á árlega Kalott- keppni til Svíþjóðar, síðan fór ég á Evrópumeistaramót ung- linga en gekk ekki vel, þar sem ég var reynslulaus og alls óvön að taka þátt í svona stórmótum. Núna á þessu ári er ég búin að fara fjórum sinnum í keppnis- ferðir erlendis, fyrst á litlu Ólym- píuleikaria sem haldnir voru á Ítalíu. þar gekk mér vel og setji þar eitt íslandsmet. Viku seinna fórum við Magnús bróðir til ír- lands með landsliðinu og keppt- um þar við íra. Síðan fórum við Magnús til Búlgaríu nú í ágúst á Evrópumeistaramót. Þaðan kom ég með tvö íslandsmet úr þremur sundum. Núna er ég nýkomin frá Nor- egi þar sem haldið var unglinga- meistaramót Norðurlanda og kom með eitt íslandsmet. —Nú ert þú orðin þrælvön að keppa í sundi bæði á stórum og smáum mötum, ert þú laus við alla spennu? -Nei, aldeilis ekki og þá sér- staklega þegar um stórmót er að ræða þá er manni farið að kvíða fyrir löngu áður en það hefst og er svo með í maganum allan tíman sem það stendur. Það hefur komið fyrir að ég hef fundið fyrir algeru máttleysi þeg- ar sundið er að hefjast, en það hefur síðan horfið eftir fyrstu sundtökin. -Hvað hefur þú átt mörg ís- landsmet og hversu mörg standa nú í dag? -Á síðastliðnum tveimur árum hef ég sett 15 met en í dag standa hjá mér 7 íslandsmet. -Stefnir þú ekki að heimsmeti næst? -Nei, ég stefni ekki að öðru en að taka þátt í stórmótum. -Hefur þú einhverja skýringu á því að þið systkinin skulið öll hafa svona mikla sundhæfileika, geturþetta verið ættgengt ? -Ég get nú ekki sagt til um það, en ég veit að byggingarlag sundmanna skiptir mjög miklu máli. -Hefur þú einhver önnur áhugamál en sundiðkun ? —Jú, ég hef alltaf haft gaman af hestum og var mikið í hesta- mennskunni hér áður. Skíðin falla mér einnig vel í geð og hef ég reynt að grípa þau tækifæri sem hafa gefist í snjóinn. -Finnst þér sundið ekki taka mikinn tíma frá þér þannig að þú missir kannski af félagsskap skólasystkina og farir á mis við ýmsa hluti þar sem þú sækir nám í Fjölbrautaskólanum á Selfossi, keyrir á milli og hefur þar af leiðandi langan vinnudag fyrir svo utan sundæfingar á hverjum degi aldrei minna en einn og hálfan tíma á dag? -Nei mér finnst ég ekki missa af svo miklu þar sem ég hef eignast marga góða kunningja í gegnum sundið sem þó eru marg- ir hverjir mínir hörðustu keppi- nautar. Við eigum sameiginlegt heilbrigt og skemmtilegt áhuga- mál sem okkur finnst öllum ánægjulegt að eyða okkar frí- stundum í. -Að lokum Bryndís, hefur þú einhver framtíðaráform ? -Já, ég var ekki há í loftinu þegar ég ákvað að verða ljós- móðir og þau áform eru enn óbreytt. sagði Bryndís að lokum og ákveðnin skín úr andliti hennar. Þrátt fyrir ungan aldur fer hér greinilega stúlka sem veit hvað hún vill. Sundfréttir Nú eru komin hér úrslit sem sagt var frá í síðasta blaði eða unglingamóti HSK sem haldið v^tr á Selfossi 27. okt. 1 Ungmennafélag Bolungarvík- ur hélt innanfélagsmót í Sund- höll Hafnarfjarðar 11. nóvember og þar syntu nokkrir hressir krakkar frá Þór. Unglingameistaramót íslands var haldið í Sundhöll Reykjavík- ur 22.-24. nóvember. Þar kom- ust þrír unglingar frá Þór í gegn um nálaraugað í úrslitin. 200 m flugsund: 2. Bryndís Ólafsdóttir ...........2:37,1 100 m baksund stúlkna: 1. Bryndís Ólafsdóttir ...........1:13,0 3. Hugrún Ólafsdóttir ............1:14,4 100 m flugsund stúlkna: 1. Bryndís Ólafsdóttir .....1:08.4 2. Hugrún Ólafsdóttir .....1:08.8 100 m skriðsund stiilkna: 1. Bryndís Ólafsdóttir ..... 0:59,12 íslandsmet 3. Hugrún Ólafsdóttir ... 1:02,09 Piltasveit 4x50 m fjórs........2:58,13 Piltasveit 4x50 m skriðs.......2:36,95 Stúlknasv. 4x50 m skriðs.......2:12.47 Stúlknasv. 4x50 m fjórs........2:24.74 Bryndís og Hugrún tóku þátt í cinstaklingssundunum en nú tókum við þátt í boðsundum eftir langt hlé. Bryndís, Hugrún, Jóhanna og Harpa voru í stúlknasveitunum, en Einar, Arnar Freyr, Þorvald- ur Jóhann, Sigursteinn og Eggert tóku þátt í piltaboðsundunum. Því miður voru ekki nærri allar sundhetjurnar í lauginni er blni. bar að garöi. Þau heita f.v.: Bryndís, Guðhjörg, Magnús, llugnin, Guðniundur, Arnar, Harpa, Ágúst Örn og Eggert.

x

Fréttamolinn : óháð fréttablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttamolinn : óháð fréttablað
https://timarit.is/publication/1719

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.