Fréttablaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 34
152
Fjöldi brota sem
Maradona fiskaði á
fjórum Heimsmeist-
aramótum.
12
Gulu spjöldin sem
andstæðingar Mara-
dona fengu fyrir að
brjóta á honum á
HM.
5
Mörkin sem Mara-
dona skoraði á HM
1986.
53
Skiptin sem Mara-
dona sólaði andstæð-
inga sína á HM 1986.
21
Fjöldi leikja sem
hann spilaði á Heims-
meistaramótinu.
1
Fjöldi af rauðum
spjöldum sem Mara-
dona fékk á HM.
7
Fjöldi aukaspyrna
sem hann fiskaði að
meðaltali í leik á HM.
30
Fjöldi skota sem
hann átti að marki á
HM 1986.
5
Mörkin sem hann
lagði upp á HM 1986.
51
Metrarnir sem Mara-
dona fór með boltann
til að skora seinna
markið gegn Eng-
landi árið 1986.
8
Fjöldi marka sem
Maradona skoraði
í heildina á Heims-
meistaramótunum.
Diego Maradona lést á
þessum degi fyrir tveimur
árum, aðeins sextugur að
aldri. Maradona er í margra
augum besti knattspyrnu-
maður sögunnar. Hann var
hluti af liði Argentínu sem
vann Heimsmeistaramótið
árið 1986 en síðan þá hefur
argentínska þjóðin ekki upp-
lifað slíkt augnablik aftur.
hoddi@frettabladid.is
Fótbolti Eftir erfið ár hjá Diego
Armando Maradona lést hann á
heimili sínu í Búenos Aíres þann
25. nóvember árið 2020. Þjóðar-
sorg ríkti í Argentínu, enda var og
er Maradona guð í augum fólks þar
í landi. Hann færði fólkinu sem lifir
fyrir fótbolta heimsmeistaratitil-
inn árið 1986. Maradona tók þátt
í fjórum heimsmeistarakeppnum
en sú síðasta var árið 1994. Mara-
dona var þá rekinn heim af HM í
Bandaríkjunum eftir að ólögleg
efni fundust í blóði hans.
Maradona tók þátt í sínu fyrsta
Heimsmeistaramóti árið 1982, þá
aðeins 21 árs gamall, og hann lauk
keppni á HM 33 ára. Maradona
lék 91 landsleik fyrir Argentínu en
fjórðungur þeirra var í lokakeppni
stórmótsins sem alla dreymir um
að spila á.
Maradona lék í heildina 21 leik
á lokamóti HM, en Lionel Messi
getur jafnað það met um helgina,
en hann lék sinn 20. landsleik á HM
í óvæntu tapi gegn Sádí-Arabíu á
þriðjudag.
Tók yfir sviðið 1986:
Maradona varð að stærstu stjörnu
fótboltans árið 1986 þegar hann
var allt í öllu í sigri Argentínu.
Hann kom að tíu mörkum í mót-
inu, skoraði fimm og lagði upp
fimm fyrir samherja sína. Allt
þetta gerði Maradona í aðeins sjö
leikjum.
Í átta liða úrslitum mætti Arg-
entína sterku liði Englands þar
sem Maradona stal sviðsljósinu,
fyrirliði Argentínu skoraði þá tvö
af frægustu mörkum fótboltans.
Annað þeirra var með hendi og hitt
markið kom eftir ótrúlegan einleik
Maradona, þar sem hann sólaði
fimm enska leikmenn og skoraði.
Franska blaðið L'Équipe lýsti Mara-
dona sem hálfum engli og hálfum
djöfli í blaði sínu eftir leikinn.
Maradona var hvergi nærri
hættur, því í undanúrslitum
skoraði hann bæði mörk liðs-
ins í 2–0 sigri á Belgíu. Í úrslita-
leiknum var það svo sigur á
Vestur-Þýskalandi og Mara-
dona komst í guðatölu í heima-
landinu.
Hallaði undan fæti:
Maradona náði aldrei að upp-
lifa sömu hápunkta á ferli sínum
eftir 1986. Árið 1991 fór svo að
halla undan fæti þegar hann var
settur í 15 mánaða bann frá knatt-
spyrnuiðkun, kókaín fannst í blóði
hans, en hann var á þessum tíma
leikmaður Napoli. Eftir fíaskóið í
Bandaríkjunum árið 1994 þar sem
Maradona var sendur heim af HM,
var þessi litríki karakter reglulega
í vandræðum.
Líf hans utan vallar var mikið í
fréttum og undir það síðasta var
heilsa hans slæm. Hann lifir í hjört-
um fólksins í Argentínu og skuggi
hans svífur yfir landsliðinu sem
nú er í Katar, argentínska þjóðin
á sér þann draum að upplifa sömu
tilfinningar og Maradona færði
henni árið 1986. n
Tvö ár án guðs í Argentínu
32 Íþróttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR