Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Side 25
Fréttamolinn
Fréttamolinn
FM
Böðvar Pálson skrifar:
Fréttir úr Grímsnesi
Á síðast liðnu sumri lét Guðni
J. Guðbjartsson af störfum sem
stöðvarstjóri rafstöðvanna við
Sog fyrir aldurs sakir.
Guðni starfaði rúm 40 ár á
þessum stað, fyrst sem vélstjóri
við Ljósafossstöðina, þá yfirvél-
stjóri og að síðustu sem stöðvar-
stjóri allra stöðvanna þriggja við
Sog.
Hann var röggsamur stjórn-
andi og lagði áherslu á snyrtilega
og góða umgengni við stöðvarn-
ar. Jafnframt var Guðni slökkvi-
stjóri í 20 ár í Grímsnesi, Grafn-
ingi og Þingvallasveit.
Hann var áhugamaður um
slysavarnir og aðalhvatamaður
að stofnun björgunarsveitar í
Ljósafossskólahéraði um 1950.
t>á var hann formaður sund-
lauganefndar við Ljósafosslaug
síðustu árin auk fleiri starfa.
Við sveitungar hans sendum
honum þakkir fyrir samfylgdina
og óskum honum og fjölskyldu
hans alls góðs á komandi árum.
Við starfi Guðna tók Jón
Sandholt yfirverkstjóri.
Fréttir af Ásgarðs-
málum
Pað þótti nokkrum tíðindum
sæta þegar Grímsneshreppur
ákvað að nota sér forkaupsrétt
að jörðinpi Ásgarði, samkvæmt
dómi hæstaréttar frá 6. júlí 1984.
Hreppsnefndin hafði 4ra
vikna frest til þess að fjármagna
jarðarverðið kr. 15.136.500.- og
það tókst.
Þá var það næsta verkefnið að
greiða skuldirnar og að hluta var
dæmið fjármagnað með fyrir-
fram greiddri veiðileigu og einn-
ig með því að skipuleggja 50
hektara lands undir sumarhús.
Þetta hefur gengið vel og var
mikil eftirspurn eftir landi síðast-
liðið sumar og hygg ég að Gríms-
neshreppur eigi þessa kosta-
miklu jörð skuldlausa mitt um
næsta ár.
Enn er þó deilt um andvirði
jarðarinnar. Lögerfingjar fyrr-
verandi eigenda fóru í mál og
kröfðust peninganna, þar sem
ósk arfláta hafði ekki náð fram
að ganga þ.e.a.s. skógrækt ríkis-
ins og Hjartavernd, sem átti að
fá jörðina samkvæmt erfðaskrá.
í héraði féll dómur á þá leið að
Iögerfingjar ættu peningana. Var
máli vísað til hæstaréttar og er
dómur ekki fallin þar.
Hvernig svo sem dómur fellur
í Hæstarétti, þá gengur Héraðs-
dómur ekki gegn okkar siðgæðis-
vitund.
Við gerum ekki greinarmun á
dætndu matsverði annnars vegar
og fasteign hins vegar og finnst
því eðlilegt að Skógrækt ríkisins
og Hjartavernd njóti ardvirðis
jarðarinnar.
Haustveðrið hefur verið gott
hér í Grímsnesi líkt og á öðrum
stöðum Suðvesturlands. Þó
gerði áhlaup 2. nóvember, sem
var með því harðara er gerist og
urðu fjárskaðar á nokkrum bæj-
um hér í sveit. Fé var ekki komið
á hús og hrakti það að lækjum
sem bólgnuðu upp og lenti það í
krapa og króknaði, einnig fennti
fé og drapst af þeim sökum.
Þá gekk annað hvassviðri af
suðri hér yfir um miðjan mánuð-
inn og fauk þá hesthús út í veður
og vind, sem leitarmenn nota við
Böðvar
Pálsson.
Gatfell, sem er náttstaður suð-
vestan við Skjaldbreið.
Þá hefur kvenfélagið staðið
fyrir tveim hópferðum til
Á tímabilinu 1.-15. október
síðastliðinn var haldið svokallað
Norrænt skólahlaup í grunnskól-
um allra Norðurlandanna. Með-
al þeirra er ísland og þar á landi
bær einn sem nefnist Þor-
lákshöfn. Hann þekkjum við öll,
enda búsett þar.
10. okt. s.l., á sólríkum góð-
viðrisdegi, var ákveðið að hlaup-
ið skyldi við Grunnskólann í
Þorlákshöfn. Hlaupið fór þannig
fram að nemendur og kennarar
hlupu ákveðna vegalengd, allt
frá 2,5 km að 10 km. Hverjum
og einum var í sjálfsvald sett
hversu langt skyldi hlaupið. Al-
gengast var að þátttakendur létu
5 km nægja Þó lentu sumir í
vandræðum með að stoppa sig
Þá langar mig að geta þeirra
einstaklinga sem voru næstum
óstöðvandi eða lentu í vandræð-
um á hlaupabremsunni eftir 10
km. hlaup, en þeir eru:
Aðalsteinn Jóhannsson . . 12,5
Þórarinn G. Einarsson . . 12,5
Jóhann Grétarsson.......12,5
Sigmundur K. Kristjánss. . 15,0
Ágúst Örn Grétarsson . 15,0
Björn Þór Gunnarsson .. 15,0
Kolbrún Rut Pálmadóttir . 15,0
Einar Örn Davíðsson . . . 20,0
Arnar Freyr Ólafsson . . . 20,0
Að endingu vil ég benda á að
innan Þorlákshafnar er margt
Reykjavíkur bæði á Amadeus
og Grímudansleik. Einnig hefur
kvenfélagið gengist fyrir fjöl-
skylduskemmtun sem er orðin
árlegur viðburður, þar sem
aldurshópar frá allra yngstu
bekkjum grunnskóla til aldraðra
Bakkabræðra leggja til skemmti-
efni. Þessi skemmtun var 30.
nóvember og sóttu hana um 150
manns eóa rúmur helmingur
íbúa sveitarfélagsins.
Sunnudaginn 1. des. vígði fél-
agsmálaráðherra Alexander
Stefánsson nýtt heinmili fyrir 8
vistmenn að Sólheimum í
Grímsnesi. Á neðri hæð verður
rými fyrir 4 starfsmannaíbúðir.
Byggingaframkvæmdir ann-
aðist Samtak hf. á Selfossi og
varð ekki annað séð en vel hafi
til tekist.
Heimilinu bárust margar góð-
ar gjafir frá velunnurum. Um 40
vistmenn eru nú á Sólheimum.
Margt gesta var viðstatt athöfn-
ina.
og gátu bremsuförin að loknu 10
km hlaupi orðið allt að 10 km
þannig að samanlagt náði hlaup-
ið allt að 20 km.
Þátttaka nemenda var mjög
góð en fyrirmyndirnar (kennar-
arnir) mættu bæta sig. Aðeins
einn kennari „hljóp“ og lagði
hann 2,5 km að baki.
Samtals voru það 178 einstakl-
ingar sem lögðu saman krafta
sína í þessu átaki og skiluðu
samanlagt 1.075 km, eða rúm-
lega 6 km á mann, nokkuð gott
og þakkir til þeirra sem lögðu
hönd á plóginn.
Rétt þykir mér að birta helstu
tölur um þátttöku og samanlagð-
an km fjölda innan bekkjardcild-
anna. Þærcru:
efnið sem myndi spjara sig utan
bæjarmarkanna með því að
stunda íþróttir af áhuga og alúð.
Mörg þeirra eru tilbúin til þess
en vantar oft aukna hvatningu
frá réttum aðilum.
Norræna skólahlaupið er ekki
til að draga fólk í diika, heldur
fyrst og fremst að sýna fram á að
heilbrigð sál búi í hraustum lík-
ama og að íþróttir, hvaða nafni
sem þær nefnast eru ekki
einkamál þeirra „bestu" heldur
sameign okkar allra.
IVfeð íþróttakveöju:
Ólafur Árni Traustason.
Norræna
skólahlaupið ’85
Bekkur.............................................Fjöldi km
6 ára..................................................15 40
l.b..................................................21 102.5
2.0................................................... 16 100
3. b...................................................21 160
4. b...................................................23 165
5. b.................................................. 18 115
6. b.................................................17 152,5
7. b...................................................20 105
S.b................................................... 17 70
9.b....................................................12 70
Kennarar............................................. 1 2.5
Jólastjörnuspá FM
Hrúturinn:
í þessari viku er upplagt að gera allt það sem þú
hefur trassað undanfarið. sláðu blettinn og málaðu
vindskeiðarnar. Það bætir.
Nautið:
Þér hættir til að láta undirbúning jólanna varpa
skugga á sjálfa hátíðina, skaraðu toppseglið og sláðu
af. Þetta reddast allt saman.
Tvíburarnir:
Fjárhagsáhyggjur eru að sliga þig. Settu stóra
skóinn hans föður þíns útí glugga og sjáðu hvað ,
skeður. Heillatala er 47.
Krabbinn:
Þú verður að splæsa í nýtt jólatré, það gengur ekki
að nota þetta þriggja ára gamla íslenska grenitré ein
jólin enn.
Ljónið:
Hafðu nú eitthvað annað í jólamatinn en kalda ýsu
með heitu hangifloti og frönskum, börnin hafa
gaman af smá tilbreytingu.
Mærin:
Ef þú ætlar að storma á jólaböllin, þá skaltu
heimsækja kaupmanninn á horninu og splæsa í nýja
sokka. Þetta gengur ekki.
Vogin:
Ekki blaðra um vandamál þin um allan bæ, það
kemur þér bara í koll síðar. Það eru nú ekki margir á
þínum aldri sem trúa á jólasveininn.
Drekinn:
Jólaskapið virðist víðs fjarri þessa dagana, enda
pyngjan létt. Þyngdu hana með smá næturvinnu
(seldu myndsegulbandið) og jólin eru í höfn.
Bogmaðurinn:
Það pakkar enginn jólapökkum í gömul dagblöð.
Kjarnfóðurgjaldið var nú ekki svona slæmt, eða
hvað?
Steingeitin:
Nú liggurðu í því, allt jólaölið er komið á
yfirgerjun og engu hægt að bjarga. En jólin eru nú
hátíð barnanna, ha?
Vatnsberinn:
Gleymdu ekki að ákveða áramótaheitið tímanlega
og stattu við það, þú klikkaðir síðast manstu (klaustur
í Tíbet og allt það). Stattu þig félagi.
Fiskarnir:
Farðu mjög varlega um þessi áramót, flugeldar eru
hættuspil. Mannstu hvað skeði síðast, ha? láttu þér
nægja tvö stjörnuljós og eina rokeldspýtu í þetta
skiptið.