Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 50

Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði ELITE stólalínan 3 gerðir: Wiliam, Alex, Charles, 3 möguleikar: Rafdrifinn, manual eða með skammeli. 3 litir Cognac, dökk brúnt, svart, albólstraður með anelin leðri. Komið og skoðið úrvalið Hækkanlegur rafdrifinn tóll með innb. skammel. vörtu leðri og gráu tauáklæði.s LIVER Hækkanlegur rafdrifinn hvíldarstóll, 2 mótorar, með innb. skammel. Til í svörtu leðri og gráu tauáklæði. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Um helgina verður mikið um að vera í sendiherrabústað Íslendinga í Vín- arborg. Þar verður enduropnun sendiráðs þar í borg fagnað með veglegri myndlistardagskrá og mun utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, heimsækja borgina af þessu tilefni. Utanríkisráðuneytið og Listasafn Íslands hafa gert með sér sam- komulag um að standa saman að kynningu á íslenskri myndlist í sendiráðum Íslands erlendis og seg- ir Kristín A. Árnadóttir, sendiherra og fastafulltrúi í Vín, þessa dagskrá í anda þess samkomulags. Dagskráin spretti upp úr góðu samstarfi við Listasafnið og Kynningarmiðstöð ís- lenskrar myndlistar. Tók á sig stærri mynd „Þegar ljóst varð að hér yrði end- uropnað sendiráð tók þetta á sig að- eins aðra og stærri mynd og við ákváðum að gera þetta með glæsi- brag. Þetta er ekki bara ein opnun á sýningu heldur er þetta viðburða- helgi og við breytum bústað sendi- herra og fastafulltrúa Íslands í sýn- ingarrými.“ Á morgun, föstudag, verður sýn- ingin formlega opnuð og þá verður ýmislegt á dagskrá, flutt verður tón- list og boðið upp á veitingar. Sautján listamenn ýmist búsettir í Vín eða heima á Íslandi taka þátt í þessari myndlistarhelgi. Katrín seg- ir að þeir hafi næstum undantekn- ingarlaust tengsl við Austurríki. Mæðginin Anton Herzl og Thelma Ingvarsdottir Herzl eru búsett í Austurríki og Bergur Nordal er við nám í Vín. Elínborg Ostermann, myndlistarkona og doktor í lífefna- fræði, er einnig búsett í Austurríki, sem og Linda Steinþórsdóttir og Ingrid Gaier. Þar fyrir utan koma eftirfarandi listamenn frá Íslandi: Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Hallgrímur Árna- son, Hjörtur Matthías Skúlason, Hulda Vilhjálmsdóttir, Kristín Blön- dal, Kristín Gunnlaugsdóttir, Krist- inn Már Pálmason, Sigríður Marrow og Sigtryggur Berg Sigmarsson. Allir listamennirnir sem taka þátt í sýningunni verða á staðnum. Auk þeirra verður viðstaddur sýningar- opnunina mikill fjöldi listunnenda; málverkasafnarar, galleríeigendur, forstöðumenn listasafna, fulltrúar menningarpressunnar og svo fram- vegis. Þá taka tveir íslenskir listamenn til viðbótar þátt í dagskránni, þau Rannveig Fríða Bragadóttir óperu- söngkona og myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson. Auk þess mun kokkurinn Friðrik Sigurðsson galdra fram veislu fyrir bragðlauk- ana, með austurrísku sem og ís- lensku yfirbragði. Listamenn ræða hlutverk sitt Daginn eftir, á laugardag, verður minni sýning opnuð í galleríi Rutar Marrow, Rut’s Gallery, með verkum eftir Huldu Vilhjálmsdóttur og Hjört Matthías Skúlason. Á sunnu- dag opnar Jakob Veigar Sigurðsson síðan dyr vinnustofu sinnar. Seinna sama dag mun myndlistar- kvöldverður undir yfirskriftinni The Salon fara fram. „Þetta er austur- rísk og frönsk listahefð þar sem listamenn mætast og ræða hlutverk sitt í samtímanum og hvaðeina sem áhugavert kann að vera,“ segir Kristín. „Í þeim viðburði eru yfir fjörutíu þátttakendur, þar verða fulltrúar safna, gallería og listapressunnar og áhugafólk um myndlist.“ Yfirskrift þessara viðburða er Relations, sem mætti til dæmis þýða sem tengsl, og því má ætla að áhersla sé lögð á að mynda og styrkja tengsl. „Tilgangurinn er að kynna ís- lenska myndlist, koma íslenskum myndlistarmönnum á framfæri og efla tengslin. Það má kannski líkja þessu við að við köstum stórum og þungum steini út í lygna tjörnina og vonandi gárast hún lengi og vel,“ segir Kristín að lokum um umfang viðburðarins og áhrifin sem hún von- ast til að hann hafi. Vínarborg Listamennirnir Hulda Vilhjálmsdóttir og Hjörtur Matthías Skúlason við uppsetningu sýningar sinnar í galleríi Rutar Marrow í Vín. Sýningaropnunin er liður í myndlistardagskrá sem sendiherra Íslands þar býður til. Gerum þetta með glæsibrag - Íslensk myndlistarhelgi haldin í Vínarborg - Enduropnun sendiráðs í Austur- ríki fagnað - Kynna íslenska menningu og efla tengsl við Austurríkismenn Leikarinn Gísli Örn Garðarsson, sem hlotið hefur afbragðsviðtökur fyrir frammistöðu sína í sýningunni Ég hleyp í Borgarleikhúsinu, ákvað við byrjun æfinga að gefa allar sínar tekjur af sýningunni til góðgerðar- mála. „Nú hefur hann safnað um einni og hálfri milljón og ætlar því að afhenda ágóðann góðgerðarfélög- unum Nýrri dögun, Berginu, Ljóns- hjarta og Dropanum,“ segir í til- kynningu frá leikhúsinu. Þar kemur fram að síðustu sýningarnar á upp- færslunni verði haldnar um helgina. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir Á spretti Gísli Örn Garðarsson í Ég hleyp. Gísli Örn gefur til góðgerðarmála Anda Rotten- berg, sýningar- stjóri, listfræð- ingur og gagn- rýnandi í Varsjá, er þriðji gestur Umræðuþráða 2022. Viðburð- urinn, sem fram fer á ensku, er haldinn í Hafnar- húsinu í kvöld kl. 20 og þarf að ská sig fyrir fram á vef safnsins. Erindi Rottenberg nefnist „Löng leið til Laramie, Wyoming“ og þar hyggst hún fjalla um sögu fordóma sem einkum bein- ast gegn fólki á forsendum kyn- hneigðar, kyns, kynþáttar, trúar, þjóðernis og búsetu. Rottenberg hefur á löngum og fjölbreyttum ferli mótað yfirgripsmikla innsýn í pólska og alþjóðlega samtímalist. „Það er mikill fengur fyrir íslenskt listalíf að fá hana til landsins og halda hér erindi,“ segir í kynningu. Rottenberg fjallar um sögu fordóma Anda Rottenberg Tónskáldið og stórsveitarstjórinn Maria Schneider flytur erindi í Dynjanda, tónleikasal tónlistar- deildar Listaháskóla Íslands í Skipholti 31, í dag, fimmtudag, kl. 16. Þar fjallar hún um feril sinn, hugmyndir og verk. „Maria Schneider er ein skær- asta stjarna stórsveitaheimsins um þessar mundir og margfaldur Grammy-verðlaunahafi. Gagnrýn- endur hafa kallað tónlist Mariu Schneider „töfrum gædda“ „hafna yfir landamæri tónlistarstíla“ og „ómótstæðilega fagra“. Þótt Maria Schneider hafi einkum helgað krafta sína stórsveitaskrifum hef- ur hún einnig komið að klassískri tónlist og unnið með poppgoðinu David Bowie á hans síðustu plötu, svo eitthvað sé nefnt. Maria Schneider hefur hlotið Grammy- verðlaunin sjö sinnum og fengið 14 tilnefningar,“ segir í tilkynn- ingu frá LHÍ. Þar kemur fram að Schneider hafi hlotið heiðursdokt- orsgráðu frá University of Minne- sota og látið talsvert til sín taka í réttindabaráttu höfunda og flytj- enda. „Maria Schneider er ein af mest spennandi röddum tónlistar- heimsins í dag.“ Aðgangur er ókeypis og öll vel- komin. Þess má geta að Schneider stjórnar einnig 30 ára afmælistón- leikum Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu á sunnudag kl. 20. Þar er aðgangur einnig ókeypis, en bóka þarf miða á vefnum harpa.is. Schneider með fyrirlestur og stjórnar Stjórnandi og tónskáld Maria Schneider. Ástrún Friðbjörnsdóttir söngkona og Ívar Símonar- son gítarleikari leika frumsamið efni eftir Ástrúnu á fyrstu hádegistónleikum vetrarins í Fríkirkjunni við Tjörnina í dag kl. 12. „Ástrún hefur gefið út tvö frumsamin lög með hljómsveit en flytur hér ásamt Ívari Símonarsyni gítarleikara lágstemmdari útgáfu af eigin lögum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að tónleikarnir taka um hálfa klukkustund og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkj- unni. Miðar eru seldir við innganginn. Leika frumsamið efni í hádeginu í dag Ástrún Friðbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.