Fréttablaðið - 25.11.2022, Side 80
Þú þarft alltaf jafnvægi. Ef versið er
svolítið sóðalegt, þá þarf eitthvað
minna sóðalegt að koma strax á eftir.
Það þarf að vera fjölbreytni. „Shake It
Off“ með Taylor Swift er gott dæmi,
þar sem stærðfræðin á bak við dram-
að er nokkuð skýr.
Max Martin, ofurpródúser
Lagasmíðar eru mín leið til að miðla
tilfinningum og hugsunum. Ekki
bara mínum, heldur þeim sem ég sé
hjá fólkinu sem mér þykir vænt um.
Höfuðið á mér myndi springa ef ég
fengi ekki þessa útrás.
Dolly Parton, súperstjarna og lagahöfundur
Það eru nokkur atriði sem
er gott að hafa í huga þegar
semja skal popplag. Blogg
færslur, bækur og bíómyndir
bjóða ráð í tonnavís, en hér
eru teknar saman nokkrar
hugmyndir sem hugsanlega
gætu gagnast þeim sem stefna
á stjörnuhimininn.
ninarichter@frettabladid.is
All I want for Christmas is you,
syngur Mariah Carey og er löngu
komin hringinn. Nokkra hringi,
í rauninni. Fólkið sem var orðið
þreytt á laginu fyrir tíu árum er nú
farið að taka gremjuna yfir laginu í
sátt, gremju sem er orðin jafnmikill
hluti af aðventunni og manda
rínukassar.
Tónlistariðnaðurinn tekur stöð
ugum breytingum og er vafalaust
ekki sá sami og árið 1994 þegar
hin tuttugu og fjögurra ára Mariah
sat og samdi lög á plötu sem átti
eftir að verða ein vinsælasta jóla
plata allra tíma, borga reikningana
hennar ævina á enda og rúmlega
það. Heimildum ber ekki saman,
en Mariah er talin fá að minnsta
kosti eina milljón Bandaríkjadala í
höfundarréttargreiðslur í janúar á
hverju einasta ári, bara fyrir þetta
eina lag. Það eru tæpar hundrað og
fimmtíu milljónir íslenskra króna.
Marga dreymir um að semja
slagara en færri vita hvar á að byrja.
Fyrir upprennandi lagahöfunda má
finna aragrúa af heilræðum á netinu
og sé til dæmis slegið inn „Hvernig
á að skrifa slagara“ í alþjóðlega
bókaverslun Amazon.com, koma
níutíu og sjö niðurstöður með sam
svarandi bókatitlum og efnistökum.
Það segir sína sögu.
Æfingin skapar meistarann og
hér höfum við tekið saman atriði
sem geta mögulega stytt þér leiðina
að því að skrifa þitt eigið Mariuh
Careylag eða Júróvisjónsmell. n
Töfraformúla tóna
sem trylla lýðinn
Í nóvember 2019 sló Mariah Carey heimsmet fyrir vinsælasta jólalag í sögu Bandaríkjanna, All I Want for Christmas is
You. Ekkert jólalag hefur trónað jafn lengi og jafn ofarlega á topplistum. Lagið kom út 1994 á plötunni, Merry Christmas.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Max Martin ásamt Britney Spears
árið 2017. Max hefur samið fyrir
margar af frægustu stjörnum heims.
Ed Sheeran er
margverð-
launaður
poppkóngur
og dælir frá
sér ofur-
smellum ár
eftir ár.
Það geta ekki allir
orðið Bítlarnir, en
það má reyna.
Finndu þinn stíl
Því er eins farið með alla sköpun,
þú þarft að vita hver þú ert, þekkja
þinn persónulega stíl og finna
þína eigin rödd. Stíllinn er eins
konar endurtekið þema, hand-
bragð eða stemning sem verkin
þín bera. Það er eitthvað sem
aðgreinir þína tónlist frá öllum
hinum milljörðum laganna þarna
úti. Þú þarft ekki að vera besti
söngvari eða hljóðfæraleikari í
heimi, en þú þarft að þekkja og
skilja þitt erindi betur en nokkur
annar. Flest popplög innihalda
grípandi texta og það er ekki verra
að textinn segi eitthvað af viti og
fólk eigi auðvelt með að tengja við
hann, þó að það sé ekki skilyrði.
Pródúsent og þrautseigja
Þú þarft góðan pródúsent sem
skilur það sem þú ert að gera.
Hann vinnur ekki ókeypis og því
skaltu nýta tímann og vera með
heilsteypta hugmynd þegar þú
ferð í hljóðver, með opinn hug
fyrir samstarfi. Þá komum við
aftur að fyrsta atriðinu, að þekkja
sína eigin sérstöðu og sitt erindi.
Það tekur tíma og fyrirhöfn
að búa til gæðalag og það krefst
þrautseigju að byrja í ferlinu. Að
skrifa lög er kunnátta sem þú
byggir upp með tímanum, og þú
batnar með hverju laginu. Sem
sagt, ef þú vilt virkilega semja
popplag geturðu gert það. Allir
geta gert það. Þú þarft bara að
halda áfram að æfa þig og þora að
gera mistök.
Lærðu á hljóðfæri
Það þarf ekki að kunna á hljóð-
færi til að semja vinsælt popplag,
en það getur hjálpað þér mikið
að skilja tónfræði og hvernig til
dæmis hljómar og laglínur virka.
Gítar eða píanó getur gert þér
kleift að útfæra hugmyndirnar
á skilvirkan máta og það verður
auðveldara fyrir þig að koma
hugsunum þínum og tilfinningum
til skila á áhrifaríkan hátt, sem
orðin ein ná ekki endilega að tjá.
En þarna úti er nú samt fullt af
fólki sem semur popptónlist án
þess að hafa nokkru sinni haldið
á hljóðfæri og það er einmitt það
sem næsta atriði fjallar um.
Notfærðu þér tæknina
Það er ýmiss hugbúnaður í boði
sem gerir þér kleift að búa til
popplög á einfaldan hátt og bæta
við mismunandi hljóðfærum og
hljóðum að vild. Þú getur gripið
niður í forriti eins og GarageBand,
Logic eða Ableton, prófað þig
áfram og keypt síðan viðbætur,
hljóðgervla og stafræn hljóðfæri
eftir því sem við á.
Fylgstu með meisturunum
Ef þú ert algjör byrjandi á sviði
lagasmíða og popptónlistar
gætirðu viljað læra af reyndari
höfundum og tónlistarfólki.
Prófaðu að gúggla týpur eins og
Max Martin, Taylor Swift og Prince.
Þú getur fundið innblástur í lögum
eftir þína uppáhaldstónlistar-
menn, farið á YouTube og grúskað.
Hvar kemur kórinn inn? Hvaða
hljóðfæri er verið að nota? Hvers
konar texta er verið að skrifa?
Svona spurningar geta hjálpað þér
að skilja lagasmíðaferlið betur og
hjálpað þér að búa til þinn eigin
slagara.
Semja, semja, semja
Það er mikilvægur hluti af laga-
smíðaferlinu að semja fyrir rusla-
fötuna. Þú þarft að semja fullt af
lélegum lögum til að semja góð
lög. Mistök eru besti skólinn og
þegar þú sérð hvað virkar ekki
geturðu áttað þig betur á því sem
virkar. Svo einfalt er það. Með
því að semja eins mörg lög og þú
getur, bætirðu kunn-
áttu þína í faginu og
brýnir verkfærin þín
í leiðinni.
Finndu réttu hljómana fyrir
laglínuna þína
Prófaðu þig áfram með áhuga-
verða og ófyrirsjáanlega hljóma.
Þú getur gert þetta á ýmsan hátt
en hljómabækur geta í einhverjum
tilfellum stutt þig í því ferli. Næst
kemur að laglínunni, sem er sá
hluti lagsins sem beinist aðallega
að söngvaranum. Það fer eftir
því hvaða tegund af lagi þú ert að
semja, þú gætir haft eina laglínu
eða fleiri. Með því að finna réttu
hljómana fyrir laglínuna þína get-
urðu leikið þér með mismunandi
nótur og tónhæð þar til þú finnur
lag sem virkar.
Ekki gleyma brúnni
Klassíska uppbyggingin er vers,
vers, viðlag, vers, vers, viðlag.
Öðrum megin við viðlagið, oftast
fyrir framan, kemur brú og hún
getur verið hjartað í laginu sem
lætur öll hin kerfin virka. Brúin
hvílir eyrað og gefur þér tækifæri
til að leika þér með fleiri hljóð-
færi. Mundu að vanda trommur
og bassa og fá þjálfuð eyru til að
hlusta með þér aftur og aftur.
Dolly Parton er verseruð í dægur-
lagaheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
58 Lífið 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ