Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið
sé hjarta heimilisins.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, 588 0200, eirvik.is
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10.00-17.30
Borgarstjóri tjáði sig um helgina
og í samtali við Morgunblaðið í
dag um Reykjavíkurflugvöll og
hugmyndir um flugvöll í Hvassa-
hrauni og hefur bersýnilega ekki
gefið það upp á bát-
inn að láta gera
flugvöll í Hvassa-
hrauni. Segist hann
í þessu vera sam-
mála forsætisráð-
herra og innvið-
aráðherra um að
ótímabært sé að af-
skrifa þá staðsetn-
ingu, klára þurfi áhættumat sem
verið sé að vinna.
Ráðherrarnir sem borgarstjóri
segist sammála hafa raunar tjáð sig
á þann hátt að ætla má að þau hafi
að minnsta kosti miklar efasemdir
um að vit sé í að hefja flugvallar-
gerð í Hvassahrauni, en vissulega
vantar nokkuð upp á að þau hafi
talað alveg skýrt um það augljósa
mál. Og þetta nýtir borgarstjóri sér
til að gera þau „sammála“ sér um
flugvallarmálin.
- - -
Hann ætlar greinilega líka að
nýta sér umræðu um vara-
flugvöll og möguleikann á að sam-
göngur til og frá Miðnesheiði geti
rofnað til að reyna að halda því
fram að Reykjavíkurflugvöllur
dugi ekki og þess vegna verði að
gera annan flugvöll og loka þeim
sem er í Reykjavík.
- - -
Þetta er dæmigert bragð klækja-
stjórnmálamannsins, að
afvegaleiða og rugla umræðuna og
vonast til þess að hann komist upp
með vitleysuna með því að drepa
málinu á dreif. Auðvitað dettur
engum í hug að Reykjavíkur-
flugvöllur eigi að taka við öllu milli-
landaflugi til landsins eins og borg-
arstjóri gefur til kynna að hann
þurfi að geta gert. Reykjavíkur-
flugvöllur þarf einfaldlega að þjóna
því hlutverki í innanlands- og
sjúkraflugi sem hann hefur gert og
vera um leið varaflugvöllur.
Dagur B.
Eggertsson
Vafasamur spuni
um flugvallarmál
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þó
nokkrar tilkynningar á laugardagskvöld og
sunnudagsnótt vegna slysa þar sem einstakling-
ur hafði fallið af rafhlaupahjóli.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Klukkan hálfellefu á laugardagskvöld barst til-
kynning um einstakling sem féll af rafhlaupahjóli
í miðbænum og var sá fluttur með sjúkrabifreið á
bráðamóttöku til skoðunar.
Skömmu fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnu-
dags barst önnur tilkynning um einstakling sem
féll af rafhlaupahjóli í Vesturbænum. Sá var
fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku til
skoðunar.
Milli klukkan þrjú og fjögur um nóttina bárust
síðan þrjár tilkynningar til viðbótar um slys þar
sem einstaklingar höfðu fallið af rafhlaupahjól-
um. Enginn þeirra virðist þó hafa verið sendur
með sjúkrabifreið á bráðamóttöku.
Lögregluþjónar þurftu að fást við fleiri verk-
efni á sunnudagsnótt, m.a. ökumenn sem grun-
aðir voru um akstur undir áhrifum áfengis og/eða
vímuefna, líkamsárás og umferðaróhöpp.
Mörg slys á rafhlaupahjólum
- Flytja þurfti nokkra á
bráðamóttöku eftir fall
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Slys að næturlagi Fimm tilkynningar um slys á
fólki sem féll af rafhlaupahjólum bárust.
Íslenska skáklandsliðið í
opnum flokki vann 2½-1½-
sigur gegn Bangladess í 9.
umferð ólympíuskákmóts-
ins, sem nú fer fram á Ind-
landi. Kvennaliðið tapaði
stórt gegn sterkri sveit
Brasilíu, 0-4. Tvær umferð-
ir eru eftir af mótinu og
lýkur því á miðvikudaginn
næsta.
Indverjar tóku að sér að
halda mótið með fjögurra
mánaða fyrirvara þar sem
það átti að fara fram í
Moskvu en þær fyrir-
ætlanir fóru út í veður og
vind þegar Rússar réðust
inn í Úkraínu.
„Indverjar eiga miklar þakkir skilið og hafa verið til fyrirmyndar,“ segir
Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Hann trúir því og treystir
að íslensku liðin nái sér á strik eftir erfiðar viðureignir.
Guðmundur Kjartansson, nýbakaður stórmeistari, vann öruggan sigur
með hvítu mönnunum og getur fagnað góðu gengi á mótinu til þessa en aðrar
skákir í opnum flokki enduðu með jafntefli; hjá Hjörvari Steini Grétarssyni,
Hannesi Stefánssyni og Helga Áss Grétarssyni.
Í kvennaflokki urðu Lenka Ptácníková, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir allar undir í flækjum í miðtafli í sínum
skákum. Kvennaliðið heldur þó sjó og er í 60. sæti á mótinu, en samkvæmt
styrkleikaröð, þ.e. ef litið er til skákstiga hvers og eins, raðaðist liðið í 61.
sæti af 162 löndum.
Íslenska liðið í opnum flokki er sem stendur í 53. sæti en í byrjun móts var
það í 43. sæti ef litið er til styrkleika. veronika@mbl.is
Endasprettur fram
undan hjá Íslendingum
Sigurvegari Guðmundur vann öruggan sigur.
- Trúir því að liðið nái sér á strik