Morgunblaðið - 16.09.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
„Nú vakna ég útsofinn og hvíldur“
Skúli Sigurðsson
EKKI LÁTA BLÖÐRUNA
STOPPA ÞIG!
Brizo™ er fæðubótarefni
sérhannað fyrir karlmenn sem
þjást af einkennum góðkynja
stækkunar á blöðruhálskirtli.
™
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Ákvörðun Sjálfstæðisflokksins
um orkupakka 3, þvert ofan í
ótvíræðar yfirlýsingar á þingi, var
dapurleg og óskiljanleg.
- - -
Hann hefur því
misst
trúverðugleika í
málinu.
- - -
Bjarni Jónsson
rafmagnsverk-
fræðingur bendir á
að nú, þegar ESB í öllum sínum
orkuvandræðum reynir að opna á
orkupakka 4, hafi Miðflokkurinn í
Noregi, stjórnarflokkur, samþykkt
að leggjast gegn innleiðingu þess-
arar orkulöggjafar.
- - -
Yfirlýsing í málinu frá
Sjálfstæðisflokki, þótt hún
kæmi, yrði lítils virði eftir kollhnís-
inn síðast.
- - -
En nú mun norski Verka-
mannaflokkurinn (Ap) hafa
áttað sig á að skilyrði fyrir undir-
lægjuhættinum síðast hafi ekki
verið efnd.
- - -
Sá flokkur ræður mestu í núver-
andi ríkisstjórn Noregs.
- - -
Undarlegt hjal framkvæmda-
stjóra hjá Landsvirkjun ný-
verið um sæstrengstengingu var út
í loftið.
- - -
Eins og Bjarni bendir á „er nú
miklu meiri spurn á Íslandi
eftir raforku en framboð, og þann-
ig mun staðan fyrirsjáanlega verða
allan þennan áratug“.
- - -
Þegar af þeirri ástæðu er tómt
mál að tala um að tengja raf-
orkukerfi landsins við útlönd.
Bjarni Jónsson
Óhjákvæmilegt að
orkupakka saman
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sprotafyrirtækið Marea hlaut Blá-
skelina í ár. Verðlaunin eru veitt af
umhverfis-, orku- og loftslagsráðu-
neytinu fyrir framúrskarandi plast-
lausa lausn og gott fordæmi. Guð-
laugur Þór Þórðarson
umhverfisráðherra afhenti Julie En-
causse, stofnanda og framkvæmda-
stjóra Marea, verðlaunin í gær á
málþinginu Plastvandinn – þetta
reddast? sem er hluti af átakinu
Plastlaus september.
Marea hlaut verðlaunin fyrir þró-
un á náttúrulegri filmu úr þörunga-
hrati sem ætluð er fyrir grænmeti og
ávexti. Varan virkar þannig að efn-
inu er úðað á áðurnefnd matvæli. Við
það myndast filma á yfirborðinu sem
ver matvæli gegn skemmdum og
eykur geymsluþolið. Því dregur
notkun filmunnar bæði úr plast-
mengun og matarsóun.
Filmuna má svo borða eða hreinsa
hana af með því að skola matvælin.
Enginn óþarfa úrgangur myndast
því við notkun vörunnar.
„Það að fá hvatningu frá stofnun-
um sem eru á bak við Bláskelina og
fagfólkinu sem tók þátt í dómnefnd-
inni er afar þýðingarmikið og það
segir okkur að við erum allavega að
vinna í rétta átt,“ er haft eftir Julie
Encausse, stofnanda og fram-
kvæmdastjóri Marea, í tilkynningu.
Marea hlaut Bláskelina í ár
- Plastlaust efni sem úðað er á matvæli
- Minni matarsóun og plastmengun
Verðlaun Framkvæmdastjóri Mar-
ea segir verðlaunin þýðingarmikil.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, ætlar að bjóða sig fram til for-
seta Alþýðusambands Íslands á
þingi sambandsins sem fer fram í
lok október. Þetta staðfesti Ragnar
í samtali við mbl.is. Hann tilkynnti
stjórn VR um ákvörðun sína í fyrra-
kvöld og starfsfólki í gærmorgun.
Ef hann nær kjöri stígur hann til
hliðar sem starfandi formaður VR
en mun þó, með stuðningi stjórnar
og samninganefndar, leiða kjara-
viðræður félagsins þangað til í mars
á næsta ári, en þá verður kosið um
nýja stjórn VR.
Nái hann kjöri segir hann mark-
miðið vera að sameina og styrkja
sambandið og gera það að því afli
sem því var ætlað að vera.
Ragnar hefur verið mjög gagn-
rýninn á forystu ASÍ og Drífu Snæ-
dal, fyrrverandi forseta. Í samtali
við mbl.is í febrúar á þessu ári sagði
hann eitraðan kúltúr þrífast innan
ASÍ sem aldrei væri hægt að losna
við. Spurður hvernig hann ætli upp-
ræta þennan kúltúr, segir hann að
vel hafi gengið að ná hópnum innan
VR saman sem þó hafi oft verið
sundurleitur.
„Ég er búinn að kanna jarðveg-
inn, hvort fólk sé tilbúið að gera at-
lögu að því að
styrkja sam-
bandið og efla
með annarri að-
ferðafræði en
hefur verið gert
og þar skiptir
langmestu máli
sú ákvörðun
Kristjáns að gefa
kost á sér sem
fyrsta varafor-
seta,“ segir Ragnar og á þar við
Kristján Þórð Snæbjarnarson, for-
mann Rafiðnaðarsambands Íslands
og starfandi forseta ASÍ. Ragnar
telur að lykilöfl innan sambandsins
séu sammála um að gera þurfi
breytingar. Hann kannaði stuðning
við framboð sitt innan aðildarfélaga
ASÍ áður en hann tók ákvörðun um
framboð.
„Ég held að það sé breiður stuðn-
ingur við að slíðra sverðin og efla
sambandið. Það verður svo að koma
í ljós hvort ég hef stuðning til þess.“
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Starfsgreinasambandsins, hyggst
bjóða sig fram til að verða 3. vara-
forseti ASÍ og sagðist í færslu á
Facebook í gær styðja Ragnar Þór í
embætti forseta ASÍ.
Ragnar býður sig
fram til forseta ASÍ
- Vilhjálmur vill verða 3. varaforseti
Ragnar Þór
Ingólfsson