Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 6

Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 6
Verksmiðja Gömlu fjárhúsin á Víðivöllum-fremri hafa fengið nýtt hlutverk. Til stendur að reisa hentugra hús fyrir framleiðsluna á allra næstu árum. utanhússklæðningar. Af öðrum af- urðum má nefna pallaefni, parket, panil og lista í ýmsum gerðum. Einn- ig eldivið af ýmsum tegundum og stærðum. Nýlega festi fyrirtækið kaup á þremur brennurum til viðbótar þeim sem fyrir var, en þar nýtist sem eld- viður ýmis afskurður úr timburfram- leiðslu, kræklóttir lurkar og fleira slíkt. Í klefum sem brennararnir standa við er sagað timbrið þurrkað í 50-70 gráða hita í 3-7 daga. Tíma- lengdin ræðst af því hvort timbrið skal notað utandyra eða innan. „Brennararnir gera reksturinn mun hagkvæmari. Áður þurftum við Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fjárfestingar okkar að undanförnu í nýjum vélum hér auka afköst til muna,“ segir Bjarki M. Jónsson, framkvæmdastjóri Skógarafurða ehf. á Ytri-Víðivöllum II í Fljótsdal. Þar er starfrækt verksmiðja sem fram- leiðir timbur og fleira slíkt, sem sent er að austan til kaupenda víða um land. „Með öflugum tækjum og betri nýtingu á efni verður grundvöllur rekstrar þessa fyrirtækis allt annar og betri en var. Nú skapast svigrúm til að efla starfsemina eins og þörf er á, nú þegar sífellt meiri afurðir fást úr bændaskógum landsins. Í marga þeirra var plantað fyrir 25-30 árum og svo er oft kominn tími á grisjun á trjám sem við vinnum úr smíðavið og raunar margt fleira.“ Kantaðir og flettir berki Hjá Skógarafurðum, sem Bjarki og Jón Ólafur Sigurðsson faðir hans eiga og reka saman, eru trjábolirnir fyrst kantaðir og flettir berki í stórri fjöl- blaðahjólsög. Af henni er tréð fært yfir í rammabandsög, tæki sem keypt var snemma á þessu ári. Með still- ingum á vélinni má saga viðinn í mis- munandi breidd og þykkt, en hægt er að láta allt að tíu sagarblöð snúast í einu. Að fá þetta tæki segir Bjarki að hafi breytt öllu í rekstri fyrirtækisins. „Í fyrra unnum við úr alls 580 rúm- metrum af timbri en förum væntan- lega talsvert yfir 1.000 rúmmetra í ár eða eitthvað nærri því að tvöfalda umsvifin milli ára. Við setjum stefn- una á að vinnslan fari í um 5.000 rúm- metra eftir fá ár, enda þótt tækin hér geti afkastað enn meiru. Núverandi húsakostur hér hamlar reyndar meiri umsvifum og því eru komnar skissur að stóru verksmiðjuhúsi sem verður reist eftir 5-10 ár.“ Miklar fjárfestingar Hugur Bjarka hafði lengi staðið til þess að fara út í skógrækt og frum- kvöðulsstarfsemi þegar hann keypti Ytri-Víðivelli árið 2015. Fljótlega þar á eftir keypti hann fyrstu sögina og annan búnað sem þarf til timbur- framleiðslu sem komið var fyrir í gömlum fjárhúsum á bænum. Við þennan tækjakost hefur verið aukið smám saman í tímans rás og saman- lögð fjárfesting orðin um 200 millj- ónir króna. Hjá Skógarafurðum ehf. er mest framleitt af timbri í breidd- inni 1x4 og nýtist í ýmsum lengdum í að nota rafmagn til að kynda þurr- klefana og íbúðarhúsin hér á Víðivöll- um. Nú nýtist hitinn frá eldinum og þetta lækkar rafmagnsreikninginn hjá okkur um allt að 700 þúsund krónur á mánuði. Afurðir sem til falla eru nýttar í stað þess að fara í svelg- inn.“ Efla þarf vöruþróun Víðivellir-Ytri II eru stór jörð og þar eru jafnframt víðfeðmir skógar, sem plantað var til um 1970 undir merkjum svonefndrar Fljótsdals- áætlunar. Bjarki og hans fólk eiga einnig jörðina Hrafnsgerði í Fellum á Héraði, þar sem sömuleiðis eru miklir nytjaskógar. Lerkið er þar áberandi, rétt eins og víðar í skógum á Austur- landi og sú tegund er því í miklum mæli unnin hjá Skógarafurðum. Hrá- efnið kemur annars af öllu landinu; greni til dæmis af Vesturlandi og ösp í talsverðum mæli af Suðurlandi. „Ösp er fínn smíðaviður. Nýtist vel sem panell en núna prófum við okkur þar áfram með hana sem parketefni. Af ösp voru á sínum tíma gróðursett ókjörin öll á Suðurlandi og nú styttist í að farið verði að grisja þá skóga hressilega. Því þarf að efla vöruþróun á öllu því sem vinna má úr ösp – en reyndar er þessi markaður alltaf að stækka. Að nota mætti íslenskar við- arafurðir í Svans-vottaðar byggingar var stór áfangi fyrir okkur,“ segir Bjarki. Stór vinnustaður Skógarafurðir ehf. veltu á síðast- liðnu ári um 120 milljónum króna, en í ár verða tölurnar í rekstrinum vænt- anlega talsvert hærri. Starfsmenn eru sex til átta, sem er talsvert, sam- anber að heimavöllur starfseminnar er Fljótsdalshreppur, með 100 íbúa. Raunar heldur sveitarfélagið á 18% hlut í fyrirtækinu, enda er þar litið svo á að skógarnytjar styrki atvinnu- líf á svæðinu eins og er að koma á daginn. Timburvinnslan tvöfölduð á árinu - Skógarafurðir ehf. umsvifamikið fyrirtæki í Fljótsdal - Fá afurðir af öllu landinu - Nýjar vélar gjörbreyta rekstrinum - Utanhússklæðningar, parket og pallaefni - Viðarbrennslan sparar stórfé Framleiðsla Bjarki Jónsson t.v. og Jón Þorvarðarson við rammabandsög. Hægt er að láta tíu blöð snúast í senn og fá timbur í ýmsum þykktum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eldiviður Ingvar Aaberge hér við viðarkljúfara. Þar eru birkilurkar bútaðir sundur, en þeir eru afar góðir sem brenni í arineld og pítsuofna. Stæða Myndarlegur hlaði af timbri sem nýtast mun sem utanhússklæðning. Framleiðsla fyrirtækisins er gjarnan seld beint til fólks í framkvæmdum. 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Nýr skáli Ferðafélags Akureyrar (FFA) í Drekagili við Dyngjufjöll, sem fengið hefur nafnið Víti, var formlega tekinn í notkun sl. laug- ardag. Skálinn er 136 fermetrar að grunnfleti og á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni eru rúmgóður salur og aðstaða fyrir göngufólk sem um svæðið fer til að þurrka klæði sín og búnað. Á efri hæðinni eru fimm tveggja manna herbergi, ætluð far- arstjórum, bílstjórum og sjálfboða- liðum í vinnuferðum. Afdrep og öryggi „Salurinn á neðri hæðinni er hugsaður öðrum þræði sem afdrep og öryggi. Drekagil er í um 800 metra hæð yfir sjávarmáli og þar má búast við öllum veðrum, jafnvel þótt um hásumar sé,“ segir Þorvald- ur Rafn Kristjánsson varaformaður FFA í samtali við Morgunblaðið. Framkvæmdir við byggingu skál- ans nýja í Drekagili hófust fyrir þremur árum. Þær hafa verið tekn- ar í áföngum og eftir aðstæðum hverju sinni. Kostnaður FFA við kaup á byggingarefni er um 65 millj- ónir króna. Þá má, segir Þorvaldur Rafn, virða sjálfboðið starf fé- lagsfólks við framkvæmdir til viðlíka upphæðar. Fyrir á FFA tvo skála í Drekagili og þar er aðstaða til að taka á móti alls 55 manns. Svæðið er fjölsótt yfir sumarið enda eru Dyngjufjallasvæð- ið og Askja fáu lík. „Uppbyggingin við Dreka er afar nauðsynleg. Þetta er hálendismið- stöð og þarna ætlum við okkur að veita ferðafólki þjónustu, með veit- ingasölu sem hefst næsta sumar,“ segir Þorvaldur Rafn. Jafnhliða því sem skálinn nýi var formlega opnaður um helgina var þar afhjúpuð ný hringsjá sem Ferðafélag Akureyrar gaf FFA. Faðir og Sonur Hringsjáin er á hól skammt frá Dreka sem heitir Faðir. Ekki langt frá er önnur keila sem heitir Sonur – og saman er þetta tvíeyki gjarnan kallað Feðgar. Víðsýnt er af Föð- urnum eins og hringsjáin sýnir. Þar er vísað til um 30 staða; hóla, dala, jökla og fjalla þar sem fjalladrottn- ingin Herðubreið er auðvitað í aðal- hlutverki. sbs@mbl.is Víti skal húsið heita - Aðstaðan bætt við Drekagil - Nýr skáli og útsýnisskífa Drekagil Sæluhúsið nýja er vegleg bygging. Á mynd til hægri sjást Ingvar Teitsson og Páll Guðmundsson frá Ferðafélagi Íslands við hringsjána góðu. „Þessi gripur er mjög sérstakur upp á það að gera að við finnum mjög sjaldan raf hér á landi og við fundum hann inni í þessari búð sem sýnir fram á að fólkið sem hefur verið þar hefur eflaust haft eitt- hvað á milli handanna,“ segir forn- leifafræðingurinn Lísabet Guð- mundsdóttir um forvitnilegan rafgrip sem fannst rétt fyrir helgi í fornleifauppgreftri á Hvítsöndum í landi Bjarnaness á Ströndum. Þar hófst fornleifarannsókn fyrir um viku á verbúðum sem hafa stað- ið einhvern tíma á tíundu öld. Lísa- bet stýrir rannsókninni en hún er samstarf Fornleifastofnunar Ís- lands og Háskólans í Bergen. „Það eru eiginlega engar rann- sóknir til á svona stöðum frá þessu tímabili hérna á Íslandi. Þetta er því allt nýtt fyrir okkur og þessi þjóðfélagshópur sem uppi var á vík- ingaöld hefur lítt verið rannsak- aður,“ segir Lísabet og á þar við samfélag fiskveiðifólks. „Þessar víkingaaldarverbúðir hafa verið notaðar árstíðabundið og því örlítið öðruvísi búseta en við erum vön að rannsaka. Við höfum fundið svolítið af hvalbeinum inni í annarri ver- búðinni og svo þennan rafgrip,“ bætir hún við. Lísabet segir að um sé að ræða innfluttan grip, mögulega frá Dan- mörku, og hefur gripurinn að öllum líkindum verið notaður sem skraut en það á eftir að koma í ljós eftir frekari rannsóknir. isak@mbl.is Rafgripur fannst í fornleifauppgreftri Fundur Rafgripurinn er sjaldgæf sjón hér á landi að sögn Lísabetar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.