Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 217. tölublað . 110. árgangur . SÖNGLEIKUR MEÐ MIKLA DÝPT BÖRN KENNIR MÖMMUTÍMA OG HEFUR ÓÞRJÓTANDI ÁHUGA Á KVENLÍKAMANUMSEM Á HIMNI 28 Sprengjugerð meðal ungmenna á Selfossi er vaxandi vandamál og þurfti lögregla ásamt slökkviliði að grípa til aðgerða vegna sprengju sem skilin hafði verið eftir á mótum Tryggvagötu og Engjavegar í gær. Óttast var að sprengjan gæti sprungið á hverri stundu og tókst loks að eyða henni með öflugri vatnsbyssu og róbóta tæpum tveim- um klukkustundum síðar. Garðar Már Garðarsson, aðal- varðstjóri hjá lögreglunni á Suður- landi, segir vandamálið útbreitt og uppskriftin að umræddri sprengju gangi manna á milli í netmiðlum. „Verslunareigendur hafa líka ver- ið að hafa samband við okkur, þar sem þeir eru að tilkynna okkur að ungmenni séu að kaupa þessa hluti, því þetta eru efni sem unglingar kaupa almennt ekki,“ segir Garðar. Spurður hvort komið hafi til tals að takmarka aðgang unglinga að efnunum svarar hann játandi. „Já, það er í vinnslu núna. Ekki kannski úr sölu, en að þau séu undir eftirliti. Séu ekki seld hverjum sem er.“ Sprengjurnar sem um ræðir eru verulega öflugar og springi þær getur fólk misst útlim, fari illa. Garðar segir að einna helst sé um að ræða krakka á fyrstu stigum framhaldsskóla, sem líklega teygi sig niður í grunnskólaaldurinn. „Þetta er svolítið snúið. Þetta eru efni sem seld eru í matvöruversl- unum og ekkert sem bannar fólki að kaupa þessa hluti. Aðalatriðið er að upplýsa foreldra vel og fá þá til samstarfs og skólana.“ Sprengjan inniheldur einnig æt- andi efni sem geta skaddað andlit. „Þetta er bara tímasprengja eftir að búið er að blanda þetta,“ segir hann. Enn sem komið er hefur ekki verið tilkynnt um slys af völdum sprengjanna. „En við höfum fengið tilkynningu um að það hafi staðið tæpt.“ Varðandi refsiramma í kringum sprengjur sem þessar segir Oddur að strangt til tekið sé um að ræða sprengjugerð, sem sé vopnalaga- brot. Kasti einhver sprengjunni geti orðið eignaspjöll og hugsanlega lík- amsárás með vopni. „Þannig að þetta getur alveg undið upp á sig.“ Sprengju eytt með vatnsbyssu og róbóta - Stórhættulegar sprengjur - Sprengjugerð vopnalagabrot Morgunblaðið/Sigmundur Hætta Eftir tæpa tvo tíma tókst að eyða heimatilbúnu sprengjunni. Margur Íslendingurinn sem kominn er af því allra léttasta minnist Heiðlóukvæðis Jónasar Hallgrímssonar úr hinum eftirminnilegu og fagurbláu Skólaljóðum þeirra Kristjáns J. Gunnarssonar og Halldórs Péturssonar sem teiknaði listilegar myndir við ljóðin. Ríkisútgáfa námsbóka gaf út af myndug- leik. Var þá ekki örgrannt um að barnshjart- anu þætti miskunnarlaust kveðið í ljóði sem hófst í upphafinni fegurð þar sem ljómaði sól um himinbaug en lyktaði með að ungar sögu- hetjunnar urðu svörtum hröfnum að bráð. Fjörur gengnar í Gróttu Morgunblaðið/Árni Sæberg Maðkinn tínir þrátt um byggð eða flugu fríða Tvö ferðaþjónustufyrirtæki gagn- rýna Vatnajökulsþjóðgarð fyrir að veita ekki svör við fyrirspurnum um leyfisveitingar er varða bátasigl- ingar á Jökulsárlóni. Annað fyrir- tækið hefur beðið mánuðum saman eftir svörum en fær ekki svar við því hvort leyfi fáist árið 2023 til siglinga. Samkvæmt upplýsingum frá sett- um þjóðgarðsverði eru tekjur hins opinbera af umsvifum á lóninu afar takmarkaðar eða um 5,8 milljónir á þessu ári. Gera má ráð fyrir að sú upphæð sé brotabrot af veltu fyrir- tækjanna tveggja sem hafa heimild til þess að sigla á lóninu. Vatnajökulsþjóðgarður hefur ekki hleypt fleiri en þessum fyrirtækjum að lóninu með þeim rökum að bíla- stæði og annar aðbúnaður við lónið séu nú þegar fullnýtt. Verið sé að skoða málið í heildarsamhengi. » 12 Litlar tekjur af lóninu - Gagnrýna einokun á Jökulsárlóni _ Unnið er að undirbúningi breyttrar sorphirðu í Reykjavík og samræmingu á höfuðborgar- svæðinu öllu. Nýtt flokkunarkerfi sorps fyrir Reykjavík hefur verið lagt til í um- hverfis- og skipulagsráði Reykja- víkurborgar og tekur gildi á næsta ári, verði það samþykkt. Í nýju skipulagi er gert ráð fyrir að allt heimilissorp verði flokkað í fjóra flokka. Flokkarnir verða pappír, plast, lífrænn eldhúsúrgangur og blandað sorp og eiga tunnur fyrir alla flokka að vera við öll íbúðarhús. Þó ætla sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu að fara mismunandi leiðir við sorphirðu frá sérbýlum. »4 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sorp Unnið hefur verið að samræmingu sorpflokkunar á höfuðborgarsvæðinu. Flokkað í fernt á höf- uðborgarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.