Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022
Margmenni var í miðbæ Reykjavíkur á laugardag
þegar Gleðigangan, stærsti viðburður Hinsegin daga,
var gengin. Var um að ræða fyrstu gönguna sem
hægt var að ráðast í síðan fyrir kórónuveirufaraldur.
Álfur Birkir Bjarnason, formaður Samtakanna ’78,
segist ekki muna eftir að hafa séð fleira fólk í og í
kringum gönguna. „Ég man ekki eftir að hafa séð
svona margt fólk. Kannski er þetta einhver þorsti eft-
ir svona göngu eftir Covid en ég held líka að fólk hafi
fundið það hjá sjálfu sér að það væri kominn tími til
þess að sýna samstöðuna í verki,“ segir Álfur.
Glamúr Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson lét
sig ekki vanta og mætti með dansara sér við hlið.
Litagleði Mikið var um dýrðir í Gleðigöngunni.
Uppáklæddir Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar og út-
varpsmaðurinn Siggi Gunnars vöktu hrifningu gesta.
Margmenni Fólk sýndi samstöðu með hinsegin fólki í og við gönguna.
Stuðningur Álfur sagðist ánægður með meðbyrinn í göngunni.
Aðdragandi Frá undirbúningi fyrir gönguna miklu við Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Kristvin Guðmundsson
Á fleygiferð Fólk ferðaðist með ýmsum hætti í göngunni, á tveimur jafnfljótum, skrautlegum vögnum eða jafnvel hjólaskautum.
Miðbærinn litaður
regnbogans litum
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Njótið
sumarsins