Morgunblaðið - 12.09.2022, Page 18

Morgunblaðið - 12.09.2022, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 ✝ Sigríður Atla- dóttir fæddist á Hveravöllum í Suður-Þingeyjar- sýslu 13. desem- ber 1933. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands á Húsavík 1. september 2022. Foreldrar henn- ar voru Atli Bald- vinsson, fram- kvæmdastjóri Garðræktarfélags Reykhverf- inga, og Steinunn Ólafsdóttir húsfreyja frá Hvítárvöllum í Borgarfirði. Systkini Sigríðar: María, f. 1935 (látin), Ólafur, f. 1941, Baldvin, f. 1945. Sigríður giftist Vigfúsi Bjarna Jónssyni, f. 1929, frá Laxamýri í Reykjahverfi árið 1952. Vigfús lést vorið 2020. Foreldrar hans voru Jón H. Þorbergsson, f. 1882, bóndi á Laxamýri, og Elín Vigfús- dóttir, f. 1891, húsfreyja. Börn Vigfúsar og Sigríðar eru: 1) Elín, f. 1952, gift Al- tryggð við sitt fyrra heimili alla tíð. Hún stundaði nám við húsmæðraskólann á Blönduósi veturinn 1951. Hún dvaldi í Búðardal veturinn 1952-1953 þar sem Vigfús var við kennslu. Árið 1953 hófu þau hjón búskap á Laxamýri. Þau byggðu nýbýlið Laxamýri II á árunum 1959-1960. Þau bjuggu fyrst í félagsbúi með foreldrum Vigfúsar og síðar með bróður hans Birni Gunn- ari og konu hans Kristjónu Þórðardóttur og var það mjög farsælt samstarf. Heima á Hveravöllum stundaði hún sund af miklu kappi og keppti í þeirri grein á mörgum mót- um með góðum árangri. Hún var einn af stofnfélögum Kvenfélags Reykjahrepps. Hún var í kvennakórnum Lissý um árabil. . Hún naut þess að ferðast. . Sigríður var dýravinur, hundar og hestar voru í uppáhaldi. Hún hafði yndi af handavinnu og lestri, en íslensk landafræði var líka mikið áhugamál. Útför Sigríð- ar verður gerð frá Húsavíkur- kirkju í dag, 12. september 2022, og hefst athöfnin klukk- an 11. bert Ríkarðssyni, f. 1944. Sonur þeirra er Vigfús Bjarni, f. 1975, maki Bergþóra Jónsdóttir, f. 1971. Börn Vigfúsar Bjarna og Valdís- ar Aspar Ívars- dóttur, f. 1972, eru Rannveig Íva Aspardóttir, f. 1997, Albert Elí, f. 2004, og Patrekur, f. 2008. 2) Atli, f. 1956, giftur Sif Jóns- dóttur, f. 1970. Börn þeirra eru Sigríður, f. 1996, og Atli Björn, f. 1998. 3) Sigríður Steinunn, f. 1962, gift Sveini Freyssyni, f. 1964. Börn Sveins eru Guðrún Hulda, f. 1989 (látin), og Rúnar Freyr, f. 1991. 4) Jón Helgi, f. 1964, d. 2021, giftur Sólveigu Óm- arsdóttur, f. 1965. Börn þeirra eru: Viktor, f. 1983, Vigfús Bjarni, f. 1995, Hulda Ósk, f. 1997, og Elfa Mjöll, f. 2002. Sigríður naut æskuáranna á Hveravöllum og hélt mikilli Ég sit á heyvagninum og held í mömmu. Ekki hár í loft- inu. Við erum að flytja í nýja húsið. Eldhúsdót og tveir bekk- ir, borð og lítið buffet. Dívan í stofuna, barnarúm og gorma- bekkur. Aleigan. Dráttarvélin dregur vagninn. Mamma og pabbi eru full af tilhlökkun. Yf- ir þeim er æskuglans og þau njóta þess að stofna nýbýli. En búið krefst vinnu. Mamma þarf að þvo mjólkurbrúsana oft í viku. Hjálpar kindum að bera. Oft um nætur. Lífgar lítil lömb. Er með hrífu í heyskapnum. Sér oft um símstöðina. Vakir yfir okkur krökkunum í kíg- hóstanum nótt og dag. Þá ælum við í rúmið. Erum að kafna. Saumar á okkur og prjónar. Bróderar. Stendur í ströngu á steypudögum. Tólf menn í mat. Alein í uppþvottinum. Tínir mikið af berjum. Sultar og saft- ar. Hrærir blóðmör. Hreinsar og saumar vambir. Tekur upp kartöflur. Stundum kemur fólk í stórhríðum um miðjar nætur. Hefur fest bíla sína. Labbar langa leið. Kalt og hrakið. Mamma býr um rúm. Finnur þurr föt og hitar kakó. Mamma er alls staðar. Mamma vill tolla í tískunni. Á morgnana túperar hún sig og málar. Vill líta vel út yfir dag- inn. Á meðan passa ég yngri systkini mín og keyri þau í hvítum vagni. Það fer tími í að taka sig til. Mamma á mörg krem og krúsir á baðinu. Allt með útlendum nöfnum. Svo eru perlur og pallíettur, nisti og nælur. Hún hringir í Ragnheiði frá Skörðum. Fær fréttir af kápum og kjólum. Ræðir um hárgreiðslu og holningu á fínu fólki. Vill heyra um nýjasta úr- valið í Guðrúnarbúð. Pantar sér útlendar tískuvörur úr fatalista Quelle. Mamma elskar að ferðast. Vill fara um landið. En pabbi er allaf að heyja. Seinna gefst tími. Hún kynnist ferðahópn- um. Það er hápunkturinn í hennar lífi. Er frjálsari. Eign- ast vinkonur sem hún hringir í. Oft daglega. Lifir fyrir flottar leikkonur og á í þeim fyrir- myndir. Sophia Loren er í uppáhaldi. En tíminn líður. Seint um kvöld sit ég hjá henni í spít- alanum. Mamma sem aldrei hefur verið veik. Ég breiði yfir hana en veit ekki hvort ég sé hana aftur. Um leið horfi ég á hendurnar hennar. Slitnar eftir 70 ára starf á stórri jörð. Síðan fer ég inn í húsið hennar. Finn tómleikann. Stend í stássstof- unni þar sem var sungið, spilað og spjallað. Þar er þögnin ein. Hjónin með æskuglansinn eru farin og gamli heyvagninn löngu úr sér genginn. Það á vel við að mamma, sem dýrkaði drottningar, leggi árar í bát um sama leyti og sú breska. Báðar áttu sjötíu ára starf að baki. Við fjölskyldan syrgjum mömmu eins og þjóð sem syrg- ir sinn þjóðhöfðingja. Ég vona að för hennar til forfeðranna verði farsæl og henni fylgi bænir og blessun. Atli Vigfússon. Laxamýri hefur alltaf verið minn uppáhaldsstaður. Ég finn fyrir mikilli hlýju í hjartanu við tilhugsunina um alla yndislegu tímana sem ég hef fengið að njóta þar, reynsluna sem ég ber með mér út í lífið og fólkið sem ég hef lært af. Amma var þar lykilkarakter. Hún bar svo marga kosti, væntumþykju, hugulsemi, og stundum svolitla afskiptasemi, sem allir vissu að væri einfaldlega vegna óendan- legrar væntumþykju. Mér dett- ur strax í hug sumarið sem ég bjó hjá ömmu í þrjá mánuði. Sama sumar ætlaði ég á þjóðhátíð með nokkrum vinkon- um, löngu plönuð ferð og mikil tilhlökkun. Frá mínum enda. Ömmu fannst þetta auðvitað al- gjörlega út í hött og reyndi að tala mig af þessu allt sumarið. Þegar komið var að þessu og ég enn ákveðin í að fara hófst spurningaflóð á öllum tímum dags, sem endaði með því að ég ákvað að útbúa blað með mjög greinargóðum útskýringum og tímaplani upp á mínútu. Frá því að ég keyrði af hlaðinu hjá ömmu og þar til ég keyrði aftur heim á mánudagsmorgun. Amma hló þegar ég rétti henni miðann, sagði að þetta væri nú algjör óþarfi. Hálftíma síðar var miðinn vel skorðaður við hliðina á barnamyndunum á eldhúshillunni. Símhringingarn- ar yfir helgina voru svo í sam- ræmi við miðann og ég man vel þegar amma hringdi í mig í eitt skiptið: „Sæl vinan, ertu ekki í Herjólfi núna?“ Svo mikil var væntumþykjan. Við áttum náið samband, enda kom ég flest sumur frá því að ég var fimm ára og það var alltaf mikið tilhlökkunar- efni að hitta ömmu, afa og frændfólk mitt í sveitinni. Amma tók vel á móti mér í hvert skipti þrátt fyrir að hafa kvatt mig sumarið áður með orðunum: „Ég verð nú vonandi löngu dauð fyrir næsta sumar Íva mín, en það var gaman að hafa þig.“ Hún vildi nefnilega vera falleg þegar kæmi að deg- inum og ekkert of gömul í kist- unni. Henni var grafalvara en ég hló og kvaddi. Amma var alltaf falleg. Amma var fyrir mér alltaf mikill húmoristi og oft fannst mér hún fyndnust þegar hún ætlaði sér alls ekkert að vera það. Mér er það minnisstætt þegar ég sat á efri hæðinni að horfa á heimsmeistaramótið í handbolta, sem amma bölvaði, af því að það raskaði frétta- dagskránni það kvöldið. Ég reyndi að fá hana með mér að horfa á leikinn. Ekki að ræða það. Svo heyrðist kallað á tíu mínútna fresti: „Hver er staðan núna?“ Hafði samt engan áhuga á þessu handboltabulli. Hún glotti svo þegar ég kom niður og sagði henni að Ísland hefði unnið. Ég man glottið. Amma hringdi til þess að heyra í manni röddina, hún keypti ís og karamellur svo við værum vel nærð í heimsóknum, hún gaf manni pening fyrir ein- hverju fallegu í næstu bæjar- ferð. Mikið á ég eftir að sakna þín elsku amma. Að geta ekki kíkt við hjá þér, sagt þér frá nýjustu hremmingum og borða með þér Royal-búðing á kvöld- in. Ég hugsa til þín hlýtt, þakk- lát fyrir að hafa átt þig og afa að. Amma kveikti á kerti fyrir okkur krakkana í hvert skipti sem hún vissi að við værum í prófi. Í dag kveiki ég á kerti fyrir elsku ömmu sem heldur loksins út í margumrætt ferða- lagið sitt. Ég votta öllum sem ömmu þekktu mína dýpstu samúð. Íva. Til ömmu eru allir velkomn- ir. Börn eru þar inni og úti alla daga. Amma er mjög þolinmóð og góð við okkur. Það er ekki alltaf vinsælt þegar við leikum okkur í geymslunni, fataskáp- um eða gerum prakkarastrik. Þetta var þó allt fyrirgefið jafn- harðan. Amma er alltaf til stað- ar fyrir barnabörnin, fylgist vel með okkur og styður okkur í námi og starfi. Amma er líka alltaf að gauka einhverju að okkur börnunum, alltaf er til ís í frystikistunni og nammi í skápnum góða. Hún er líka afbragðsbakari og kokkur. Galdrar fram veislur. Gerir heimsins bestu hjónabandssælu og fiskibollur. Það eru hins vegar engar uppskriftir til, allt í minninu. Amma er mikill dýravinur. Hún er alltaf með hund á heim- ilinu eða sem heimagang. Petra, Laxa, Melkorka, Perla, Bubbi og fleiri góðir hundar njóta gestrisni og góðs atlætis hjá ömmu. Bubbi kemur til okkar nokkurra vikna gamall og verða hann og amma perlu- vinir frá fyrsta degi. Bubbi kemur oft í heimsókn seinni- partinn og stundum er hringt og beðið um hann. Fær hann þá harðfisk með smjöri og flysjaðar pylsur, amma segir að honum finnist pylsurnar betri þannig. Síðan horfa þau saman á kvöldfréttir og eru þetta gæðastundir. Amma er líka mikill hesta- vinur. Átti góðar minningar um útreiðartúra með Rauði sínum sem barn. Seinna kemur annar Rauður í Laxamýri sem amma átti í miklum vinskap við þó að hún væri hætt að stunda út- reiðar. Rauður kom oft sjálfur í dyrnar til hennar að sníkja brauð og var það auðsótt. Þeg- ar við börnin förum að ríða út er oft stoppað í dyrunum hjá ömmu til að fá brauð og klór handa hestum. Amma elskar þessar heimsóknir. Þó amma elski Hveravelli og hafi fest yndi á Laxamýri á annar staður hug hennar og hjarta. Það er svæðið í Fjörð- um. Amma les margar bækur um svæðið og telur sig hafa fæðst þar í fyrra lífi. Á 79. ald- ursári bjóðum við mægður ömmu í siglingu og sumar- messu á Þönglabakka í Fjörð- um, hafði hún þá komið í Hval- vatnsfjörð áður en ekki í Þorgeirsfjörð. Með samstilltu átaki og þó nokkrum fortölum treysti amma sér til að fara. Fórum við saman í sumarblíðu og er þessi ferð henni síðar ákaflega kær. Amma elskar hlýja sumar- daga og stillur, henni er lítið gefið um stórhríðar og storma. Amma túlkar veðurfréttir oft frjálslega og við fjölskyldan ef- laust verið veðurteppt heilu og hálfu veturna hefði hún fengið að ráða. Sem betur fer ganga hennar veðurspár sjaldnast eft- ir. Eftir sumarið fer að hausta og síðan kemur vetur. Sorgin bankar upp á rétt fyrir jól og eftir sonarmissinn er lífið aldr- ei samt aftur. Í maíbyrjun lend- ir amma í slysi. Hún dvelur síð- ustu mánuðina á sjúkrahúsinu á Húsavík og nýtur þar frá- bærrar umönnunar. Það hallar undan fæti, allt tekur enda og hún kveður þetta líf á fallegum haustmorgni. Hvíldinni fegin og sátt við sitt. Hún heldur í sum- arlandið á vit gamalla vina og nýrra ævintýra. Verða þar dýr- mætir endurfundir. Sigríður Atladóttir. Kleinur og mjólk. Ég ólst að hluta upp hjá Löllu og Fúsa frænda mínum. Daglega vorum við Jón frændi minn eitthvað að brasa í meira en 50 ár. Ótal margir voru þeir kaffitímarnir sem við áttum í eldhúsinu hjá Löllu. Alltaf var þar eitthvað að eitthvað að fá en minningin kallar fram lyktina og bragðið af dásamlegum kleinum sem voru upprunnar frá Hveravöll- um. Minningin er ljóslifandi um góða sumardaga þar sem allir sátu við eldhúsborðið hennar Löllu. Lögð voru á ráðin um verkefni dagsins. Kaupamenn- irnir hrúgast inn og ganga í veitingarnar. Hermt er eftir góðbændum, þingmönnum og prestum. Seinna leggjum við frændur á ráðin og njótum ráða við eldhúsborðið hjá Löllu og Fúsa. Barnabörnin hrúgast inn og frændfólk þeirra, núna er farið í nammiskúffuna og víd- eótækið. Nýir tímar og nýir siðir. Allt í kringum Löllu var myndarlegt. Húsið hreint, mat- urinn góður og hún alltaf eins og drottning. Hárið óaðfinnan- legt og hún klædd í dýrindis föt. Vissulega vorum við frændi minn ekki alltaf sáttir við að þurfa að ganga frá eftir okkur. Áttum það til að taka leiki ann- að þar sem minni agi var. En gæti ekki einmitt verið snyrti- legt á Laxamýri vegna þess að Lalla kenndi fólki að ganga frá eftir sig? Síðustu ár hafa ekki verið auðveld hjá Löllu. Veikindi í fjölskyldunni og erfið sorg. En í öllum þessum erfiðleikum stóð hún sig ótrúlega vel. Sýndi hvað mikið var í hana spunnið. En allir skilja að tími hennar var kominn og vonandi hittir hún ástvini sína hinum megin við stórt kaffiborð. Takk elsku Lalla fyrir alla mjólkina og kleinurnar. Jón Helgi Björnsson. Ég vissi það í ágúst sl. að þetta væri líklega í síðasta skiptið sem við Lalla myndum spjalla saman í lifanda lífi. Ég sat við rúmið hennar og prjón- aði. Henni fannst peysan falleg og sagði að það væri notalegt að hafa mig hjá sér með prjón- ana. Einnig sagði hún að sér hefði alltaf fundist notalegt að prjóna eða gera aðrar hann- yrðir og gaman að skapa ný verk. Já handverkið hennar Löllu var svo fallegt og allt sem hún tók sér fyrir hendur var vandað. Ég lít á það sem for- réttindi að hafa alist upp á Laxamýri en þar bjuggu í fé- lagsbúi foreldrar mínir og Fúsi bróðir pabba og hans kona Lalla. Mikill samgangur var á milli fjölskyldna og minningar mínar um Löllu gagnvart mér eru ljúfar og hlýjar. Ein fyrsta minningin er að ég kallaði hús- ið sem þau bjuggu í Lölluhús og bílinn þeirra Fúsabíl. Aug- ljóst þar sem Lalla réði öllu innandyra í þá daga. Ég fór oft í heimsókn og fylgdist með henni gera húsverkin, baka kleinur, búa um rúm og greiða sig og mála – allt óaðfinnan- legt. Lalla var alltaf svo glæsi- leg og vel tilhöfð og í fallegum nýtískufötum sem hún hafði pantað úr þýskum verðlista. Alltaf bar hún fallega og smekklega skartgripi og var eins og hún væri hluti af kon- ungsfjölskyldu. Það var ekki að sjá að vinnudagurinn hennar væri langur en það var hann svo sannarlega. Einu sinni þeg- ar ég var lítil stelpa ræddum við Lalla um af hverju ég væri ekki með göt í eyrunum, sem mig langaði mjög mikið í. Ég sagði henni sem var að mamma væri algerlega mótfallin því þar sem það hefði gengið svo illa hjá systur minni. Þetta fannst Löllu alveg ótækt og úr varð samkomulag hjá okkur að hún myndi gefa mér í jólagjöf eyrnalokka og peninga fyrir götum. Lalla sagði að það væri best að vera ekkert að ræða þessa gjöf og ég var pínu stressuð yfir því hvernig mamma myndi taka þessu á að- fangadagskvöldi. Mamma sagði ekkert en kímdi aðeins en Lalla sagði henni að það væri löngu tímabært að ég fengi göt í eyr- un og svo var það ekki rætt meira. Lalla var alltaf boðin og búin að hjálpa mér í mínum uppvexti og lærði ég margt af henni. Man þegar ég var tíu ára og var falið að sjá um mat- seld ofan í smiði og verkamenn úr klakstöðinni þar sem móðir mín var farin að vinna á slát- urhúsinu. Skal viðurkenna að smá stress var í mér vegna þessa verkefnis. Það kom fyrir nokkrum sinnum að ég hringdi í Löllu og bæði um aðstoð, sér- staklega að þykkja sósur og fleira sem var aðeins vanda- samara. Lalla kom alltaf á augabragði og hjálpaði mér, en stundum var það bara stuðn- ingur sem mig vantaði við að það sem ég var búin að gera væri rétt. Mamma mín og Lalla voru góðar vinkonur, bjuggu á sama bæ með sín börn og börn annarra og oft margt sem gekk á. Þeim varð aldrei sundurorða, ekki alltaf sammála en virtu skoðanir hvor annarrar og traustið var órjúfanlegt. Það voru lífsgæði að sitja með þeim við eldhúsborðið og drekka kaffi. Báðar voru þær þannig að þær töluðu uppbyggilega um menn og málefni, sem er mjög til eftirbreytni. Elsku Lalla takk fyrir allt og allt. Halla Bergþóra Björnsdóttir. Sigríður Atladóttir, eða Lalla á Laxamýri eins og hún var alltaf kölluð af ættingjum og vinum, er látin í hárri elli. Með henni kveður kynslóðin sem stýrði búrekstrinum á höfuð- bólinu Laxamýri um áratuga skeið. Hér eru því kaflaskil. Við hjónin urðum þeirrar gæfu að- njótandi að kynnast fjölskyld- unum á Laxamýri skömmu eftir að við fluttum til Húsavíkur fyrir hálfum sjötta áratug. Okkur varð strax vel til vina og sú vinátta hélst alla tíð án þess að nokkurn skugga bæri á. Lalla var hæglát, tranaði sér ekki fram, var þó ófeimin og í góðra vina hópi greip hún gjarnan gítarinn, spilaði og söng og gat verið hrókur alls fagnaðar. Kunni ógrynnin öll af sönglögum. Löllu fannst gaman að gleðjast, en allt með hófsöm- um hætti. Lalla var aðeins 19 ára þegar hún og Vigfús hófu sína sam- búð á Laxamýri. Það reyndi á svo unga konu, enda gerði tengdafaðir hennar, Jón Þor- bergsson, miklar kröfur til sín og annarra og allir urðu að taka fullan þátt í bústörfunum. En hún sýndi strax úr hverju hún var gerð og það fór ekki fram hjá Jóni bónda, enda varð þeim strax vel til vina. En það voru ekki aðeins fyrstu árin sem kölluðu á atorku og ósér- hlífni, mikill gestagangur var alltaf á Laxamýri og mikil upp- bygging á stórbýlinu á þessum árum. Og því fylgdi hópur verkamanna í fullu fæði. Eng- inn veitingastaður til að vísa þeim á. Ég man ekki til þess að Lalla hafi haft vinnukonur sér til aðstoðar. Sá um allt þetta úthald og sex manna heimili að auki. Lærði ung á bíl og fór því fljótt að sjá um aðdrætti til búsins. En jeppinn var til fleiri hluta nytsamlegur og minnist Atli sonur Löllu sérstaklega sundferðanna upp að Hvera- völlum. Þá tróð hún öllum krakkaskaranum á Laxamýri í jeppann og lét þau ærslast í lauginni góða stund og allir komu svo ferskir og hreinir heim. Lalla var gædd þeim góða hæfileika að geta lynt við alla og stóð aldrei í orðasennum við fólk þótt henni mislíkaði. Hún var glæsileg kona, alltaf vel til- höfð og allt smekklegt í kring- um hana. Hún var höfðingi heim að sækja. En eins og flest okkar þurfti hún einnig að glíma við sorgina. Þar reis hæst sonarmissir á síðasta ári. Þar að auki veiktist Vigfús, eiginmaður hennar, svo að hann varð að dvelja á hjúkr- unarheimili um sjö ára skeið áður en hann lést fyrir tveimur og hálfu ári. Ekki brotnaði Lalla við þessi áföll og hún bjó áfram ein í húsi sínu á Laxa- mýri eftir að Vigfús veiktist og fram á þetta ár. Þar naut hún vissulega nágrennis sonar og tengdadóttur, Atla og Sifjar. Lalla hafði alltaf verið heilsu- hraust og hún hélt fullri and- legri reisn fram undir loka- stundina. Við kveðjum merka konu sem ólst upp með ungmenna- félagsandanum og kjörorðinu: Íslandi allt! Þessi kynslóð taldi það skyldu sína að byggja upp fyrir komandi kynslóðir, fyrir Ísland. Það var þeirra líf og starf. Frístundir fáar og sjálfs- dekur utan hugmyndaheims. Við eigum þeim mikið að þakka. Blessuð sé minning Sigríðar Sigríður Atladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.