Skessuhorn - 28.09.2022, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 39. tbl. 25. árg. 28. september 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Opið
alla
daga
ársins
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Þinn árangur
Arion
Hallarbylting í
Alþýðusambandinu
Nú hefur hópur forystufólks í
verkalýðshreyfingunni boðað
framboð til forystu í Alþýðu-
sambandi Íslands á ársþingi sam-
bandsins sem fram fer 10.-12.
október nk. Æðsta vald í mál-
efnum ASÍ er í höndum ársþinga
hverju sinni, sem haldin eru á
tveggja ára fresti. Hvert aðildar-
félag á rétt á að senda a.m.k. einn
fulltrúa á þing sambandsins en þar
eiga um þrjú hundruð fulltrúar
launafólks af öllu landinu setu-
rétt og móta heildarsamtökunum
stefnu og starfsáætlun, ásamt því
að velja samtökunum forystu.
Ný forysta ASÍ verður kosin á
þessu ársþingi. Síðla sumars sagði
Drífa Snædal af sér embætti for-
seta ASÍ og sagði ástæðuna vera
árásir frá og ágreining við annað
forystufólk innan hreyfingar-
innar. Við brottfall hennar 11.
ágúst síðastliðinn tók Kristján
Þórður Snæbjarnarson, formaður
Rafiðnaðarsambands Íslands,
tímabundið við starfinu og gegnir
því fram að þinginu í október.
Nýverið sagði Halla Gunnars-
dóttir framkvæmdastjóri ASÍ af
sér og kveðst í viðtölum í fjöl-
miðlum ástæðuna þá að hún hafi
verið ráðin af Drífu til að fylgja
eftir stefnu hennar. Nú horfi
annar og breyttur veruleiki við.
Djúpstæður klofningur hefur
verið um fólk og stefnur innan
ASÍ og viðbúið að þingið í næsta
mánuði verði átakasamt, ekki
síst í ljósi þess að framundan eru
kjarasamningar á hinum almenna
markaði. Nú liggur fyrir að
Ragnar Þór Ingólfsson formaður
VR boðar framboð til forseta ASÍ,
en ekki liggur fyrir hvort hann
fái mótframboð. Kristján Þórður
gefur kost á sér í embætti 1. vara-
forseta, Sólveig Anna Jónsdóttir
formaður Eflingar í embætti 2.
varaforseta og Vilhjálmur Birgis-
son formaður VLFA og formaður
Starfsgreinasambandsins býður
sig fram í starf 3. varaforseta.
Líklegt verður að teljast að fleiri
framboð berist í forystu stærstu
launþegahreyfingar landsmanna.
mm
Mokveiði í dragnót
Dragnótarbáturinn Steinunn SH
frá Ólafsvík lenti heldur betur í
mokveiði rétt undan Ólafsvík á
sunnudaginn. Köstuðu skipverjar
dragnótinni aðeins þrisvar sinnum
og var aflinn í þessum köstum yfir
63 tonn. Að sögn skipverja eru þeir
þó ekki óvanir svona aflabrögðum.
„Það er nóg af þorski í sjónum og
mikið af sandsíli sem fiskurinn sæk-
ist í,“ sögðu þeir á bryggjunni í sam-
tali við fréttaritara. Meðalverð á
þorski þennan dag var í kringum 480
krónur svo þetta var góður dagur,
sögðu þeir Sumarliði Kristmunds-
son og Ingólfur Aðalsteinsson.
Einnig fór dragnótarbáturinn
Esjar SH frá Rifi á sjó um hádegið
og landaði í tvígang sama daginn,
alls tæplega 40 tonnum. Fyrri túr-
inn gaf 21 tonn og eftir löndun var
haldið aftur á veiðar og skilaði seinni
túrinn tæplega 19 tonnum. Mjög
stutt var á miðin. af
Frá löndun úr Steinunni SH á sunnudaginn. Kristmundur Sumarliðason og Ingólfur Aðalsteinsson hampa vænum fiski. Ljósm. af.