Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 4

Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb Krít Stökktu til Krítar 595 1000 www.heimsferdir.is 15. ÁGÚST Í 10NÆTUR 79.900 Flug & hótel frá Stökktu! 129.900 Flug & hótel frá ALLT INNIFALIÐ! Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Eldgosið í Meradölum mun reynast ferðaþjónustunni vel, haldist það út haustið, og gæti verið liður í að kveða niður verðbólguna að mati Skarphéð- ins Berg Steinarssonar ferðamála- stjóra. Hann segir gríðarlega mikil- vægt haust og vetur fram undan í ferðaþjónustunni. „Það er mjög mikilvægt að við fáum gott haust og góðan vetur. Þetta gos getur ekki annað en hjálp- að til með það,“ segir Skarphéðinn, spurður hvort hann telji að aukinn ferðamannastraumur í kjölfar goss- ins muni hafa áhrif á þá miklu verð- bólgu sem mælst hefur hérlendis undanfarið. Það breyti þó eflaust litlu núna þar sem meira og minna allar ferðir hér á landi séu uppbókaðar. Hann segir horfur fyrir septem- bermánuð góðar en næstu mánuðir á eftir muni skipta sköpum. Heppilegt sé að gosið hafi á sama stað og fyrir ári. „Þar gagnast þeir innviðir sem var búið að leggja í og svo er bara verið að betrumbæta þá þannig að þetta er aðgengilegt. Á meðan þetta ógnar ekki byggð eða innviðum þá er það bara mjög gott.“ Spurður hvort ferðaþjónustan sé viðbúin inn í haustið sökum mann- eklu segist hann ekki líta svo á að það verði teljandi vandamál. „Þetta er ekki áhyggjuefni í haust og vetur því það fækkar eitthvað frá því sem nú er. Fyrirtækin þurfa færri starfsmenn í haust og vetur þannig að það er ekki viðbúið að þetta verði teljandi vandamál.“ Hús- næðisvandi gæti þó skapað vandamál hjá ferðaþjónustufyrirtækjum sem reiða sig á erlent starfsfólk. „Það hefur gengið illa að finna hús- næði fyrir sumt af þessu starfsfólki sem er lengra að komið. Sá vandi fer ekkert á næstunni,“ segir hann og bætir við að þar megi nefna Austur- land sérstaklega. Mönnunarvandi ríki Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir þó mönnunarvanda ríkja í ferðaþjónustu sem muni að- eins ágerast í haust. „Það er náttúrlega eins og alltaf í þessum bransa, að þegar fólk fer í skóla aftur, þá er það alltaf erfiður punktur fyrir þá sem hafa treyst mik- ið á skólafólk. Það eykur þá mönn- unarvanda sem er búinn að vera og er viðvarandi hérlendis, í Evrópu og víðar.“ Jóhannes segir miklar samfélags- breytingar hafa átt sér stað í faraldr- inum sem meðal annars hafi þau áhrif að flókið sé að manna öll störf og nefnir sem dæmi áðurnefndan húsnæðisvanda. Íslenskt starfsfólk í ferðaþjónustu sem leitaði á önnur mið í faraldrinum hafi ekki skilað sér aftur. „Það þýðir að það er meiri þörf á erlendu starfsfólki og þá þarf hús- næði fyrir það, sem er af mjög skorn- um skammti.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gos Ferðamenn hafa í liðinni viku keppst við að sjá eldgosið í Meradölum. Gosið getur ekki annað en hjálpað - Mikilvægur vetur fram undan Jóhannes Þór Skúlason Skarphéðinn Berg Steinarsson Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is „Ég held að það eigi að fara mjög var- lega í að dæma Reykjanesið í heild sinni úr leik. Það er skynsamlegt að klára þær athuganir sem standa yfir í Hvassahrauni. Veðurstofan, sem er að rannsaka Hvassahraunið, er með náttúruvá og eldvirkni til skoðunar,“ segir Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri Reykjavíkur spurður hvort gerð flugvallar í Hvassahrauni sé orð- in ólíklegri í kjölfar eldgosa á Reykja- nesskaganum. Hann vísar þá til rannsóknar Veð- urstofu Íslands, sem gerir áhættumat um þessar mundir, og segir ekki tímabært að taka ákvörðun um það hvort ómögulegt sé að byggja á svæð- inu fyrr en niðurstöður úr þeirri rannsókn liggja fyrir. Niðurstaða mun liggja fyrir í haust. Bæði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra hafa sagt að minni líkur hljóti að vera á því að flug- völlur verði reistur í Hvassahrauni í kjölfar eldgosa á Reykjanesi. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur, tekur undir orð Dags og segir réttast og eðlileg- ast að bíða eftir niðurstöðum Veður- stofu Íslands. „Ég held að allir ættu bara að anda í kviðinn. Það er best að byggja þetta allt saman á gögnum frekar en tilfinningu.“ Aðspurður segir Dagur flugvöll í Hvassahrauni ekki vera úr myndinni. „Ég tek alls ekki undir með þeim sem hafa geyst fram í þessari umræðu og sagt að allar framtíðarfjárfestingar í innviðum á Reykjanesi séu úr sög- unni.“ Hann segir það þá ótímabært að skoða aðra möguleika ef það skyldi reynast óraunhæft að byggja í Hvassahrauni. „Við ættum bara að taka eitt skref í einu.“ Einar vill kanna aðra kosti Einar segir þó að skynsamlegt gæti verið að skoða aðra möguleika sem fyrst. „Menn þurfa strax að hefja vinnu við að skoða aðra kosti sem einnig voru taldir fýsilegir sem nýr varaflugvöllur.“ Hann tekur þó fram að hann telji ólíklegt að aðrir mögu- leikar verði skoðaðir áður en niður- staða liggur fyrir frá Veðurstofunni. Hann vísar samt sem áður til skýrslu Rögnunefndar frá 2015 sem nefnir fjóra aðra flugvallarkosti á höfuð- borgarsvæðinu. Þá bætir Dagur við að ákveðin vit- undarvakning sé að eiga sér stað hvað varðar mikilvægi þess að reisa varaflugvöll fyrir millilandaflug. Hann segir þessa vitundarvakningu eina af jákvæðum aukaverkunum gossins í Meradölum. „Það er mik- ilvægt að þessi varaflugvallarmál séu komin meira í deigluna en hefur ver- ið. Vöxturinn í alþjóðaflugi hjá okkur er löngu búinn að sprengja af sér nú- verandi varaflugvallakerfi.“ Hann segir að Reykjavíkurflug- völlur sé mjög takmarkaður þegar kemur að því að taka við flugi frá Keflavíkurflugvelli og því nauðsyn- legt að reisa nýjan flugvöll. Einar segist vera sammála Degi hvað þetta varðar. „Óháð því hvað menn vilja gera með Reykjavíkur- flugvöll og þá starfsemi sem þar er þá er mikilvægt að koma upp öflugum varaflugvelli á suðvesturhorninu,“ segir Einar. Að hans mati eru þetta tvö aðskilin málefni hvað varðar stað- gengil í stað Reykjavíkurflugvallar og varaflugvöll fyrir Keflavíkurflug- völl. Dagur bendir á að fjöldi erlendra ferðamanna til landsins sé nú orðinn sá sami og hann var fyrir kórónu- veirufaraldurinn og verði enn meiri á næstu árum. Því segir hann að þó að oft hafi verið þörf þá sé nú nauðsyn að nýr alþjóðlegur varaflugvöllur verði reistur sem fyrst. Þá nefnir Dagur kórónuveiru- faraldurinn sem dæmi um hve mik- ilvægt það sé fyrir hagsmuni Íslands að tryggja alþjóðaflug til og frá land- inu. „Við höfum núna tveggja ára reynslu af því að flug nánast lagðist niður. Það hafði gífurleg áhrif á at- vinnulífið og hagkerfið,“ segir Dagur og ítrekar mikilvægi alþjóðaflugs. Hvassahraun er ekki úr myndinni - Oft var þörf en nú er nauðsyn að fá nýjan varaflugvöll Dagur B. Eggertsson Einar Þorsteinsson Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Engin gögn gefa enn til kynna að fasteignaverð sé farið að lækka. Þetta segir Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskóla Ís- lands. „Verðið er sögulega hátt frá öllum mælikvörð- um séð,“ segir hann. Már telur líklegt að bóla sé að myndast á fasteignamarkaði og þá sé ekki ólíklegt að fast- eignaverðið lækki. Dýfa ekki ólíkleg „Þótt það séu engar vísbendingar komnar fram um það enn sem komið er, þá er ekki ólíklegt að fasteignaverð taki dýfu niður á við þegar vaxtastig er að hækka og væntingar eru uppi um aukið fram- boð,“ segir hann, enda hafi slíkt áð- ur gerst. „Það er eins og margir hafi gleymt því að fasteignaverð lækk- aði um næstum 20% frá 2007 til 2010 og á sama tíma var samanlögð verðbólga í kringum 30%.“ Lækkun fasteignaverðs á þessum árum hafi verið gríðarleg í krónum talið. Gerist nokkuð fyrirvaralaust Sem áður sagði gefur enn ekkert til kynna að fasteignaverð sé að lækka: „En almennt þegar fast- eignaverð lækkar, þá gerist það nokkuð fyrirvaralaust. Það er kannski þess vegna sem erfitt er að spá í spilin. Þetta gerist einn, tveir og tíu, þegar eftirspurnin er horfin, og þá þurfa seljendur að lækka verð mikið,“ segir hann. Vísbend- ingar um þessa þróun sjást í Bandaríkjunum og Bretlandi. Selj- endur hafi skyndilega þurft að lækka verð töluvert á svæðum sem áður voru eftirsótt, til þess að selja íbúðir. „Þar hefur magn af íbúðum til sölu aukist mjög,“ segir hann og bætir við að fyrstu merki um verð- lækkanir á fasteignamarkaði hér yrðu sá tími sem tekur að selja íbúðir. „Um leið og þær tölur fara að hækka, dagar frá því íbúð fer á sölu og þar til hún selst, fást vís- bendingar um hvort lækkanir séu í kortunum,“ segir Már. „Þetta er svipað og frá 2007 til 2008. Markaðurinn fór að kólna strax árið 2007 en fáir tóku eftir því,“ segir Már. Seðlabanki Íslands hefur reynt að draga úr eftirspurn á fast- eignamarkaði, meðal annars með því að setja reglur um hámark greiðslubyrðar. Greiðslubyrðarhlut- fall fasteignalána skal almennt tak- markast við 35% en við 40% fyrir fyrstu kaupendur. Már telur að reglurnar hafi aðallega komið sér illa fyrir fyrstu kaupendur en það gæti haft keðjuverkandi áhrif á markaðinn. Engin merki um lækkun - Þó ekki ólíklegt að fasteignaverð lækki fyrirvaralaust líkt og gerðist eftir hrun - Lækkana gætir þegar erlendis Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fasteignamarkaðurinn Ekki eru enn merki um að fasteignaverð fari lækk- andi, að sögn Más. Fasteignaverð lækkaði töluvert eftir fjármálahrunið. Már Wolfgang Mixa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.