Morgunblaðið - 16.09.2022, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
✝
Jón Pétursson
var fæddur í
Kasthvammi í Lax-
árdal í S-Þing 27.
nóvember 1932.
Hann lést á dval-
arheimilinu
Hvammi á Húsavík
4. september 2022.
Foreldrar hans
voru Pétur Jóns-
son, bóndi í Ár-
hvammi Laxárdal,
og kona hans, Regína K. Frí-
mannsdóttir.
Systkini Jóns voru 10 og eru
fimm þeirra á lífi.
Unnusta Jóns var Hildur Jón-
asdóttir, frá Þverá í
Laxárdal, f. 5. maí
1930, d. 22. sept-
ember 2021.
Jón var bóndi í
Árhvammi Lax-
árdal, og tók alfar-
ið við búi föður síns
eftir andlát hans
1970. Jón og Hildur
hættu búskap í Ár-
hvammi 2011, en
dvöldu þar til árs-
ins 2016, er þau fluttu á dval-
arheimilið Hvamm á Húsavík.
Útför Jóns fer fram frá Þver-
árkirkju í Laxárdal í dag, 16.
september 2022, kl. 14.
Bróðir, við fylgjum
hinstu spor í heimi,
vildum svo fegin þér leggja lið.
Enginn það vissi
að þín stund var komin
með hinstu lækning, hinsta frið.
(Hulda)
Jón bróðir okkar er látinn í
hárri elli, hefði orðið níræður 27.
nóvember næstkomandi. Jón
fékk slæma sýkingu í hægri fót á
síðasta ári, svo fjarlægja þurfi
fótinn við hné. Þetta urðu erfiðar
tvær aðgerðir fyrir aldraðan
mann, svo á tímabili var tvísýnt
um líf hans, en hann hristi það af
sér enda bæði sterkur og hraust-
ur. Því kom andlátið okkur svolít-
ið á óvart nú þar sem hann hafði
náð sér ótrúlega vel og öll sár
gróin.
Við ætlum ekki í þessum fá-
tæklegu orðum að skrifa ævisögu
Jóns, aðeins að þakka fyrir sam-
fylgdina í gegnum árin, gest-
ristina er við komum í kaffi eða
heimsókn í sveitina. Jón og Hild-
ur voru bæði tvö einstaklega
gestrisin og höfðingjar heim að
sækja.
Sum okkar vilja líka þakka fyr-
ir allar sumardvalir barna okkar,
sem líða þeim seint úr minni. Við
viljum líka þakka sérstaklega
umönnun móður okkar eftir að
hún varð ekkja, en hún bjó hjá
Jóni og Hildi í Árhvammi alla tíð
eftir andlát föður okkar.
Jón var góður bóndi og sér-
staklega fjárglöggur og þekkti
allar sínar ær með nafni. Natinn
var hann við bústofn sinn. Jón
var staðfastur á sinni skoðun,
sumir kannski segja örlítið þrár,
stundum jafnvel svolítið hrjúfur,
en undir yfirborðinu sló stórt og
gott hjarta og viðkvæm sál sem
mátti ekkert aumt sjá.
Við minnumst skemmtilegra
systkinamóta sem við héldum
eins oft og við sáum okkur fært
víðs vegar um land. Jón var oft
þungur í taumi að koma með í
fyrstu, taldi það óþarfa, en svo
skemmti enginn sér betur en
hann er á staðinn var komið, enda
hafði hann yndi af því að skoða
sig um sveitir landsins.
Samfylgd og samverustundir
allar þökkum við öll, minningin
fyllir hugann birtu og yl.
Guð blessi minninguna um
bróður og vin.
Hjartfólgnar þakkir,
hjartans vinur góði,
fylgja þér héðan í friðarlönd.
Sælt verður síðar
sælan þig finna
á sumarlandsins sólskinsströnd.
(Hulda)
Fyrir hönd systkinanna,
Aðalsteinn Pét-
ursson.
Elsku Jón frændi, við kveðjum
þig með söknuð í hjarta og þökk-
um þér fyrir allar ánægjustund-
irnar sem við áttum með þér og
Hildi í sveitinni okkar Laxárdal.
Við gleymum aldrei hversu vel þú
tókst á móti okkur þegar við
komum í Árhvamm, hvort sem
við komum í stutta heimsókn eða
fengum að vera yfir sauðburð.
Uppáhaldsferðirnar voru þeg-
ar við fengum að fara með þér í
póstferðirnar. Í minningunni
voru þetta ævintýraferðir enda
víða stoppað og alltaf brjóstsykur
í boði í gamla Land Rovernum
þínum. Þá eru ótaldar ferðirnar
að leita að hreiðrum í Kílum. Þú
kenndir okkur borgarbörnunum
margt um náttúruna sem við er-
um þakklát fyrir og gleymum
aldrei.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Minning um þig mun lifa í
hjörtum okkar.
Jóna, Regína og Trausti.
Jón
Pétursson
✝
Sigurður Har-
aldur Sig-
urþórsson fæddist á
Hemlu í Vestur-
Landeyjum 7. júní
1936. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands 5. september
2022.
Foreldrar hans
voru Ágústa M. Guð-
mundsdóttir frá
Sigluvík, f. 7.8. 1915,
d. 2.8. 1972, og Sigurþór Ívarsson
frá Sámsstöðum, f. 14.7. 1899, d.
27.11. 1949. Eftir lát föður síns fór
Sigurður að Seljalandsseli til
hjónanna Guðlaugar Sigurð-
ardóttur og Helga Jónassonar,
ólst þar upp og var þar til heimilis
þar til hann kvæntist 1984.
Systkini Sigurðar eru Ólafur,
f. 8.8. 1938, d. 2018, Jóhanna
Erla, f. 5.4. 1944, d. 2015, Eggert
Sigurþór, f. 11.9. 1952, og Sig-
hvatur Einar, f. 11.2. 1956.
Sigurður kvæntist Ingibjörgu
Sæmundsdóttur 8.12. 1984 og
bjuggu þau allan sinn búskap í
Þorlákshöfn. Ingibjörg var fædd
í Fljótsdal í Fljótshlíð 2.7. 1941, d.
13.12. 2018. Börn
hennar af fyrra
hjónabandi eru: 1)
Úlfar, f. 1960, sam-
býliskona hans er
Gerður Stef-
ánsdóttir, sonur
Úlfars er Ævar Örn
og sonur Gerðar
Stefán Hrafn. 2)
Marta Sonja, f.
1961, eiginmaður
hennar er Brynjar
Sigurgeir Sigurðsson, börn
þeirra eru Ólöf Anna, Gísli Þór
og Sigrún Ásta, fyrir átti Marta
Sæunni Ingibjörgu. 3) Þorsteinn,
f. 1962, d. 2002, eiginkona hans
var Susanne A.M. Gíslason, börn
þeirra eru Ingi Þór, Emanuela
Lind og Aron Freyr. Barna-
barnabörnin eru 19.
Sigurður vann ýmis störf í
Þorlákshöfn, mest við fiskverkun
en lengst starfaði hann í áhalda-
húsi sveitarfélagsins.
Útför hans fer fram frá Þor-
lákskirkju í dag, 16. september
2022, kl. 13. Streymt verður frá
athöfninni,
https//www.mbl.is/andlát
Hann stjúpi minn, þessi hæg-
láti, dásamlegi maður, hefur kvatt
þetta líf.
Þau mamma fóru að líta hvort
annað hýru auga árið 1982. Það
var þeirra beggja lán að hitta
hvort annað. Þau voru svo sam-
rýnd og góð saman. Það var aldrei
talað um annað þeirra, alltaf bæði
nefnd – Imba og Siggi. Mamma og
Siggi ferðuðust mikið, bæði innan-
lands og utan. Það var toppur á
þeirra tilveru að fara til Kanarí,
þangað fóru þau árlega eða jafnvel
oftar. Stórum hluta sumarsins var
eytt í bústaðnum sem þau byggðu
sér á æskuheimili hans undir
Eyjafjöllunum. Hreiðrinu sem bar
svo gott vitni um natni Sigga. Þar
var allt svo snyrtilegt, borið á bú-
staðinn, bletturinn sleginn og rak-
aður, tré og blóm gróðursett. Og
ekki má gleyma kartöflunum.
Alltaf var “til í soðið“ þegar leið á
sumarið og “tekið upp í pottinn“
Þau áttu gott líf saman þó það
væri óþarflega stutt.
Siggi var mömmu stoð og stytta
í hennar veikindum. Hann vildi
alltaf allt fyrir hana gera og oft
dáðist ég að því hvað hann var
henni góður. Hans missir var mik-
ill þegar hún féll frá.
Hann var alltaf í góðu skapi,
stutt í húmorinn og talaði aldrei
illa um nokkurn mann. Einu sinni
heyrði ég hann hækka róminn, en
þá var einu sinni sem oftar verið
að ræða um Kaupfélagið þar sem
mamma vann. Honum fannst við-
mælandinn vera að skammast í
henni fyrir vöruskort eða hátt
verðlag og fannst það ekki rétt.
Hann varði hana auðvitað. Hún
bar enga ábyrgð á því.
Þeir sem þekktu Sigga vita
hversu góður og gegnheill maður
hann var. Það þarf ekki að tíunda
mannkosti hans frekar en ekki
annað hægt en að nefna það aftur
og aftur.
Hann var vinmargur og öllum
þótti vænt um hann. Til eru marg-
ar sögur þar sem hann birtist
óvænt til að hjálpa fólki, oftar en
ekki vopnaður pensli, stiga, garð-
sláttuvél, skóflu eða hrífu. Allt eft-
ir því hvað fólk var að gera. Þó var
það þannig að honum þótti alltaf
of mikið fyrir sér haft. Síðustu ár-
in, eftir að honum fór að hraka svo
mjög, þegar boðist var til að gera
eitthvað fyrir hann þótti honum
nú óþarfi að vera að snúast kring-
um sig. Alltaf svo þakklátur og
alltaf vildi hann launa greiðann.
Honum hrakaði mjög hratt síð-
asta árið eða svo. Parkinsonsjúk-
dómurinn, fylgikvillar hans sem
og heyrnarskerðing ollu honum
mikilli vanlíðan og mikilli skerð-
ingu á hans lífsgæðum.
Nú hefur hann verið leystur
þrautunum frá, nú er hann sól-
fagra landinu á.
Ástvini sé ég, er unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér.
Blessaði frelsari, brosið frá þér,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Það eru svo margar fallegar
minningar sem ég geymi í hjarta
mér. Þó það sé sárt að kveðja þá
samgleðst ég honum svo innilega
að fá hvíldina sem hann hafði þráð
svo lengi.
Þann 5. september tjaldaði al-
mættið öllu því fegursta sem það
átti til að undirbúa komu Sigga til
æðri heimkynna. Líklega heitasti
dagur ársins og sólarlagið svo fal-
legt að með eindæmum var. Það
hefur verið tekið vel á móti honum
og það veit ég með vissu að þau
hjónin, sem voru svo miklir fé-
lagar, eru sameinuð á ný. Núna er
spilað á spil á himnum.
Marta Sonja.
Það var ekki hægt að hugsa sér
fallegra sólarlag en 5. september
sl. þegar elsku Siggi okkar fékk
hvíldina.
Við söknum hans, það vantar
þennan hluta af lífi okkar sem
hann hefur verið sérstaklega þessi
síðustu ár eftir að Imba dó. Við
fundum það að hann var einmana
og fórum að heimsækja hann
reglulega, helst í hverri viku, okk-
ur öllum til mikillar ánægju. Þeir
kynntust bræðurnir, ólust ekki
upp saman en þessi ár voru okkur
dýrmæt og skilja mikið eftir sig.
Sumt var þó of sárt til að ræða og
rifja upp og taldi hann það best
geymt í glatkistunni.
Við fórum saman austur undir
fjöll og hann miðlaði okkur af sín-
um fróðleik um fjöllin og byggðina
sem hann hélt miklu ástfóstri við.
Síðasta ferðin okkar var í júní sl.,
honum var mikið í mun að blómin
væru komin á leiði foreldra hans í
Ásólfsskálakirkjugarði fyrir 17.
júní, það tókst þótt þrek hans væri
skert. Á heimleiðinni áttum við
góða stund með systrum Imbu á
Hvolsvelli.
Heilsunni hrakaði og lungna-
bólga lét á sér kræla ofan í park-
insonsjúkdóminn sem hafði hrjáð
hann um árabil, hann lagðist inn á
HSU og dvaldi þar þar til yfir
lauk. Kærar þakkir til ykkar sem
önnuðust hann og sýnduð honum
vináttu og kærleik.
Eggert og Móeiður.
Á kveðjustund minnist ég
Sigga Sigurþórs frá Seljalandsseli
með mikilli hlýju og þakklæti.
Hann var hjálpsamur, hjartahlýr
og traustur. Amma mín og afi,
Guðlaug og Helgi frá Seljalands-
seli, tóku hann ungan að sér og var
hann fóstursonur þeirra. Hann
var því uppeldisbróðir mömmu.
Þegar ég fór að muna eftir mér
voru Siggi og mamma til heimilis í
Seli með gömlu hjónunum ásamt
okkur bræðrum. Í minni barn-
æsku var Siggi alltaf til staðar og
hændist ég mjög að honum enda
einstaklega barngóður. Siggi hafði
gaman af hestum og á ég margar
góðar minningar um stundir með
honum í hesthúsinu eða í smala-
mennsku á hestum.
Á jólum og afmælum var alltaf
mikill spenningur fyrir gjöfinni
frá Sigga því það var alltaf stærsta
og flottasta gjöfin.
Þegar afi og amma hættu bú-
skap tóku Siggi og bræður mínir
við búinu í Seli. Samhliða bú-
skapnum fór Siggi á vertíð til Þor-
lákshafnar og vann í sláturhúsinu í
Djúpadal. Mér er mjög minnis-
stætt að þegar þeir keyptu nýjan
traktor fyrir búið tók Siggi mig
með sér til Reykjavíkur til að ná í
hann. Það var ekki leiðinlegt fyrir
níu ára gutta. Hann sagði að best
væri að taka mig með til að læra á
hann því trúlega kæmi ég til með
að nota hann mest.
Siggi reddaði mér vinnu í slát-
urhúsinu þegar ég var 15 ára og
tók mig með sér. Þegar ég eign-
aðist minn fyrsta bíl vildi Siggi
endilega að ég fengi bílnúmerið sitt
L-551. Það má með sanni segja að
Siggi hafi átt stóran þátt í uppeldi
mínu enda ólst ég upp með honum
fyrstu 16 árin. Þeirra tíma minnist
ég með miklu þakklæti.
Siggi giftist Ingibjörgu Sæ-
mundsdóttir í desember 1984. Það
var mikið gæfuspor fyrir Sigga því
Ingibjörg (Imba eins og hún var
kölluð) var yndisleg kona í alla
staði. Siggi og Ingibjörg fluttu til
Þorlákshafnar og hófu sinn bú-
skap þar og bjuggu alla tíð. Þau
voru afskaplega samrýnd hjón og
gerðu allt saman. Þegar komið var
upp fjölskyldureit í Seli (Nátt-
haga) urðum við nágrannar með
lóðir hlið við hlið. Þar vorum við
oft og minnumst við fjölskyldan
góðra tíma með þeim þar. Ekki
skemmdi fyrir að Valgerður kona
mín og Ingibjörg voru náskyldar.
Valgerður og Siggi náðu vel sam-
an í ræktun gróðurs í Nátthaga og
sást oft til þeirra með skóflur og
tré sér í hendi.
Þótt við Siggi værum fluttir frá
Seli vorum við alltaf í miklu sam-
bandi. Við töluðum t.d. alltaf saman
á aðfangadag til að óska hvor öðr-
um og fjölskyldum gleðilegra jóla.
Einnig á afmælisdögum okkar. Ég
hef því verið með eða heyrt í Sigga
á aðfangadag og afmælisdögum
okkar alla mína ævi. Mikið á ég eft-
ir að sakna þessara símtala.
Ingibjörg lést 2018 og bjó Siggi
einn eftir það. Á síðustu mánuðum
hrakði heilsu Sigga og lést hann á
Sjúkrahúsi Suðurlands að kvöldi
5. september sl. Mér þótti gott að
geta verið hjá honum þegar hann
kvaddi. Við leiðarlok vil ég þakka
Sigga uppeldið og ævilanga sam-
fylgd sem einkenndist af væntum-
þykju, tryggð og vináttu í minn
garð og fjölskyldu minnar.
Bless elsku Siggi, sjáumst síð-
ar.
Knútur Halldórsson.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Elsku Siggi frændi, þín verður
sárt saknað, minningin um þig
mun lifa. Takk fyrir allt og allt.
Þínar frænkur,
Ragnheiður Eggertsdóttir
og Guðbjörg Emma
Matthíasdóttir.
Sigurður H.
Sigurþórsson
Skarphéðinn
Gunnarsson, kær fé-
lagi, er fallinn frá
langt fyrir aldur
fram. Við samstarfsfólk hans á
Múlalundi áttuðum okkur fljótt á
mannkostum hans. Skarphéðinn
var góður vinur og frábær fyrir-
mynd. Hann hafði góða yfirsýn yf-
ir verkefnin og lét sig varða það
sem betur mátti fara enda kennari
fram í fingurgóma. Þegar hann
tók eftir að einhver fór ekki rétt
Skarphéðinn
Gunnarsson
✝
Skarphéðinn
Gunnarsson
fæddist 1. desem-
ber 1964. Hann lést
6. september 2022.
Útför hans fór fram
15. september
2022.
að, leiðbeindi hann
af ljúfmennsku sinni
þangað til útkoman
var fullkomin.
Spurningin „ertu
góður?“ sýndi vel
umhyggjusemi hans
í okkar garð og bar
hann ætíð hag okkar
hinna fyrir brjósti.
Hann bar af í getu
við ýmis verkefni
enda vandvirkur og
vinnusamur. Hann vildi enga
hjálp heldur fann hann út þá að-
ferð sem reyndist honum best.
Þegar fagfólk kom í heimsókn að
skoða vinnustaðinn, var hann oft
kallaður til og beðinn um að sýna
hvernig hann leysti verkefnið.
Okkur er minnisstætt á 60 ára af-
mæli Múlalundar hversu hrifin
forseti Íslands og forsætisráð-
herra urðu þegar þau sáu hvernig
Skarphéðinn braut saman litla
öskju með annarri hendi. Þau
spreyttu sig á sama verkefni en
náðu engan veginn sama árangri.
Hann var glettinn og stríddi
okkur þegar kostur gafst. Fannst
gaman að bregða fólki og hló
hrossahlátri, kíminn á svipinn, ef
vel tókst til. Hann var mikill
keppnismaður og eftir að hann
fékk úr með skrefatalningu,
keppti hann við þá sem þorðu. Á
Múlalundi er gjarnan gripið í spil í
pásum. Þegar Skarphéðinn spilaði
heyrðust ýmis hljóð úr horni „ú
lala“ ef spilin voru góð, hlegið hátt
ef hann vann en romsa af vel völd-
um orðum þegar illa fór.
Skarphéðinn var mikill nagli,
hann kom hjólandi í öllum veðrum
til vinnu. Hann fór stundum hjól-
andi frá Borgarnesi í sumarbú-
staðinn á Mýrum. Þar undi hann
sér við að gróðursetja plöntur og
tré. Einnig naut hann þess að vera
í golfi ásamt því að fara í göngu-
ferðir með vinum.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Við félagar hans á Múlalundi
söknum og syrgjum.
Við biðjum góðan Guð að
styrkja fjölskyldu Skarphéðins á
erfiðum tímum.
F.h. starfsfólks Múlalundar,
Vilborg og Harpa.
Það var haustið 1995 sem við
vorum þrír nemendur í Vestur-
hlíðaskóla. Við áttum von á að fá
nýjan umsjónarkennara. Við sát-
um spennt saman í stóra salnum
og byrjuðum að velta því fyrir
okkur hver yrði umsjónarkennar-
inn okkar í 7. bekk. Síðan byrjaði
skólastjórinn að lesa upp nöfnin á
kennurunum og hvaða bekkjum
þeir kenndu. Síðan kom 7. bekkur
og þá kom nafnið Skarphéðinn
upp. Við sátum þarna þrjú saman
og vorum alveg ringluð. Var að
byrja nýr karlmaður og kennari í
okkar fámenna skóla? Við fórum
inn í stofuna okkar og biðum eftir
að sjá þennan dularfullan kennara
að nafni Skarphéðinn. Síðan birt-
ist þessi gæi. Hann var í þokkabót
ungur, stæltur og fjallmyndarleg-
ur kennari með gullkeðju um háls-
inn og með ítalska hárgreiðslu.
Gleymum aldrei fyrstu orðum
hans þegar hann gekk inn í stof-
una okkar og leit á okkur: „Þið
getið allt nema heyrt, þetta verður
harður vetur, en þið getið þetta.“
Þessi kennari var algjör töffari
og við röfluðum ekki yfir því að fá
svona kennara. Það var svo skrítið
með Skarphéðin að við fundum
strax jákvæða og hlýja nærveru
frá honum, alveg frá upphafi.
Hann var ekki venjulegur kennari
heldur var hann bjargvætturinn
okkar. Hann hafði óbilandi trú á
okkur og vildi gera allt fyrir okk-
ur. Hann gerði miklu meira en
aðrir kennarar gerðu. Við fengum
að njóta þess að fá dýrmæta
reynslu og leiðbeiningu frá honum
í 3 ár. Hann kenndi okkur svo
margt um lífið. Í raun má segja að
hann hafi verið mikill spekingur.
Hann barðist mjög mikið við að
veita okkur góða kennslu og tók
því mjög alvarlega að vera kenn-
arinn okkar. Við eigum honum
enn í dag mjög mikið að þakka,
hvað við erum í dag. Við eigum
ótrúlega margar góðar og yndis-
legar minningar um Skarphéðin
þó það séu rúmlega 25 ár síðan
hann hætti að kenna okkur.
Skarphéðinn mun alltaf eiga hlut í
hjarta okkar fyrir allan þann kær-
leika sem hann gaf okkur. Hann
var stór áhrifavaldur og átti
drjúgan þátt í okkar mótunarferli.
Við munum alltaf þakka honum
fyrir þessi þrjú ár sem hann gaf
okkur. Við kveðjum þig í bili, okk-
ar uppáhaldskennari, en þú ert
ekki laus við okkur. Við ætlum að
endurtaka leikinn og taka aðra
kennslulotu hjá þér uppi í himna-
ríki seinna.
Kær kveðja,
Kristinn, Hulda og Lísa
frá Vesturhlíðaskóla