Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 6
Vaxtaaðgerðir Seðla-
bankans eru verri en
verðbólgan sjálf.
Ásthildur Lóa
Þórsdóttir,
þingmaður
Nú tökum við Cyber Monday með trompi og bjóðum 25%
afslátt af öllum námskeiðum sem pöntuð eru og greidd
mánudaginn 28. nóvember á dale.is.
Tilboðið gildir líka af gjafakortum sem hægt er að velja fyrir
hvaða upphæð sem er. Ath. hægt er að nota frístundastyrkir og
niðurgreiðslur frá starfsmenntasjóðum.
Tækifærin bíða þín
MONDAY
25% AFSLÁTTURCYBER
25% afsláttur gildir aðeins
mánudaginn 28. nóv.
á dale.is
Ljósaganga fer fram kl. 17 í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
lovisa@frettabladid.is
MANNRÉT TINDI Ljósaganga UN
Women fer fram klukkan 17 í dag
á Alþjóðlegum baráttudegi Sam-
einuðu þjóðanna gegn kynbundnu
of beldi. Dagurinn markar upphaf
16 daga átaks gegn kynbundnu
of beldi, sem UN Women á Íslandi
er í forsvari fyrir ásamt fjölda ann-
arra öf lugra félagasamtaka hér á
landi. Gangan hefur ekki farið fram
síðustu tvö ár vegna Covid-19 tak-
markana.
Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er
Konur, líf, frelsi, sem er jafnframt
slagorð mótmælanna sem hafa
staðið yfir í Íran í rúma þrjá mán-
uði. Zahra Mesbah frá Afganistan
og Zohreh Aria frá Íran munu leiða
gönguna í ár og jafnframt segja
nokkur orð áður en gangan hefst.
Hið alþjóðlega 16 daga átak gegn
kynbundnu of beldi beinir kast-
ljósinu í ár að kvenmorðum en
samkvæmt tölum UN Women voru
81.100 konur myrtar árið 2021 um
allan heim. Þar af voru um 45.000
þeirra myrtar af eiginmanni sínum,
sambýlismanni, unnusta eða
öðrum nátengdum karlmönnum.
Þetta samsvarar því að kona sé myrt
á heimili sínu á 11 mínútna fresti.
Gangan hefst klukkan 17.00 á
Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnar-
sonar og gengið verður suður Lækj-
argötu og upp Amtmannsstíg að
Bríetartorgi. Harpa verður lýst upp
í appelsínugulum lit. Á Bríetartorgi
verður síðan boðið upp á heitt kakó
og Gradualekór Langholtskirkju
mun flytja nokkur lög. n
Konur frá Íran og Afganistan leiða Ljósagönguna
87 voru sektaðir á höfuðborgar-
svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kristinnhaukur@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL 116 einstaklingar
hafa verið sektaðir fyrir að nota
nagladekk utan leyfilegs tíma á
þessu ári. Þetta er langtum meira
en sektað hefur verið undanfarin ár.
Flestar sektirnar hafa verið gefnar
út á höfuðborgarsvæðinu, alls 87.
Ekki er heimilt að nota nagla-
dekk frá 15. apríl til 31. október en
lögreglan hefur sýnt sveigjanleika
í ljósi veðurfars í einstaka tilvikum.
Í svari Jóns Gunnarssonar dóms-
málaráðherra við fyrirspurn Andr-
ésar Inga Jónssonar, þingmanns
Pírata, kemur fram að 346 hafi verið
sektaðir vegna nagladekkjanotk-
unar á undanförnum fimm árum.
53 árið 2018, 91 árið 2019, 40 árið
2020 og 46 árið 2021. n
Lögreglan sektar
sem aldrei fyrr
jonthor@frettabladid
LÖGREGLUMÁL Búið er að staðfesta
áframhaldandi tveggja vikna gæslu-
varðhald yfir báðum mönnunum í
hryðjuverkamálinu. Þeir hafa nú
setið í varðhaldi í samtals níu vikur.
Hámarkið er tólf vikur.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmað-
ur annars mannsins, hyggst kæra
úrskurðinn til Landsréttar.
Einar Oddur Sigurðsson, lög-
maður hins mannsins, segir héraðs-
saksóknara telja tvær vikur til við-
bótar vera nægan tíma til að ganga
frá rannsókninni og ákveða með
útgáfu ákæru. n
Gæsluvarðhald
framlengt á ný
Sveinn Andri
Sveinsson, lög-
maður
Þingmaður segir að Seðla-
bankinn hagi sér eins og
ríki í ríkinu. Auknar líkur á
skammtíma kjarasamningi.
Katrín sögð klók að hafa
boðað til fundar í gær.
bth@frettabladid.is
KJARAMÁL Forystufólk verkafólks
ræddi í gær með baklandi sínu
hugmyndir um kjarasamninga til
skamms tíma fremur en að slíta
viðræðum. Vaxtahækkun Seðla-
bankans hefur hlotið alhliða for-
dæmingu.
Í húsakynnum ríkissáttasemjara
var fundað stíft í gær. Stefnt hafði
verið að því að ljúka fundinum
klukkan 18 en þegar Fréttablaðið
fór í prentun í gær stóðu fundarhöld
enn þá yfir. „Það er enn þá samtal í
gangi,“ sagði Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, forseti ASÍ, þegar klukk-
an var gengin í 21.
Sagði hann ekki augljóst hversu
lengi yrði setið við en verið væri að
fara yfir kostina í stöðunni. „Það
er erfitt að meta hvort líkur séu
á skammtímasamningi á þessari
stundu,“ sagði hann.
Gærdagurinn hófst með því að
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra boðaði helstu viðsemjendur
með skömmum fyrirvara á sinn
fund í Stjórnarráðinu. Það var að
sögn Halldórs Benjamíns Þor-
bergssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins, klókt skref
hjá forsætisráðherra. Miklu varði að
stjórnvöld leggi sitt lóð á vogar-
skálar vegna krísunnar sem upp er
komin.
Katrín bauð þó ekki upp á neinar
töfralausnir og hún vildi ekki leggja
mat á ákvörðun Seðlabankans.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir að skoðanir séu skiptar um
hvort slíta eigi viðræðum eða reyna
til þrautar að semja.
„Ég get lofað þér því að mínir
félagsmenn á lágstrípuðum töxtum
eru ekki með sínar tær á Tenerife,“
sagði Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness.
Halldór Benjamín segir að
ákvörðun Seðlabankans sé mikill
afleikur sem muni hafa alvarlegar
afleiðingar að óbreyttu. Málið snú-
ist um traust og orðheldni.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þing-
maður Flokks fólksins, sem situr í
efnahags- og viðskiptanefnd segist
ætla að reyna að taka málið upp í
nefndinni. „Vaxtaaðgerðir Seðla-
bankans eru verri en verðbólgan
sjálf,“ segir hún.
Þingkonan vísar í því samhengi
til þess að mánaðarleg útgjöld
fjögurra manna fjölskyldu höfðu
í júní síðastliðnum hækkað um
82.000 krónur á einu ári. Af því voru
15.000 krónur vegna hækkunar á
matvælum og eldsneyti á meðan
mánaðarlegar vaxtagreiðslur af 40
milljóna króna óverðtryggðu láni
höfðu hækkað um 67.000 krónur
Síðan hefur Seðlabankinn enn
hækkað vexti þannig að vaxtabyrði
sömu fjölskyldu óx á einu bretti um
33.333 krónur og fór upp í 100.000
krónur.
„Ég vil taka þetta mál upp, en
svörin hér á þingi hafa jafnan verið:
Seðlabankinn ræður,“ segir Ást-
hildur Lóa.
„Seðlabankinn er eins og ríki í
ríkinu.“ n
Vaxtahækkanir Seðlabankans sagðar
mun meira mein en verðbólguáhrif
Aðalsteinn
Leifsson ríkis-
sáttasemjari
reynir að leysa
hnútinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
4 Fréttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ