Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 26

Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 26
BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Baráttan um meistaratitilinn er alls ekki útkljáð. Valur er að stimpla sig út úr slagnum um Evrópusæti með tapi gegn tíu Leiknismönnum. KR er öruggt með sæti í efri hlutanum. Harður slagur verður um sjötta sætið í 22. umferðinni á laugardag- inn kemur og FH vann afgerandi sigur á ÍA í fallbaráttunni. Þetta eru helstu niðurstöðurnar eftir 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem öll var leikin á sama tíma í gær. Hallgrímur Mar Steingrímsson tryggði KA sigur á Blikum, 2:1, með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir leikslok á meðan Víkingar unnu öruggan sigur í Keflavík, 3:0. Þar með er forysta Blika dottin niður í sex stig þegar enn eru sex umferðir eftir og þrjú efstu liðin eiga öll eftir að mætast á ný á lokasprettinum. _ Mark Hallgríms var líka sögu- legt því það var 500. mark KA í efstu deild. _ Rodrigo Gómez skoraði fyrra mark KA og átti stóran þátt í því seinna í 100. leik sínum í efstu deild. Víkingar hafa nú skorað 12 mörk gegn engu á nokkrum dögum og hafa sett félagsmet með því að skora 56 mörk í deildinni á tíma- bilinu, átján mörkum meira en þegar þeir urðu meistarar í fyrra. Markaveisla þeirra síðustu daga er nánast eins og aukastig því nú munar litlu á markatölu þeirra og Blikanna fyrir lokasprettinn. Stefán Árni Geirsson skoraði tvö marka KR sem vann Stjörn- una 3:1 og verður í efri hlutanum í síðustu fimm umferðunum. Guðmundur Magnússon skoraði bæði mörk Framara í 2:2-jafntefli í Eyjum, það seinna með glæsilegu skoti af hátt í 30 metra færi. Stjarnan, Fram og Keflavík bí- tast um sjötta sætið í 22. umferð- inni. Fram og Keflavík mætast og sigurliðið gæti fellt Stjörnuna úr sjötta sætinu, tapi Garðbæingar fyrir FH. Ótrúleg endurkoma Leiknis Leiknismenn áttu ótrúlega endurkomu eftir níu marka tapið gegn Víkingi. Þeir misstu Zean Dalügge af velli með rautt spjald eftir 19 mínútur en unnu samt Val 1:0 með marki Birgis Baldvins- sonar skömmu fyrir leikslok. Leiknir komst uppfyrir ÍA og af botninum en liðin mætast á Akra- nesi á laugardaginn og mætast síðan aftur í fallkeppninni í októ- ber. Eftir þessi úrslit þurfa Vals- menn mikla sigurgöngu í síðustu umferðunum til að eygja von um Evrópusæti. Lennon loks með 100. markið Upprisa FH hélt áfram og í fjórða deildarleiknum í röð án taps gjörsigruðu Hafnfirðingarnir Skagamenn, 6:1, í lykilleik fallbar- áttunnar þar sem Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði tvö mörk. _ Steven Lennon skoraði lang- þráð 100. mark sitt í efstu deild í stórsigri FH. Hann hafði ekki skor- að í átta síðustu leikjum í deildinni en kom inn á sem varamaður, skor- aði fimmta mark FH og lagði upp það sjötta. Lennon er fimmti leik- maðurinn í sögunni sem skorar 100 mörk í deildinni. _ Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH skoraði sitt 50. mark í deildinni þegar hann kom liðinu yfir gegn ÍA úr vítaspyrnu. KA opnaði meistarabar- áttuna á ný Ljósmynd/Þórir Tryggvason Lykilmaður Rodrigo Gómez eltir Ísak Snæ Þorvaldsson í leik KA og Breiða- bliks. Rodrigo skoraði fyrra mark KA og átti stóran þátt í því síðara. - Slagur þriggja liða um 6. sætið - Stórsigur FH í fallslagnum við ÍA 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Besta deild karla KA – Breiðablik ........................................ 2:1 Keflavík – Víkingur R .............................. 0:3 Leiknir R. – Valur .................................... 1:0 KR – Stjarnan........................................... 3:1 ÍBV – Fram............................................... 2:2 FH – ÍA ..................................................... 6:1 Staðan: Breiðablik 21 15 3 3 52:23 48 Víkingur R. 21 12 6 3 56:30 42 KA 21 12 4 5 44:26 40 Valur 21 9 5 7 38:31 32 KR 21 7 9 5 35:32 30 Stjarnan 21 7 7 7 38:41 28 Fram 21 5 10 6 40:43 25 Keflavík 21 7 4 10 31:36 25 ÍBV 21 4 8 9 33:41 20 FH 21 4 7 10 26:33 19 Leiknir R. 21 4 5 12 19:48 17 ÍA 21 3 6 12 23:51 15 Lengjudeild karla Grindavík – HK ........................................ 4:3 KV – Þór.................................................... 1:0 Vestri – Selfoss ......................................... 2:2 Fjölnir – Grótta ........................................ 0:1 Fylkir – Þróttur V .................................... 4:0 Kórdrengir – Afturelding........................ 4:0 Staðan: Fylkir 21 16 3 2 62:21 51 HK 21 14 1 6 44:29 43 Grótta 21 11 1 9 39:32 34 Fjölnir 21 10 3 8 46:36 33 Kórdrengir 21 8 6 7 33:30 30 Afturelding 21 8 5 8 38:34 29 Selfoss 21 8 5 8 39:39 29 Vestri 21 7 7 7 35:42 28 Grindavík 21 7 6 8 42:42 27 Þór 21 8 3 10 29:34 27 KV 21 5 3 13 27:50 18 Þróttur V. 21 1 3 17 8:53 6 2. deild karla KF – Reynir S........................................... 8:3 Völsungur – Þróttur R............................. 1:1 Haukar – Magni........................................ 1:2 Ægir – ÍR.................................................. 2:2 Njarðvík – Höttur/Huginn ...................... 3:0 KFA – Víkingur Ó .................................... 0:2 Staðan: Njarðvík 21 17 1 3 60:21 52 Þróttur R. 21 14 4 3 47:26 46 Ægir 21 11 4 6 36:33 37 Völsungur 21 9 6 6 41:33 33 ÍR 21 8 6 7 34:33 30 Höttur/Huginn 21 7 6 8 33:30 27 KF 21 6 8 7 47:47 26 Víkingur Ó. 21 6 7 8 40:41 25 Haukar 21 6 6 9 27:30 24 KFA 21 5 4 12 32:52 19 Reynir S. 21 3 5 13 22:47 14 Magni 21 3 5 13 22:48 14 3. deild karla Vængir Júpíters – Sindri ......................... 0:3 Víðir – Elliði .............................................. 2:3 Augnablik – Kormákur/Hvöt .................. 4:1 KFG – Dalvík/Reynir............................... 2:3 ÍH – Kári ................................................... 2:1 KH – KFS ................................................. 3:5 Staðan: Dalvík/Reynir 21 15 1 5 52:29 46 Sindri 21 13 5 3 48:27 44 KFG 21 11 6 4 46:27 39 Víðir 21 10 5 6 41:28 35 KFS 21 10 2 9 40:51 32 Kári 21 9 4 8 34:34 31 Augnablik 21 8 6 7 34:30 30 Elliði 21 8 3 10 38:41 27 ÍH 21 7 2 12 38:46 23 Kormákur/Hvöt 21 6 2 13 32:46 20 Vængir Júpiters 21 5 2 14 30:52 17 KH 21 4 2 15 26:48 14 Besta deild kvenna Selfoss – Stjarnan .................................... 1:1 Staðan: Valur 14 11 2 1 42:6 35 Breiðablik 14 9 2 3 35:7 29 Stjarnan 15 8 4 3 34:15 28 Þróttur R. 14 8 1 5 27:17 25 Selfoss 15 6 4 5 16:13 22 ÍBV 14 6 4 4 19:21 22 Keflavík 14 4 1 9 16:28 13 Þór/KA 14 4 1 9 17:36 13 Afturelding 14 3 0 11 14:40 9 KR 14 2 1 11 13:50 7 Lengjudeild kvenna Fjarð/Hött/Leiknir – Víkingur R ........... 1:3 Grindavík – HK ........................................ 2:1 Staðan: FH 17 12 5 0 44:7 41 Tindastóll 17 12 4 1 41:13 40 Víkingur R. 17 11 2 4 35:22 35 HK 17 10 3 4 30:16 33 Fjarð/Hött/Leik. 17 7 5 5 33:25 26 Grindavík 17 6 2 9 15:29 20 Fylkir 17 3 9 5 15:19 18 Augnablik 17 4 1 12 18:36 13 Haukar 17 2 2 13 14:44 8 Fjölnir 17 1 1 15 8:42 4 2. deild kvenna Efri hluti: ÍR – KH..................................................... 3:4 Völsungur – Grótta .................................. 0:1 Staðan: Fram 14 11 2 1 35:10 35 Grótta 14 9 4 1 48:12 31 Völsungur 14 9 3 2 43:15 30 ÍR 14 9 2 3 41:21 29 ÍA 14 8 1 5 25:24 25 KH 14 5 1 8 38:38 16 50$99(/:+0$ KA – BREIÐABLIK 2:1 1:0 Rodrigo Gómez 24. 1:1 Viktor Karl Einarsson 59. 2:1 Hallgrímur Mar Steingrímss. 88.(v) MM Ívar Örn Árnason (KA) M Kristijan Jajalo (KA) Dusan Brkovic (KA) Rodrigo Gómez (KA) Andri Fannar Stefánsson (KA) Sveinn Margeir Hauksson (KA) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Jason Daði Sveinþórsson (Breiðabliki) Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8. Áhorfendur: 835. KEFLAVÍK – VÍKINGUR 0:3 0:1 Daníjel Dejan Djuric 17. 0:2 Helgi Guðjónsson 33.(v) 0:3 Ari Sigurpálsson 36. M Magnús Þór Magnússon (Keflavík) Frans Elvarsson (Keflavík) Pablo Punyed (Víkingi) Helgi Guðjónsson (Víkingi) Ari Sigurpálsson (Víkingi) Danijel Dejan Djuric (Víkingi) Logi Tómasson (Víkingi) Oliver Ekroth (Víkingi) Ingvar Jónsson (Víkingi) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8. Áhorfendur: 450. FH – ÍA 6:1 1:0 Matthías Vilhjálmsson 4.(v) 2:0 Vuk Oskar Dimitrijevic 17. 2:1 Steinar Þorsteinsson 33. 3:1 Oliver Heiðarsson 41. 4:1 Vuk Oskar Dimitrijevic 82. 5:1 Steven Lennon 83. 6:1 Máni Austmann Hilmarss. 90. MM Vuk Oskar Dimitrijevic (FH) M Matthías Vilhjálmsson (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Davíð Snær Jóhannsson (FH) Oliver Heiðarsson (FH) Úlfur Ágúst Björnsson (FH) Steven Lennon (FH) Steinar Þorsteinsson (ÍA) Aron Bjarki Jósepsson (ÍA) Dómari: Erlendur Eiríksson – 8. Áhorfendur: 1.137. LEIKNIR R. – VALUR 1:0 1:0 Birgir Baldvinsson 81. MM Birgir Baldvinsson (Leikni) Viktor Freyr Sigurðsson (Leikni) M Bjarki Aðalsteinsson (Leiknir) Daði Bærings Halldórsson (Leiknir) Hjalti Sigurðsson (Leiknir) Davíð Júlían Jónsson (Leiknir) Sigurður Egill Lárusson (Val) Rautt spjald: Zean Dalügge (Leikni) 19. Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7. Áhorfendur: 377. ÍBV – FRAM 2:2 0:1 Guðmundur Magnússon 16. 1:1 Alex Freyr Hilmarsson 25. 1:2 Guðmundur Magnússon 64. 2:2 Telmo Castanheira 82. M Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV) Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV) Elvis Bwomono (ÍBV) Telmo Castanheira (ÍBV) Ólafur Íshólm Ólafsson (Fram) Guðmundur Magnússon (Fram) Fred Saraiva (Fram) Jannik Pohl (Fram) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 4. Áhorfendur: 324. KR – STJARNAN 3:1 1:0 Theódór Elmar Bjarnason 9. 2:0 Stefán Árni Geirsson 14. 3:0 Stefán Árni Geirsson 75. 3:1 Jóhann Árni Gunnarsson 88.(v) M Kennie Chopart (KR) Pontus Lindgren (KR) Theodór Elmar Bjarnason (KR) Atli Sigurjónsson (KR) Stefán Árni Geirsson (KR) Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR) Sindri Þór Ingimarsson (Stjörnunni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Guðmundur B. Nökkvason (Stjörnunni) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8. Áhorfendur: 700. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. _ Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk fyrir meistaralið Magdeburg þeg- ar það vann Wetzlar, 32:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Sjö markanna komu af vítalínunni. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg en hann átti fjórar stoðsendingar í leiknum og Ómar þrjár. Magdeburg hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu. _ Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk fyrir Flensburg sem vann Hann- over-Burgdorf á útivelli, 35:25. Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer sem tapaði í Kiel, 35:29. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Melsungen sem gerði jafn- tefli, 28:28, við Lemgo á útivelli en Elvar Örn Jónsson er ekki farinn að leika með Melsungen á tímabilinu vegna meiðsla. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfari Gummersbach fagnaði sigri á Hamm, 29:28. _ Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði fjórða mark Örebro á laugardaginn þegar lið hennar vann Kalmar 4:0 á úti- velli í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu. Berglind lék allan leikinn en lið hennar er í níunda sæti deild- arinnar. Guðrún Arnardóttir lék í 64 mínútur með toppliði Rosengård sem tapaði 2:0 fyrir Hammarby og Amanda Andradóttir lék í 66 mínútur fyrir Kristianstad sem vann AIK 6:2 á útivelli og er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir Rosengård. Hlín Eiríks- dóttir lék allan leikinn með Piteå sem gerði 0:0-jafntefli við Bromma- pojkarna. _ Samúel Kári Friðjónsson skoraði sitt fyrsta mark í grísku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu þegar lið hans Atro- mitos vann Ionikos 4:1 á útivelli eftir að hafa verið undir í hálfleik. Samúel kom inn á í hálfleik og kom Atromitos í 2:1 á 55. mín- útu. Viðar Örn Kjartansson lék fyrri hálfleikinn með Atromitos sem er í fimmta sæti deild- arinnar eftir fjórar umferðir. _ Brynjólfur Willumsson skoraði fyrsta mark Kristiansund sem vann Vålerenga í gær, 3:2, og komst af botni norsku úr- valsdeildarinnar í knattspyrnu í fyrsta sinn á tímabilinu. Hann lék í 78 mín- útur. Alfons Sampsted lék í 59 mín- útur með meisturum Bodö/Glimt sem töpuðu 3:2 fyrir Tromsö og eru orðnir tólf stigum á eftir toppliði Molde. Pat- Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.