Morgunblaðið - 08.08.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 08.08.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022 Hrafnaþing Tveir hrafnar spjölluðu saman um daginn og veginn á ljósastaur þegar ljósmyndara bar að garði. Arnþór Birkisson Þótt ekkert fæðing- arvottorð sé til er al- mennt talið að lýðræð- ið hafi fæðst í Grikklandi á 5. öld f. Kr. og að vöggu þess sé helst að finna í borg- ríkinu Aþenu. Á æsku- skeiði átti lýðræðið góða spretti í Róm, áð- ur en valdagírugir menn komu á einræði með múgæsingarstarfi, ógn og of- beldi. Eftir það sat lýðræðið lengi í öskustó annars stjórnarfars. Minn- ingin um sólbjarta daga málfrelsis og sjálfstæðis dofnaði en hvarf þó ekki með öllu. Jafnvel þótt þessi minning hafi orðið óljós á myrkustu köflum þessara fyrstu alda var það þó kannski einmitt óljós endurómur- inn sem hélt lífi í glóðunum þegar út- litið var sem dekkst. Þrátt fyrir van- þroska og mótlæti braust andi lýðræðisins stundum eftirminnilega í gegn. Til þeirrar sögu má nefna stofnun Alþingis árið 930, Magna Carta (1215) o.fl. Á þessum grunni holdgerðist lýðræðisandinn í Eng- landi á 17. öld eins og sjá má m.a. í Bill of Rights (1689) sem markaði þáttaskil. Lýðræðið fann rætur sínar og styrktist með hverri raun. Segja má að átök næstu 100 ára hafi falið í sér dýrmæta þjálfun hvað varðar bæði úthald og styrk. Á þessum mót- unarárum naut lýðræðið leiðsagnar úrvals kennara. Við leiðarlok ber að minnast sérstaklega á John Locke (1632-1704) og bók hans, Ritgerð um ríkisvald, sem reyndist lýðræðinu traust handbók í átökum og eftir- málum bandaríska frelsisstríðsins (1765-1791) og frönsku bylting- arinnar (1789). Ekki verður skilið við þetta tímabil án þess að minnast á Sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkj- anna (1776), þar sem þrír grundvall- arþræðir lýðræðisins, uppruni, markmið og tilgangur, eru glæsilega fléttaðir saman: 1) Guð skapaði alla menn jafna og gaf þeim rétt til lífs, frelsis og til að leita hamingjunnar. 2) Meg- intilgangur með öllu stjórnarfari er að verja þessi réttindi. 3) Ef rík- ið reynir að synja mönnum um þennan rétt er fólki heimilt að gera uppreisn og koma á fót nýrri stjórn. Sam- an mynda þessir þrír þræðir erfðamengi lýð- ræðisins, anda þess og sál, sem síðar má vonandi vekja til nýs lífs. Á blómaskeiði sínu átti lýðræðið glæstar stundir og fóstraði margt það besta sem mönnum hefur tekist að leiða fram, með því að virkja sköpunarkraft, samtakamátt o.fl. Stofnun íslenska lýðveldisins 1944 var mjög í þessum anda, hugdjörf ákvörðun fámennrar en stórhuga þjóðar. Því verður þó ekki á móti mælt, að lýðræðið glímdi alla tíð við meðfædda galla og var t.d. óþægi- lega ginnkeypt fyrir hvers kyns skrumi. Í alþjóðlegu samhengi leiddu veik- leikar lýðræðisins til þess að það féll ítrekað fyrir varasömum mönnum, sem kunnu að spila á strengi sem leiddu fólk í gildru harðstjórnar, þar sem járnkrumla hertist um æðakerfi þjóðlífsins þar til ekkert varð eftir annað en stirðnuð skel og líflaus leikmynd þar sem andlausir leikarar þuldu upp sömu setningarnar í mis- munandi útgáfum. Stjórnmálin urðu dauf og líflaus, ekkert kom lengur á óvart. Hver einasta lína var skrifuð af ósýnilegum baktjaldamönnum og óttinn knúði alla til að vanda fram- burð og látbragð í hvívetna, því sér- hvert frávik frá textanum gat varðað atvinnumissi og brottrekstri af svið- inu. Í þessu umhverfi entust þeir lengst í stjórnmálum sem nutu sviðsljóssins mest og höfðu kannski minnst fram að færa frá eigin brjósti, en sýndu hæfni í að endur- taka hugsanir annarra af einlægum sannfæringarkrafti. Þegar þátttaka í stjórnmálum var ekki lengur þjón- ustuhlutverk, heldur starfsferill, náðu þeir lengst sem spurðu engra spurninga, voru reiðubúnir að kynda undir óvild manna í garð samborg- ara sinna, veigruðu sér ekki við að hóta þeim sem sýndist skorta und- irgefni og hikuðu ekki við að fram- fylgja fyrirskipunum með valdbeit- ingu. Frammi fyrir þessu rann smám saman upp fyrir kjósendum að stjórnmálin höfðu umbreyst í leiklestur og stjórnmálamennirnir í brúður. Niðurlægingin var svo mikil og svikin svo sárgrætileg að enginn vildi viðurkenna að þetta væru dauðamörk. Enginn nema börn og stöku eldri borgarar höfðu einlægni til að spyrja: „Til hvers að taka þátt í pólitík ef þú ætlar ekki að segja það sem þér sjálfum finnst?“ Ef marka má sögu lýðræðisins mun ekkert breytast fyrr en menn rísa upp gegn ofríkisöflunum og hafna andleysinu í þeim tilgangi að verja líf sitt og frelsi til gagnrýn- innar hugsunar, málfrelsi sitt og frelsi til athafna, samvinnu, upp- byggingar og friðar. Aðeins þannig getur lýðræðið vaknað til nýs lífs. Hafa Íslendingar þrek til þess eða kjósa menn enn að dvelja sofandi á draumþingum og hlusta hálfsofandi á léleg handrit leiklesin á öllum svið- um einkalífs og þjóðlífs? Eftir Arnar Þór Jónsson » Frammi fyrir þessu rann smám saman upp fyrir kjósendum að stjórnmálin höfðu um- breyst í leiklestur og stjórnmálamennirnir í brúður. Arnar Þór Jónsson Höfundur er sjálfstætt starfandi lög- maður og formaður Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál. arnarthor@griffon.is Til minningar um lýðræðið Fátt hefur dregið hræsnislega umræðu auðugri þjóða heimsins um jarðefnaeldsneyti gerlegar fram í dags- ljósið en orkukreppan í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Bandaríkin og Evrópa grátbiðja arabaþjóðirnar um að herða á olíuframleiðslu sinni samtímis því sem G7-iðnríkin hvetja fátækari ríki til notkunar endurnýjanlegra orkugjafa í því augnamiði að gæta að loftslags- málum. Þjóðverjar endurræsa kolaorku- ver sín á meðan Spánverjar og Ítalir tala fyrir aukinni gasframleiðslu í Afríku. Þá er fjöldi Evrópuríkja, sem beðið hafa Botsvana að auka afköstin í kolanámum þarlendum, slíkur, að reikna má með þreföldun í umfangi kolaútflutnings þaðan. Einn einasti þegn meðal auðþjóða notar meira jarðefnaeldsneyti en samsvarar þeirri orku sem 23 Afr- íkubúum stendur til boða. Auður þessara þjóða spratt af umfangsmik- illi vinnslu jarðefnaeldsneytis sem um þessar mundir sér þeim fyrir rúmlega þremur fjórðungum þeirrar orku sem þær nota. Innan við þrjú prósent orku auðþjóðanna rekja upp- runa sinn til framleiðslu með sólskini og vindi. Engu að síður skera peningaþjóð- irnar við nögl sér styrki til vinnslu jarðefnaeldsneytis í þróunarríkjum. Fátækustu fjórir milljarðar mann- kyns hafa engan aðgang að burð- ugum orkulindum en frá auðþjóð- unum berast þeim þau boð að taka undir sig stökk frá orkuleysi til iðja- grænna allsnægta sólarorkuplatna og raforkuvindmylla. Sólarorkuævintýrið í Dharnai Er þar á ferð hrein tálsýn byggð á óskhyggju og grænni markaðs- setningu auðþjóða sem sjálfar kæmu aldrei til með að gera sér slíkar lausnir í orkumálum að góðu. Það ættu fátækari þjóðirnar ekki heldur að gera. Nú er lag að rifja upp reynslu indverska þorpsins Dharnai sem Grænfriðungar einsettu sér árið 2014 að gera að fyrsta sólarorku- samfélagi landsins. Augu allra fjölmiðla stóðu á Græn- friðungum þegar þeir lýstu því yfir að Dharnai neitaði að „falla í gildru jarðefnaeldsneytisiðnaðarins“. Dag- inn sem skipt var yfir í sólarorku tæmdust rafhlöðurnar svo á fáeinum klukkustundum. Eftirminnileg er frásögn af dreng nokkrum sem gat ekki sinnt heimanámi sínu þar sem rafmagnið dugði ekki til að knýja eina lampa heimilisins. Þorpsbúum var bannað að nota kæliskápa sína og sjónvarpstæki þar sem raforkukerfið stæði ekki undir notkuninni. Ekki var heldur hægt að nota rafknúnar eldunarhellur svo fólkið neyddist til að snúa aftur í hit- un með eldiviði sem olli skelfilegri loftmengun. Um gervöll þróun- arríkin deyja milljónir úr innanhúss- mengun sem að mati Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar jafnast á við að reykja tvo pakka á dag. Grænfriðungar buðu svo forsætis- ráðherra Indlands til heimsóknar í þorpið þar sem við honum blöstu hópar fólks með kröfuskilti þar sem beðið var um „ósvikið rafmagn“ (í þeirri útfærslu sem leyfir notkun kæliskápa og eldavéla og gefur ljós sem dugir börnum til heimanáms) í stað „gervirafmagns“ (þar sem átt var við rafmagn frá sólarorku sem býður ekki upp á neitt af fram- angreindu). Orkuverið er nautgripahús Þegar Dharnai fékk svo loksins að tengjast raforkukerfi slökktu æ fleiri íbúanna á sólarrafhlöðum sínum. Samkvæmt rannsókn nokkurri var helsta ástæða þessa sú að kolaorkuframleidda rafmagnið sem þorpið fékk aðgengi að var þrefalt ódýrara en sól- arorkuævintýrið. Í ofanálag stóð það undir notkun tækja sem fólk vildi nota, svo sem sjón- varps og eldunartækja. Þegar þetta er ritað er sólarorkubúnaðurinn hulinn þykku ryklagi og orkuverið er nautgripahús. Vitanlega má hlaða farsíma með sólarorkurafmagni og kveikja ljós, nokkuð sem getur komið sér vel, en er gjarnan rándýrt. Úttekt sem gerð var á sólarorkuvinnslu fjölmennustu fylkja Indlands leiddi í ljós að þrátt fyrir ríkulegar niðurgreiðslur eru sólknúnir lampar flestum notendum mun minna virði en nemur kostn- aðinum við þá. Í auðugum ríkjum á borð við Þýskaland og Spán hefði minnst af sólarorkuframleiðslubún- aðinum verið sett upp ef ekki hefði verið fyrir niðurgreiðslur á honum. Ekki til að treysta á Rafmagn framleitt með sól og vindi getur ekki staðið undir iðn- aðarframleiðslu né knúið vatnsdælur, dráttarvélar og aðrar vélar – allt það sem þörf er á til að leysa fólk úr fjötr- um fátæktar. Eins og auðþjóðunum er nú að skiljast eru þessir orkugjaf- ar í grundvallaratriðum ekki til að treysta á. Sólarleysi og logn táknar rafmagnsþurrð. Rafhlöðutækni býð- ur heldur engin svör. Þær rafhlöður sem til eru í heiminum í dag nægðu eingöngu til að standa undir orku- notkun heimsbyggðarinnar í eina mínútu og fimmtán sekúndur. Jafn- vel árið 2030, í kjölfar umfangsmik- illar rafhlöðuframleiðslu, yrði þessi tími ekki orðinn meiri en tæpar tólf mínútur. Til hliðsjónar má hafa vetur í Þýskalandi, þegar sólarorkufram- leiðsla er hve minnst. Á sama tíma koma minnst fimm daga samfleytt tímabil, rúmar 7.000 mínútur, þegar framleiðsla vindorku er við núllið. Hér eru komnar skýringarnar á því hvers vegna auðugri þjóðir heimsins munu áfram reiða sig á jarðefnaeldsneyti um áratugi. Alþjóðaorkustofnunin spáir því, að jafnvel þótt öll loftslagsumbótalof- orðin verði efnd muni jarðefnaelds- neyti enn vera uppspretta tveggja þriðju hluta orku þessara þjóða árið 2050. Þróunarríkjunum dylst ekki hræsnin í orkuumræðunni og ef til vill hefur enginn orðað hlutina hag- anlegar en Yemi Osinbajo, varafor- seti Nígeríu: „Engum í heiminum hefur auðnast að iðnvæðast með end- urnýjanlegri orku einni saman, [þó hafa Afríkuþjóðirnar] verið beðnar að gera það þótt öllum öðrum í heim- inum sé fullkunnugt að við þurfum gasdrifinn iðnað fyrir viðskiptalífið.“ Auðþjóðir heimsins eiga að sjá sóma sinn í að fjárfesta í nýsmíði sem tryggir að kostnaður við græna orku verði minni en við jarðefnaeldsneyt- isleiðina í stað þess að vera siðlaus ljón í vegi þróunar annarra ríkja. Með því mætti tryggja að öll heims- byggðin geti nýtt sér endurnýjanlega orkuvalkosti. Krafa um að fátæku ríki heimsins komist af án jarðefna- eldsneytis er ekkert annað en leikur að lífi annarra. Eftir Bjørn Lomborg » Fátækustu fjórir milljarðar mannkyns hafa engan aðgang að burðugum orkulindum Bjørn Lomborg Höfundur er forseti Kaupmannahafn- arhugveitunnar og gistifræðimaður við Hoover-stofnun Stanford-háskóla. Nýjasta bók hans er False Alarm: How Climate Change Panic Costs Us Trillions, Hurts the Poor, and Fails to Fix the Planet. Að leika sér með líf annarra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.