Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Sagt hefur verið að enginn maður í heiminum
hafi verið jafnlengi í starfsþjálfun og Karl Eng-
landskonungur III., sem var ríkisarfi í 70 ár.
Hann er ekki óumdeildur maður og margir
efast um að hann beri krúnuna jafnvel og móð-
ir hans heitin, Elísabet mikla, eins og sumir
kalla hana að fordæmi Boris Johnsons. En þá
má líka hafa hugfast að að henni genginni og
eftir öll þessi ár er enginn núlifandi maður ann-
ar með meiri reynslu af æðstu stjórn ríkis og
alþjóðatengslum en einmitt Karl III.
Konungur fæddist í Buckingham-höll í
Lundúnum 14. nóvember 1948, fyrsta barn
krónprinsessunar Elísabetar og Filippusar
manns hennar. Honum voru gefin nöfnin Karl
Filippus Artúr Georg.
Þrátt fyrir að hafa alla tíð haft nóg að gera
við að klippa á borða og afhjúpa veggplötur átti
Karl löngum erfitt með að finna sér hlutverk.
Hann tók upp ýmis málefni og gerði að sínum,
tjáði sig stundum óvarlega um landsins gagn
og nauðsynjar, jafnvel þannig að hann væri
gagnrýndur fyrir afskipti af stjórnmálum.
Ekki þótti skárra þegar hann játaði að eiga
samtöl við plöntur, mælti með smáskammta-
lækningum og þar fram eftir götum. Hann öðl-
aðist því aldrei vinsældir móður sinnar, þótti
léttvægari maður, og götublöðin fundu – oft án
mikillar sanngirni – að stefnuleysi hans. Það
var þó ekkert hjá því þegar brestir í hjóna-
bandi hans og Díönu prinsessu af Wales tóku
að koma í ljós, en þar var sökinni að mestu
skellt á hann, aftur án fyllstu sanngirni.
Uppvöxtur og mannþroski
Foreldrar Karls konungs voru mjög önnum
kafin í æsku hans, Elísabet varð drottning þeg-
ar hann var rétt rúmra þriggja ára og kon-
ungshjónin mikið í ferðalögum um samveldið.
Fyrir vikið er hann ákaflega nákominn Önnu
prinsessu, systur sinni, og tekur mikið mark á
henni, enda er hún sögð með skarpari hnífum í
skúffum hirðarinnar.
Sem barn og ungur maður var hann við-
kvæmari en foreldrar hans áttuðu sig á, svo
dvöl í heimavistarskóla í Skotlandi reyndist
honum erfið, en hins vegar var hann mjög
ánægður þegar hann gekk í menntaskóla í
Ástralíu. Þaðan hélt hann í Trinity-skóla í
Cambridge, þar sem hann las fornleifafræði,
mannfræði og sagnfræði, en varði einni önn í
háskóla í Aberystwyth í Wales þar sem hann
lærði undirstöðurnar í velsku og sögu landsins,
enda var hann gerður að prins af Wales og út-
nefndur krónprins þegar hann varð 21 árs.
Sagt er að þrátt fyrir langa valdatíð hafi eng-
inn orðið neinu nær um skoðanir drottningar á
nokkru nema hestum. Það átti ekki við um
Karl prins, en eftir að hann lét af herþjónustu
1976 lét hann í sér heyra um fjölmarga þætti
bresks samfélags, þótt ekki ræddi hann það á
flokkspólitískum nótum. Einkum lét hann í ljós
harða gagnrýni á arkitektúr og skipulag eftir-
stríðsáranna, sem hann taldi ekki hafa skaðað
breskar borgir miklu minna en Luftwaffe!
Þá lét hann umhverfisvernd sig einnig miklu
skipta, hefur talað um loftslagsmál lengur en
flestir, og jafnframt verið frumkvöðull á sviði
lífrænnar matvælaframleiðslu og raunar
efnast nokkuð á henni.
Augljóst var að prinsinn var leitandi maður
og hann var m.a. leitandi að kvonfangi. Hann
kynntist Camillu Shand fyrst 1973, en hún gift-
ist öðrum. Eftir langa og viðburðaríka leit fóru
hann og lafði Díana Spencer að stinga saman
nefjum, en hún tók bónorði hans 1981 og þau
giftust í brúðkaupi aldarinnar þá um sumarið.
Ári síðar fæddist William, nú ríkisarfi, og
Harry bróðir hans 1984. Þau hjónin áttu hins
vegar ekki vel saman, bæði vegna aldursmunar
og ólíkrar skaphafnar. Fyrr en varði voru þau
bæði farin að halda fram hjá, hann með Kam-
illu og Díana með röð elskhuga.
Af þessu gengu ýmsar sögur, en 1992 var
greint frá skilnaði þeirra, og kraumandi
almannatengslastríð þeirra hjóna vall upp á
yfirborðið. Díana vann það með yfirburðum,
þótt síðar kæmu í ljós ýmsir maðkar í mysunni.
Þegar Díana fórst í bílslysi 1997 er óhætt að
tala um geðshræringu stórs hluta þjóðarinnar,
sem fékk farveg í töluverðri andúð á Karli, sem
margir álösuðu fyrir hvernig farið hefði.
Karl lét lítið fyrir sér fara næstu ár, sinnti
skyldustörfum og hélt áfram að hitta Kamillu,
sem hann svo kvæntist 2005, en götublöðin
héldu uppi linnulítilli gagnrýni á hann, sem
smitaðist yfir á Kamillu. Af tillitssemi við þau
sjónarmið tók hún ekki upp prinsessutitil
Díönu, heldur lét sér nægja að vera hertoga-
ynja af Cornwall.
Innan konungsfjölskyldunnar skynjuðu hins
vegar margir skjótt að Kamilla hefði góð áhrif
á Karl og að hún léti sér annt um hina móður-
lausu drengi. Drottning treysti henni æ meir
og góður vinskapur tókst með Kamillu og Fil-
ippusi drottningarmanni, sem verið hafði í nöp
við hana í fyrstu.
Í ljós kom einnig að almenningur kunni að
meta ósérhlífni hennar og æðruleysi, svo vin-
sældir hennar og virðing jukust jafnt og þétt.
Nýr konungur, ný hirð og nýir siðir
Við öllum blasir að Karl konungur er ólíkur
móður sinni um margt. Hann hefur raunar
undirstrikað að hreinskilni sín sem prins af
Wales væri óviðeigandi af konungi, en eins veit
hann að valdatíð hans verður ekki ýkja löng
þótt hann hafi heitið því að þjóna þjóðinni til
dauðadags líkt og móðir hans. Sumir tala óhik-
að um millibilskonung þar til hinn vinsæli Vil-
hjálmur ríkisarfi tekur við með sína ekki minna
vinsælu eiginkonu Katrínu sér við hlið.
Þrátt fyrir að Karl sé ekki kunnur að sömu
hófsemd og heilbrigði í lifnaðarháttum og móð-
ir hans, þá hefur hann margsinnis gefið til
kynna að konungsfjölskyldan þurfi að draga
saman seglin, opna hallir sínar almenningi og
semja sig að nýjum tímum. Það verður ekki
auðvelt, því líkt og móðir hans áttaði sig á var
galdurinn við konungdæmið að hún gaf sig
ekki slebbamenningunni á vald, en þegar það
henti einhverja fjölskyldumeðlimi að samsama
sig líferni dægurfrægðarfólks opnuðu þeir sig
fyrir hneykslisumræðu og voðinn vís.
Rætt er um að breska hirðin kunni að fá nor-
rænna yfirbragð en áður, hún verði líkari því
sem gerist í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, þar
sem yfirbygging hirðarinnar og umsvif eru
mun minni og nútímalegri. Hins vegar er
viðbúið að Karl geti ekki stillt sig lengi um að
tjá sig um ýmis þjóðþrifamál, enda lítur hann
sumpart á sig sem málsvara hins þögla Eng-
lands, sem öðru hverju þurfi að ræskja sig.
Aðalhlutverkið verður þó að þróa og styrkja
konungsveldið og búa í haginn fyrir hinn fer-
tuga Vilhjálm, sem tekur við völdum eftir hans
dag. Þangað til líða engin 70 ár.
Karl konungur III. á valdastóli
- Nýr konungur tekur við eftir 70 ára starfsþjálfun - Þekktur fyrir ákveðnar skoðanir á þjóðmálunum
- Hyggst minnka umsvif hirðarinnar og nútímavæða - Hefur annan stíl og Vilhjálm prins sér við hlið
AFP/Hannah McKay
Konungur Karl III. kemur í þinghúsið í fullum skrúða sem ríkisarfi og Prins af Wales nú í vor,
og gýtur augum að heimsveldiskrúnunni, sem hann getur brátt loks sett upp eftir 70 ára bið.
Margt mun breytast með nýjum
húsbónda í Buckingham-höll. Gert
er ráð fyrir að Karl konungur III.
hafi með sér nánustu samstarfs-
menn úr Clarence House, embætt-
isbústað hans undanfarin ár, en
sömuleiðis að mörgum samstarfs-
mönnum hinnar látnu drottningar
verði fundnar virðingarstöður utan
hallarinnar.
Karl ætlar Vilhjálmi syni sínum
meira hlutverk sem ríkisarfi, bæði
til þess að undirbúa hann fyrir það
sem koma skal, en sjálfsagt einnig
til þess að létta undir með sér og
ekki saka almennar vinsældir Vil-
hjálms og konu hans.
Einn helsti ráðgjafi Karls verður
áfram Anna prinsessa systir hans,
alkunnur dugnaðarforkur, sem
lætur sér fátt brenna fyrir brjósti.
Hún var nánari drottningunni en
Karl (og þykir lík föður sínum, sem
hvorki hafði tíma fyrir fum né fá-
vita), en þau systkinin eru afar ná-
in og góðir vinir, enda stutt á milli
þeirra.
Mögulega er það þó Kamilla,
sem mest munar um. Hún er skyn-
söm og skelegg og hefur temprað
bónda sinn vel. Á sínum tíma var
boð út látið ganga til þess að friða
aðdáendur Díönu, að Kamilla yrði
ekki drottning heldur konungs-
maki (e. Queen Consort), en nú
þegar á reynir hefur komið í ljós að
enginn hirðir um það og allir tala
um nýju drottninguna.
Sonur, systir og eiginkona
NÝ HIRÐ KARLS KONUNGS III.
AFP/Victoria Jones
Hirðin Karl konungur III. undirritar embættiseið en að baki bíða Vilhjálmur, ríkisarfi
og prins af Wales, og Kamilla drottning, Þau ásamt Önnu prinsessu, systur hans,
verða lykilfólk nýrrar hirðar, en umfang hennar og ásýnd kann að breytast mikið.