Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 10
Lífshamingja og auðlegð í ríkjum heims
Árið 2022 Heimildir: World Happiness Report og Credit Suisse
Haítí
Lesotho
Sierra Leone
Malaví
Zambía
Togo
Tsjad
Lýðv. Kongó
Efri Volta
Úganda
Madagaskar
Níger
Mozambique
Gambía
Kongó
Kamerún
Gínea
Eþíópía
Nígería
Tanzanía
Botswana
Líbanon
Jórdanía
Sri Lanka
Egyptaland
Kenýa Túnis
Írak
Íran
Úkraína
Nepal
Filippseyjar
Argentína
Víetnam
Kólumbía
Brasilía
Nicaragua
Rússland
Indónesía
Venezúela
Tyrkland
Albanía
Búlgaría
Mexíkó
Taíland
Kazakhstan
Hvíta
Rússland
Kína
Dóminíska lýðv.
Máritíus
Svartfjallaland
Króatía
Pólland
Furstadæmin
Tékkland
Slóvakía
Portúgal
Grikkland Suður-Kórea
Japan
Hong Kong
Spánn
Katar
Singapore
Ítalía
Austurríki
Bandaríkin
Þýskaland
Ísrael
Finnland
Svíþjóð
Frakkland
Bretland
Belgía
ÁstralíaNýja
Sjáland
Kanada
Noregur
Danmörk
Holland
Sviss
Lúxemborg
Ísland
Taívan
Malasía
Bangladesh
Suður Súdan
Afganistan
Indland
Ghana
Pakistan
Búrma
8
7
6
5
4
3
2
AUÐ L EGÐ Á HVERN FU L LORÐ I NN Í BÚA
H
A
M
IN
G
J
U
E
IN
K
U
N
N
$500 $1.000 $5.000 $10.000 $50.000 $100.000
Fátæk og sæl
Fátæk og
vansæl
Rík og sæl
Rík og vansæl
Lógarytmískur kvarði
Það er á þessu bili lægri miðtekna,
semmestur munur er á lífshamingju
þjóðanna að jafnaði.
Stríðsástand og
upplausn hefur
leikið Afgani grátt.
Náttúruhamfarir, óöld og
efnahagsþrot gerðu Haítí að
vansælasta ríki heims.
Innanlandsófriður, efna-
hagsörðugleikar og spreng-
ingin í Beirút gerðu Líbani
vansælli en búast mætti við
af ríkidæmi þeirra.
Lífshamingja á Indlandi er
miklu minni en vænta mætti af
auðlegðinni í þessu fjölmennasta
lýðræðisríki heims, en henni er
óneitanlega mjög misskipt.
Hong Kong-búar hafa orðið
ört vansælli eftir því sem
kommúnistastjórnin í
Peking hefur hert tökin.
Tékkar una talsvert sælli við
sitt en ætla mætti af auðlegð og
samanburði við nágrannalönd.
Þó fátækt sé talsverð í Brasilíu virðist
lífshamingjan nokkuð almenn.
Auðsæld í Kína hefur aukist mikið
og hratt, en vansældin er talsverð.
Fátækt og vansæld eru
almennust í löndum Afríku.
Hamingja og
auðsæld eru mest í
vestrænum ríkjum.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Ísland getur enn og aftur talist best
í heimi ef litið er til mælinga á ham-
ingju fólks og efnalegrar velferðar
þess. Það finnast ögn sælli þjóðir og
einnig ögn ríkari, en á Íslandi næst
jafnbestur árangur á báðum svið-
um, eins og sjá má á myndritinu að
ofan, þar sem Ísland er efst til
vinstri.
Sagt er að hamingja sé ekki föl
fyrir peninga, en samt sem áður er
ótvíræð fylgni milli auðlegðar þjóða
og lífshamingju þeirra. Varla er til-
viljun að þar eru traust, vestræn
lýðræðisríki efst á blaði og saman í
hnapp.
Fylgnin er ekki á eina lund. Sums
staðar er hamingjan í hlutfalli við
efnaleg gæði mun minni en annars
staðar. Hneigðin er hins vegar ein-
dregin í þá veru, að vansældin er
mest í fátækustu ríkjum heims, þar
sem óvissan um framtíðina er mest,
hvort menn hafi til hnífs og skeiðar,
hafi þak yfir höfuðið eða búi við
öruggt stjórnarfar.
Undanfarin ár hefur í auknum
mæli verið horft til velsældar í sam-
anburði ríkja, þar sem áður var látið
duga að horfa á kaldar tölur lands-
framleiðslu eða ámóta hagvísa. Þar
dugir ekki að horfa til skoðanakann-
ana um uppgefna lífsánægju fólks,
heldur þarf að líta til fleiri þátta
eins og tekjujöfnuðar, heilbrigðis,
barnadauða og lífslíkna, glæpatíðni,
spillingar, samfélags og fjölskyldu,
athafnafrelsis, stjórnfestu og friðar,
jafnvel mælanlegra sálrænna þátta.
Undanfarin tíu ár hefur verið tekin
saman hamingjuskýrslan World
Happiness Report, þar sem þetta er
einmitt gert. Þar er Ísland í 3. sæti í
ár, en hefur verið í 2. til 4. sæti
mörg undanfarin ár og önnur nor-
ræn lönd jafnan efst á blaði.
Þegar jafnframt er litið til mats
greiningardeildar svissneska bank-
ans Credit Suisse á jafnaðarauðlegð
heimila í einstökum ríkjum heims,
þar sem litið er til eignastöðu 2021,
sést að þar eru Íslendingar einnig í
fremstu röð með 337.787 banda-
ríkjadali í hreina eign á hvern full-
orðinn. Ísland er raunar „aðeins“ í
14. sæti, en á undan eru mörg lönd
á borð við Liechtenstein, Mónakó
og Bermúdaeyjar, þar sem óvenju-
margir alþjóðlegir milljarðamær-
ingar fá póstinn sinn en svo háttar
ekki á Íslandi.
Velsæld mest í
heimi á Íslandi
- Lífshamingja og auðlegð í jafnvægi
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022