Morgunblaðið - 12.09.2022, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.09.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Sími 587 1717 www.sulatravel.is Stangarhyl 1 , 110 Reykjavík KARÍBAHAF 16.-23. febrúar 2023 ALLT INNIFALIÐ Í ÖLLUM SIGLINGUM EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT Free at Sea YFIR ATLANDSHAF FRÁ NEW YORK 19. apríl til 9. maí 2023 KARÍBAHAF 17.-29. nóvember 2022 RÓM OG GRÍSKA EYJAHAFIÐ 11.-23. ágúst 2023 JÓLASIGLING Í KARÍBAHAF 14.-26. desember 2023 MIÐJARÐARHAF 14.-26. maí 2023 GRÍSKA EYJAHAFIÐ FRÁ FENEYJUM 1.-14. ágúst 2023 LONDON REYKJAVÍK 3.-15. júní 2023 Gerum tilboð fyrir hópa og einstaklinga Nánar á www.sulatravel.is VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessi ræktun er nú aðallega bensín á þrjóskuna en ég lít þó svo á að við séum að nálgast þetta,“ segir Þórður Freyr Sigurðsson, viðskiptafræð- ingur og býflugnabóndi á Uppsölum 2 í Fljótshlíð. Þórður og kona hans, Margrét Jóna Ísólfsdóttir, hafa síð- ustu ár prófað sig áfram við sinneps- rækt í félagi við Björgvin Þór Harð- arson kornbónda frá Laxárdal. Þórður og Margrét hófu smá- búskap með býflugur árið 2013 og fóru í kjölfarið að velta fyrir sér heppilegum plöntum til að rækta fyrir þær. Þau komust fljótt að því að sinnep væri planta sem blómstr- aði vel og mikið og gæfi mikinn blómasafa. Eftir nokkrar tilraunir ákváðu þau að leita til atvinnumanns í kornrækt til að sjá um ræktunina. Rækta þau nú í félagi við Björgvin á ökrum í Gunnarsholti. Þórður telur þau smám saman nálgast markmið sitt að fá fullan þroska í sinneps- fræið og nota það til að framleiða hunangssinnep þegar afurðum bý- flugnanna hefur verið bætt við. Fá vonandi nýtanlega uppskeru „Við gerðum aftur tilraun í ár. Að þessu sinni prófuðum við tvö yrki í tveimur ökrum. Þetta eru reyndar sömu yrki og á síðasta ári en nú skiptum við um staðsetningu, próf- um annan jarðveg og njótum meira skjóls,“ segir Þórður. Enn hefur þeim ekki tekist að ná fullum þroska í uppskeruna í heild sinni. Hann segir þó að ákveðnar plöntur hafi náð að fullþroska fræin en það hefur ekki verið í því magni og hlutfalli að það hafi verið nýtan- legt. „Það vantar enn eitthvað upp á. Hvort það er bara betra sumar eða margir samverkandi þættir eins og jarðvegur, áburðargjöf, skjól og gott sumar er ekki gott að segja. Ég vil alla vega trúa að við séum á réttri leið. Ef við sæjum ekki einhvern árangur myndi ég hætta þessu. Það sem heldur manni gangandi er að þetta er planta skyld repju og næpu og það hefur gengið þokkalega að rækta þær hér.“ Þórður segir að einhverjar líkur séu á því að þau fái nýtanlega upp- skeru í ár en það kemur í ljós í októ- ber. „Sumarið í heild var ekki mjög gott, seinni hlutinn var frekar kald- ur og þá held ég að hægt hafi veru- lega á þroskanum. En miðað við hversu haustið er milt og gott ennþá má búast við að þroskinn haldi áfram. Ég er passlega bjartsýnn.“ Sinnepsskortur í heiminum Fréttir bárust af því fyrir nokkr- um vikum að skortur væri á dijon- sinnepi í heiminum. Uppskerubrest- ur varð vegna þurrka í Kanada og stríðið í Úkraínu hefur sömuleiðis sett strik í reikninginn. Þórður telur að einhver bið verði á því að sinn- epsræktin hér á landi tryggi okkur nægar birgðir þegar hart er í ári. „Mikið vildi ég að ég gæti orðið að liði í því! En þessar fréttir af sinn- epsskorti fá okkur að minnsta kosti til að hugsa um það að verða sjálf- bær.“ Fer vel saman við býflugnaræktina Engan bilbug er á sinnepsbænd- unum að finna enda fer ræktunin vel saman við býflugnaræktina. „Hvat- inn er frá býflugunum og þessi draumur að ná að púsla þessu tvennu saman. Við höfum verið með býflugurnar við akurinn og þær hafa sótt í blómin og líka aðstoðað við frjóvgun á plöntunum. Þá næst meiri uppskera á ökrunum, bæði í sinnepinu, repjunni og nepjunni. Við látum okkur enn dreyma um að geta fengið fullþroskaðar plöntur og búið til sinnep. Því yrði svo blandað við hunangið og úr yrði hunangssinnep, „honey dijon“. Það er leikurinn í þessu.“ Draumur um hunangssinnep lifir - Hjón í Fljótshlíð rækta sinnep á ökrum í Gunnarsholti í félagi við kornbónda - Hafa prófað sig áfram um nokkurra ára skeið og vonast til að ná fullum þroska í uppskeruna - Skortur á sinnepi Nýi þokuskúlptúrinn sem prýðir Tryggvagötuna fyrir framan Tollhús- ið kostaði Reykjavíkurborg 17,5 millj- ónir. Þetta kemur fram í skriflegu svari Kristjáns Inga Gunnlaugssonar, verkefnisstjóra í deild gatna, lóða og opinna svæða, við fyrirspurn Kol- brúnar Baldursdóttur, oddvita Flokks fólksins í Reykjavíkurborg. Áslaug Traustadóttir hannaði skúlptúrinn ásamt Landmótun, teiknistofu landslagsarkitekta. Á vef- síðu Reykjavíkurborgar kemur fram að ætlunin með þokuskúlptúrnum sé að bjóða upp á leik ásamt því að skapa dulúð og stemningu. Að mati Kolbrúnar er kostnaðurinn ansi mikill miðað við bága stöðu leik- skóla og annarra stofnana í borginni. „Ég máta allan fjandann við skort á þjónustu við börn í borginni en nú bíða 2.012 börn eftir fagfólki leik- og grunnskóla, sálfræðingum og tal- meinafræðingum en það er nægur peningur til í alls konar svona lagað,“ segir Kolbrún í samtali við Morgun- blaðið. Kolbrún viðurkennir þó að þokuskúlptúrinn sé vissulega skemmtilegt verk en tekur fram: „Það ætti að byrja á að þjónusta borg- arana með fullnægjandi hætti áður en farið er í pjatt og prjál.“ Morgunblaðið/Tómas Arnar Kostnaður Kaup á búnaði og framkvæmd skúlptúrsins kostuðu 17,5 millj- ónir skv. tilboði verktaka. Ekki kemur fram hve mikið hönnunin kostaði. Þokuskúlptúr kost- aði 17,5 milljónir - Segir þjónustu eiga að ganga fyrir Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í ágúst hefur verið skort- ur á sinnepi í ár en hann má að mestu rekja til mikilla þurrka í Kanada hvar framleidd eru um 80% af öllum sinnepsfræjum í heiminum. Stríðið í Úkraínu spil- ar enn fremur inn í skortinn því þar er framleitt talsvert af hvít- um sinnepsfræjum, sem notuð eru í gult sinnep og breskt sinn- ep. Eftir að hvítu fræin urðu ófá- anleg sóttu margir framleið- endur í þau brúnu sem Kanadamenn framleiða. Verðið þrefaldaðist og því hafa fram- leiðendur dregið saman seglin. Fyrir vikið hefur dijon-sinnep stundum verið ófáanlegt hér á landi að undanförnu. Dijon-sinnep oft ófáanlegt SKORTUR Í HEIMINUM Akur Sinnepsbændurnir gera tilraunir með tvö yrki á tveimur ökrum í Gunnarsholti í ár. Í næsta mánuði kemur í ljós hvernig til hefur tekist. Lukkuleg Þórður Freyr Sigurðsson og Margrét Jóna Ísólfsdóttir hafa ánægju af ræktuninni sem þau stunda í félagi við Björgvin Þór Harðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.