Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
ili. Elsku Gummi, Iðunn Lilja, Þór-
dís, Þráinn, Hanna, Magga, Sigríð-
ur og Sigurbjörn, missir ykkar er
mikill. Minning um yndislega
frænku lifir um ókomin ár.
Úlfar, Linda Björk,
Kristján Ragnar, Herdís
Arna og Bjarki Már.
Í dag kveðjum við okkar kæru
mágkonu og svilkonu, Helgu Þrá-
insdóttur.
Að setjast niður og skrifa minn-
ingargrein um hana er erfitt því
fráfall hennar er svo ósanngjarnt,
ótímabært og óskiljanlegt. Hjörtu
okkar eru kramin.
Helga kom inn í líf okkar sem
kærasta hans Guðmundar Magn-
úsar og okkur leið strax eins og
hún hefði alltaf verið hluti af fjöl-
skyldunni. Hún var yndisleg mann-
eskja í alla staði sem heillaði mann
með hógværð, elju, brosmildi og
hjartahlýju. Allt lék í höndunum á
henni, hvort sem það var læknis-
fræði, handavinna eða móðurhlut-
verkið. Allt var leyst af einstakri
natni og nákvæmni.
Helga hafði svo fallegt sjálfs-
traust, algjörlega dramblaus, hafði
aldrei þörf til að berja sér á brjóst
eða leiðrétta fólk þó hún vissi oft
mun betur. Þegar hún var spurð
voru svörin ætíð án alls yfirlætis,
yfirveguð og grandhugsuð.
Elsku Helga, takk fyrir að vera
hluti af lífi okkar, þín er og verður
sárt saknað.
Minning þín mun lifa í hugum
okkar og hjörtum um alla tíð.
Elsku bróðir/mágur, frænka og
fjölskylda, missir ykkar er mikill og
hugur okkar er hjá ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Ykkar
Jón Geir og Hafrún.
Það var líkt og tíminn stæði í
stað þegar fréttir bárust af því að
Helga, vinkona okkar og kollegi,
væri skyndilega fallin frá, langt
fyrir aldur fram.
Flest kynntumst við Helgu
haustið 2009 þegar við hófum nám
saman við læknadeildina. Við
bekkjarsystkinin eigum það öll
sammerkt að eiga einungis góðar
minningar um hana, bæði frá
skólaárunum og samstarfinu í kjöl-
farið. Það sem einkenndi Helgu var
einstök útgeislun. Hún geislaði af
gleði, geislaði af hreysti, geislaði af
góðmennsku og gáfum. Þrátt fyrir
að bera af í því sem hún tók sér fyr-
ir hendur hafði hún ekki þörf fyrir
að hreykja sér af afrekum sínum.
Þau töluðu einfaldlega fyrir sig
sjálf. Hún hafði gott lag á að láta
fólki líða vel í návist sinni með ein-
lægni og hlýju í allri framkomu.
Helga var mikil íþróttakona og
endurspeglaðist íþróttamennska
hennar í flestu sem hún tók sér fyr-
ir hendur. Hún var heilsteypt
manneskja og óhrædd við að fara
sínar eigin leiðir. Hún var sam-
viskusöm, ósérhlífin og hjálpsöm.
Það var sama hvaða verkefni stóðu
henni fyrir dyrum, ávallt mætti
hún með sitt breiða bros á vör og
tilbúin að leggja hönd á plóg. Liðs-
heildin var henni mikilvæg og hún
gerði sér far um að mæta á við-
burði og sýna lífi samferðafólks
síns einlægan áhuga.
Helga nýtti alla sína mannkosti
og varð að frábærum lækni sem við
vitum að snerti tilveru skjólstæð-
inga sinna og samstarfsfólks á ein-
stakan hátt. Það er sárt að hugsa til
þess að eiga ekki von á að mæta fal-
legri nærveru Helgu á ný en minn-
ing hennar mun lifa áfram í hugum
okkar og gjörðum.
Það líf var okkur lán, en henni sómi.
Hún leyndist nærri, og var þó stéttar
prýði,
og það, sem mörgum sóttist seint í
stríði,
það sigraði’ hún með brosi og hlýjum
rómi.
(Þorsteinn Erlingsson)
Við sendum Gumma, Iðunni
Lilju og fjölskyldu Helgu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd útskriftarárgangs
2015, læknadeild Háskóla Íslands
Kristrún Aradóttir.
Þetta er svo óraunverulegt, að
skrifa minningargrein um elsku
Helgu okkar. Helgu sem var alltaf
svo glöð, jákvæð og til í allt. Helga
og Soffía systir mín urðu bestu vin-
konur þegar Soffía byrjaði að æfa
frjálsar íþróttir 9 ára gömul. Strax
frá upphafi fékk ég, litla systirin, að
hanga með þeim, Soffíu ekki alltaf
til mikillar gleði en Helga var alltaf
til í að leyfa mér að vera með. Eftir
að við urðum eldri því betri vinkon-
ur urðum við og brölluðum við
þrjár ýmislegt saman. Bíókvöldin á
neðri hæðinni í Fjóluhvamminum
þar sem við horfðum á Twilight-
myndirnar með stjörnur í augun-
um, öll matarboðin þar sem Helga
sýndi hvað hún var frábær gest-
gjafi, alltaf dásamlegar kræsingar
og nóg af alls konar góðum og
skrítnum dósadrykkjum og upp á
síðkastið öll spilakvöldin sem við
áttum með Harry Potter fólkinu
okkar. Það er svo sárt og ósann-
gjarnt að hugsa til þess að þessar
stundir verða aldrei fleiri. Því er
nauðsynlegt að halda upp á minn-
ingarnar og rifja þær upp. Það
mætti segja að Helga hafi verið
reddarinn minn eftir að hún hóf
læknanámið, ég var mjög dugleg
að hlýða henni yfir með ýmsum
spurningum, sem tengdust nú yf-
irleitt mér en alltaf kom hún með
góð svör og gat hjálpað. Helga var
svo traust og falleg sál og það var
hægt að ræða allt við hana. Aldrei
þurfti að biðja hana að halda ein-
hverju fyrir sig af því að hún vissi
hvenær var verið að ræða erfið mál
og var aldrei að tala um neitt við
aðra. Það var alltaf hægt að treysta
Helgu, hún var góð við alla og tal-
aði aldrei illa um nokkurn mann. Í
miðju Covid lenti ég skyndilega í
aðgerð. Það mátti enginn koma og
vera hjá mér þannig að ég sendi
Helgu skilaboð. Hún var stödd á
næstu deild að vinna en kom fljót-
lega og sat hjá mér fyrir aðgerðina
og útskýrði allt fyrir mér. Helga
var með svo góða nærveru að bara
það að hún sat þarna hjá mér og
spjallaði hélt mér rólegri. Hún var
alltaf tilbúin að hjálpa og aðstoða.
Við Helga og Soffía vorum alls ekki
djammarar en einn góðan veður-
dag fyrir 10 árum ákváðum við að
gera okkur glaðan dag, skvísuðum
okkur upp og fórum út að borða og
það eru til svo skemmtilegar
myndir af okkur “skyttunum
þremur“ síðan þetta kvöld. Núna í
sumar ákváðu við að gera þetta aft-
ur, gerðum okkur fínar, fórum út
að borða og endurnýjuðum “skytt-
urnar þrjár“ myndina og það sem
ég er þakklát að við höfum átt þetta
dásamlega kvöld saman í sumar.
Elsku Helga, þú skilur eftir skarð í
hjörtum margra og þín verður sárt
saknað. Ég er mjög þakklát fyrir
vináttuna sem við áttum.
Gleðin sem kom þegar Helga og
Gummi sögðu okkur að von væri á
barni, ji hvað allir voru spenntir.
Helga var svo stolt af dóttur sinni
og fannst gaman að segja sögur af
henni en núna er það orðið okkar
hlutverk að segja Iðunni Lilju
endalausar sögur af mömmu sinni.
Ég mun aldrei gleyma hvað þú
varst ómetanleg vinkona.
Elsku Gummi, Iðunn Lilja, Þór-
dís, Þráinn, Hanna og Magga, ég
sendi mínar innilegustu samúðar-
kveðjur og styrk til ykkar á þess-
um erfiðu tímum og við höldum
minningunni um Helgu á lífi.
Þín vinkona
María Ósk.
- Fleiri minningargreinar
um Helgu Þráinsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
REGÍNA GEIRSDÓTTIR,
Sunnuhlíð, Vopnafirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 23. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn
17. september klukkan 13.
Haukur Georgsson
Sigurjón Haukur Hauksson Guðrún Anna Guðnadóttir
Geirmundur J. Hauksson Selma Dögg Víglundsdóttir
Sigurþóra Hauksdóttir Jón Magnús Sigurðarson
og barnabörn
Ástvinir þakka auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts
MAGNEU HRANNAR ÖRVARSDÓTTUR
sem lést hinn 17. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÍNA SÆMUNDSDÓTTIR
frá Kletti í Kollafirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
6. september. Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 19. september klukkan 13.
Hrafn Þórir Hákonarson Snjólaug Soffía Óskarsdóttir
Sæmundur Davíð Vikarsson Magnea Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÁLL ÞORSTEINSSON,
lést fimmtudaginn 8. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 23. september klukkan 13.
Pálína Mjöll Pálsdóttir Skúli Sigurðsson
Guðrún Hulda Pálsdóttir
Brynhildur Nadía, Harpa Rán, Eyvindur Páll,
Sindri Fannar og Kristófer Þór
Kæri og elskulegi pabbi okkar, sonur,
bróðir, mágur og frændi,
HÁLFDÁN DAÐASON,
lést sunnudaginn 4. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 21. september klukkan 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á minningarsjóð Björns Rúnarssonar (reikningsnúmer
0354-13-200686, kt. 1412513259) eða Píetasamtökin.
Daði Snær og Eiður Sölvi Hálfdánssynir
Ráðhildur Stefánsdóttir Daði Hálfdánsson
Klara Eiríka, Stefán, Vilborg, Guðmundur Magnús,
Ólöf Kristjana, Jóna Rún og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, stjúpafi og langafi,
GARÐAR ALFONSSON,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
8. september. Útför hans fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 23. september
klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk öldrunardeildar B-4
í Fossvogi fyrir hlýja og góða umönnun.
Elín Skarphéðinsdóttir
Skarphéðinn Garðarsson Elísabet Árný Tómasdóttir
Garðar Árni Skarphéðinsson Maria Reis
Guðmundur Björn Birkisson Þórhildur Vala Þorgilsdóttir
Heiða Björk Birkisdóttir Jónas Þór Guðmundsson
Guðmundur Atli og Elísabet Dóra Jónasarbörn
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURJÓN GRÉTARSSON,
Hátúni 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 20. september klukkan 13.
Sigríður G. Kærnested
Erna Grétarsdóttir
Gunnar Á. Þorkelsson
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
EÐVARÐ INGÓLFSSON,
Jötnaborgum 6, Reykjavík,
lést sunnudaginn 11. september.
Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju
þriðjudaginn 20. september klukkan 13.
Svanhildur María Ólafsdóttir
Ólafur Páll Eðvarðsson Jóna Hlín Guðjónsdóttir
Aðalheiður María Sigmarsd. Daníel Jónsson
Emelía Rán Sigmarsdóttir Gunnsteinn Lárusson
Sigmar Þór, Daníel Bergur og Lárus
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
IBSEN ANGANTÝSSON
skipstjóri,
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu sunnudaginn
4. september. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 16. september klukkan 12.
Hulda Guðmundsdóttir
Davíð Ibsen, Matthildur Sigríður Jónsdóttir
Ríkharður Ibsen, Stella Norðdal Gísladóttir
Marteinn Ibsen, Astrid María Dahl Reynisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ARNAR ÍVAR SIGURBJÖRNSSON,
húsasmíðameistari og matsmaður,
Fjallalind 100,
Kópavogi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi miðvikudaginn 7. september.
Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn
19. september klukkan 13.
Agnes Björnsdóttir
Anna I. Arnarsdóttir Garðar Kristján Halldórsson
Sigurbjörg Inga Arnarsdóttir
Björn Arnarsson Þuríður M. Björnsdóttir
barnabörn
Elsku hjartans eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
ÁSDÍS VALDIMARSDÓTTIR,
Næfurholti 1, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi sunnudaginn 11. september.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
19. september klukkan 15.
Þór Gunnarsson
Anna Margrét Þórsdóttir Ólafur Gauti Hilmarsson
Þórdís Þórsdóttir Jóhann G. Jóhannsson
Davíð Arnar Þórsson Ingibjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn