Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022
40 ÁRA Guðlaug er Kópavogsbúi,
ólst upp í Hjallahverfinu og er komin
þangað aftur. Hún er þroskaþjálfi í
Salaskóla.
Guðlaug er í Leikfélagi Kópavogs
og er trommari í hljómsveitinni Rósu
frænku. Hún spilaði fótbolta með
Breiðabliki í yngri flokkum og Hauk-
um í meistaraflokki. Áhugamálin eru
útivist, ferðalög og snjóbretti.
FJÖLSKYLDA Bróðir Guðlaugar er
Friðgeir Ingi, f. 1978. Foreldrar
þeirra eru hjónin Guðrún Sigurð-
ardóttir, f. 1956, vann lengi hjá Síman-
um, og Eríkur Ingi Friðgeirsson, f.
1954, matreiðslumaður. Þau eru öll
búsett í Kópavogi.
Guðlaug Björk Eiríksdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það vantar ekki mikið upp á að þér
takist að ljúka því verkefni sem þér hefur
verið falið. Reyndu að beina viðkomandi inn
á nýja braut.
20. apríl - 20. maí +
Naut Láttu allar illdeilur á vinnustað sem
vind um eyru þjóta. Reyndu að vinna sem
mest ein/n og láttu félagslífið aðeins bíða.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Hlustaðu á röddina innra með
þér sem segir að tími sé kominn til að slaka
á. Svo ef þið eruð jákvæð og opin fyrir nýj-
ungum megið þið vera viss um að allt fer á
besta veg.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Tekjur þínar og eignir munu aukast
á komandi ári. Reyndar er það næstum því
ógerningur, enda þarf maður einhvern tím-
ann að nærast.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Tækifæri glatast aldrei, ef á það er lit-
ið. Leitaðu leiða til þess að draga fram það
sem aðgreinir þig frá öðrum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Lærimeistararnir eru sammála þér,
auðvitað er erfitt að gera ekki neitt. Leitaðu
samt ekki langt yfir skammt því tækifærin
eru við höndina.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Rómantísk sambönd gætu liðið fyrir
það í dag að einn aðilinn er að reyna að
bæta hinn. Hann setur hvort eð er engar
skorður við frumkvæði þínu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Samræður við vini og maka
taka óvænta stefnu í dag. Eitt slíkt samtal
býðst í dag svo vertu við öllu búinn.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft ekki að sannfæra aðra
um að þú hafir rétt fyrir þér. Kannski hittir
hún einhvern sem óhætt er að segja að sé
skrýtin skrúfa.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Farðu varlega þegar ókunnugir
eiga í hlut og láttu reyna á persónuna áður
en þú hleypir henni að þér. Láttu nú ekki
óttann eyðileggja tækifærin.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Gerðu þér ekki upp áhyggjur
vegna vinnunnar. Veittu fólki þá hand-
leiðslu sem þér er unnt. Gerðu nú það sem
þig hefur alltaf langað til þess að gera.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hafðu auga með öllum smáat-
riðum, hvort sem þér finnast þau skipta
einhverju máli eða ekki. Fjármálin eru til
vitnis um hvernig maður hugsar.
ins með því að fara með danska
ferðamenn um landið.“
Tómstundir og félagsstörf hafa
verið mörg hjá Ragnari gegnum tíð-
ina. Hann stundaði íþróttir með
Haukum í Hafnarfirði og var lengi í
skátunum. Hann var einn af stofn-
endum Umhverfis- og útivistarfélags
árs 2018 hóf hann störf sem sviðs-
stjóri umhverfis- og skipulagsmála
hjá Borgarbyggð en um áramótin
2020 ákvað hann að hefja sjálfstæðan
rekstur á sviði umhverfis- og skipu-
lagsmála. Hann sinnir nú ráðgjöf á
því sviði. „Sumarið 2022 tók ég einnig
að mér rútuleiðsögn og naut sumars-
R
agnar Frank Kristjáns-
son fæddist 8. ágúst
1962 í Reykjavík og
ólst upp í Hafnarfirði,
en foreldrar hans höfðu
flust þangað árið 1957. Þar ólst
Ragnar upp á Suðurgötu 47 ásamt
fimm systkinum.
Ragnar fór í leikskólann hjá nunn-
unum við St. Jósefsspítala, fór síðan í
Öldutúnsskóla og lauk stúdentsprófi
frá Flensborgarskóla 1982. Hann
hélt til Kaupmannahafnar í fram-
haldsnám og útskrifaðist frá Land-
búnaðarháskólanum 1990 sem lands-
lagsarkitekt. „Árin í
Kaupmannahöfn höfðu mótandi áhrif
á mig og hinn 8. ágúst 1992 giftum
við Ulla Rolfsigne Pedersen okkur í
Lundtoftekirke.“
Eftir að námi lauk hóf Ragnar
störf á teiknistofum, en staldraði
stutt við á þeim vettvangi. Embætt-
isferill hans hófst hjá Skipulagi rík-
isins og síðan vann hann hjá
Náttúruverndarráði/Náttúruvernd
ríkisins, en þar starfaði hann sem
sérfræðingur á sviði skipulags og
náttúruverndar. „Árið 1998 ákváðum
við hjónin að flytja í þjóðgarðinn
Skaftafell, en þar hafði ég ráðið mig
sem þjóðgarðsvörð. Það voru forrétt-
indi að starfa í þjóðgarðinum og nut-
um við lífsins í Öræfum. Dætur okk-
ar þrjár, Anna, Íris og Freyja, nutu
þess einnig að búa í Skaftafelli og
hafa uppvaxtarár þeirra þar haft
mikil áhrif á þau. Allar hafa þær farið
í háskólanám á sviði náttúrufræða og
starfa á þeim vettvangi. Haustið 2007
fluttum við frá Skaftafelli á Hvann-
eyri í Borgarfirði. Elsta dóttir mín
var þá komin á framhaldsskólaaldur
og kona mín komin með vinnu á
teiknistofu í Borgarnesi. Anna fór í
nýstofnaðan Menntaskóla Borgar-
fjarðar, og Íris og Freyja fóru í
Grunnskóla Borgarfjarðar.“
Ragnar fékk stöðu sem lektor við
Landbúnaðarháskóla Íslands og
kenndi landslagsarkitektúr í 10 ár.
Árið 2010 var hann kosinn í sveit-
arstjórn Borgarbyggðar, var þar for-
seti sveitarstjórnar í fjögur ár og
gegndi einnig fjölda trúnaðarstarfa
hjá sveitarfélaginu. Hann sat einnig í
sveitarstjórn 2014 til 2018. Í byrjun
Hafnarfjarðar, hann var stofnandi og
formaður Fornleifafélags Öræfa og
var formaður í björgunarsveitinni
Kára í Öræfum. Hann er nýkjörinn
forseti Rótarý í Borgarnesi. „Við
hjónin eigum sumarhús í Svínafelli í
Öræfum og sækjum þangað oft. Það
er gott að vera Skaftfellingur. Hesta-
Ragnar Frank Kristjánsson landslagsarkitekt – 60 ára
Á Hvanneyri Frá vinstri: Ragnar, Ulla, miðdóttirin Íris og eiginmaður hennar, Árni.
Nýtur enn lífsins í Öræfum
Afmælisbarnið Ragnar tekur við embætti forseta Rótarý af Gísla Karel. Hjónin Ragnar og Ulla í hestaferð.
Ingunn Eva Halldórsdóttir
og Yrsa Sif Hinriksdóttir
söfnuðu dósum á Akureyri
og afhentu Rauða kross-
inum við Eyjafjörð afrakst-
urinn, 15.000 krónur. Rauði
krossinn þakkar þeim kær-
lega fyrir framlag þeirra í
þágu mannúðar.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn