Morgunblaðið - 08.08.2022, Page 25

Morgunblaðið - 08.08.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG GET EKKI ÍMYNDAÐ MÉR HVERS VEGNA APPIÐ PARAÐI OKKUR SAMAN, NEMA KANNSKI VEGNA ÞESS AÐ ÉG ELSKA FORNMUNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einn drykkur, tvö rör. JÓNI FINNST ÉG FEITUR EKKI RÉTT HANN Á BARA LÉLEG HÚSGÖGN VEISTU HVERSU MIKIÐ ÞAÐ FER Í TAUGARNAR Á MÉR AÐ HORFA UPP Á ÞETTA? ER GAFFALLINN Á RÖNGUM STAÐ? „OG ÞÚ SEGIR AÐ ÞÚ HAFIR VERIÐ ALGERLEGA GRILLAÐUR Í SPURNINGALEIKNUM?“ mennska hefur fylgt fjölskyldunni undanfarin 30 ár.“ Fjölskylda Eiginkona Ragnars er Ulla Rolf- signe Pedersen, f. 22.3. 1966, lands- lagsarkitekt, starfar á verkfræðistof- unni Verkís og Zonta-félagi. Þau eru búsett á Hvanneyri í Borgarfirði. Foreldrar Ullu voru hjónin Erik Rolf Pedersen, f. 12.8. 1928, d. 30.10. 2019, framkvæmdastjóri í Kaupmanna- höfn, og Rolfsigne Pedersen, f. 18.6. 1932, d. 10.6. 2021, húsfreyja. Dætur Ragnars og Ullu eru: 1) Anna Ragnarsdóttir Pedersen, f. 27.11. 1991, þjóðfræðingur og um- hverfisráðgjafi, býr á Höfn í Horna- firði. Hún er í sambúð með Emil Erni Morávék tómstundafulltrúa. Börn þeirra eru Sóley, f. 2017, og Jóhann, f. 2021; 2) Íris Ragnarsdóttir Peder- sen, f. 10.2. 1995, náttúrufræðingur og fjallaleiðsögukona, býr í Svínafelli í Öræfum. Hún er gift Árna Stefáni Haldorsen, verkfræðingi og fjalla- leiðsögumanni; 3) Freyja Ragnars- dóttir Pedersen, f. 11.7. 1998, náms- maður, býr á Bíldudal. Hún er í sambúð með Matthíasi Karli Guð- mundssyni, vélfræðingi og sjómanni. Systkini Ragnars eru Jón Konráð, f. 5.10. 1954, d. 12.12. 1997; Sólveig kennari í Hafnarfirði, f. 22.3. 1956; Sigríður, framkvæmdastjóri í Hafn- arfirði, f. 22.5. 1957; Kristján Rúnar, sjálfstætt starfandi, f. 19.11. 1958; Stella, kennari í Reykjavík, f. 9.3. 1961. Foreldrar Ragnars voru hjónin Kristján Hans Jónsson rennismiður, f. 27.4. 1927, d. 18.10. 2007, og Ásdís Guðbjörg Konráðsdóttir verkstjóri, f. 21.3. 1936, d. 24.4. 2022. Þau bjuggu í Hafnarfirði, en giftu sig í Reykjavík 8.12. 1955. Ragnar Frank Kristjánsson Guðbjörg Ásgrímsdóttir húsfreyja á Einlandi, f. í Lambhúsakoti í Grindavík Jón Þórarinsson útgerðarmaður á Einlandi í Grindavík, f. í Stokkseyrarseli Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Konráð Árnason innkaupamaður í Reykjavík Ásdís Guðbjörg Konráðsdóttir verkstjóri í Hafnarfirði Þóra Hafliðadóttir húsfreyja á Hrauni, f. á Hrauni Árni Árnason bóndi á Hrauni í Grindavík og farandsmiður, f. á Þorkötlustöðum í Grindavík Helga Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Litla-Hóli, f. í Langhúsum (nú Ásgarði) í Viðvíkursveit Jón Jóhannsson bóndi og vefari á Litla-Hóli í Viðvíkursveit, Skag., f. á Sigríðarstöðum í Fljótum Sólveig Jónsdóttir verkakona í Reykjavík Jón Kristján Guðmundur Kristjánsson sjómaður í Reykjavík Sigríður Jakobína Jónsdóttir Hoffmann húsfreyja á Búðum, f. í Arabíu á Búðum Kristján Jónsson hafnsögumaður og bóndi á Búðum, f. í Klettakoti á Búðum, Snæf. Ætt Ragnars Franks Kristjánssonar Kristján Hans Jónsson rennismiður í Hafnarfirði Pétur Stefánsson laumaði að mér þessari vísu sem varð til eftir drykkjufréttir veslunarmannahelg- arinnar: Döpur sýn við drengjum gín, dags í brýnum önnum. Brennivínið býr til svín úr býsna fínum mönnum. Hallmundur Guðmundsson á Boðnarmiði um „töfra Íslands“: Nú öldurót og funafár fylla válistana, svo bakkafyllast fúlar ár fyrir túristana. Davíð Hjálmar Haraldsson spyr: „HVAR GÝS?“ Að það gjósi vísindamenn vita en varla hvar, það grípur um sig stress. Þeir hoppa eins og hrafn sem þarf að drita en hefur ekki valið staur til þess. Gunnar J. Straumland svarar: Eftir nokkurt moð og más og marga kenninguna rifnaði eins og rennilás rauf í jarðskorpuna. Skúli Pálsson heldur áfram: „Þá fór einmitt að gjósa“: Eftir að skjálfta hrina hörð hristi fjallakrika rymja djúpin, rifnar jörð, rennur eldrauð kvika. Og síðan bætti Skúli við: Skoppa bollar, glamra glös, glymur eldhúskytra þegar hristist hraunakös og hamraborgir titra. Gunnar J. Straumland: Hvenær má segja að gos sé gos? Gjarnan ef verður á kviku los. Á jarðskorpu kumrandi kemur bros ef kviknar að nóttu eldur í mosa. Og Sævar Sigurgeirsson: Ólgar jörð í erg og gríð uppúr vella hraunin stríð. Lukkan færir launin blíð, loksins aftur fund með Víði. Halldór Guðlaugsson bætti við: „Og svo“: Sést til æstra flokka í fleng fréttamannagosa skrifa ýmsa speki í spreng spennu sína að losa. Ísleifur Gíslason yrkir og kallar „Hamskipting“: Ógn er Stína orðin beytt eftir Víkur-kynnið. Á henni er ekki neitt íslenskt – nema skinnið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þá fór einmitt að gjósa Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi, rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.