Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 12

Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Morgunblaðið hefur undir höndum verðmöt Jakobsson Capital á Arion banka og Marel og er það niðurstaða höfunda að rétt virði hlutabréfa Ar- ion banka sé 16% hærra en markaðs- verð og að hlutabréf Marel séu 19% verðmætari en verð þeirra á markaði segir til um. Voru bæði verðmötin gefin út hinn 4. ágúst. Tekjur Arion banka aukast og reksturinn einfaldaður Í umsögn sinni um Arion banka segja sérfræðingar Jakobsson Capi- tal að þrátt fyrir að síðasta uppgjör bankans hafi einkennst af einskiptis- liðum þá hafi rekstur félagsins verið samkvæmt áætlun og arðsemi eigin- fjár á uppleið. Að auki vinni efna- hagsumhverfið með bankastarfsemi með kröftugum hagvexti, miklum vexti útlána og hærra vaxtastigi. Benda höfundar verðmatsins á 18,3% vöxt þjónustutekna hjá bank- anum á fyrri hluta þessa árs en að sá vöxtur komi af því að bankinn hafði umsjón með tveimur stórum hluta- fjárútboðum sem gáfu vel í aðra hönd. Á fyrri helmingi ársins jukust vaxtatekjur um 25,9% en á sama tíma jókst rekstrarkostnaður bankans um 4,3%. Þá hefur rekstur bankans verið einfaldaður með sölu á Valitor og Sól- bjargi en síðarnefnda félagið fór með eignarhald á ferðaskrifstofum sem féllu bankanum í skaut árið 2019. Kemst Jakobsson Capital að þeirri niðurstöðu að meta megi Arion banka á tæplega 301,4 milljarða króna eða 201 kr. á hlut en markaðs- virði félagsins við útgáfu verðmatsins var 259,9 milljarðar króna og 174 kr. á hlut. Er munurinn 16%. Vænta umskipta hjá Marel 2023 og 2024 Um starfsemi Marels segja sér- fræðingarnir að frammistaða félags- ins á öðrum ársfjórðungi hafi verið töluvert undir væntingum og rekstrarhagnaðarhlutfall þess aðeins 5,2%. Eru greinendurnir þó bjartsýn- ir á að botninum sé náð en Marel hef- ur sagt upp 5% af starfsólki sínu og hækkað hjá sér verðskrár samhliða því að flutningskostnaður og verð á þeim málmum sem fyrirtækið notar við framleiðslu sína hefur verið á nið- urleið eftir að hafa tekið á rás á seinni hluta árs 2020. Jukust tekjur Marels um 16% á milli ára en rekstrarkostnaður fyrstu sex mánuði þessa árs jókst hins vegar um 28% á milli ára og nam markaðs- kostnaður 15% af tekjum. Þá segja greinendur að nema megi merki um launaskrið hjá félaginu. Þó að höfundar spái því að afkoma þessa árs verði langt frá langtíma- markmiðum stjórnenda Marels hyggja þeir að mikil umskipti verði í rekstrinum 2023 og 2024 með stig- hækkandi framlegðarhlutfalli. Er það niðurstaða skýrslunnar að meta megi Marel á 534,9 milljarða króna eða 710 kr. á hlut en markaðsvirði fé- lagsins við útgáfu skýrslunnar var 448,9 milljarðar kr. eða 596 kr. á hlut og er munurinn 19%. Markaðsverð Marel og Arion banka undir mati Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Álag Starfsmenn í verksmiðju Marels. Fyrirtækið hefur fækkað starfsfólki og mat greinenda að félagið hafi alla burði til að vegna vel á komandi árum. - Nýtt verðmat spáir mun betri rekstri hjá Marel - Aðstæður góðar fyrir banka Morgunblaðið/Eggert Sterk Samkvæmt matinu er Arion banki 301 milljarðs króna virði. 8. ágúst 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 135.67 Sterlingspund 164.75 Kanadadalur 105.29 Dönsk króna 18.656 Norsk króna 13.908 Sænsk króna 13.404 Svissn. franki 142.01 Japanskt jen 1.0192 SDR 179.45 Evra 138.83 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.1211 « Berkshire Hathaway birti um helgina uppgjör síðasta ársfjórðungs og sýna tölurnar að samsteypan var rekin með 43,8 milljarða dala tapi á fjórð- ungnum. Skrifast tapið fyrst og fremst á minnkað virði hlutabréfasafns Berkshire en félagið á stóran hlut í fyr- irtækjum á borð við Apple, American Express og Bank of America sem lækkuðu í verði um meira en fimmtung á öðrum ársfjórðungi. Nam tapið af hlutabréfa- og afleiðusafni Berkshire 53 milljörðum dala á tímabilinu. Er þetta svipað tap og varð hjá félag- inu á fyrsta ársfjórðungi 2020 þegar hlutabréfaverð bandarískra fyrirtækja tók dýfu í upphafi kórónuveirufarald- ursins. Þegar árið var á enda höfðu markaðir rétt úr kútnum og lauk Berk- shire árinu 2020 með meira en 42 millj- arða dala hagnaði. Í kynningu segir Warren Buffett, for- stjóri félagsins, að fjárfestar ættu ekki að ókyrrast út af þessu bakslagi og að tapið gengi væntanlega til baka um síð- ir. Má t.d. reikna með að tap vegna hlutabréfaeignar Berkshire í tækniris- anum Apple breytist í hagnað í uppgjöri yfirstandandi ársfjórðungs, því hluta- bréf félagsins hafa hækkað umtalsvert í verði undanfarnar vikur. Þrátt fyrir tapið sem varð af hluta- bréfaeign félagsins stórbatnaði starf- semi undirfélaga Berkshire og var hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta nærri 9,3 milljarðar dala sem er 39% hækkun á milli fjórðunga. Berkshire, sem rekur m.a. tryggingafélög, félög í orkugeira og lestarflutningafélög, keypti eigin hlutabréf fyrir einn milljarð dala á fjórðungnum og situr á 105,4 milljarða dala sjóði. ai@mbl.is Mikið tap af hluta- bréfasafni Berkshire Sveifla Buffett segir óþarft að ókyrrast. AFP/Johannes Eisele STUTT efnislega rangar, þá ætti ekki að verða af kaupunum,“ ritaði Musk. Hefur Morgunblaðið fjallað ítar- lega um yfirtökutilboð Musks og deilur hans við stjórnendur Twitter. Féllst stjórn Twitter á endanum á að leyfa yfirtökuna en Musk gerði það að skilyrði að fengið yrði á hreint hversu hátt hlutfall notenda- reikninga hjá Twitter eru gervi- reikningar. Vefengir hann þær full- yrðingar Twitter að hlutfallið sé minna en 5%. Fyrir mánuði ákvað Musk síðan að hætta við kaupin og vísaði til skorts á upplýsingagjöf. Standa Twitter og Musk nú í dómsmáli þar sem Twitter freistar þess að þvinga hann til að ljúka við kaupin á félag- inu. ai@mbl.is Elon Musk tísti á laugardag að hann sé reiðubúinn að standa við 44 millj- arða dala kauptilboð sitt ef stjórn Twitter uppplýsir hvaða aðferðum fyrirtækið hefur beitt til að leggja mat á fjölda raunverulegra notenda samfélagsmiðilsins. „En ef það kem- ur í ljós að þær upplýsingar [um fjölda notenda] sem þau veittu bandaríska fjármálaeftirlitinu eru - Stendur við tilboðið ef tekst að sanna fjölda notenda AFP Karp Elon Musk deilir nú við stjórn Twitter fyrir dómstólum. Musk storkar stjórnendum Twitter

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.