Morgunblaðið - 08.08.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.08.2022, Qupperneq 28
Getur snjóruðningur valdið kynjamismunun? Þetta byrjaði allt sem brandari. Árið 2011 voru fulltrúar í bænum Karlskoga í Svíþjóð látnir gangast undir kynjajafnréttisframtak sem þýddi að þeir áttu að endurskoða allar stefnur sínar með kynjuðu sjónarmiði. Eftir að hafa kafað djúpt ofan í hverja stefnuna á fætur annarri, gantaðist einn fulltrúi óheppi- lega með það að í það minnsta væri snjó- ruðningur eitthvað sem „kynjafólkið“ myndi ekki skipta sér af. Því miður fyrir hann leiddi þessi athugasemd til þess að kynjafólkið hugsaði: getur snjóruðningur valdið kynja- mismunun? Á þessum tíma, í takt við flest aðrar stjórnsýslur, hófst snjóruðningur í Karlskoga á stóru umferðaræðunum og honum lauk á göngu- og hjólastígum. Það hafði mismun- andi áhrif á karla og konur vegna þess að karlar og konur ferðast á mismunandi hátt. Okkur vantar samræmd, kyngreind gögn frá hverju landi en fyrirliggjandi gögn sýna að konur eru undantekningarlaust lík- legri en karlar til að ganga eða taka almennings- samgöngur. Í Frakklandi eru konur tveir þriðju not- enda almennings- samgangna; í Fíladelfíu og Chicago í Banda- ríkjunum eru þær 64% og 62%. Á sama tíma eru karlar út um allan heim líklegri til að ferðast akandi og ef bíll er á heimilinu stjórna karlarnir aðgangi að honum meira að segja í femínísku útópíunni Svíþjóð. Munurinn einskorðast ekki við samgöngu- tegundir: Hann snýst líka um hvers vegna karlar og konur ferðast. Karlar eru líklegri til að eiga frekar einfalt ferðamynstur: að ferðast tvisvar á dag, fram og til baka, út úr bænum til vinnu og heim aftur. Ferða- mynstur kvenna er oftast flóknara. Konur sinna 75% af ólaunuðum umönnunarstörfum heimsins og það hefur áhrif á ferðaþörf þeirra. Til dæmis inniheldur dæmigert ferða- mynstur kvenna stopp við skólann til að skila börnunum þangað áður en vinna hefst; að fara með eldri ættingja til læknis sem og að fara í matvörubúð á leiðinni heim. Þetta fyrirbæri kallast „ferðakeðja“ (e. trip- chaining), ferðamynstur sem inniheldur margar litlar og tengdar ferðir sem má sjá hjá konum út um allan heim. Í London eru konur þrisvar sinnum lík- legri en karlar til að fara með börnin í skóla og 25% líklegri til þess að fara í ferðakeðju; Þessi tala hækkar í 39% ef eitt barn á heim- ilinu er eldra en 9 ára. Þessi munur á karl- kyns og kvenkyns ferðakeðjum sést víða í Evrópu þar sem konur í fjölskyldum þar sem báðir foreldrar vinna úti eru tvisvar sinnum líklegri en karlar til að sækja og fara með börn í skólann á leiðinni í og úr vinnu. Mesti munurinn er á heimilum með ung börn: Úti- vinnandi kona sem á barn undir 5 ára aldri eykur ferðakeðju sína um 54% en útivinnandi maður í sömu stöðu einungis um 19%. Þessi mismunandi ferðamynstur þýddu að snjóruðningur sem í fyrstu virtist kynhlut- laus í Karlskoga var raunar alls ekki hlut- laus. Bæjarfulltrúar ákváðu því að breyta röðinni á snjóruðningi til þess að forgangs- raða gangandi vegfarendum og notendum almenningssamgangna. Eftir allt saman sögðu þeir að það væri ekki kostnaðarsamara og það var auðveldara að aka í gegnum átta sentimetra af snjó en að ýta kerru (eða hjólastól eða hjóli) í gegn- um átta sentimetra af snjó. Þeir áttuðu sig hins vegar ekki á að þetta leiddi til minni kostnaðar. Frá því árið 1985 hefur gögnum verið safnað um innlagnir á sjúkrahús sökum meiðsla í Norður-Svíþjóð. Gögnin í grunn- inum sýna að gangandi vegfarendur slasast þrisvar sinnum oftar en akandi vegfarendur í hálku og á ís og helmingur umönnunartíma á sjúkrahúsi vegna umferðarslysa er tengdur slysum á gangandi vegfarendum. Stærsti hluti gangandi vegfarenda eru konur. Rann- sókn á slysum gangandi vegfarenda í sænska bænum Umeå sýndi að 79% slysa áttu sér stað á vetrarmánuðum og að konur eru 69% þeirra sem slasast (þar sem engir fleiri komu við sögu í slysinu). Tveir þriðju slasaðra veg- farenda höfðu runnið eða dottið á ísilögðu eða snæviþöktu yfirborði og 48% höfðu hlotið miðlungs eða alvarlega áverka og voru bein- brot og að fara úr lið algengustu meiðslin. Almennt reyndust áverkar kvennanna alvar- legri. Fimm ára rannsókn í Skåne-sýslu sýndi svipaða þróun og var niðurstaðan sú að áverkarnir voru bæði kostnaðarsamir í heil- brigðiskerfinu og minnkuðu framleiðni. Áætl- aður kostnaður vegna allra gangandi vegfar- enda sem duttu á einum vetri var 36 milljónir sænskra króna (eða um 540 milljónir íslenskra króna). (Þetta er líklega varlega áætlað: margir slasaðir gangandi vegfarendur fara á sjúkrahús sem láta ekki gögn í té til umferðarslysagagnagrunns landsins; sumir fara til lækna og aðrir eru bara heima. Afleið- ing þess er að líklega er kostnaðurinn í heil- brigðiskerfinu og áhrif á framleiðni hærri.) Þetta hófsama mat sýnir þó að kostnaður slysa á gangandi vegfarendum í hálku er tvö- falt hærri en kostnaðurinn við viðhald gatna yfir vetrartímann. Í bæjarfélaginu Solna, nálægt Stokkhólmi, var kostnaðurinn vegna slysa þrefalt hærri en kostnaðurinn við við- hald gatna og í sumum rannsóknum hefur hlutfallið jafnvel mælst hærra. Burtséð frá nákvæma muninum heilt yfir þá er ljóst að forgangsröðun gangandi vegfarenda í snjó- ruðningi sem dregur úr slysum er hagkvæm því að hún dregur úr slysum. Ein stærð sem hentar körlum Í grófum dráttum má skipta mannkyninu í tvennt: annars vegar fólk með stórar hendur og hins vegar fólk með litlar hendur. Þannig komst píanistinn Christopher Donison að orði árið 1998. Donison var að lýsa reynslu sinni sem karlkyns píanóleikara sem sökum þess að hafa smærri hendur en meðalmaður hafði átt í erfiðleikum árum saman með hefð- bundin nótnaborð. Það hefði allt eins getað verið kona að skrifa þetta. Það er marg- staðfest að konur eru að jafnaði með smærri hendur en karlar. Þrátt fyrir það höldum við ótrauð áfram að hanna búnað út frá meðal- stærð karlkyns handar eins og ein stærð sem henti körlum jafngildi einni stærð sem henti öllum. Þessi einhliða nálgun gagnvart hlutum sem eiga að heita kynhlutlausir kemur konum illa. Meðalstærð handar kvenna (mæld frá enda litla fingurs að enda þumals) er á bilinu 17 til 20 sentimetrar sem gerir hefðbundið 1,2 metra langa nótnaborðið að ákveðinni áskor- un. Áttundir á hefðbundnu nótnaborði eru um 19 sentimetrar á breidd og ein rannsókn leiddi í ljós að slík nótnaborð eru 87% full- orðinna kvenpíanóleikara í óhag. Á sama tíma leiddi rannsókn frá 2015, sem bar sam- an stærð handa 473 fullorðinna píanóleikara og „hversu vel þekktir þeir voru,“ í ljós að allir tólf píanóleikararnir sem taldir voru heimsþekktir voru með rúmlega 22 senti- metra eða lengri handstærð. Af konunum tveimur sem voru í hópi virtra píanóleikar, var önnur með tæplega 23 sentimetra handstærð og hin með rúmlega 24 sentimetra handstærð. Stærð hefðbundins nótnaborðs á píanói gerir ekki einungis kven- píanóleikurum erfiðara fyrir að ná jafn langt og starfsbræður þeirra heldur bitnar hún einnig á heilsu þeirra. Ýmsar rannsóknir sem voru framkvæmdar meðal hljóðfæraleikara á níunda og tíunda áratug síðustu aldar sýndu fram á að kvenkyns hljóðfæraleikarar þjáð- ust „óhóflega“ af vinnutengdum meiðslum og töldust píanóleikarar meðal hljóðfæraleikara í „mestri áhættu“. Fjöldi rannsókna hefur leitt í ljós að kvenpíanóleikarar eru í 50% meiri hættu á að finna til sársauka og meiðsla en starfsbræður þeirra. Í einni rann- sókn kom fram að 78% kvenna, samanborið við 47% karla, höfðu þróað með sér álags- meiðsl eða RSI (repetitive strain injury). Það virðist líklegt að þetta tengist handstærð. Önnur rannsókn frá 1984 sem náði aðeins til karlkyns píanóleikara skilgreindi tuttugu og sex „árangursríka flytjendur“, þekkta ein- leikara og sigurvegara alþjóðlegra keppna og tíu „vandræðatilfelli“, þá sem höfðu glímt við tækni- eða meiðslavandamál í lengri tíma. Meðalhandstærð fyrri hópsins voru rúmir 23 sentimetrar en 22 sentimetrar hjá vandræða- tilfellunum – sem er þó töluvert meira en meðalhandstærð kvenna. Einn daginn þegar Christopher Donison var að æfa kóda í g-moll ballöðu Chopins á Steinway-flyglinum sínum í þúsundasta skipti fékk hann hugmynd sem varð til þess að hann hannaði nýtt nótnaborð fyrir fólk með minni hendur. Hann hugsaði með sér: Hvað ef hendur mínar eru ekki of litlar heldur er hefðbundið nótnaborð of stórt? Afleiðingin var 7/8 DS-hljómborðið sem Donison fullyrti að umbreytti spilamennsku sinni. „Ég gat loksins notað rétta fingrasetningu. Ég gat spilað brotna hljóma með annarri hendi í stað beggja. [...] Breiðar, yfirgripsmiklar, arpeggíur í vinstri hendi, sem voru svo al- gengar í tónlist rómantíska tímabilsins, urðu möguleiki og ég gat loksins einbeitt mér að því að ná fram réttu tjáningunni frekar en að æfa stöðugt sama kaflann.“ Fjöldi rannsókna staðfesta reynslu Donisons en þær hafa sýnt að 7/8 hljómborðið eyðir þeim faglegu og heilsufarslegu ókostum sem hefðbundið nótnaborð hefur í för með sér. Þrátt fyrir þetta viðhelst skrítin tregða í píanóheiminum (það er ef þú trúir því ekki að kynja- mismunun sé við völd hér) til að aðlaga sig. Tregðan við að yfirgefa hönnun sem hent- ar einungis stærstu karlhöndunum virðist víðtæk. Ég man eftir því í kringum aldamót- in þegar minnstu símtólin unnu keppnir um símamælingar en það breyttist allt með til- komu iPhone og eftirhermum hans. Allt í einu fór þetta að snúast um skjástærð; því stærri, því betri. Meðalsnjallsímastærð er nú um 14 cm, og þó að við séum öll mjög hrifin af stærð skjásins þá er það svo annað mál þegar kemur að því að tólið passi í hendi helmings íbúa jarðarinnar (svo ekki sé minnst á pínulitla, eða enga, vasa). Meðal- karlmaður getur auðveldlega notað tólið í annarri hendi en meðalhönd kvenna er að jafnaði ekki miklu stærri en símtólið sjálft. Þetta er augljóslega pirrandi og heimsku- legt fyrir fyrirtæki á borð við Apple í ljósi þess að rannsóknir sýna að konur eru líklegri til að eiga iPhone en karlar. Við skulum þó ekki búast við að ástæður þessa brjálæðis verði afhjúpaðar á næstunni vegna þess að það er ótrúlega erfitt að fá snjallsímafram- leiðendur til að tjá sig um það af hverju þeir einblína á skjái. Í örvæntingu minni eftir svörum sneri ég mér að Alex Hern, tækni- blaðamanni hjá dagblaðinu The Guardian. Hann gat þó heldur ekki hjálpað mér. „Þetta er þekkt vandamál,“ staðfesti hann en „ég hef aldrei fengið skýr svör við þessu“. Í óformlegu spjalli hafa stöðluðu svörin verið að símar séu ekki lengur hannaðir fyrir notk- un með annarri hendi, segir Hern. Honum hefur einnig verið sagt að margar konur kjósi stærri síma, þetta sé þróun sem var oft- ast rakin til handtaskna. Handtöskur eru hinar ágætustu nytjahlutir en ein af ástæðum þess að konur ganga með þær er að okkur skortir almennilega vasa á fötunum okkar. Þegar símar eru hannaðir sem handtösku- vænir frekar en vasavænir er í raun verið að bæta gráu ofan á svart (meira um það síðar). Í öllu falli verður að teljast dálítið ein- kennilegt að fullyrða að símar séu hannaðir til þess að konur geti gengið með þá í hand- töskunni sinni í ljósi þess hversu mörg smá- forrit sem mæla staðsetningu gera ráð fyrir að síminn sé alltaf annaðhvort í höndunum á fólki eða í vasanum frekar en í handtösku á skrifborðinu þeirra. Ég sneri mér næst til James Ball, verð- launatækniblaðamanns og rithöfundar, sem er með aðra kenningu um það hvers vegna fókusinn á stóra skjái viðgengst. Hann telur að gengið sé út frá því að snjallsímakaup séu á hendi karla og því ekki tekið tillit til, eða ekki reynt að höfða til, kvenna. Ef þetta er rétt er það sérstaklega undarleg aðferð hjá Apple í ljósi rannsókna sem hafa sýnt að konur eru líklegri en karlar til að eiga iPhone. Ég sé hins vegar aðra meinbugi á þessari greiningu: Enn og aftur er dregin sú ályktun að konur séu vandamálið frekar en karlhlutdræg hönnun. Ef það eru ekki konurnar sem kaupa snjallsímana er það þá vegna þess að þær hafa ekki áhuga á þeim eða e.t.v. vegna þess að snjallsímar eru hann- aðir án kvenna í huga? Jákvæða hliðin er sú að Ball fullvissaði mig um að skjáir myndu sennilega ekki stækka neitt meira vegna þess að „þeir hafa náð mörkum handstærðar karla.“ Kynjaður snjóruðningur og píanóleikur Bókarkafli | Í bókinni Ósýni- legar konur rannsakar Caroline Criado Perez sláandi rætur kynjamismununar og skoðar líf kvenna á heimilinu, á vinnustaðnum, á opinberum vettvangi, í heilbrigðiskerfinu og á fleiri stöðum daglegs lífs. Bókin byggist á hundruðum rannsókna víðsvegar um heiminn. Sæunn Gísladóttir þýddi. Ljósmynd/Stuart Simpson/Pengu Verðlaunuð Caroline Criado Perez hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir skrif sín um mannréttindamál. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.