Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Side 7

Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Side 7
Fréttamolinn Fréttamolinn Skálað fyrir ísverksmiðjunni Nvja ísverksmiðjan í Þorlákshöfn á vígsludaginn. Eins og sjá niá varö engin truflun á afgreiöslu þó vígsluathöfnin stæöi sem hæst. Stokkseyrarbíll fær ís yfír síldarfarm. Laugardaginn 23. nóv. var formlega tekin í notkun ný ís- verksmiðja í Þorlákshöfn sem er í eigu ísfélags Þoriákshafnar hf. Almenningshlutafélag í eigu 40 -einstaklinga og fyrirtækja í Þor- lákshöfn. Stokkseyri, Eyrar- bakka og víðar. Athöfnin fór fram í verk- smiðjuhúsinu og hófst með því að Hallgrímur Sigurðsson stjórn- arformaður ísfélagsins bauð boðsgesti velkomna. í ávarpinu lýsti hann verksmiðjunni, að- draganda að stofnun hennar og tilgangi með rekstri hennar. Að því loknu bað hann Pál Þórðar- son, einn af fyrstu íbúum Þor- lákshafnar, að gangsetja vélar verksmiðjunnar. ísverksmiðjan er sömu gerðar og sú sem starfrækt er í Grinda- vík, aðeins einni vélasamstæðu minni. Verksmiðjan er búin vélasamstæðum sem afkasta 60 tonnum af ís á sólarhring. Mögu- leiki er á að bæta einni vélasam- stæðu við og auka þannig afköst- in upp í 90 tonn á sólarhring, ef þörf krefur. Geymsluklefinn rúmar 500 tonn. Allar vélar og búnaður er frá Páll Þórðarson, einn af fyrstu íbúum Þorlákshafnar gangsetur verksmiðjuna. Hallgrímur Sigurðsson stjórn- arformaður ísfélagsins flutti setningarávarp. FINSAM og einn sá fullkontn- asti sem völ er á. Starfsmenn verksmiðjunnar verða aðeins tveir og kemur það til af mikilli sjálfvirkni, bæði til vinnslu og afgreiðslu. Vigtun íssins ferfram um leið og hann er afgreiddur. Verksmiðjuhúsið er einnig frá FINSAM og kom tilbúið til uppsetningar. Byggingartími verksmiðjunnar er búinn að vera stuttur sem sést best á því að framkvæmdir við grunn verk- smiðjunnar hófust í maí s.l. ísnum er blásið beint unr borð í veiðiskipin um 90 m leið, en afgreiðslustaður er í viðlegu- plássi Herjólfs. Seinna meir er svo fyrirhugaður viðlegukanntur og afgreiðsla fyrir framan verk- smiðjuna. Einnig er hægt að afgreiða ísinn beint á vörubíla. Þessi afgreiðslumáti er til mikilla þæginda fyrir sjómenn og útgerðarmenn. Miklu fljót- legra er að ísa skipin, við það þarf miklu færri menn en með gamla laginu, fyrir utan það að spara kostnað við vörubíla. Gangsetningu verksmiðjunn- ar hefur verið beðið með mikilli óþreyju af flestum þeim sem stunda útgerð og fiskkvinnslu hér í Þorlákshöfn, en með til- komu hennar hefur leystst úr því ófremdarástandi sem verið hefur í ísmáluin, en mikill ís- skortur hefur verið hér á staðn- um veggna ónógs framboðs og hefur þurft að sækja ís langt að. Ekki hefur það bætt úr skák að ísframleiðsla hjá Meitlinum, eina ísframleiðandanum fram til þessa hefur legið niðri um nokk- urt skeið vegna bilunar. Stjórn verksmiðjunnar skipa: Hallgrímur Sigurðsson, stjórn- arformaður, Hannes Sigurðs- son, Hafsteinn Ásgeirsson, Þor- leifur Björgvinsson og Einar Páll Bjarnason. Til vara eru: Sigurð- ur Bjarnason, Jóhann Jóhanns- son og Einar Sigurðsson. Endanlegur kostnaður við verksmiðjuna er um 25 milljónir króna. Til gamans má geta þess að ekki þarf að auka verðmæti sjávarafla sem barst á land í Þorlákshöfn á síðasta ári nema unt 5%, til að vera kominn í verð verksmiðjunnar. Alls ekki er óraunhæft að aukin ísnotkun fylgi nægu framboði, og afla- verðmæti aukist að sama skapi vegna betri ísunar aflans. Meðfylgjandi myndir voru teknar í vígsluhófinu. Guðinundur Friðriksson í Hafnarnesi og Kristján Andrés- son hafnarstjóri. Meðal gesta voru þingmennirnir Árni Johnsen og Þorsteinn . ilsson. Þeir Sigurður Sigurðsson og Guðmundur Friðriksson ræða málin við einn stjórnarniann ísfélagsins, Hannes Sigurðsson útgerðar og stórkaupmann. Bjarni Jóhannsson Eyrarbakka lengst til hægri. Eggert Haukdal þingmaður leggur þeim Bóa á Höfrungi og Sverri Sigurjónssyni byggingarfulltrúa línurnar. Eftir að hófínu lauk var þeim vegalausu ekið heim í boði Strætisvagna Þorlákshafnar.

x

Fréttamolinn : óháð fréttablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttamolinn : óháð fréttablað
https://timarit.is/publication/1719

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.