Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
BIOM 2.1 X COUNTRY
23.995 kr. / St. 41-47
BIOM 2.1 X COUNTRY
23.995 kr. / St. 41-47
BIOM 2.1 X COUNTRY
23.995 kr. / St. 41-47
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
ÞURRIR FÆTUR Í GÖNGUNNI
GÓÐIR OG LÉTTIR UTANVEGASKÓR MEÐ GORE-TEX
- Textíll og nubuck leður
- Mikill stuðningur við fótinn
- Góð dempun
- Gúmmísóli með góðu gripi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Notalegur svali er í lofti á fallegu
síðdegi í september. Smalar hóa og
hundar gelta þegar sauðfé er rekið
úr gerði inn í almenninginn í Teigs-
rétt í Vopnafirði. Eftir beit í grös-
ugum sumarhögum inni á heiði þykir
fé vera vel fram gengið og fallþungi
þess verði með besta móti, eða svo er
sagt í réttunum sem alltaf eru
skemmtileg mannamót og vina-
fundur. Hálf sveitin virðist vera
mætt og þau sem ekki hafa hér
skyldustörfum að gegna eru við
kvenfélagstjaldið þar sem hægt er
að fá kaffi og heimabakaðar kökur.
Sagan spannar 490 ár
Í skilaréttina við Teig kemur fé
frá allmörgum í Hofsárdal, þar sem
næstinnsti bær er Bustarfell.
„Ég hafði alltaf hug á að verða
bóndi hér. Mér rann líka blóðið til
skyldunnar enda ótækt ef samhengi
sögunnar hér hefði rofnað,“ segir
Eyþór Bragi Bragason bóndi á Bust-
arfelli. Hann er 15. ættliðurinn sem
situr jörðina, í sögu sem spannar alls
490 ár. Morgunblaðið var á ferðinni
um Austurland á dögunum og ræddi
þá við ýmsa, Bustarfellsbóndann þar
á meðal, um lífið, tilveruna og lands-
ins gagn og nauðsynjar.
Árið 1532 settust að á Bustarfelli
hjónin Úlfheiður Þorsteinsdóttir og
Árni Brandsson og frá þeim má
rekja mikla sögu og stóran ættboga.
Eftir þeirra dag hafa afkomendur
þeirra, hver kynslóðin eftir aðra,
setið jörðina, sem nær frá regin-
fjöllum niður í grösugan dal. Þar
rennur Hofsá í gegn; góð og gjöful í
laxveiði. Þá er bæjarstæðið einkar
fallegt og svipsterkt. Byggingar þar,
með gamla torfbæinn frá árinu 1770
í forgrunni, standa undir háu og
hömrum gyrtu Bustarfelli, sem er
538 metra hátt. Frá þessu segir í
bókinnni Bustarfell – Saga jarðar og
ættar sem kom út nú í sumar. Sú
byggist m.a. á gömlum handritum og
heimildum sem Finnur Ágúst Ingi-
mundarson íslenskufræðingur vann
úr og bjó til prentunar.
Loftslagsvænar aðgerðir
og betri búskapur
Á Bustarfelli er haldið í hefðir
sögunnar um leið og horft er til
framtíðar. Eyþór Bragi og Þórdís
Þórarinsdóttir kona hans, sem er frá
Keldudal í Hegranesi, komu inn í bú-
skapinn árið 2019. Búa þar með for-
eldrum Eyþórs. Þau eru Björg Ein-
arsdóttir, af hinni þekktu Bustar-
fellsætt, og Bragi Vagnsson frá
Hriflu í Suður-Þingeyjarsýslu.
„Í búskap er mikilvægt að fylgja
nýjum viðhorfum og þekkingu,“ seg-
ir Eyþór Bragi. Þau Þórdís taka þátt
í verkefni Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins sem heitir Lofts-
lagsvænn landbúnaður. Áherslurnar
þar eru að leita leiða til að draga úr
losun kolefnis í búskap með til dæm-
is minni notkun olíu, betri áburðar-
nýtingu og því að reyna að fá sem
mestar afurðir af hverri vetrarfóðr-
aðri kind. Mótvægisaðgerðir þarna
eru til dæmis landgræðsla, eins og
lengi hefur verið stunduð á Bustar-
felli. Nýjast er skjólskógrækt sem
hófst nú í vor.
„Loftslagsvænar aðgerðir í bú-
skap eiga að gera jörðina betri og
reksturinn hagkvæmari. Þar er til
mikils að vinna,“ segir Eyþór Bragi.
Á Bustarfelli eru alls um 530 fjár á
vetrarfóðrum og eftir sauðburð í maí
síðastliðnum voru lömbin um 850.
Nú í september hefur svo mikil
vinna farið í fjárrag; velja úr ásetn-
ingsfé og þau rúmlega 700 lömb sem
fara í slátrun. Lagt er inn hjá Slátur-
félagi Vopnfirðinga, sem hækkar af-
urðaverð til bænda umtalsvert milli
ára, eða í 748 kr. fyrir hvert kíló af
dilkakjöti. Slíkt segir Eyþór að bæti
stöðuna umtalsvert, vegi talsvert
upp á móti miklum hækkunum sem
komið hafi til að undanförnu á verði
ýmissa aðfanga til búrekstrar.
Bóndi, safnstjóri,
leiðsögumaður og ráðunautur
Þótt greiðslur fyrir sláturafurðir
hækki milli ára er þó talsvert í land
þannig að afkoma bænda sé við-
unandi, segir Eyþór Bragi. Búrekst-
ur einn skili aldrei þeim tekjum að
dugað geti alfarið sem viðurværi.
Þannig starfar Þórdís á Bustarfelli
hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins sem ráðunautur og Eyþór Bragi
hefur lengi verið leiðsögumaður inn-
lendra sem erlendra veiðimanna
sem koma til að renna fyrir lax í
Hofsá. Þá hafa þau með höndum
safnvörslu í gamla bænum á Bustar-
felli.
Gamli torfbærinn á Bustarfelli,
reistur fyrir 252 árum, hefur frá
árinu 1943 verið í opinberri eigu. Er
í vörslu Þjóðminjasafns Íslands og
tilheyrir húsasafni þess. Búið var í
bænum fram til 1966 og innandyra
ber margt því heimilislegan svip.
Metúsalem Metúsalemssyni bónda á
Bustarfelli og Jakobínu S. Gríms-
dóttur var líka í mun að bærinn
varðveittist þannig. Elín dóttir
þeirra, amma Eyþórs Braga og
systkina hans, var sama sinnis og
gaf árið 1982 Vopnafjarðarhreppi
alla húsmuni að gjöf sem urðu vísir
þess sem nú heitir Minjasafnið á Bu-
starfelli.
Drukkum í okkur söguna
og lærðum fljótt
„Ég var bara lítill strákur, sex eða
sjö ára, þegar ég fór fyrst að fara
með fólki hér um bæinn og segja frá.
Þá var þetta kannski utan auglýsts
þjónustutíma og enginn fullorðinn á
svæðinu. Þá var bara sjálfsagt mál
að við systkinin, sem erum fimm
talsins, færum með fólki í gamla bæ-
inn og segðum frá því sem við viss-
um. Fórum með sögu sem við drukk-
um í okkur ung og lærðum fljótt. Í
seinni tíð er þetta í fastari skorðum
og fyrir nokkrum árum var byggð
Hjáleigan, kaffihús fyrir gesti, sem
mælst hefur vel fyrir. Hér var mikið
um ferðamenn bæði sumrin 2020 og
2021, enda Íslendingar mikið á ferð-
inni um landið þá. Í sumar kom held-
ur færra fólk enda margir nú eftir
faraldur í utanlandsferðum og svo
var tíðarfar ekkert sérstakt heldur,“
segir Eyþór Bragi og að síðustu:
„Sjálfur er ég titlaður safnstjóri,
sé um að ráða fólk til safnvörslu á
sumrin og fleira. Þá erum við
Bustarfellsfólk gjarnan að ýta eftir
því að viðhaldi á bænum gamla sé
sinnt. Segjast verður að allir fjár-
munir til slíks eru afar naumt
skammtaðir svo ekki má tæpara
standa. Því hefur oft komið í hlut
okkar heimafólks hér að stoppa í
götin vegna tilfallandi skemmda, því
þessa byggingu þarf að vernda svo
einstök sem hún er.“
Bóndi á Bustarfelli í 15. ættlið
- Höfuðbólið í Vopnafirði - Eyþór Bragi
viðheldur arfleifðinni - Saga aftur til 1532
- Haldið í hefðir og horft til framtíðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitamaður Ótækt ef samhengi sögunnar hér hefði rofnað, segir Eyþór Bragi sem ungur einsetti sér að taka við
búskap á Bustarfelli. Hér er hann framan við hinn gamla reisulega bæ sem reistur var 1770 og búið í til ársins 1966.
Fólk Bragi Vagnsson og Björg Einarsdóttir á Bustarfelli.
Eyþór Bragi og Þórdís til hægri og dóttirin Erna Diljá.
Fé Í Teigsrétt í Vopnafirði í síðustu viku. Kindurnar
reknar úr gerði yfir í almenning – og smalar hóa hátt.
Bustarfell
í Vopnafirði
Bustarfell
Ve
st
ur
ár
da
lu
r
Se
lá
rd
al
ur
Hof
Vopna-
fjörður
Ho
fs
ár
da
lu
r
Vopna-
fjörður
Heimreiðin Staðarlegt heim að líta
og bæjarskiltið er fallegt að sjá.