Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Fagfólk STOÐAR
veitir
nánari upplýsingar
og ráðgjöf.
Tímapantanir
í síma 565 2885
Slitgigtarspelkur
fyrir hné
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
áli. Meginburðarvirki verða stað-
steyptir útveggir og plötur. Útlit
húsanna á skýringarmyndum verður
leiðbeinandi.
Innan byggingarreits verður
heimilt að hafa sólpalla og byggja
smáhýsi, allt að 2,20 metrum á hæð.
Þessi smáhýsi skal gera úr léttum
byggingarefnum og eingöngu nýta
sem geymslur.
Heimilt er að gera ráð fyrir allt að
sex íbúðum á lóðinni. Leyfilegt verð-
ur að vera með gististarfsemi og/eða
skammtímaleigu á lóðinni í allt að
helmingi íbúða í nýbyggingum, sam-
anber sérákvæði um gististarfsemi í
aðalskipulagi.
Áður en framkvæmdir hefjast á
lóðinni þarf að fá fornleifafræðing til
að hafa eftirlit með öllu jarðraski.
Komi fornleifar í ljós þarf að rann-
saka þær áður en haldið er áfram.
Deiliskipulagsbreyting þessi hef-
ur átt sér langan aðdraganda. Í upp-
hafi málsins voru lóðirnar Veg-
húsastígur 1 og Klapparstígur 19
sameinaðar árið 2008. Samkvæmt
deiliskipulagi, sem samþykkt var ár-
ið 2004, var gert ráð fyrir að rífa
mætti síðasta steinbæinn í Skugga-
hverfi að Klapparstíg 19 og hélst sú
heimild inni þegar lóðirnar voru
sameinaðar árið 2008. Nú er hins
vegar lagt upp með að steinbærinn
verði endurbyggður, en hann er
hlaðið steinhús, byggt 1879. Hins
vegar verður timburhúsið Veg-
húsastígur 1 rifið. Það var byggt árið
1899 og því friðað. Mikill heitavatns-
leki varð í húsinu og var það metið
ónýtt með álitsgerð 2011 og talið
óíbúðarhæft.
Minjastofnun affriðaði húsið á
árinu 2014 vegna bágs ástands þess í
kjölfar lekans og gerir ekki athuga-
semdir við niðurrif þess.
Loks byggt á Klapparstígslóð?
- Reykjavíkurborg hefur samþykkt uppbyggingu á lóðinni Klapparstíg 19 - Áralangar deilur
- Gamall steinbær festur í sessi en ónýtt hús á lóðinni verður rifið - Sex íbúðir verða í nýbyggingum
Morgunblaðið/sisi
Klapparstígur 19 Steinbærinn með klukkunni verður festur í sessi. Hús með sex íbúðum verða svo reist á lóðinni.
Tölvumynd/Arkís
Nýbyggingar Svona hugsa arkitektarnir sér að útlit nýju húsanna verði.
Morgunblaðið/sisi
Veghúsastígur 1 Þetta hús verður rifið enda dæmt ónýtt eftir vatnsleka.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkur samþykkti á fundi í síðastu
viku að auglýsa breytingu á deili-
skipulagi Skuggahverfis vegna lóðar
nr. 19 við Klapparstíg. Þar með sér
væntanlega fyrir endann á áralöng-
um deilum um uppbyggingu á þess-
ari verðmætu lóð á horni Klappar-
stígs og Veghúsastígs.
Þó skal á það minnt að árið 2016
var uppbygging á lóðinni samþykkt í
umhverfis- og skipulagsráði en hún
síðan felld í borgarstjórn. Árið 2018
felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála þá ákvörðun borgar-
stjórnar úr gildi.
Í breytingu deiliskipulagsins nú
felst að friðaður steinbær verður
festur í sessi, varðveittur og gerður
upp í samráði við Minjastofnun Ís-
lands. Þá verður heimilt að rífa ein-
lyftar byggingar á baklóð og timbur-
hús að Veghúsastíg 1 ásamt því að á
tveimur byggingarreitum er gert
ráð fyrir sambyggðum húsum í
tveimur röðum með mænisþökum á
hverri einingu, samkvæmt deili-
skipulagsuppdrætti Arkís arkitekta
ehf. Málið fer nú til afgreiðslu í
borgarráði.
Í greinargerð Arkís arkitekta með
tillögunni, sem send er inn til borg-
arinnar í umboði eigenda lóðarinnar,
kemur fram að lögð sé áhersla á að
form steinbæjarins haldist og ytra
borð hans verði gert upp á vandaðan
hátt með hliðsjón af upprunalegu út-
liti. Við hönnun húsanna skal haldið í
smágert húsform Veghúsastígs 1 og
nota hlutföll og gluggasetningu í
nýjum byggingum.
Tillagan gerir ráð fyrir að efnisval
fyrir nýja byggð smágerðra húsa,
hæð, ris og kjallara, verði sambæri-
legt og í eldri húsum hverfisins.
Húsin verði klædd með lóðréttri
timburklæðningu eða bárujárni í
mismunandi lit að utan. Á þaki verð-
ur málað bárujárn og gert er ráð
fyrir að gluggar verði úr timbri og
Í vikunni var útbúið stæði fyrir rútur í
Mýrargötu, vestan gatnamótanna við
Hlésgötu. Við þessa aðgerð þrengir
að bílaumferð. Því var miðlína göt-
unnar færð til suðurs til að auðvelda
umferð bíla sem aka í vesturátt.
Í greinargerð deildarstjóra sam-
gangna hjá Reykjavíkurborg kemur
fram að á síðustu árum hafi verið unn-
ið að uppbyggingu hótela í borginni.
Ein nýjasta viðbótin sé Grandi by
Center Hotels á Seljavegi 2. Í
grenndinni, við Mýrargötu 2-8, sé
Icelandair hótel Reykjavík Marina
sem hefur verið starfrækt í nokkur
ár. Aðkoma hópbifreiða að hótelunum
sé ekki góð í dag og hafa t.a.m. rútur
ekið þröngar götur Seljavegar og við
Marina hafi m.a. verið ekið á göngu-
stíg við hótelið.
„Tillaga þessi að stæði fyrir hóp-
bifreiðar í Mýrargötu er ætluð til að
þjónusta bæði hótel og þar með lág-
marka líkur á akstri stærri ökutækja
á svæðum þar sem það er óæskilegt
eða jafnvel ólöglegt. Lausnin er hugs-
uð sem tímabundin, en mikil upp-
bygging er fyrirhuguð í grenndinni
og verður framtíðarlausn hönnuð
samhliða frágangi á borgarlandi í
tengslum við þá uppbyggingu,“ segir í
greinargerðinni.
Í samræmi við umferðarlög hefur
tillagan verið borin undir og hlotið
samþykki lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/sisi
Mýrargata Unnið var að því í vikunni að merkja nýja rútustæðið í götunni.
Nýtt stæði fyrir
rútur á Mýrargötu