Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 32

Morgunblaðið - 08.08.2022, Side 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM Úr myrkri nefn- ist einkasýning sem Margrét Eddudóttir opn- aði í Gallerí Fold um helgina. „Hér sýnir hún bæði pastelmyndir á pappír og textílverk sem unnin eru með blandaðri tækni, polymer-leir og þráðum. Margrét nálgast viðfangsefnið sitt með því að myndgera til- finningar á einfaldan og einlægan hátt,“ segir í til- kynningu. „Ég forðast of mikla rökhyggju við gerð verka minna og þá sérstaklega pastelverkin. Þau nálgast ég sem eins konar hugleiðslu. Hið líkamlega sem miðillinn kallar á og hin mjúka, berskjaldaða áferð pastellitanna endurspegla fullkomlega mjúka innviði hugar míns og líkama,“ segir Margrét um verk sín. Margrét sýnir í Gallerí Fold MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Breiðablik og Víkingur úr Reykjavík, tvö efstu lið Bestu deildar karla í fótbolta, misstigu sig bæði í gærkvöldi. Breiðablik fékk stóran skell gegn nágrönnunum í Stjörnunni, 5:2. Eggert Aron Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna. Á sama tíma gerði Víkingur 3:3- jafntefli á útivelli gegn Fram í svakalegum leik. Brynjar Gauti Guðjónsson jafnaði fyrir Fram í blálokin með vafasömu marki. Í hinum leikjum gærdagsins vann KA 3:0-stórsigur á FH á útivelli og KR vann öruggan 4:0- sigur á ÍBV, þar sem Atli Sigurjónsson skoraði þrennu. »26 Toppliðin misstigu sig á útivöllum ÍÞRÓTTIR MENNING Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Klifurnet, rennibraut, löng rör og heill hellingur af drullu eru á meðal þess sem kemur við sögu í hinu fjöl- skylduvæna Drulluhlaupi sem hald- ið verður í Mosfellsbæ á laugardag. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK), Afturelding og Krónan standa að hlaupinu. Að sögn Valdi- mars Gunnarssonar framkvæmda- stjóra UMSK er hlaupið hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en drullu- hlaup hafa öðlast vinsældir á er- lendri grundu, bæði hjá elítuhlaup- urum og fjölskyldum. „Þetta er svona drullu- og hindr- unarhlaup. Það eru 20 hindranir á 3,5 kílómetra langri leið og nokkrar eru þannig að maður verður svolítið skítugur þar sem þú þarft að fara ofan í drullusvað, skríða í drullu, sveifla þér ofan í drullu og ýmislegt. Svo eru öðruvísi hindranir líka á leiðinni. Hugmyndin er að fjöl- skyldur taki þátt í þessu og reyni að leysa þrautirnar saman. Það er eng- in tímataka: Markmiðið er bara að reyna að klára að komast í gegn saman þar sem fjölskyldurnar eða hóparnir vinna saman að því að leysa þrautirnar,“ segir Valdimar. Þarf að hvetja krakkana Hann segir að átta ára börn og eldri eigi að geta komist í gegnum brautina með aðstoð foreldra eða forráðamanna. Hlaupið verður ræst hjá íþróttahúsinu í Varmá og hefst það klukkan 11. Þátttökugjald er 2.500 krónur á mann en hámarks- gjald á fjölskyldu er 6.000 krónur. „Þetta verður ógeðslega skemmtilegt,“ segir Valdimar. Spurður um veðrið segir hann: „Við viljum helst hafa sól og blíðu en það er ekkert sem stoppar þetta. Skemmtilegast væri ef það væri sól og blíða því þú blotnar aðeins. Við vöðum yfir á og svona. Mér sýnist að spáin sé ágæt svo þetta verður frábært.“ Aðspurður segir Valdimar að þó að reynt sé að höfða til fjölskyldna með hlaupinu geti einstaklingar og aðrir hópar einnig mætt. „En við viljum hvetja fjölskyldur til þess að fara saman vegna þess að þetta eru þannig þrautir að það reynir svolítið á krakka að komast yfir ákveðnar þrautir. Það þarf al- veg örugglega að hvetja þau, segja þeim að þau geti þetta.“ Allir þátttakendur fá armband sem þeir geta nýtt til að skola af sér drulluna og komist endurgjalds- laust í sund í Varmárlaug í Mos- fellsbæ. Hlaupið er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Ljósmynd/Jón Aðalsteinn Útpælt Valdimar (t.v.) fór nýverið með gröfusérfræðingnum Leifi (t.h.) hjá VGH í Mosfellsbæ að skoða leiðina. Heilu fjölskyldurnar vaða drullu í Mosó - „Þetta verður ógeðslega skemmtilegt,“ segir Valdimar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.