Morgunblaðið - 12.09.2022, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 2. S E P T E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 213. tölublað . 110. árgangur .
DREYMIR UM AÐ
FRAMLEIÐA
HUNANGSSINNEP
BROTLENDING BLIKA
TEKUR VIÐ
EFTIR 70 ÁRA
STARFSÞJÁLFUN
TÖPUÐU FYRIR KA-MÖNNUM 26 KARL KONUNGUR III. 13ÞÓRÐUR OG MARGRÉT 11
Þingkosningar í Svíþjóð
» Jafnaðarmannaflokkurinn
30,5%
» Svíþjóðardemókratar 20,7%
» Moderatarna 19%
» Miðflokkurinn 6,7%
» Vinstriflokkurinn 6,6%
Útlit var fyrir að hægriblokkin bæri
sigur úr býtum í þingkosningum í
Svíþjóð. Eftir að 92 prósent at-
kvæða höfðu verið talin seint í gær-
kvöldi munaði þremur þingsætum á
hægri- og vinstriblokkinni, þeim
fyrrnefndu í vil. Ljóst var af skoð-
anakönnunum að mjótt yrði á mun-
um milli ríkisstjórnarmöguleikanna,
og því í raun ógerningur að spá um
úrslitin. Hin svokallaða vinstri-
blokk, undir stjórn Magdalenu And-
ersson, samanstendur af Jafnaðar-
mannaflokknum, Græningjum og
Vinstri flokknum.
Hægriblokkin er sá ríkisstjórn-
armöguleiki sem væri undir stjórn
Ulfs Kristerssons, og samanstæði af
Moderatarna-flokknum, Kristileg-
um demókrötum, Frjálslynda
flokknum og Svíþjóðardemókrötum,
sem eru nú orðnir annar stærsti
flokkurinn á eftir Jafnaðarmanna-
flokknum.
Útgönguspá sænska ríkisútvarps-
ins gaf til kynna að vinstriblokkin
fengi 176 sæti en sú hægri 173 í
sinn hlut. Voru fyrstu tölur í ágætis
samræmi við þá spá, en þegar rúm-
lega helmingur atkvæða hafði verið
talinn snerust leikar og hægriblokk-
in náði yfirhöndinni. Munaði ein-
ungis einu sæti þar til 90 prósent
atkvæða höfðu verið talin, en þá
hafði hægriblokkin náð að sölsa
undir sig 176 sæti. thorab@mbl.is
Mjótt á munum í Svíþjóð
- Svíþjóðardemókratar hástökkvarar - Vendingar þegar helmingur atkvæða var
talinn - Þrjú þingsæti skildu á milli þegar 92 prósent atkvæða höfðu verið talin
Morgunstund gefur gull í mund segir mál-
tækið. Þá speki höfðu þessir veiðimenn bak við
eyrað þegar þeir stóðu á bryggjusporðinum í
Keflavík nú um helgina klukkan sex að morgni
og renndu fyrir fisk. Fáum sögum fer af því
hvernig veiddist en stundin var notaleg. Kyrrð
yfir öllu þegar sólin reis og setti fallega bleik-
an lit á skýjatásurnar sem svifu fagurlega yfir
Faxaflóanum.
Morgunblaðið/Eggert
Falleg morgunsólin sló roða á himin
Dorgað inn í daginn á
Keflavíkurbryggjunni
_ „Sálræn
skyndihjálp og
mannleg hlýja
fyrirfannst ekki
þarna. Ég var
bara eitthvert
mál sem þurfti að
afgreiða og
vinnureglurnar
sendu mig burt,“
segir Líney Sig-
urðardóttir en
hún lenti í áfalli um helgina þegar
hún fótbrotnaði á leiðinni úr réttum
nálægt Þórshöfn þar sem hún er
búsett. Þaðan var hún flutt með
sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri
en Líney segir starfsfólkið þar hafa
brugðist sér. Eftir röntgen-
myndatöku þar sem í ljós kom að
um beinbrot væri að ræða var Lín-
eyju tjáð að hún fengi ekki pláss á
spítalanum þrátt fyrir að vera fár-
veik og sárkvalin. »4
Fékk kaldar mót-
tökur á spítalanum
Líney
Sigurðardóttir
Með undraskjótri leiftursókn sinni
hefur Úkraínuher tekist að frelsa
stórt svæði í austurhluta Úkraínu
undan yfirráðum Rússa. Þar á
meðal Kúpíansk og Isíum, sem
hafa verið mikilvægar borgir í
birgðakeðju Rússa. Þá hafa Rússar
einnig dregið hermenn sína til
baka frá austurhluta Karkív-
héraðsins. Um er að ræða þáttaskil
í stríðinu. „Staðan verður skýrari
með hverjum deginum og leiðin til
endurheimtar landsins okkar er
fyrir hendi,“ er haft efir Volodimír
Selenskí forseta Úkraínu.
Úkraínskar hersveitir hafa end-
urheimt landsvæði sem spannar
um 300 þúsund ferkílómetra það
sem af er mánuði. Þúsundir manna
hafa lagt á flótta yfir landamærin
frá Úkraínu til Rússlands í kjölfar
þessa.
Í gærkvöldi beindu Rússar
vopnum sínum að mikilvægum inn-
viðum víða í austurhluta Úkraínu,
meðal annars í héruðunum Karkív,
Dníprópetrovsk og Sumí. Afleið-
ingarnar urðu þær að rafmagn sló
út, auk þess sem vatnslaust varð
víða.
Gagnsókn Úkraínu
markar þáttaskil
_ Notkun brenniofna, þar sem af-
gangsviður og afskurður er eldivið-
ur, sparar um 700 þús. kr á mánuði í
rekstri Skógarafurða ehf. á Víðivöll-
um-fremri í Fljótsdal. Tækjakostur
hefur nýlega verið bættur svo afköst
verða meiri en var. Ofnarnir nýtast
við þurrkun viðar. Í fyrra voru hjá
fyrirtækinu unnir um 580 rúmmetr-
ar af timbri úr íslenskum skógum,
en í ár verður magnið meira en
1.000 rúmmetrar. Mikið fellur til af
timbri úr bændaskógum. Í marga
var plantað fyrir um 30 árum og nú
er komið að grisjun. »6
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lurkar Íslenskir bændaskógar skila mikl-
um afurðum og vinnslan á þeim er í vexti.
Spara 700.000 kr.
í kostnað á mánuði
Unnur Svavarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar
GoNorth, segir í samtali við Morg-
unblaðið að nú þegar hafi borist þó
nokkur fjöldi bókana fyrir sumarið
2023. Arnheiður Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands, segir sömu sögu og
að bókanir hrannist inn á Norður-
landi.
Þær eru báðar vongóðar um að
ferðamannasumarið 2023 verði enn
betra en sumarið 2022. Þær segja
þó mikilvægt að gistiplássum fyrir
ferðamenn fjölgi svo það geti gerst.
Arnheiður bindur einnig miklar
vonir við að ferðamenn frá Asíu
snúi aftur til landsins næsta sumar.
Hún reiknar með að það verði að
veruleika og að bandarískum ferða-
mönnum fjölgi sömuleiðis.
„Heilt yfir finnst mér okkar við-
skiptavinir og þær ferðaskrifstofur
sem við erum í samstarfi við miklu
bjartsýnni á að Ísland haldi áfram
að vera í þessari gífurlega sterku
stöðu þegar ferðamenn eru annars
vegar,“ segir Unnur og undir-
strikar að framtíðin sé björt fyrir
íslenska ferðamannageirann. »4
Bóka snemma fyrir sumarið
- Ferðamannasumarið 2023 nú þegar að taka á sig mynd
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
2023 Búast má við enn fleiri ferða-
mönnum næsta sumar en í ár.