Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 14

Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Oleg Ustenko, efnahags- ráðgjafi Volodimírs Sel- enskís forseta Úkraínu, ritaði í gær grein í Fin- ancial Times þar sem hann sagði gerviþvinganir Vesturlanda í orkumálum gagn- vart Rússlandi vera eldsneyti á stríðsvél Rússa. Hann sagði tekjur rússneska ríkisins af sölu á olíu, gasi og kolum hafa tvö- faldast á fyrstu 100 dögum stríðsins og að þvinganir Vest- urlanda í orkumálum gagnvart Rússlandi virkuðu ekki af þeirri einföldu ástæðu að þær væru ekki fyrir hendi. Svo tíndi hann til þær efna- hagsaðgerðir í orkumálum sem ráðist hefði verið í og þær eru smáar í sniðum. En sérstaklega athyglisvert er það sem hann nefndi um olíusölu Rússlands, meðal annars til Bandaríkjanna, sem þó hafa lagt bann við slíkum innflutningni. Ustenko sagði að bandarískir ökumenn héldu áfram að knýja bíla sína með bensíni frá Rússlandi og það færi þannig fram að rússnesk hráolía færi í gegnum olíu- hreinsunarstöðvar erlendis og bensínið sem kæmi út væri flutt til Bandaríkjanna enda væri það leyfilegt þrátt fyrir þvinganirn- ar. Hann nefndi einnig að til Bretlands væri flutt mikið magn af blandaðri rússneskri olíu og að það mundi líklega halda áfram. Þetta sé mögulegt vegna þess að reglurnar hafi verið lag- aðar til svo að hægt væri að flytja inn blöndu af olíuvörum frá Kasakstan og Rússlandi sem send væri vestur í gegnum olíu- leiðslu um Kaspíahafið. Financial Times fjallaði líka um það á dögunum að þrátt fyrir áform sem Evrópusambandið hefði kynnt fyrir tveimur mán- uðum um að hindra tryggingar á olíuflutningum frá Rússlandi, sem hefði komið í veg fyrir að hægt hefði verið að flytja olíu- vörur sjóleiðina þaðan, þá hefði það ekki orðið að veruleika. Slík- ar tryggingar fara að stærstum hluta í gegnum tryggingafélög í Lundúnum, ekki síst Lloyd’s, og eru forsenda þess að skip fáist til flutninganna. Biden forseti Bandaríkjanna óttast að þvinganir af þessu tagi, sem gætu raunverulega orðið til að takmarka möguleika Rússa á að selja olíu, verði til þess að hækka verð á olíu á næstu mán- uðum og að það geti haft áhrif á kjósendur fyrir kosningarnar í nóvember. Þetta er líklega rétt mat hjá Biden en sýnir um leið þann vanda sem við er að etja þegar efnahagsþvinganir gagn- vart Rússlandi eru annars vegar. Financial Times hefur nefnt fleiri tilslakanir sem gerðar hafa verið til að rússneska olían og gasið megi áfram skila sér til er- lendra kaupenda og skili þar með fúlg- um fjár í kassa Kremlar. Evrópu- sambandið mun til dæmis hafa hliðrað til þannig að evrópsk fyrirtæki geti átt viðskipti við rússnesk ríkisfyrirtæki á borð við olíu- fyrirtækið Rosneft, til að tryggja flutning á olíu til landa utan sambandsins. Fyrirtækjum innan ESB mun ekki lengur vera óheimilt að greiða fyrirtækjum á borð við Rosneft, „ef greiðsl- urnar eru alveg nauðsynlegar“ vegna kaupa eða flutnings á olíu- vörum til landa utan Evrópu- sambandsins, eins og talsmaður framkvæmdastjórnar sam- bandsins lýsti því. Dapurlegt er að horfa upp á þennan vandræðagang Vestur- landa sem stafar alfarið af því að þau hafa komið sér í þá stöðu að vera háð Rússlandi um orku. Og ekki batnar það þegar forysta Bandaríkjanna er jafn veik og raun ber vitni og þorir ekki að fara inn í kosningar í nóvember nema henni takist að koma í veg fyrir að hömlur verði lagðar á olíuútflutning Rússlands, hvað sem sagt er opinberlega um um- fangsmiklar efnahagsþvinganir. Það má svo segja að ekki hafi það orðið til að bæta stöðuna að Erdogan forseti Tyrkja brá sér yfir Svartahafið til fundar við Pútín forseta Rússlands í perlu Svartahafsins, rússnesku borg- inni Sochi, og samdi þar um auk- in viðskiptatengsl, meðal annars á sviði bankamála. Sömuleiðis ákváðu forsetarnir að hér eftir skyldi Tyrkland greiða hluta af þeirri olíu og gasi sem það kaup- ir af Rússum með rúblum. Fund- urinn og samkomulagið minnir á að Tyrkland er, líkt og Þýska- land og fleiri ríki Atlantshafs- bandalagsins, afar háð Rússum um olíu og gas. Það er því sama hvert litið er, orka og hætta á orkuskorti og háu orkuverði er ráðandi um þær ákvarðanir sem mestu skipta þegar kemur að efnahags- legum þvingunum gagnvart Rússlandi. Ekkert útlit er fyrir að þetta breytist, nema síður sé. Rússar hafa gætt þess með því að takmarka streymi á gasi í vesturátt, þó að þeir viðurkenni ekki að það sé tilgangurinn, að Þjóðverjar og aðrir í vesturhluta Evrópu geti ekki fyllt á tanka sína fyrir veturinn. Á meðan Vesturlönd eru í þeirri stöðu í orkumálum sem þau hafa sjálf komið sér í er lítil von um að nokkuð breytist. Og jafnvel þó að ákveðið yrði að snúa af braut orkuskorts tekur tíma að komast út úr ógöng- unum. Á þeim tíma hefur forseti Rússlands tök á Vesturlöndum og enginn þarf að efast um að þeim verður beitt. Vesturlönd sæta gagnrýni fyrir að- gerðaleysi en geta sig hvergi hrært} Gerviþvinganir Vesturlanda F ramsóknarmenn hafa átt betri vik- ur en þá nýliðnu í samgöngulegu tilliti. Áformum innviðaráðherra um gjaldtöku af öllum eldri jarð- göngum, til fjármögnunar nýrra, var vægast sagt illa tekið, en umsagnarfrestur rann út 2. ágúst og höfðu þau þá legið í samráðsgátt frá 19. júlí. Tímasetningin bendir til að hóflegur áhugi hafi verið á að fá fram athugasemdir við áformin. Það eru fá dæmi þess að ráðherra kýli sjálfan sig jafn rækilega kaldan í eigin plaggi og því sem hann lagði fram til kynningar. Í plagginu sem birtist í samráðsgáttinni og ber yfirskriftina „Mat á áhrifum lagasetningar“ segir á bls. 2 undir lið B.3: „Jafnframt er gert ráð fyrir því að hafin verði gjaldtaka í öllum jarðgöngum til að standa undir rekstri þeirra og styðja við gerð nýrra jarðganga.“ neðar á sömu blaðsíðu segir, í lið D.11 í samhengi við yfirvofandi gjaldtöku: „Meginatriði er að notendur hafi hag af því að nýta sér hina nýju innviði og eigi jafnframt kost á annarri leið.“ Nú hefur ráðherra ekki kynnt áform um að opna aftur Óshlíðina, eða þá vegi aðra sem jarðgöng hafa leyst af hólmi á undanförnum áratugum. Fljótt á litið virðist liður D.11 slá út af borðinu mögulega gjaldtöku í flestum jarð- göngum landsins. Því verður vart trúað að ráðherra horfi til þess að hafa megintekjur af hugmynd sinni frá Hvalfjarðargöngum annars vegar, sem þegar er búið að greiða upp að fullu með veggjöldum, og Vaðlaheiðargöngum hins vegar, þar sem gjaldtaka er nú þegar viðhöfð. Það væri fráleitt. Þetta tvennt; gjaldtaka í öllum göngum annars vegar og hins vegar að forsenda gjaldtöku sé að notendur hafi val um aðra leið, eru ósamrým- anleg markmið og undarlegt að enginn starfs- maður ráðuneytisins hafi bent ráðherra á hvers lags mótsögn hann væri kominn í við sjálfan sig. Hitt málið sem var innviðaráðherra mótdrægt í vikunni var gosið í Meradölum og áhrif þess á rannsóknir og áform um (ó)mögulega byggingu flugvallar í Hvassahrauni. Frá því gosið í Geldingadölum hófst í mars 2021 hefur sá sem hér skrifar reynt að benda inn- viðaráðherra á að ekki sé forsvaranlegt að brenna skattfé almennings með áframhaldandi rann- sóknum á mögulegu flugvallarstæði í Hvassa- hrauni, þegar öllum með fulla sjón og heila hugsun var orð- ið ljóst að í Hvassahrauni yrði ekki byggður upp flugvöllur. Innviðaráðherra gekkst við því í vikunni að líkur á nýj- um flugvelli í Hvassahrauni færu minnkandi, en vill samt halda kúrs og klára veðurfarsrannsóknir á svæðinu! Hvaða rugl er þetta? Auðvitað áttu menn að hætta að henda fjár- munum í þessar rannsóknir þegar gosið hófst í Geld- ingadölum fyrir rúmu ári, en að hætta því ekki núna sýnir fullkomið virðingarleysi fyrir skattfé. Ef vit væri í, þá ætti fjármálaráðherra að stöðva svona meðferð á skattfé. bergthorola@althingi.is Bergþór Ólason Pistill Innviðaráðherra á móti sjálfum sér Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is O ft finnst íslenskum við- skiptavinum óhugnanlegt þegar fyrirtæki nýta sér persónuupplýsingar þeirra og er skilningur viðskiptavina á öflun persónuupplýsinga fyrir- tækja gjarnan takmarkaður. Þrátt fyrir að finnast upplýsingaöflunin óþægileg samþykkir stærstur hluti viðskiptavina persónuverndar- stefnur án þess að lesa þær. Rannsókn Sigrúnar Ellerts- dóttur markaðsfræðings leiðir þetta í ljós. Sigrún rannsakaði persónu- upplýsingaöflun íslenskra fyrir- tækja og viðhorf viðskiptavina til upplýsingaöflunar fyrirtækja fyrir meistararitgerð sína í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst. Í samtali við Morgunblaðið seg- ir Sigrún að íslensk fyrirtæki safni almennt mjög takmörkuðum upplýs- ingum um sína viðskiptavini en hún ræddi við íslensk þjónustufyrirtæki við sína rannsókn enda eru það þau fyrirtæki sem helst eru farin að safna persónuupplýsingum við- skiptavina sinna hér á landi. Ekkert eins og Google Þær upplýsingar sem fyrir- tækin söfnuðu voru m.a. nöfn við- skiptavina, netföng og símanúmer ásamt því að fyrirtækin skráðu hjá sér samskipti við viðskiptavini, nið- urstöður úr könnunum og umtal um fyrirtækin á samfélagsmiðlum. Sig- rún segir að samt sem áður sé það algengur misskilningur að íslensk fyrirtæki gangi lengra en það í öflun persónuupplýsinga. Erlend stórfyrirtæki eins og Google og samfélagsmiðillinn Face- book hafa hlotið gagnrýni fyrir veru- lega öflun persónuupplýsinga en Sigrún segir að íslensk fyrirtæki gangi alls ekki jafn langt og tækni- risarnir. „Fyrirtæki á Íslandi eru alls ekki að safna eins miklu og Google,“ segir Sigrún. „Þau fyrirtæki sem ég tók viðtöl við eru með lögfræðinga og persónuverndarfulltrúa til að passa að það sé ekki verið að taka of miklar upplýsingar, bara þær helstu sem gætu hjálpað til við að bjóða við- skiptavinum betri þjónustu,“ segir Sigrún. Þrátt fyrir þessa takmörkuðu upplýsingaöflun íslenskra fyrir- tækja bendir rannsókn hennar til þess að íslenskir neytendur séu ósáttir við að fyrirtæki safni per- sónulegum upplýsingum um þá. 505 svöruðu spurningakönnun Sigrúnar um þessi efni en 66% þátttakenda sögðust frekar eða mjög ósátt við það að fyrirtæki safnaði persónu- legum upplýsingum um þá. Á móti kemur að 70% þátttakenda sögðust oft eða alltaf samþykkja persónu- verndarstefnur án þess að lesa þær. „Mér finnst viðskiptavinirnir ekki nægilega meðvitaðir um það hvaða upplýsingum fyrirtæki eru að safna. Það vantar meiri fræðslu um það hvaða upplýsingum er safnað af íslenskum fyrirtækjum,“ segir Sig- rún. Rannsókn hennar leiddi í ljós að fyrirtæki eru í auknum mæli farin að afla persónugagna um viðskiptavini sína en Sigrún segir að markmið þeirra fyrirtækja sem hún ræddi við með því sé að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu. „Algengast var að þau persónugögn sem fyrir- tæki notuðu um viðskiptavini sína væru tengiliðaupplýsingar og sam- skiptasaga,“ segir í ritgerð Sigrún- ar. Þá mældu flest fyrirtækjanna sem Sigrún ræddi við ítrekað ánægju viðskiptavina sinna til þess að heyra hvað þeim fyndist um þjón- ustu fyrirtækisins. Samþykkja stefnur án þess að lesa þær Morgunblaðið/Eggert Upplýsingar Ungt fólk hafði minnstar áhyggjur af upplýsingaöflun fyrir- tækja samkvæmt rannsókn Sigrúnar en eldra fólk hafði mestar áhyggjur. „Mér finnst aðalatriðið að það verði meiri vitund- arvakning um það hvaða gögnum er verið að safna og hvers vegna því við- skiptavinir eru klárlega ekki meðvitaðir um það. Þeir halda að það sé verið að safna öllu,“ segir Sigrún um niðurstöður rannsóknarinnar. Sigrún spurði fyrirtækin m.a. hvort þau söfnuðu gögnum um viðskiptavini sína sem þau nýttu ekki. Niðurstaðan var sú að yfirleitt væri það ekki gert. Þá segir Sigrún aðspurð að þau fyrirtæki sem hún ræddi við selji ekki persónuupplýsingar viðskiptavina sinna áfram held- ur nýti þær einfaldlega til þess að sníða þjónustuna betur að sínum viðskiptavinum. Ekki verið að safna öllu VITUNDARVAKNING Sigrún Ellertsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.