Morgunblaðið - 12.09.2022, Page 2

Morgunblaðið - 12.09.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. HAUSTGOLF ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS Á EL PLANTIO GOLF INNIFALIÐ Í VERÐI: ÓTAKMARKAÐ GOLF INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR GOLFBÍLL INNIFALINN FLUTNINGUR Á GOLFSETTI MORGUNVERÐUR ÍSLENSK FARARSTJÓRN AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI VERÐ FRÁ 173.900 KR. Á MANN M.V. 4 EÐA 2 FULLORÐNA Á EL PLANTIO GOLF Ferðirnar okkar til El Plantio bjóða þér upp á að ráða lengd ferðarinnar, hvort það sé 4, 7, 11, 21 daga löng ferð. Völlurinn býður upp á 18 holu championship völl ásamt 9 holu æfingavelli. Æfingaaðstaðan býður upp á magnað pitch svæði og góðu æfingasvæði. Svo er hann rétt hjá miðborg Alicante eða aðeins í 15 mínútna fjarðlægð. ÓTAKMARK AÐ GOLF OG AFNOT AF GOLFBÍL INNIFALIÐ Í VERÐI *NÝTT* BÓKAÐU GOLFKE NNSLU HJÁ PGA GOLFKENN ARA Á MEÐAN Á FERÐINNI ÞINNI STENDUR 09. - 16. SEPTEMBER - ÖRFÁ SÆTI LAUS STÖK KTU ÚT Hátíð hefur verið víða í sveitum landsins síðustu daga þegar fé er rekið af fjalli og dregið í sundur í réttum. Í Árnessýslu voru Tungna-, Hruna-, Skaftholts- og Reykjaréttir fyrir og um helgina – og í gær voru Fljótstunguréttir í Borgarfirði. Eft- ir fjögurra daga leiðangur um sunnanverða Arnarvatnsheiði komu smalar til byggða undir kvöld á laugardag eftir að hafa tafist nokkuð inni á afréttinum vegna þoku. Allt fór þó vel að lokum og féð dregið í dilka og ekið til byggða í gærmorgun. Alls var þetta um 5.000 fjár frá 10-15 bæjum í Hvítár- síðu og Reykholtsdalnum. Öðru fremur eru réttir í sveitum þó stund mannamóta og gleði, rétt eins og sjá mátti á svip þessara ungu manna sem voru í Fljóts- tungurétt á laugardag. Réttir víða í sveitunum Ljósmynd/Reynir Ólafsson Jarðskjálftahrinan við Grímsey, sem hófst aðfaranótt fimmtudags í síð- ustu viku, 8. september, virðist held- ur vera í rénun. Þar mældust þó í gær mörg hundruð skjálftar, en að- eins sex yfir 3 að styrk. Vel á sjötta þúsund skjálftar hafa komið fram á mælum síðan yfirstandandi hrina hófst, en snarpasti kipp- urinn var í upp- hafi hennar. Sá skjálfti var 4,9 að stærð. „Við höldum al- veg ró okkar þrátt fyrir jarðskjálft- ana,“ sagði Ragnhildur Hjaltadóttir í Grímsey í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. „Í sumum húsum hér finnast skjálftarnir en sjálf hef ég aðeins stöku sinnum heyrt drun- urnar sem hræringum þessum fylgja. Sjálf hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu, því hér hefur áður komið svona órói, ástand sem síðan bara fjarar út hægt og rólega. Einmitt slíkt held ég að sé að gerast nú. En allur er varinn góður vissu- lega, mér þykir auðvitað ósköp vænt um að varðskip liggi hér fyrir utan eyna meðan þetta ástand varir, þótt þetta trufli mig afar lítið.“ Spennulosun á flekaskilum Skjálftarnir við Grímsey nú verða vegna spennulosunar á flekaskilum jarðskorpunnar og eru engin merki um gosóróa, skv. frásögn Kristínar Elísu Guðmundsdóttur náttúruvár- sérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. „Það getur alveg gosið þarna og við fylgjumst með, en það er ekkert sem bendir til slíks,“ nefnir Kristín. Hún segir að síðast hafi komið eldgos á þessum slóðum á 19. öld, sem á tíma- kvarða jarðfræðinnar er næsta skammur tími. sbs@mbl.is/veronika@mbl.is Drunur í lofti og þúsundir skjálfta - Hrinan er hugsanlega að fjara út Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grímsey Óvissuástand ríkir í eynni á heimskautsbaugnum. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kurr er meðal fólks á Norðurlandi – og víðar á landinu – vegna þjónustu Icelandair í innanlandsflugi. Algengt hefur verið að undanförnu að ferðir milli Reykjavíkur og Akureyrar séu felldar niður fyrirvaralítið. Slíkt hef- ur komið sér illa fyrir fólk sem þarf milli staða, til dæmis í lækniserind- um eða vegna vinnu sinnar, eins og margir hafa lýst til dæmis á sam- félagsmiðlum. Bæjarfulltrúar láta þetta nú til sín taka og óska eftir skýringum flugfélagsins. Fundur með Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair er áformaður í næstu viku. Verður að komast í lag „Ástandið er algjörlega óboðlegt og málin verða að komast í lag,“ segir Heimir Árnason, forseti bæjar- stjórnar Akureyrar. „Við vitum um fólk sem er jafnvel komið suður á flugvöll þegar það fær þau svör að flugi hafi verið frestað ellegar þá sms um að ferð hafi verið felld niður. Gagnvart þessu er fólk algjörlega ráðalaust, til dæmis ef sækja þarf mikilvæga þjónustu fyrir sunnan. Sumir aka því á milli ellegar láta breyta farmiðanum sínum en fyrir slíkt tekur flugfélagið tugi þúsunda króna.“ Heimir Örn leggur áherslu á að innanlandsflugið sé að nokkru þjóð- vegur milli Reykjavíkur og Akureyr- ar. Því þurfi þessi þjónusta að vera í lagi, rétt eins og vegum sé haldið greiðfærum. „Ég treysti Icelandair til þess að meta hvað þörf er á mörg- um ferðum hér á milli á dag. Við vilj- um bara að áætlanir standist, en hvers vegna slíkt gerist ekki verður forstjórinn að svara.“ Fram kom á vefnum akureyri.net nýlega að á fyrstu sex mánuðum líð- andi árs hefðu á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar 965 ferðir verið á réttum tíma, 410 með seinkun upp á 15 mínútur eða meira og 143 ferðir felldar niður. Árið 2019 var hins vegar 1.481 ferð á tíma, 119 með seinkum og aðeins 75 ferðir féllu nið- ur. Bilaðar flugvélar og löng bið eftir varahlutum „Við höfum fullan skilning á þeim óánægjuröddum sem heyrst hafa. Því ástandi sem verið hefur viljum við bæta úr,“ segir Ari Fossdal, stöðvarstjóri Icelandair á Akureyri. Hann bendir á að vélarnar sem nýtt- ar eru í innanlandsfluginu hafi á síð- ustu mánuðum nokkrar farið í tíma- frekar ástandsskoðanir. Einnig hafi komið upp minniháttar bilanir í vél- um, sem þá hafa verið kyrrsettar í varúðarskyni. Nokkurra daga bið geti verið eftir varahlutum, sem fyrir tíma heimsfaraldurs hafi á stundum mátt útvega samdægurs að utan. Ekki sé svigrúm til að taka aðrar vél- ar inn til notkunar vegna þeirra sem eru stopp. Vegna þess hafi því á stundum farið af stað víxlverkandi vandamál sem geti tekið tíma að leysa. „Í vor lentum við í svona hrakn- ingum en vorum á góðri áætlun í sumar. Vonandi tekst okkur fljótlega að komast aftur á sporið því ástandið er slæmt fyrir alla,“ segir Ari Foss- dal. Flugferðum frestað og felldar niður - Óánægja á Akureyri og víðar með innanlandsflug Icelandair - Óboðlegt ástand, segir bæjarfulltrúi - Flugið er þjóðvegur - Forstjórinn gefi skýringar - Flugvélarnar eru lengi í skoðun og aðrar bilaðar Heimir Örn Árnason Ari Fossdal Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Vélar af gerðinni Bomb- ardier sinna innanlandsfluginu. Ragnhildur Hjaltadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.