Fréttablaðið - 25.11.2022, Síða 20
Þetta er
ekki í
fyrsta sinn
sem eitt-
hvað áfall
verður, en
alltaf lærir
rafmynta-
heimurinn
og heldur
áfram.
Gunnlaugur
Jónsson,
framkvæmda-
stjóri Fjártækni-
klasans
Samuel Bankman-Fried var um tíma andlit rafmynta og meðal ríkustu manna heims áður en fór að fjara undan viðskiptaveldinu og það hrundi hratt. Fréttablaðið/Getty
Á nokkrum dögum fór raf-
myntakauphöllin FTX úr því
að vera verðmetin á tugi millj-
arða dala, í gjaldþrot. Hug-
myndin á bak við rafmyntir
á að vera aukið gagnsæi fyrir
notendur, en eigandi FTX, sem
er um leið eitt af andlitum
rafmynta, virðist hafa sótt í
sjóði fyrirtækisins fyrir eigin
hagsmuni.
„Einfaldasta leiðin til að útskýra
hvað fór úrskeiðis er að stofnandinn
virðist hafa tekið innistæður fólks
sem hann á ekkert eignarhald yfir og
notað í eitthvað annað, sem hann á
ekki að gera. Hann virðist hafa lánað
peningana til fjárfestingafélags sem
er stýrt af kærustu hans, sem tapar
peningunum í fjárfestingum. Þetta
virðist vera svona kjarni þess hvað
fór úrskeiðis og klassískt dæmi um
hrun fjármálafyrirtækis og ekki
eitthvað sem einskorðast við raf-
myntir,“ segir Gunnlaugur Jónsson,
framkvæmdastjóri Fjártækniklas-
ans, þegar hann var beðinn um að
útskýra fall rafmyntakauphallar-
innar FTX á stuttan máta.
Á dögunum óskaði Samuel Bank-
man-Fried, stofnandi FTX, eftir
greiðslustöðvun, eftir að viðræður
við Binance, aðra rafmyntakaup-
höll, um yfirtöku á FTX, sigldu í
strand. Með því varð ljóst að FTX
væri verðlaust, en nokkrum dögum
áður var fyrirtækið verðmetið á tugi
milljarða dala.
„Ég hef aldrei séð jafn misheppn-
aða tilraun í stjórnarháttum innan
fyrirtækis og það virðist enginn
hafa haft yfirsýn yfir fjármál þess,“
kom fram í yfirlýsingu frá John J.
Ray, skiptastjóra þrotabús FTX,
sem sagði ástand fyrirtækisins mun
verra en þegar hann tók þrotabú
orkurisans Enron í gjaldþrotaskipti
fyrir tuttugu árum síðan.
Á að auka gagnsæi
Nokkrum dögum eftir að fyrirtækið
óskaði eftir greiðslustöðvun, heyrð-
ust sögur af því að Bankman-Fried
sem er aðeins þrítugur og var meðal
ríkustu manna heims um tíma fyrr á
þessu ári, hefði tekist að koma undan
Heimur rafmynta er oft grjótharður
peningum frá notendum FTX áður
en hann lýsti fyrirtækið gjaldþrota.
Samkvæmt heimildum Reuters nýtti
FTX fjármunina til að greiða fyrir 19
íbúðir á Bahamaeyjum og borgaði
121 milljón dala fyrir það, eða um
17,3 milljarða íslenskra króna.
„Hugmyndin um bálkakeðju-
tækni (e. Blockchain) á að bjóða upp
á aukið gagnsæi um hvar peningur
notenda liggur, þannig að möguleik-
inn á stuldi á ekki að vera til staðar.
Innistæður sumra kauphallanna eru
hins vegar ekki þannig. Þær liggja á
peningum notendanna og geta dreg-
ið fé til sín og notað það í hluti sem
þau eiga ekki að vera að nota þá í,“
segir Gunnlaugur og segir ákveðna
kaldhæðni í því.
„Það er ákveðin kaldhæðni í því
að fyrirtæki sem er í bálkakeðju-
tækni skuli hafa farið svona, því
ef tæknin er notuð á réttan hátt er
hægt að skapa gagnsæi sem gerir
þetta ómögulegt.“
Rafmyntamarkaðurinn harður
Til að setja hlutina í samhengi var
fyrirtækið stofnað árið 2019 og í
ársbyrjun 2021 gerði FTX 135 millj-
ón dala samning um nafnaréttinn á
heimavelli Miami Heat í NBA-deild-
inni í körfubolta í Bandaríkjunum.
Þá var fyrirtækið með um 150 sek-
úndna auglýsingu í SuperBowl fyrr
á þessu ári, en auglýsingaplássið eitt
og sér kostaði 35 milljónir dala, um
fimm milljarða íslenskra króna. Það
má því segja að fyrirtækið hafi skot-
ist fram á sjónarsviðið með látum,
en um leið sé fallið afar hart.
„Sviptingar hafa verið miklar á
rafmyntamörkuðum, enda eru þeir
harðir, menn komast síður upp með
vitleysu. Ég man eftir því þegar Mt.
Gox var hökkuð og menn drógu
sinn lærdóm af því. Það hafa átt sér
stað miklar framfarir í öryggismál-
um á árunum sjö sem hafa liðið, og
ég held að lærdómurinn sem menn
taki úr þessu sé að auka gagnsæi.
Að eigandi fjármunanna sjái betur
hvar þeir liggi, því bálkakeðjan
býður upp á það,“ segir Gunnlaugur
og nefnir annað sambærilegt dæmi
úr hefðbundnu bankakerfi.
„Wirecard hneykslið árið 2020
er annað en svipað dæmi. Fjár-
tæknifyrirtæki í gamla heiminum
sem falsaði reikninga og þóttist
eiga pening sem þeir áttu ekki. Þeir
voru með endurskoðanda frá einu
af stærstu endurskoðunarfyrirtækj-
um heims, sem var grunlaus þangað
til fjölmiðlar fóru að fjalla um málið
og hann fór í að framkvæma sjálf-
stæða athugun hjá banka í Filipps-
eyjum. Fram að því fékk hann
bankayfirlit sent frá Wirecard, sem
fullyrti að það væru innistæður upp
á tvo milljarða evra í Filippseyjum,
en bankinn kannaðist ekkert við
þetta fyrirtæki. Wirecard var orðið
stórt fyrirtæki í Þýskalandi og orð-
rómur kominn um að þau myndu
taka yfir stærstu bankana, en þá var
þetta einfaldlega svindl. Þetta hefði
verið auðveldara að sannreyna ef
peningarnir hefðu verið á bálka-
keðjum, þannig að bálkakeðju-
tæknin hefur burði til að minnka
líkur á svindli.“
Rafmyntaheimurinn lærir
Gunnlaugur segir fall FTX dæmi um
hinn harða heim rafmynta, þar sem
sannleikurinn hefur tilhneigingu
til að koma fram og neyða menn til
umbóta.
„Það er margt búið að breytast.
Áður fyrr var rafmynt iðulega tengd
við peningaþvott, en nýleg könnun
sýnir að það sé aðeins brotabrot
af notkun rafmyntarinnar í dag.
Menn læra og gera hlutina betur,
þótt að þetta sé grjótharður og mis-
kunnarlaus heimur. Einföld mistök
geta farið illa með menn og það er
hörð svipa á fólk að bæta sig og gera
betur,“ segir Gunnlaugur, sem segir
að það sé von á lagaramma utan um
slíka starfsemi.
„Yfirvöld í Evrópu hafa verið
að vinna að lagaramma utan um
þennan rafmyntaheim af hálfu Evr-
ópusambandsins, sem Ísland mun
eflaust taka upp. Það heitir MICA (e.
Markets in Crypto-Assets (MiCA)
Regulation) og nær til rafmynta og
býr til regluverk sem eiga að tryggja
öryggi á bak við innistæðurnar.
Einhverjir segja að það sé óþarfi
því að fólk geti lært af reynslunni
og neytendur og fjármagnseigendur
eigi að geta sýnt fulla ábyrgð sjálfir
með því að sannreyna hlutina.“
Aðspurður hvort að þetta dragi
úr trúverðugleika rafmynta segist
Gunnlaugur ekki vera viss.
„Þetta getur dregið úr trúverðug-
leika rafmynta hjá þeim sem
vita ekki hvernig þær virka. Þær
eru tækni sem er miklu stærri og
merkilegri en einstakir leikendur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eitt-
hvað áfall verður, en alltaf lærir raf-
myntaheimurinn og heldur áfram.
Þessi maður, Bankman-Fried, hefur
kannski verið andlit rafmynta í
einhvers huga og fólk vill gjarnan
tengja andlit við ákveðinn málstað.
Á sama tíma er það ljóst að svindlið
hans heppnaðist með því að sleppa
því að beita bálkakeðju og það er
grunnur þess að koma í veg fyrir
að þetta komi upp aftur að nota
bálkakeðjur til að skapa gagnsæi og
traust.“ n
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall
@frettabladid.is
Það er ákveðin kald-
hæðni í því að fyrir-
tæki sem er í bálka-
keðjutækni skuli hafa
farið svona, því ef
tæknin er notuð á
réttan hátt er hægt að
skapa gagnsæi sem
gerir þetta ómögulegt.
Gunnlaugur
Jónsson,
framkvæmda-
stjóri Fjártækni-
klasans
18 Fréttir 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFréttablaðiðFRéTTASkýRinG Fréttablaðið 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR