Morgunblaðið - 16.09.2022, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan
15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í
eindaga til og með 15. september 2022, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og
með 5. september 2022 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið
hafa í eindaga til og með 15. september 2022, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og
tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum
í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi,
úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi,
vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum,
aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum,
jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu
stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi
Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og
sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. september 2022
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Síminn náði í gærmorgun samkomu-
lagi við franska fjárfestingasjóðinn
Ardian um kaup þess síðarnefnda á
dóttufélagi Símans, Mílu. Samhliða
því var undirrituð sátt á milli Ardian
og Samkeppniseftirlitsins (SKE),
sem felst í því að stofnunin
samþykkir viðskiptin með tilteknum
skilyrðum. Eins og Morgunblaðið
hefur ítarlega fjallað um hafði SKE
sett sig upp á móti viðskiptunum þar
sem stofnunin taldi að þau myndu
raska samkeppni. Sú andstaða
byggðist meðal annars á athuga-
semdum Ljósleiðarans, sem er opin-
bert fyrirtæki í samkeppni við Mílu.
Heildarvirði viðskiptanna er nú
69,5 milljarðar króna, sem er 8,5
milljörðum króna minna en upphaf-
lega var gefið upp þegar tilkynnt var
um söluna fyrir tæpum 11 mánuðum.
Í tilkynningu frá Símanum til Kaup-
hallar í gærmorgun kom fram að
heildarvirði viðskiptanna hefði lækk-
að í ljósi skilyrða SKE.
Samningur styttur enn frekar
Eitt helsta ásteytingarmál SKE
vegna viðskiptanna var einkasölu-
samningur á milli Símans og Mílu,
sem felur í sér kaup Símans á þjón-
ustu Mílu, sem upphaflega átti að
gilda í 20 ár. Síminn og Ardian höfðu
áður náð samkomulagi um að lækka
kaupverðið um fimm milljarða og
stytta gildistíma samningsins um
þrjú ár, niður í 17 ár, til að mæta at-
hugasemdum SKE. Það dugði þó
ekki og nú hefur kaupverðið sem fyrr
segir verið lækkað um 3,5 milljarða
króna til viðbótar en auk þess hefur
samningurinn verið styttur um tvö
ár, og gildir nú í 15 ár.
Síminn fær um 33 milljarða króna
greidda í reiðufé í lok september, og
um 17,5 milljarða króna í formi
skuldabréfs til þriggja ára. Þá tekur
Ardian yfir fjárhagslegar skuldbind-
ingar Mílu sem eru nú að andvirði
um 19 milljarða króna. Þegar upp-
haflega var tilkynnt um kaupin, í
nóvember í fyrra, var gert ráð fyrir
að Síminn fengi um 44 milljarða
króna í reiðufé.
Míla Salan hefur tekið ellefu mánuði, þar af sjö mánuði í meðförum SKE.
Söluverðið lækkaði
um 8,5 milljarða
- Gengið frá kaupum Ardian á Mílu
ekkert,“ segir Sigurður. South
East ehf. er annað fyrirtækið sem
kvartar sáran undan samskiptum
við þjóðgarðinn. Í viðtali í Dag-
málum sem birt var í gær á mbl.is
sagði Gréta María Grétarsdóttir,
forstjóri Arctic Adventures, að
þjóðgarðurinn svaraði í engu
beiðni fyrirtækisins um að fá að
gera út rafknúinn og umhverfis-
vænan bát á lóninu. Tækið, sem
fjárfest hafi verið í, liggi því ónotað
og án tekna í geymslu í Þýska-
landi.
Barst í almennt pósthólf
Ingibjörg Halldórsdóttir, settur
þjóðgarðsvörður, segir að umsókn
Arctic Adventures hafi ekki borist
fyrr en 30. ágúst síðastliðinn „í al-
mennt pósthólf þjóðgarðsins. Þar
sem spurst var fyrir um hvaða
gögn þurfi að fylgja umsókn sem
fyrirtækið áformi að senda inn.
Svar við þeirri fyrirspurn er í
vinnslu og verður svarað á næstu
dögum,“ sagði í svari Ingibjargar.
Hún segir að önnur fyrirtæki en
þau sem nú hafi heimild til siglinga
á Jökulsárlóni hafi sýnt áhuga á að
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ferðaþjónustufyrirtækið South
East ehf. segist ekki fá efnislega
meðferð á umsókn um heimild til
siglinga á Jökulsárlóni. Fyrirtækið
hafi þann 26. apríl síðastliðinn sótt
um heimild til Vatnajökulsþjóð-
garðs til þess að gera út tvo zodiac-
báta næsta sumar, þ.e. 2023.
„Við uppfyllum öll skilyrði sem
þjóðgarðurinn setur um samstarfs-
samning,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Eftir nokkra eftirgangsmuni í
lok ágústmánaðar fengu forsvars-
menn fyrirtækisins þau svör frá
þjóðgarðinum að ekkert væri að
frétta af stöðu mála.
„Í því svari frá Ingibjörgu Hall-
dórsdóttur, lögfræðingi þjóðgarðs-
ins [og nú settum þjóðgarðsverði],
segir meðal annars: „Til að tryggja
samræmda og vandaða stjórnsýslu
hefur þjóðgarðurinn skilgreint
verklag við meðferð slíkra
umsókna …“. Við teljum það ekki
vandaða stjórnsýslu að svara svo
gera út á svæðinu. Hins vegar hafi
ekki verið unnt að verða við því þar
sem ekki sé búið að ráðast í upp-
byggingu sem aukið umfang starf-
semi og tilfærsla athafnasvæðisins
krefjist.
Skýrsla var unnin fyrr á þessu
ári sem varðar stöðuna á Breiða-
merkursandi. Þar kemur fram að
unnið sé að framtíðarskipulagi fyr-
ir svæðið í kringum Jökulsárlón.
„Meðal þess sem unnið er að er
sviðsmyndagreining/fýsileika-
könnun fyrir fjármögnun og fyr-
irkomulag uppbyggingar og
rekstrar á svæðinu annars vegar
og fyrirkomulag úthlutunar að-
stöðu og/eða leyfa til atvinnurekst-
urs hins vegar,“ segir Ingibjörg.
Í svari frá henni kemur fram að
tvö fyrirtæki greiði nú til þjóð-
garðsins aðstöðugjald vegna bíla-
stæðanna við lónið. Það séu fyrir-
tækin Jökulsárlón ferðaþjónusta
ehf. sem greiði á þessu ári
3.903.265 kr. og fyrirtækið Ice-
lagoon sem greiði 1.932.463 kr.
Ábatasöm starfsemi
Eru þessar greiðslur samnings-
bundnar og verðtryggðar. Þær
byggjast á samningum við fyrri
landeigendur en ríkissjóður keypti
jörðina Fell og þar með Jökuls-
árlón fyrir rúma 1,5 milljarða
króna.
Árið 2019 skilaði Jökulsárlón
ferðaþjónusta ehf. eigendum sín-
um 342 milljóna króna hagnaði.
Ice Lagoon skilaði á sama ári
hagnaði sem nam 32,9 milljónum
króna.
Fleiri sakna svara frá þjóðgarðinum
- Starfandi þjóðgarðsvörður segir verklagsreglur í vinnslu - Aðstaða við Jökulsárlón sé fullnýtt
Jökulsárlón Náttúruvættið sækja hundruð þúsunda ferðamanna á ári hverju.
Morgunblaðíð/Ásdís
16. september 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 139.84
Sterlingspund 161.51
Kanadadalur 106.02
Dönsk króna 18.785
Norsk króna 13.815
Sænsk króna 13.087
Svissn. franki 145.34
Japanskt jen 0.9764
SDR 181.42
Evra 139.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.4129