Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
empire moviefreak.com
“ALADDIN FOR ADULTS” “A DIFFERENT KIND OF BLOCKBUSTER”
“A GLORIOUS ONE-OF-A-KIND CREATION”
EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ
G
amanhrollvekjan It
Hatched, sem á íslensku
myndi líklega heita Það
klaktist, kemur skemmti-
lega á óvart í kjánaskap sínum og
greinilegum vísunum til banda-
rískra hryllingsmynda frá seinni
hluta áttunda áratugarins og fyrri
hluta þess níunda eða þar um bil.
Veggspjaldið er líka greinilega í
þeim anda (sjá mynd til hliðar) og
frábærlega hannað sem slíkt. Hefði
maður sem unglingur rekist á þetta
hulstur á vídeóleigunni, hér forðum
daga, hefði það efalítið vakið for-
vitni og spólan endað í tækinu.
Söguþræði eða efni myndarinnar
er lýst svo í stuttu máli á vef Kvik-
myndamiðstöðvar: „Pétur og Mira
flytja frá erilsamri stórborg í
Bandaríkjunum á afskekktan stað á
Vestfjörðum í leit að friði og ró.
Áform þeirra raskast þó þegar forn
vættur gerir vart við sig undir
kjallara hússins og Mira verpir
eggi.“ Svo mörg voru þau orð og í
raun óþarfi að fara nánar út í þessa
súrrealísku sögu sem er um leið
sígild. Óvættur þessi, sem nefndur
er í lýsingunni, birtist nokkrum
sinnum í myndinni í líki afskræmds
og nakins karls. Þar eru engar
brellur notaðar, heldur gamaldags
og áhrifaríkt gervi, svo gott að
hroll sækir að manni. Óvættinn
allsbera leikur Magnús Ómarsson,
sem betur er þekktur sem rappar-
inn Móri.
Þjóðsagnahefð
Í viðtali, sem birtist hér í Morgun-
blaðinu 30. ágúst, sagði Elvar frá
því að myndin hefði í grunninn ver-
ið skrifuð út frá íslenskri og skand-
inavískri þjóðsagnahefð. Óvættur-
inn, mara, hefði fyrst komið fyrir í
Ynglinga sögu og myndin bæði óð-
ur til Íslands og erlendra kvik-
mynda og leið fyrir leikstjórann til
að skoða aftur þær myndir sem
hann hafði gaman af þegar hann
var yngri og einnig hinar óhugnan-
legu íslensku þjóðsögur sem heill-
uðu hann mjög á æskuárum. Þá er
sögusvið myndarinnar Strandir,
þar sem stundaðar voru galdra-
brennur og „ákveðin þemu í mynd-
inni vísa í þann tíma, þegar kristnin
og forneskjan mættust á 17. öld“,
svo vitnað sé í Elvar.
Allt þetta er augljóst þeim sem
til þekkir og myndin ein allsherjar
lofgjörð til hryllingsmynda frá fyrr-
nefndum tíma og það af ódýrari
tegundinni. Eða þannig kom hún
þeim er hér skrifar a.m.k. fyrir
sjónir. Leikstíllinn er í þeim anda,
afar sérstakur hjá þeim Vivian
Ólafsdóttur og Gunnari Kristins-
syni, sem leika hina þýsku Miru og
unnusta hennar Pétur. Mætti jafn-
vel segja að þau leiki viljandi illa
eða alla vega mjög ýkt og stirð-
busalega og þá væntanlega að
beiðni leikstjórans. Strax í fyrsta
atriði virðist allt einhvern veginn
ekki alveg í lagi, bjagað og skrítið,
allt frá hljóðupptöku og sjónar-
horni myndavélarinnar yfir í liti og
samskipti persóna. Samtal banda-
rísks læknis við Pétur er í þessu at-
riði mjög svo B-myndarlegt og fær
mann til að brosa út að eyrum.
Þetta er spaugileg mynd og á líka
að vera það en líka hrollvekjandi á
köflum þótt spaugið hafi alltaf
vinninginn.
Troðin af möru
Til frekari fróðleiks þá er mara,
samkvæmt gamalli þjóðtrú, „óvætt-
ur sem ræðst á sofandi fólk“, eins
og segir í svari á Vísindavefnum við
spurningunni: „Hvað eru mörur?“
Að fá martröð er því dregið af því
að vera troðin/-n af möru. Er mara
oftar kvenkyns en þó voru mörur
sem ásóttu konur gjarnan taldar
karlkyns, eins og segir í svarinu og
þjóðtrúin útbreidd víða um Norður-
Evrópu. Á ensku er enda talað um
„nightmare“ eða náttmöru og á
sænsku „mardrömm“, svo dæmi
séu tekin. „Lærðir menn kölluðu
mörur einnig succubus (kvenkyns)
eða incubus (karlkyns) og var talað
um að slíkar vættir legðust á sof-
andi fólk og ættu við það kynferð-
islegt samneyti,“ segir einnig í
svarinu. Í kvikmynd Elvars er mar-
an því karlkyns og svokallaður
incubus þar sem hann leggst ein-
mitt á Miru í svefni og barnar
hana. Mira verpir skömmu síðar
stóru eggi í mjög svo kostulegu at-
riði. Öll hegðun hennar breytist í
framhaldinu. Eftir að ósköp venju-
legt barn kemur úr egginu skilur
hún ekkert í geðshræringu Péturs
og ástleysi í garð þessa afkvæmis. Í
mjög svo Shining-legu atriði með
Birni Jörundi Friðbjörnssyni, sem
leikur fyrrum ábúanda á jörðinni
og draug, missir Pétur svo endan-
lega vitið með heldur fyrirsjáan-
legum afleiðingum.
Og þar er kannski kominn helsti
galli myndarinnar, hversu fyrir-
sjáanleg hún verður þegar á líður.
Maður veit algjörlega hvernig mál
munu þróast og meira að segja
hver endirinn verður. Myndin víkur
því frá sínu óvænta og furðulega
upphafi og einkennilegu persónum
yfir í einkar kunnugleg stef.
Nokkrar skemmtilegar persónur,
aðrar en Mira og Pétur, koma við
sögu en reyndar örfáar. Halldór
Gylfason leikur Grím, sem er skrít-
inn karl sem parið hittir í lítilli
kjörbúð, og taugaveiklaða eigin-
konu hans, Huldu, leikur Halldóra
Geirharðsdóttir. Halldóra er afar
lunkin gamanleikkona og fer á
kostum í þau fáu skipti sem hún
kemur við sögu. Þegar þessi
skrítnu hjón, Hulda og Grímur,
koma í heimsókn til Péturs og Miru
kemur Hulda auga á holuna í kjall-
aranum sem virðist vera op niður í
helvíti og æpir þá af öllum kröftum:
„Það þarf að loka þessari holu!!!“
og rýkur því næst á dyr. Þá hló ég
innilega. Takk, Halldóra!
Halldór er líka skemmtilegur
sem og Þór Tulinius sem leikur vin-
gjarnlegan lækni með fugladellu.
Björn Jörundur á líka góðan sprett
í hlutverki Gunnars, fyrrum eig-
anda húss þeirra Péturs og Miru,
með ógnvekjandi störu og djöful-
legt bros á vörum.
Að öllu samanlögðu er þetta
skemmtileg og hressandi fyrsta
kvikmynd hjá Elvari og greinilega
gerð af ástríðu fyrir hinu kunnug-
lega efni og nokkru listfengi. Þar
spilar skemmtileg og oft óvenjuleg
myndataka stórt hlutverk sem og
litadýrð og gróf hljóðvinnsla.
Afkvæmi þeirra möru og Miru,
Nikulás, er líka krúttlegt eða öllu
heldur framan af. Hvernig ungling-
ur Nikulás verður er efni í fram-
haldsmynd. Yfir til þín, Elvar.
Það þarf að loka þessari holu!!!
Martröð Mira troðin af hinni óhugnanlegu möru í einni af martröðum gamanhrollvekjunnar It Hatched.
Laugarásbíó
It Hatched/Það klaktist bbbnn
Leikstjórn: Elvar Gunnarsson.
Handrit: Elvar Gunnarsson, Ingimar
Sveinsson og Magnús Ómarsson. Aðal-
leikarar: Vivian Ólafsdóttir, Gunnar
Kristinsson, Halldóra Geirharðsdóttir,
Þór Tulinius, Halldór Gylfason, Björn
Jörundur Friðbjörnsson og Magnús
Ómarsson. Ísland, 2021. 96 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Egg Veggspjald It Hatched.