Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 36
Botn kökunnar er gerður úr brown- ie-deigi. Ostakaka með kirsuberja- sultu er sett yfir og loks flamber- aður marengs. Hér er á ferðinni einstaklega glæsileg kaka sem sóm- ir sér vel á hvaða veisluborði sem er. Ostakökubomba Brownie-botn 60 g smjör 200 g dökkt súkkulaði 80 g púðursykur 1 tsk. vanilludropar 1 egg 70 g hveiti Aðferð: Hitið ofninn í 160°C. Bræðið saman smjör og súkku- laði. Leyfið hitanum að rjúka aðeins úr. Takið á meðan til smelluform, um 20-22 cm í þvermál, og setjið bök- unarpappír í botninn. Úðið formið með matarolíuúða, bæði botn og hliðar. Setjið súkkulaðiblönduna í hræri- vélarskálina og blandið púðursykri og vanilludropum saman við. Næst fer eggið út í, hrærið vel og skafið niður á milli. Að lokum skal blanda hveitinu vel saman við og hella deiginu í formið. Bakið í um 25 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út með smá kökumylsnu á endanum. Deigið á ekki að vera blautt. Leyfið að kólna alveg í forminu áður en þið hellið ostakökublönd- unni yfir. Ostakaka 4 matarlímsblöð 40 ml sjóðandi vatn 500 g rjómaostur við stofuhita 125 g sykur 100 g flórsykur 1 vanillustöng (fræin) 250 ml þeyttur rjómi ½ krukka St. Dalfour Black Cherry- sulta Aðferð: Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn í um 10 mínútur. Hitið næst 40 ml af vatni þar til það fer að sjóða, takið matarlíms- blöðin upp úr kalda vatninu, eitt í senn, og kreistið vatnið úr þeim. Setjið í sjóðandi vatnið og hrærið þar til gelatínið er uppleyst. Hellið blöndunni yfir í annað ílát og leyfið henni að ná stofuhita. Þeytið saman rjómaost, sykur og flórsykur. Bætið vanillustönginni saman við og loks matarlímsblönd- unni í mjórri bunu í lokin. Blandið næst þeytta rjómanum saman við með sleikju og að lokum sultunni. Gott er að blanda henni bara rétt saman við ostakökugrunninn svo kakan fái smá marmaraáferð. Hellið ostakökugrunninum ofan á brownie-botninn og kælið í að minnsta kosti fjórar klukkustundir eða yfir nótt áður en þið setjið mar- engsinn á toppinn. Gott er að láta heitt vatn renna á góðan hníf og renna honum síðan meðfram forminu áður en þið smellið því af og færið kökuna yfir á disk með góðum spaða/kökulyft- ara. Toppur 3 eggjahvítur ¼ tsk. salt 250 g flórsykur 1 tsk. vanilludropar Aðferð: Þeytið eggjahvítur og salt saman þar til það fer aðeins að freyða. Blandið þá flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum, þeytið í nokkrar mínútur eða þar til topp- arnir halda sér. Setjið þá vanilludropana saman við og þeytið stutta stund til við- bótar. Setjið í sprautupoka með stórum hringlaga stút og sprautið í doppur ofan á kælda ostakökuna. Notið síðan brennara („torch“) til að lita marengsinn og gera hann stökkan að ofanverðu. Geymið kökuna í kæli fram að framreiðslu. Flamberuð ostakaka „Mig hefur alltaf langað til að prófa að flambera marengs á köku og loksins lét ég verða af því! Nú verður ekki aftur snúið. Ætli ég fari ekki að flam- bera allt núna því þetta var svo gott!“ segir Berg- lind Hreiðarsdóttir, matarbloggari á Gotteri.is og við tökum heils hugar undir orð hennar. Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Unaðsleg Brownie-botn, silkimjúk ostakaka með kirsuberjasultu og flamberaður marengs, það er ekki hægt að biðja um meira í lífinu! Það er talað um að flambera þegar eldur er notaður beint í elda- mennsku. Það er oft gert með til- þrifum á veitingastöðum en í heima- húsum er algengast að nota litla gasbrennara. Algengast er sjálfsagt að flambera franska eftirréttinn crème brûlée. Þá er sykri stráð yfir búðinginn sem síðan er brenndur áður en hann er borinn fram. Þannig verður til stökk sykurskel ofan á búðingnum. Unaðsleg blanda og við mælum sannarlega með því að þið verðið ykkur úti um gasbrennara ef þið hafið á annað borð áhuga. Stundum þarf maður að flambera! Ljósmynd/Rösle Þarfaþing Þessi huggulegi brennari fæst í versluninni Kokku og kostar 9.590 krónur. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Drykkjarseðlar kaffihúsa eru þessa dagana fullir af girnilegum nýjum drykkjum, enda nálgast veturinn óðfluga með sínum al- kunnu notalegheitum. Á Te & kaffi kennir ýmissa grasa. Á meðfylgjandi mynd má sjá mynd af undurfögrum grænum drykk sem kallast mintu-matcha. Drykkurinn inniheldur matcha-te, flóaða mjólk og örlítið af mintusírópi sem sagt er gera hann einstaklega bragðgóðan. Matcha er mjög kröftugt te en einn bolli af matcha inniheldur jafn mikið af andoxunarefnum og 10 bollar af venjulegu grænu tei. Haustdrykkirnir mættir Ljósmynd/Te&kaffi Undradrykkur Einn bolli af matcha inniheldur jafn mikið af and- oxunarefnum og 10 bollar af venju- legu grænu tei.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.