Morgunblaðið - 12.09.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 12.09.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bændurnir á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum hafa fengið afhenta nýja Massey Ferguson-dráttarvél. Er þetta 24. Ferguson-vélin sem keypt er til búsins á sjötíu árum. Júlí árið 1952 var viðburðaríkur mánuður hjá Eggerti Ólafssyni, bónda á Þorvaldseyri, og konu hans Ingibjörgu Nyhagen. Þeim fæddist sonur, Ólafur, sem í fyllingu tímans tók við búskapnum, og keypt var Ferguson-dráttarvél, sú fyrsta af þeirri tegund sem kom að Þorvalds- eyri. Þorvaldseyrarbændur, þeir lang- feðgar Eggert, Ólafur Eggertsson og Páll Eggert Ólafsson, hafa haldið tryggð við þessa tegund síðan. Ívar Freyr Hafsteinsson, sölumaður Ferguson hjá Búvélum á Selfossi, segir að Ferguson hafi þjónað mörg- um bæjum kynslóð fram af kynslóð enda reynst vel en hann þekkir ekki dæmi þess að jafnmargar dráttar- vélar hafi verið keyptar á sama bæ- inn. Vinsælustu dráttarvélarnar Innflutningur á Ferguson- dráttarvélum til Íslands hófst á árinu 1949 og urðu þær fljótt vinsæl- ustu dráttarvélar landsins, eins og fram kemur í bók Bjarna Guð- mundssonar, … og svo kom Fergu- son. Vélin sem kom að Þorvaldseyri 1952, Gráni Ferguson, var af gerð- inni A-20 og var afl hennar líklega um 26 hestöfl. Síðan eru liðin 70 ár og 24. Ferguson-dráttarvélin kom að Þorvaldseyri í síðasta mánuði. Nýja Massey Ferguson-vélin er af gerðinni 7S og er fyrsta vélin úr þeim flokki sem kemur til landsins. Hún er 190 hestafla með aflauka upp í 220 hestöfl og er því að minnsta kosti sjö eða átta sinnum aflmeiri en Gamli Gráni sem enn er til á Þor- valdseyri og hægt að gangsetja hve- nær sem er. Massey Ferguson fagnar 175 ára framleiðsluafmæli í ár. Þar er miðað við framleiðslu Massey Harris því Ferguson byrjaði sína framleiðslu mun seinna en fyrirtækin samein- uðust á sjötta áratug síðustu aldar. Ívar segir að í tilefni afmælisins hafi útlitshönnun Massey Ferguson- dráttarvélanna verið breytt og við það sóttur innblástur í vélar frá sjö- unda og áttunda áratugnum. Í tilefni tímamótanna á Þorvalds- eyri færðu framleiðendurnir bænd- unum á Þorvaldseyri, Ólafi og Páli Eggerti, líkan af gömlum og nýjum dráttarvélum að gjöf ásamt viður- kenningarskjali. Ljósmynd/Ívar Freyr Hafsteinsson Þorvaldseyri Ólafur Eggertsson við vélina sem er jafngömul honum og Páll Eggert Ólafsson stendur við þá nýju. 24 Ferguson-dráttarvélar að Þorvaldseyri á 70 árum - Nýi Rauður er margfalt öflugri en Gráni Ferguson Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Við höfum áhyggjur af þessari stöðu,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norð- urlands, en ágreiningur á milli ríkis og Akureyrarbæjar varðandi bíla- kjallara undir nýrri heilsugæslustöð sem fyrirhugað var að reisa við Þingvallastræti tefur framkvæmdir. Reisa á tvær nýjar heilsugæslu- stöðvar á Akureyri í stað núverandi stöðvar í miðbænum sem hentar starfseminni illa. Framkvæmdir eru hafnar við heilsugæslustöð sem sinna á íbúum í norðanverðum bæn- um. Norðurstöðin verður á efri hæð verslunarmiðstöðvarinnar við Sunnuhlíð í Glerárhverfi, auk þess sem byggð verður viðbygging við stöðina. Í allt fær HSN til umráða um 1.700 fermetra við Sunnuhlíð og segir Jón Helgi að stefnt sé að því að taka þá stöð í notkun seint á næsta ári. Hann segir að því sem næst öll starfsemi stöðvarinnar verði á einni hæð, sem auðveldi mjög flæði og bæti samstarf milli eininga. „Nýja stöðin verður bylting í aðstöðu starfsfólks og þjónustuþega, en til að fá og halda öflugu starfsfólki er nauðsynlegt að hafa starfsaðstæður sem henta starfseminni,“ segir Jón Helgi. Þarf ef til vill að skoða aðra staðsetningu Hin heilsugæslustöðin sem til stendur að byggja á Akureyri verð- ur fyrir íbúa sunnan Glerár og á að rísa við hlið tjaldstæðisreitsins við Þingvallastræti. Gerðu áætlanir ráð fyrir að hún yrði tilbúin á árinu 2024. „Ágreiningur á milli ríkis og bæj- ar um bílakjallara veldur því að framkvæmdir eru ekki hafnar og óljóst hvenær af þeim getur orðið. Ef til vill verður þessi ágreiningur til þess að skoða þurfi aðra staðsetn- ingu fyrir stöðina. Ég vona svo sann- arlega að takist að leysa málið því það er allt stopp núna með tilheyr- andi töfum á verkefninu,“ segir Jón Helgi. Ekki gert ráð fyrir kostnaði Framkvæmdasýsla ríkisins – Ríkiseignir sendi erindi til Akureyr- arbæjar í mars síðastliðnum og ósk- aði eftir því að ekki yrði í deiliskipu- lagi gert ráð fyrir bílakjallara undir heilsugæsluna en bílastæðum ofan- jarðar fjölgað í þess stað. Skipulags- ráð og bæjarráð fjölluðu um málið í vor og lýstu vonbrigðum með að ekki væri vilji til að gera bílakjallara und- ir stöðinni, en ráð hafði verið gert fyrir því frá því skipulagsvinna hófst veturinn 2020 til 2021. Bílakjallari væri forsenda fyrir því að byggja heilsugæslustöð á þessu svæði. Fram kemur í erindi Fram- kvæmdasýslu ríkisins – Ríkiseigna að í heildarkostnaði vegna rúmlega 1.700 fermetra byggingar undir heilsugæslu við Þingvallastræti væri ekki gert ráð fyrir þeim kostnaði sem hlýst af gerð bílakjallara undir stöðina, fjárframlög til verksins gerðu ekki ráð fyrir honum. Gert var ráð fyrir að 40 bílastæði yrðu í kjall- aranum. Morgunblaðið/Margrét Þóra Framkvæmdir Byrjað er að reisa viðbyggingu við heilsugæslustöð við versl- unarmiðstöðina Sunnuhlíð. Framkvæmdir við aðra stöð eru ekki hafnar. „Höfum áhyggjur af þessari stöðu“ - Ágreiningur um bílakjallara milli rík- is og bæjaryfirvalda tefur framkvæmdir Ríkið er hvatt til þess að standa við fyrirheit sín um fjármögnun þeirra samgönguúrbóta sem komnar eru á áætlun, segir í ályktun haustþings Samtaka sveitarfélaga á Austur- landi. Breikkun einbreiðra brúa, lagfæringar á hættulegum veg- arköflun og jarðgangagerð eru til- tekin í þessu sambandi. Einnig er hvatt til frekari uppbyggingar á Egilsstaðaflugvelli, sem sé mikil- vægt bakbein flugvallarins í Kefla- vík á eldgostímum á Reykjanesi. Hringrásarhagkerfi, kolefnis- hlutleysi og viðnámsþróttur gagn- vart hnattrænum lofslagsbreyt- ingum koma fyrir í ályktunum SSA. Einnig efnisatriði eins og sprotar og nýsköpun í atvinnulífi. Þar eru verslanir og veitingafyrirtæki á Austurlandi raunar sérstaklega hvött til þess að „auka framboð á matvöru sem framleidd er á svæðinu og byggja þannig undir frekari þró- un á þessu sviði sem nýtist bæði heimamönnum og gestum Austur- lands“. Ýmsu er beint að ríkisvaldinu í málflutningi SSA, svo sem að renna styrkari stoðum undir tekjustofna sveitarfélaga. Til þeirra séu gerðar miklar og vaxandi kröfur og því eiga sveitarfélögin að njóta hlutdeildar í skatttekjum af nýtingu náttúru- auðlinda, veiðigjöldum, gjöldum af fiskeldi og skatttekjum af orkufram- leiðslu. Einfalda þurfi allt regluverk í samskiptum ríkis og sveitarfélaga svo fjármunir nýtist frekar til að þjónusta íbúa og atvinnulíf. Þá þurfi að styrkja þá heilbrigðisþjónustu sem nú er veitt á svæðinu. Einnig bæta aðgengi að námi á háskólastigi og að í kennslu og rannsóknum verði unnið úr efni um umhverfi, samfélag og menningu í landshlutanum. Ný stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi var kjörin á þinginu. Nýr formaður er Berglind Harpa Svavarsdóttir Múlaþingi og varafor- maður Þuríður Sigurðardóttir Fjarðabyggð. Aðrir í stjórn eru Ragnar Sigurðsson úr Fjarðabyggð, Helgi Hlynur Ásgrímsson frá Múla- þingi og Axel Örn Sveinbjörnsson sem er Vopnfirðingur. Áheyrnar- fulltrúi er Jóhann F. Þórhallsson Fljótsdalshreppi. sbs@mbl.is Ríkið standi við fyrirheitin - Sveitarfélög á Austurlandi þinga og þétta raðir - Matur úr héraði verði á borðum - Rannsóknir og vísindi úr héraði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Neskaupstaður Einn þeirra sex þéttbýliskjarna sem mynda Fjarðabyggð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.