Borgarsýn - 2014, Blaðsíða 10

Borgarsýn - 2014, Blaðsíða 10
Borgarsýn 09 10 Rammaskipulag Vogabyggðar Rammaskipulag Skipulagið byggir á vinningstillögum úr hug myndasamkeppni um svæðið. Mikil ánægja er með þá þróun sem hefur átt sér stað í vinnunni síðustu mánuði Í umhverfis­ og skipulagsráði Reykja­ víkur í apríl var samþykkt til laga að ramma skipulag fyrir Voga byggð. Mikil ánægja var með þá þróun sem hefur átt sér stað á vinnunni síðustu mán uði, og er næsta skref að hefja gerð deili­ skipu lags fyrir svæð ið í sam vinnu við hags muna aðila. Svæðið af mark ast af Sæ braut, Klepps mýrar vegi og Elliða­ árósum og var áður í út jaðri byggðar, en er nú nærri þunga miðju búsetu í Reykja­ vík. Á svæðinu hafa verið iðnaðar fyrir­ tæki, verk stæði og geymslur í gegnum tíðina og er slík starf semi enn víða á svæð inu. Undan farin ár hefur hins vegar verið meiri ásókn í bú setu á svæð inu og kominn tími á svæðið í endur nýjaðri mynd sem blönduð og vistvæn byggð íbúða og atvinnu húsnæðis í sam ræmi við mark mið í Aðal skipulagi Reykjavíkur 2010–2030. Ramma skipu lagið byggir á vinnings­ tillögum úr hug mynda sam keppni um Voga byggð sem var haldin síðast liðið haust og verð launa afhending fór fram 23. Janúar 2014. Þar voru tvær tillögur verð launaðar sem vinn ings til laga og taldi dóm nefndin að saman gæfu þær svo áhuga verða fram tíðar sýn á svæðið að ákveð ið var að velja þær báðar sem verð launa til lögu. Í beinu fram haldi hafa báðar arki tekta stofurnar (Teikni­ stofan Tröð og jvantspijker+FELIXX, frá Hollandi) unnið saman að ramma­ skipulaginu sem hefur verið samþykkt. Grunnstefið í rammaskipulagshug mynd Voga byggðar er að hverfið sé heild stæð og sjálf bær ein ing sem ein kennist af blöndu íbúðar­ og atvinnu hús næðis með verslun og þjónustu. Skipu lagið myndar mann eskju lega um gjörð sem rammar inn fjöl skrúð ugt mann líf, mis mun andi aldurs­ og þjóð fél ags hópa. Lögð er áhersla á vand aða um gjörð al menn ings rýma og að stuðla að meiri notkun og auknum sam skiptum fólks. Skipu lags svæðið skiptist annars vegar í byggðar svæði og hins vegar í strand svæði. Sam spil bygg­ inga, nær um hverfis og al menn ings rýma ein kenna til löguna. Aðal gata hverfi sins hlykkj ast um byggðar svæðið og skiptir því í mið svæði og íbúðar svæði. Ofan við Háu bakka liggur strand gatan ásamt aðal torg inu, ská hallt frá því liggur stígur sem tengir Voga hverfi og strand svæði Elliða vogar. Skipu lags til lagan gerir ráð fyrir fjöl­ breyttum húsa kosti íbúðar­ og atvinnu­ hús næðis í 3–5 hæða rand byggð, sem myndar heild stæðar götu myndir í borgar mið uðu gatna kerfi þar sem aðal gatan þræðir sig gegn um hverfið og markar skil á milli mið svæðis og íbúðar byggðar. Að jafnaði er miðað við fimm hæða byggð vestan aðal götu en þrjár hæðir austan aðal götu. Heildar­ bygg ingar magn á svæð inu er mjög sveigjan legt. Það má auka eða draga Deiliskipulag

x

Borgarsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Borgarsýn
https://timarit.is/publication/1749

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.