Morgunblaðið - 12.09.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.09.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 Staður: 169th Street, Queens, New York Stund: Febrúar 2014 Ástand: Japl, jaml og fuður Hóruhúsið í Queens Ég ligg uppi í rúmi og japla á súkkulaðihúðuðum möndlum frá Kirkland. Engin af stelpunum er heima. Við fengum helgarfrí svo ein- hverjar þeirra fóru heim til fjöl- skyldna sinna á meðan rest fór út á lífið. Ég gæti ekki verið í betri mál- um hérna. Eftir að ég klára handfylli af möndlum fer ég aftur inn í eldhús og næ mér í poka af Goldfish Baked Snack Crackers. Hvaða drasl er þetta eiginlega? Hvernig dettur þessum könum allur þessi ruslmatur í hug? Jæja, þetta verður að duga. Þetta er það eina sem hún á í tonna- vís. Ég klára pok- ann. Ég fer reyndar létt með það. Þetta gula fiskikex er bara alls ekki svo slæmt. Þá er komið að fórnarlambi núm- er þrjú. Hverju get ég stolið af Emily? Ég veit að þær fóru allar saman í Costco fyrir helgi svo þetta ætti ekki að vera svo snúið í þetta sinn þar sem nægur matur er til. Þær buðu mér með en mér finnst betra að fara ein út í búð. Þær halda allar að ég sé með bæði glútenóþol og sykursýki svo ég nenni ekki að fá spurningar þegar eitthvað sem sam- ræmist ekki þeirri lygi ratar í kerr- una mína. Ég tók ákvörðun fyrir tæpum þremur árum um að sneiða nánast alfarið hjá bæði hveiti og sykri, og það gekk vel fyrst um sinn. Ég fann hvað mér leið betur af því, ég fann fyrir minni löngun í sætindi og brauðmeti og ég fann mun á mér inn- an vallar. Ég átti erfitt með að stoppa eftir að snakkpokinn var opn- aður svo það var bara best að halda honum lokuðum. Á hnefanum. Mér fannst ekkert óeðlilegt við það, þar sem flestir sem ég umgengst hafa sömu sögu að segja um blessaðan snakkpokann. Mér fannst stelpurnar sem ég bjó með ekki alveg vera að ná þessu svo ég bjó til lygi sem ég vita- skuld verð að viðhalda út sambúðina. Fyrstu mánuðirnir eftir að við fluttum allar inn saman í ágúst í fyrra einkenndust af áreiðanleika og samvinnu. Við létum hver aðra í friði þegar við átti, við skiptum rými og skápaplássi heiðarlega á milli okkar, við sammæltumst um nýtingu sjón- varpsrýmisins og við snertum ekki mat hver annarrar. Nú, hálfu ári síð- ar, er annað upp á teningnum. Þrjár af þeim búa á efri hæð húss- ins, þrjár í kjallaranum og ég er ein á aðalhæðinni þar sem stofan, borð- stofan og eldhúsið eru. Út frá eld- húsinu er meðalstór búrskápur – í honum bý ég. Á þessum sex mánuðum hefur húsið skipst upp í þrjár fylkingar; stelpurnar á efri hæðinni, stelpurnar á þeirri neðstu og ég og eldhúsið í miðjunni. Það ríkir hatrammur rígur hæðanna tveggja á milli, á meðan ég styrki samband mitt við eldhúsið og allt sem í því er. Rifrildin verða svæsnari en á sama tíma ómerkilegri með hverjum deg- inum. Ísskápspláss, hitastig hússins og afnot stofunnar eru dagleg við- fangsefni sem oftast bera lítinn sem engan árangur. Þolinmæði allra er á þrotum. Ekki bætir því úr skák að ég skuli vera farin að læðast í mat þeirra allra á næturnar. Með hverri vikunni sem líður fjölgar þessum ferðalögum mínum að næturlagi. Nú orðið fara þessar ránsferðir reyndar fram á hvaða tíma dags sem er, svo lengi sem ég er ein í húsinu eins og núna. Í fyrstu tókst mér að skipta skömmtunum jafnt á milli þeirra svo engin þeirra yrði vör við neitt. Eftir því sem skammtarnir urðu stærri varð ekki hjá því komist að sjá um- merkin hjá hverri og einni. Þær ásaka hver aðra í kross en ég ligg aldrei undir grun; sjúklingurinn sem má ekki innbyrða þennan ameríska ruslmat þeirra. Ekki skil ég hvað er að mér. Hvernig get ég gert þetta án þess að blikna? Hvernig get ég leyft þessu leikriti að viðgangast? Ég byrja hvern einasta dag á því að lofa mér tvennu; að eiga bara hollan mat í ís- skápnum og stela ekki mat af stelp- unum. Ég næ undantekningarlaust að standa við það fyrra en síðara lof- orðið er algjörlega tilviljunum háð. Suma daga næ ég að halda það mikið í mér að ég get lagst á koddann með hreina samvisku en aðra er mér það fullkomlega ómögulegt. Ég verð að halda áfram leitinni að einhverju sem getur stutt mig í þess- ari baráttu minni. Það eina sem ég hef fundið hingað til eru sjálfshjálp- arfundir þar sem maður þarf að trúa á guð almáttugan til að læknast. Svo lágt leggst ég ekki. En einhvern veg- inn verð ég að fara að taka ábyrgð á gjörðum mínum. Ég get ekki haldið áfram að skvetta olíu á eld heimilis- ins. Þetta mun enda með ósköpum. Svo er þessi innbyrðisrígur farinn að fréttast til strákaliðanna í skól- anum og er það ímynd hússins ekki til framdráttar. Þeir tóku upp á því að kalla heimili okkar hóruhúsið í byrjun skólaárs og hefur það nafn fest sig í sessi. Ekki veit ég hvaðan það gælunafn er sprottið. En það eru strákarnir sem stjórna umræðunni og ef þeim finnst eitthvað, þá finnst öllum það. Ég velti stundum fyrir mér hve mikla virðingu þessir strákar bera fyrir okkur en sú spurning er mér um megn þegar þarna er komið. Ég verð að finna lausn á matarvanda mínum áður en ég fer að ala upp tví- tuga fótboltapatta. Ég næ mér í næsta skammt af stolnum mat og byrja að gúgla. Aft- ur. Ég bara verð að finna eitthvað sem getur hjálpað mér. Að mér og matnum undanskildum er hóruhúsið í Queens tómt á þessu laugardagskvöldi. Hér er engin ólög- leg starfsemi í gangi (fyrir utan sak- lausar innanhússránsferðir) og hér verður ekki japlað á neinum í kvöld. Ekki nema viðkomandi geti smurt sig sykurlegi, þá skal ég hugsa málið. Staður: Harpa, Reykjavík Stund: Desember 2018 Ástand: Ekki hugsa Ekki hugsa Hann er einn af þeim sem geta tal- að við aðra án orða. Hann á hér í samtali við fullan sal af fólki og það líður eins áreynslulaust áfram og hljómarnir sem hann skapar. Það er einhver dýpt í tónlistinni hans sem ég væri til í að skilja. Ég veit að hann kveikir á einhverju hjá mér sem enginn annar tónlistarmað- ur gerir en ég gæti ekki útskýrt það fyrir sjálfri mér eða öðrum. Ég hef hvorki nægan skilning á tónlist né mannskeppnunni til að útskýra hvað á sér stað þegar ég hlusta á lögin hans. Enda þarf ég þess ekki. Ég þarf ekki alltaf að geta útskýrt allt. Ég þarf ekki alltaf að hugsa. Ég leyfi tónunum frekar að senda mig í annan heim. Í þessum heimi þurfum við ekki orð. Við þurfum ekki að sammælast um að upp þýði upp og niður þýði niður. Við þurfum ekki að sannfæra hvert annað um að eitt sé rétt og annað vitlaust. Eitt af og hitt á. Í þessum heimi eru engir flokkar. Við streymum öll niður sama fljótið og ekkert okkar reynir að vera á undan hinum. Við sleppum öll tökunum og treystum því að fljót- ið taki okkur þangað sem við eigum að fara, á þeim tíma sem það tekur okkur að komast þangað. Í þessum heimi trúir enginn á guð. Enda lítur enginn á guð sem af eða á. Við vitum betur. Við vitum að fljótið ber okkur þangað sem við eigum að fara – þegar við eigum að fara þang- að – og það er guð. Við þurfum ekki orð eða einstaklinga til að segja okk- ur hvað guð vill eða er. Guð er það mikill hluti af okkur að við þurfum ekki að móta hann eins og leirkarl. Leirkarl sem tekur á sig mismun- andi myndir eftir heimshlutum. Svo er hann ekki titlaður hann. Enda er guð ekki karlmaður í þessum heimi – ekki frekar en kona. Tónarnir halda áfram að flæða út. Hann er með þrjá fiðluleikara, einn sellóleikara, einn trommara og nokk- ur píanó sem hann spilar sjálfur á. Ég skil ekki enn hvernig hann fer að því að skapa þessa dýrð. Ég er svo yfirmáta uppnumin og sæl að ég veit varla hvað ég á að gera við mig. Mig langar að gefa Ólafi Arnalds allan heiðurinn af vellíðan minni en ég get ekki annað en fundið fyrir djúpstæðu þakklæti gagnvart frá- haldinu mínu akkúrat núna. Ef ekki væri fyrir það og það fólk sem hjálp- aði mér á lappir aftur gæti ég ekki fundið fyrir þessum tilfinningum sem brjótast út þegar ég hlusta á tónlistina hans. Ég væri annaðhvort algjörlega dofin eða fyndi fyrir sterkri öfundsýki gagnvart honum og því sem hann getur skapað en ekki ég. Svo væri ég auðvitað ekki stödd hérna á þessum tónleikum í Hörpu með pabba. Ég væri hvorki í ástandi til að fara út úr húsi né hefði ég nokkurn áhuga á að verja tíma með pabba mínum. Ég er enn að átta mig á því hve mikil sturlun fylgir neyslunni. Hvað ég breytist mikið við að innbyrða þessi matvæli. Það er enn eitthvað í mér sem skilur þetta ekki og efast um eigin upplifun. Svo hjálpar það ekki að ég er enn að mæta hjúkr- unarfræðingum, sálfræðingum og öðrum sjálfskipuðum sérfræðingum sem segja mér að það sé ekkert til sem heitir matarfíkn. Það séu bara til sjúkdómar á borð við átraskanir og lotuát og að ég þurfi bara að læra að umgangast þessi matvæli á annan hátt – og megi því alls ekki taka þau alfarið út. Slíkt sé óheilbrigt og geti skapað enn brenglaðra samband við mat. Heyrðu! Nú er ég alveg dottin út úr þeim heimi sem ég fer í þegar tón- list hans gleypir mig. Ég er komin inn í gremjuna mína gagnvart sam- félaginu sem hefur ekki getuna til að skilja mig – ekki í dag allavega. Kannski síðar, en það er eitthvað sem ég get haft skoðun á seinna í kvöld. Ég vil verja næsta klukkutím- anum áfram með Ólafi, tónum hans og þeim heimi sem þarfnast hvorki orða né hugsana. Hann hefur sjálfur lítið tjáð sig á milli laga enda þarf hann þess ekki. Einstaka sinnum hefur hann þó upp raust sína og kynnir inn næsta lag. Takk fyrir þetta. Takk fyrir. Næsta lag sem við ætlum að spila fyrir ykkur heitir Ekki hugsa – gjör- ið svo vel. Bókarkafli Í bókinni Veran í moldinni segir knattspyrnukonan Lára Kristín Pedersen á athyglisverðan hátt frá baráttu sinni við matarfíkn, sem hún hefur glímt við um árabil meðfram því að stunda íþrótt sína af kappi hér heima og erlendis. Þetta mun enda með ósköpum Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir Höfundurinn „Ég er enn að átta mig á því hve mikil sturlun fylgir neyslunni. Hvað ég breytist mikið við að innbyrða þessi matvæli. Það er enn eitthvað í mér sem skilur þetta ekki,“ segir meðal annars í bók Láru Kristínar Pedersen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.