Morgunblaðið - 12.09.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.09.2022, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Orkuvandinn sem ríki Evrópusam- bandsins hafa komið sér í er gríðarlegur. Hann er vandleyst- ur til skamms tíma og verði ekki breytt um stefnu verður hann vart leystur til lengri tíma heldur. Helstu ráð sem gripið hefur verið til eða rætt er um að grípa til er að ráðast gegn verðhækk- unum á orku með verðþaki og niðurgreiðslum og sækja á sama tíma fé til orkuframleiðenda sem taldir eru græða óhóflega á háu orkuverði. Þegar vörur vantar og ójafn- vægi hefur myndast, hvort sem það er orka eða annað, þá er ráðið að auka framleiðslu, draga úr notkun eða hvort tveggja. Það að setja þak á verð hvetur ekki til aukinnar framleiðslu og það gerir ofurskattur ekki heldur. Þakið dregur ekki heldur úr notkuninni og hið sama má segja um niðurgreiðslu orkunnar. Með slíkum aðgerðum er ójafnvæginu haldið við og afar erfitt getur orðið að komast út úr aðgerð- unum þegar ástandið verður aft- ur nær því sem eðlilegt getur talist. Það að ætlast til að vandinn verði leystur með því að neyt- endur dragi úr orkunotkun er ekki raunsætt. Þeir geta dregið eitthvað úr henni tímabundið en til að þeir geri það þarf orkuverð helst að vera hátt, sem er auð- vitað ekki æskilegt. Og þróunin er frekar í þá átt að orkuþörf fer vaxandi og er snjallvæðing sam- félagsins dæmi um það, en það fer til dæmis jafn mikil orka í að framleiða snjallsíma og ísskáp þó að ísskápurinn sé þúsund sinnum þyngri. Og fólk kaupir tíu sinn- um fleiri snjallsíma en ísskápa, þannig að þessi litlu og gagnlegu tæki eru dæmi um hvers vegna ástæða er til að gera ráð fyrir vaxandi orku- notkun, en auk þess ýtir fólks- fjölgun í heiminum og bætt kjör almennt mjög undir þessa þróun. Augljóst ætti að vera að orku- vandinn verður ekki leystur með því að breyta engu. Íslendingar búa svo vel að hafa mikla endur- nýjanlega orku og verða að verja þá stöðu eins og kostur er á og gæta þess að leyfa engum að laumast bakdyramegin inn í þær auðlindir. Aðrir þurfa að nýta þá orku sem tiltæk er. Kjarnorka í Þýskalandi er dæmi um þetta en mest munar um ef Bandaríkin og fleiri ríki hætta að setja hömlur á sig þegar kemur að framleiðslu á gasi og öðru jarð- efnaeldsneyti á sama tíma og þau gera sig háð öðrum ríkjum. Bandaríkin leita til Mið- Austurlanda og jafnvel Vene- súela við núverandi aðstæður í stað þess að nýta eigin auðlindir, sem eru ríkulegar. Þörf er á mun meira raunsæi í orkumálum. Þau eru of þýðing- armikil til að hægt sé að leyfa öfgasjónarmiðum eða skóla- krökkum að marka stefnuna. Velferð almennings er í húfi þegar orkumál eru annars vegar og þau eru einnig þess eðlis að geta ýtt undir ólgu og ófrið. Nægt framboð orku ætti að vera forgangsmál en hefur ekki verið sinnt sem slíku undanfarin ár, sem skýrir þá slæmu stöðu sem upp er komin. Nú er þörf á breyttri stefnu. Ísland stendur vel og þarf að verja stöðu sína, aðrir þurfa að taka sig á} Breytta orkustefnu Nú eru rétt um þrettán mán- uðir frá því að bandaríski herinn hrökklaðist með óskiljanlegum hætti frá Afganistan og talíbanar hirtu völd- in á ný eftir að hafa verið úthýst í tvo áratugi. Talíbanar reyndu að láta umheiminn halda að þeir væru nýir og betri menn, verstu öfgarnar hefðu vikið og þeim væri treystandi til að virða helstu grundvallarréttindi. Reynslan þetta rúma ár sýnir að ekkert hefur breyst sem máli skiptir. Og það sem verra er, eftir því sem tíminn líður herða öfga- mennirnir tökin. Ástandið í land- inu er skelfilegt en segja má að talíbanarnir séu svo heppnir að augu heimsins hafa á undan- förnum mánuðum beinst annað, einkum að innrás Rússlands í Úkraínu. Fréttir af ástandinu í Afganist- an eru því fáar, en það stafar þó ekki aðeins af áhugaleysi um- heimsins, talíbanarnir vinna skipulega að því að hindra upp- lýsingaöflun í land- inu. Þeim er til að mynda mikið í mun að almenningur, bæði innan lands og utan, sjái ekki hvernig stúlkur, sem meinað hefur verið að ganga í skóla, hafa staðið fyrir mótmælagöngum á nokkrum stöðum í landinu. Til að hindra að myndir af slíkum atburðum ber- ist út hafa útsendarar talíbana brotið farsíma þeirra sem voguðu sér að taka myndir og þegar þeim þykir nóg komið af mótmælunum eru þau leyst upp með valdi. Vesturlönd mega ekki gleyma því hvers konar þjóðfélag þessir íslömsku öfgamenn hafa aftur komið á í Afganistan. Og þau mega ekki heldur gleyma því að stjórnvöld í Afganistan eru ekki aðeins við sama heygarðshornið og áður í afstöðunni til réttinda almennings, einkum kvenna, heldur leyfa þau einnig að Afgan- istan hýsi aftur hryðjuverka- menn, eins og víg Bandaríkja- manna á leiðtoga al Kaída sýndi glöggt. Öfgafullu íslamist- arnir í Afganistan og þolendur þeirra mega ekki gleymast} Kúgunin engu minni en áður Í dag fáum við að líta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þar sjáum við svart á hvítu hvaða samfélag þeir þrír flokkar sem mynda ríkisstjórn Íslands, Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, vilja byggja. Um helgina fengum við nasasjón af raunverulegri sýn ríkisstjórnarinnar því það er einmitt í fjárlagafrumvarpi sem pólitísk stefna flokkanna þriggja raungerist. Ráð- herrar hafa komið fram undanfarna daga og sagst ætla að fresta verkefnum, hafa skatta óbreytta en hækka krónutölu gjalda á almenn- ing. Heildarplaggið er enn á huldu en þetta segir okkur samt ákveðna sögu. Ríkisstjórnin ætlar sér ekki að sækja tekjur í ríkissjóð til hinna efnameiri heldur til almennings óháð efnahag. Skattar verða óbreyttir en krónutölu- hækkun er boðuð á gjöldin og þar með birtist sá vilji flokkanna þriggja að sá sem er með 400 þúsund krónur á mánuði borgi jafn mikið til samneyslunnar og sá sem hef- ur 4 milljónir. Flokkarnir ætla, ef marka má orð þeirra, ekkert að gera til að auka hér jöfnuð. Ekkert hefur verið sagt um að hækka skatt á fjármagnstekjur eða stóreignir, arð banka eða stórútgerða. Nei, það skal sækja fjár- magnið til almennings óháð efnahag og eignastöðu. Þetta er pólitísk ákvörðun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þau segja að fresta eigi framkvæmdum og auka hér að- hald. Nú verður fróðlegt að sjá hvort í fjárlagafrumvarp- inu birtist stefna ríkisstjórnarinnar að auka aðhalds- kröfur á heilbrigðisstofnanir sem hafa verið vanfjármagnaðar undanfarna áratugi. Það ríkir þjóðarsátt á Íslandi um sterkt opinbert heilbrigðiskerfi og að aukið fjármagn verði veitt til þess. Undir það ákall skrifuðu hátt í 100 þúsund íbúar fyrir kosningarnar 2016 en ríkisstjórnir frá þeim tíma hafa virt þetta ákall að vettugi. Það þýðir ekkert að koma fram og vísa í aukin útgjöld vegna heimsfaraldurs þeg- ar rætt er um vanfjármögnun heilbrigðiskerf- isins því það blasir við að almenn heilbrigðis- þjónusta er og hefur verið vanfjármögnuð um langt skeið. Flótti starfsfólks og langir biðlist- ar einkenna stjórn þessarar ríkisstjórnar á heilbrigðiskerfinu og ef aukið aðhald á heil- brigðisstofnanir verður svar ríkisstjórnar í fjárlögum næsta árs er ljóst að hennar verður minnst í framtíðinni fyrir aukinn ójöfnuð og vanrækslu við eina stærstu grunneiningu íslensks sam- félags. Þau sem eiga fjármagn geta þannig sótt sér heil- brigðisþjónustu utan landsteinanna, aðrir mega bíða. Það er ekki nóg að segjast á tyllidögum ætla að auka hér jöfnuð og hækka veiðigjöld eða bankaskatt þegar ekkert slíkt er svo sett fram í fjárlögum. Með slíkum orð- um sínum er forystufólk ríkisstjórnarinnar að beita þjóð- ina blekkingum um raunverulega stefnu sína og sinna flokka. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Samfélag jöfnuðar? Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is M örgum Íslendingum þótti að sér vegið þegar danskur lakkrísfram- leiðandi hafði uppi þær fullyrðingar á dögunum að hann hefði fyrstur átt hugmyndina að súkkulaðihjúpuðum lakkrís. Johan Bülow, sem hefur getið sér gott orð fyrir sælgæti sitt, kvaðst hafa þróað þessa byltingarkenndu hugmynd sína áfram þrátt fyrir mótbárur efa- semdarmanna. Óhætt er að segja að þessar staðhæfingar hafi farið illa í landsmenn enda má ljóst vera að þær eru kolrangar. Hér á landi hafa um áratugaskeið verið gerðar til- raunir með að blanda saman hinum vinsælu sælgistegundum súkkulaði og lakkrís. Byrjaði í kringum 1970 „Þetta hefur líklega byrjað um 1970, mögulega aðeins fyrr, og virð- ist hafa verið bara hugmynd eða uppátæki einhvers sem breiddist svo hratt út,“ segir Nanna Rögnvaldar- dóttir matreiðslubókahöfundur sem þekkir vel til matarhefða og -sögu okkar Íslendinga. Nanna heldur úti hópi á Facebook sem kallast Matur fortíðarinnar og þar spunnust upp umræður um hvenær ástarsamband Íslendinga og súkkulaðis og lakkríss hefði hafist. Þeir sem lögðu þar orð í belg könnuðust vel við að hafa vafið lakkrísborða eða lakkrísrúllu utan um Síríuslengju. Sjálfsprottnar tilraunir „Á þessum árum var nánast allt sælgæti innlent og tilbreyting kannski ekki mjög mikil og þarna var eitthvað nýtt, sjálfsprottið, sem þótti sniðugt og gott, og það sló í gegn. Í mínu umhverfi held ég að oftast hafi verið notaðar lakkrís- rúllur sem var rúllað út, Síríuslengj- an lögð ofan á helminginn og hitt svo brotið yfir – mig minnir að það hafi vantað 1-2 sentímetra upp á að það passaði alveg. Sumir notuðu lakkrís- borða, þeir eru eldri en rúllurnar en mig minnir að þeir hafi oft verið þurrari og þóttu ekki eins góðir,“ segir Nanna. Síðar sáu sælgætisframleið- endur sér leik á borði og hófu að selja þessa tvennu saman. „Þetta var búið að vera til í ábyggilega ára- tug eða tvo þegar farið var að pakka þessu saman og selja sem Eitt sett og ég man að sumum fannst það hálfgert svindl að ekki var lakkrís báðum megin við lengjuna. Ég veit ekki hvaðan hugmyndin hefur kom- ið, man ekki eftir neinu súkkulaði- húðuðu lakkríssælgæti á þessum tíma en þó getur það vel hafa verið. Hjúplakkrís frá Nóa kom eitthvað seinna, kannski á níunda áratugn- um,“ segir Nanna. Eins íslenskur og jöklarnir og álfarnir Ekki þarf því að velkjast í vafa um það að yfirlýsingar Danans voru með öllu innistæðulausar. Eftir að Guðni Th. Jóhannesson forseti Ís- lands blandaði sér í deiluna á sam- félagsmiðlum og sagði að súkku- laðihjúpaður lakkrís væri eins íslenskur og jöklarnir, álfarnir, eld- fjöll og fossar var hann ekki lengi að lyppast niður. Bülow viðurkenndi á endanum að fyrirtæki hans ætti ekki heiðurinn af því að gera fyrst tilraunir með að hjúpa lakkrís með súkkulaði. Þvert á móti hefði hann orð- ið fyrir miklum áhrifum af ís- lenskum vörum. Nema hvað. Bülow klykkti svo út með því að bjóða forsetanum í heim- sókn til sín en engum sögum fer af því hvort hann muni þekkjast boðið. Minnst hálfrar aldar saga sælgætistvennu Í dag blása aðrir vindar um hér- uð en fyrir hálfri öld. Nú geta landsmenn valið úr ótal teg- undum af sælgæti sem saman- stendur af súkkulaði og lakkrís. Mörgum finnst meira að segja of langt seilst enda er farið að troða þessari tvennu í Royal- búðing, á popp og sitthvað fleira. „Já, mér finnst þetta full- langt gengið,“ segir Nanna þeg- ar þetta er borið undir hana. „Gott súkkulaði og góður lakkrís er frábær blanda og sæmilegt súkkulaði og sæmilegur lakkrís get- ur verið ágætis blanda og bætt hvort annað upp. En þeg- ar farið er að blanda saman súkkulaðilíki og lakkríslíki – eða bara frekar lélegum útgáfum af hvoru tveggja – þá verður út- koman ekki merkileg.“ Ekki alltaf merkilegt GAMANIÐ FARIÐ AÐ KÁRNA Nanna Rögnvaldardóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvenna Nú á dögum verður ekki þverfótað fyrir íslensku sælgæti sem samanstendur af súkkulaði og lakkrís. Hér sést lítill hluti af úrvalinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.