Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-14
NÝR LITUR Í
ÆÐISLEGRI LÍNU
TEMPTRESS
FRÁ FREYA
Haldari 8.650 kr
Buxur 3.650 kr
„ÁÐUR EN ÉG LES UPP DÓMINN VIL
ÉG BENDA HINUM ÁKÆRÐA Á AÐ ÞETTA
VIRKAR EKKI ALVEG SVONA.“
„EKKI SNÚA ÚT ÚR FYRIR MÉR. ÉG VEIT
VEL AÐ KÚLA ER LÍKA FORM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá knús frá
smáfólkinu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MÁSI
MÁSI
MÁS
KATTA-
ÞOLFIMI
VAKRI VÍKINGURINNSERKIR ÞETTA VERÐUR AUÐVELD SALA!ULLARVESTI
okkar í góðum hópum sem skapa
ómetanlegar minningar og vináttu.
Ég hef lengi átt hest og riðið út á
veturna.
Við Kristján erum í gönguhóp
með góðum vinum, ár hvert er farið
í göngu í nokkra daga innanlands
eða erlendis, og þá á Ítalíu, í Grikk-
landi og á Tenerife. Ég hef stund-
um verið að príla á há fjöll og er
Herðubreiðin toppurinn á þeirri
vegferð. Ég er búin að horfa á
þetta fjall frá því að ég var barn.“
Fjölskylda
Guðrún er í sambúð með Krist-
jáni E. Yngvasyni, f. 8.2. 1947,
smiði og verkefnastjóra. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Guðrún á tvö börn með fyrrver-
andi eiginmanni sínum, Ásvaldi J.
Maríssyni, f. 5.1. 1948. Þau eru
Kristján Eggert, f. 10.8. 1969, kerf-
isfræðingur, býr í Hafnarfirði. Börn
hans eru Kládía, f. 29.8. 2002, og
Valdimar, f. 1.1. 2004, og Elín, f.
31.8. 1972, líffræðingur og lista-
kona, býr í St. Louis í Bandaríkj-
unum. Hún er gift Dale Ficken, f.
11.8. 1973, líffræðingi og tölvunar-
fræðingi. Synir þeirra eru Alex-
ander, f. 20.2. 2003, og Erik, f. 28.2.
2005.
Systkini Guðrúnar: Bragi, f. 1931,
d. 2019, húsgagnasmíðameistari;
Petra, f. 1941, húsmóðir á Vopna-
firði; Ólafur, f. 1943, kennari og
ferðamálabóndi í Berunesi í Beru-
firði; Stefán, f. 1945, bóndi í Laxár-
dal; Marinó, f. 1946, smiður á Kópa-
skeri; Þórarinn, f. 1948, smiður og
kennari í Iðnskólanum, búsettur í
Reykjavík, og Garðar, f. 1954, smið-
ur og verkefnastjóri í Kópavogi.
Foreldrar Guðrúnar voru hjónin
Eggert Ólafsson, f. 28.10. 1909, d.
3.2. 1998, sauðfjárbóndi í Laxárdal í
Þistilfirði, og Elín Margrét Péturs-
dóttir, f. 28.11. 1909, d. 28.11. 2000,
húsmóðir í Laxárdal.
Guðrún
Guðmunda
Eggertsdóttir
Steinunn Guðbjörg Eiríksdóttir
húsmóðir á Miðfjarðarnesi
Metúsalem Pétursson
bóndi á Miðfjarðarnesi
á Langanesströnd
Pétur Albert Metúsalemsson
bóndi og orgelleikari í Höfnum
Sigríður Friðriksdóttir
húsmóðir í Höfnum á Langanesströnd, N-Múl.
Elín Margrét Pétursdóttir
húsmóðir í Laxárdal í Þistilfirði
Oddný Benediktsdóttir
húsmóðir í Gröf
Friðrik Gissur Benónýsson
skipstjóri og dýralæknir
í Gröf í Vestmannaeyjum
Vilborg Sigurðardóttir
húsmóðir á Efri-Hólum og
í Laxárdal
Þórarinn Benjamínsson
bóndi á Efri-Hólum í
Núpasveit og í Laxárdal
Ólafur Þórarinsson
bóndi og smiður í Laxárdal
Guðrún Guðmunda Þorláksdóttir
húsmóðir í Laxárdal
Hólmfríður Pétursdóttir
húsmóðir í Garði
Þorlákur Einarsson
bóndi í Garði í Þistilfirði
Ætt Guðrúnar G. Eggertsdóttur
Eggert Ólafsson
sauðfjárbóndi í Laxárdal
í Þistilfirði
Ármann Þorgrímsson yrkir á
Boðnarmiði af því tilefni að
sýslumaður Íslands verður á Húsa-
vík:
Eins og flestir eflaust sjá
er sá staður réttur
þar sem mesta þörf var á
þar var karlinn settur.
Tryggvi Jónsson segir: „Ef það á
að vera bara einn sýslumaður yfir
öllu Íslandi þá er að sjálfsögðu best
að hafa hann þar sem mest gagn
verður að honum“:
Niður skal nú negla hann
og nota í Þingeyjarsveit.
Best er að brúka sýslumann
við brugg og landaleit.
Ágústa Ósk Jónsdóttir gerði
þessa athugasemd:
Miðju landsins mætti sá
meta í réttu bili.
Sýslumaður sæti þá
sjálfur uppi á Kili.
Ólafur Stefánsson skrifar: „Bók
Birgis heitins Sigurðssonar, Svart-
ur sjór af síld, er að mörgu leyti
grundvallarrit um síldveiðar frá
upphafi en er líka bráðskemmtileg
og upphafin á köflum.
Þar má sjá mismerkilegan skáld-
skap, eins og tíðkast hefur á Íslandi
alla tíð“:
Síldin er silfur hafsins
sumarið okkar von.
Þegar Gottfreðsen grætur,
gleðst Óskar Halldórsson.
Önnur um Íslands-Bersa.
Glímdi oft um fremd og fé
fann og missti gróðann.
Fjórum sinnum féll á hné
en fimmtu lotu stóð hann.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
sléttubönd hringhend og heitir
„Góði hirðirinn“:
Messar tíðum séra Sveinn,
sárum kvíða hrindir.
Blessar lýðinn hjartahreinn,
harmar víða syndir.
Öfugt:
Syndir víða harmar hreinn
hjarta, lýðinn blessar.
Hrindir kvíða sárum Sveinn
séra tíðum messar.
Maðurinn með hattinn yrkir:
Ár um kring með eld í sál
yrkja menn og skrifa.
Ferskeytlunnar meitlað mál
megi um aldir lífa.
Kristján Eldjárn orti:
Allt það sem hafa menn hátt um
hugsa og tala ég fátt um.
En ég hugsa um hitt
– slíkt er háttalag mitt –
sem talað er lítið og lágt um.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af sýslumanni Íslands