Morgunblaðið - 16.09.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 16.09.2022, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Málarar MÁLARAR Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu. Unnið af fagmönnum með áratuga reynslu, sanngjarnir í verði. Upplýsingar í síma 782 4540 og loggildurmalari@gmail.com Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Stærð 10-24 NETVERSLUN www.gina.is Sími 588 8050 - vertu vinur Bílar Kia Rio EX 1/2107 Ek. 135 þús. km. Diesel. Framdrifin snattari sem er góður í snjónum. Góð þjónustusaga. Lítur ljómandi vel út. Þennan færðu á 1.480.000 krónur. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Milan kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Bókabíllinn, kemur í Árskóga 6-8 kl. 16:30-17:15. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9:00-12:00. Boccia kl. 10:15-11:20. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Bíósýning kvikmyndahóps Hæðargarðs kl. 13:00. Opin Listasmiðja kl. 13:00-15:45. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónsh. 9.30 Dansleikfimi í Sjálandssk. 10.00 Gönguhópur 13.00 Föstudagskaffi í Smiðju 13.00-16.00 Félagsvist 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónsh. 9.30 Dansleikfimi í Sjálandssk. 10.00 Gönguhópur 13.00 Opnun Smiðju 13.00-16.00 Félagsvist 13.45- 15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10:00 Prjónakaffi frá kl. 10:00-12:00. Kóræfing kl. 13:00 – 15:00. Allir velkomnir Gullsmári Handavinna kl. 9:00. Bingó kl. 13:00. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun kl. 9 - 12. Hádegismatur kl. 11:30. Bingó kl. 13:15. Kaffi kl. 14.30. Hraunsel Föstudaga: Biljardstofan opin frá kl. 8:00-16:00 Línudans kl. 10:00. Bridge kl. 13:00. Ganga í Kaplakrika er alla daga kl. 8:00- 12:00. Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30. Pílukast í Bor- gum kl. 09:30. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styr- kleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Han- nyrðahópur kl. 12:30. Bridge kl. 12:30.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13:00. Góða helgi. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofunni 09:00-10:00 - Föstudagshópur í handverksstofu kl. 10:30-11:30 - Dansleikfimin með Auði Hörpu er svo frá 12:50-13:20 - Opin handverksstofa frá 13:00- 16:00 - Siggi ætlar að vera með sögur og sprell frá 14:00-15:00 - Minnum svo á vöfflukaffið frá kl.14:30-15:30. Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabrut frá kl. 9.00. Söngur undir stjórn Bjarma Hreinssonar í salnum á Skólabraut kl. 11.00. Vantar þig pípara? FINNA.is ✝ Ibsen Ang- antýsson fæddist 3. október 1941 á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann lést á heimili sínu, Njarðar- völlum 6, 4. sept- ember 2022. Foreldrar hans voru Angantýr Guðmundsson skipstjóri, f. 1. júlí 1916, d. 21. maí 1964, og Arína Þórlaug Ibsensdóttir ritari, f. 11. september 1923, d. 14. október 1994. Systkini Ibsens eru: Óskírð- ur, látinn; Bára fv. banka- starfsmaður, látin, eftirlifandi eiginmaður hennar er Einar Benedikt Sigurgeirsson; Auður hjúkrunarfræðingur, látin; El- ínrós, látin; Sólrún, látin; Haukur efnafræðingur, látinn; Ólafur Óskar fjölmiðlafræð- ingur, látinn; Guðrún fram- haldsskólakennari, gift Viðari Má Matthíassyni. Uppeld- issystir Ibsens var Soffía Jóna Vatnsdal Jónsdóttir, látin. Ibsen giftist Huldu Guðmundsdóttur, f. 10. júní með foreldrum sínum til Kefla- víkur þar sem faðir hans var að elta fiskimiðin en sex ára gamall fluttist hann aftur til Vestfjarða, nánar tiltekið á Flateyri. Þar sleit hann barns- skónum en fluttist svo aftur til Keflavíkur 12 ára gamall. Æska hans var lífleg og skemmtileg, elstur í stórum systkinahópi. Fjölskyldan flutti svo árið 1961 í Goðheima í Reykjavík. Ibsen fór strax á unglings- aldri að stunda sjóinn með föð- ur sínum. Hann útskrifaðist síðan úr Stýrimannaskólanum sem skipstjóri 21 árs gamall. Hann var skipstjóri á um 30 skipum sinn feril. Vegna veik- inda varð hann þó að fara í land og gerðist hafnsögu- maður við Reykjaneshöfn þar sem hann starfaði í 30 ár. Hann hélt þó áfram samhliða starfi hafnsögumanns að fara á síld og sigla skipum með afla til Englands og Þýskalands fyrir ýmsar útgerðir. Ibsen stundaði laxveiðar og var meðlimur í Golfklúbbi Suð- urnesja í yfir 40 ár. Hann var skákmaður og mikill áhuga- maður um bridge. Útför Ibsens fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. september 2022, klukkan 12. 1944, hinn 11. febrúar 1968 í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Óskírð Ibsen, f. 21. janúar 1970. 2) Davíð Ibsen, f. 9. desember 1971, unnusta Matt- hildur Sigríður Jónsdóttir, börn Davíðs frá fyrra hjónabandi með Sigríði Erlingsdóttur eru Guð- munda Arína, í sambúð með Róberti Smára Jónssyni og eiga þau soninn Leonard Ib- sen, Erlingur Ibsen, kærasta Rebekka Móey Guðjónsdóttir, og Arngrímur Ibsen. 3) Rík- harður Ibsen, f. 21. júní 1975, kvæntur Stellu Norðdal Gísla- dóttur, börn þeirra eru Rafn Ibsen og Ingibjörg Norðdal. 4) Marteinn Ibsen, f. 27. desem- ber 1977, giftur Astrid Maríu Dahl Reynisdóttur og saman eiga þau dótturina Elísu Mar- íu, börn Marteins frá fyrra hjónabandi með Öldu Sveins- dóttur eru Óliver Ibsen og Melkorka Huld. Ibsen fluttist ungur að aldri Gömul indíánaspeki segir að við erfum ekki jörðina frá for- feðrum okkar – við erum með hana að láni frá börnum okkar. Faðir minn, Ibsen Angantýsson, var maður af gamla skólanum, þrautseigur og harður. En hann var líka kíminn, hlýr og hjartgóð- ur og undir yfirborðinu bjó djúp viska og hyggindi. Það hefur allt- af setið í mér þegar ég sagði við hann ungur að árum að mér þætti afar leitt að geta ekki launað hon- um það sem hann hefði gefið mér og miðlað til mín af sinni reynslu og þekkingu. Hann var fljótur til svara: „Þú átt ekki að launa mér neitt – þú átt að borga börnunum þínum, næstu kynslóð“. Hann var mjög barngóður, elskaði sakleys- ið og var afar umhugað um að byggja betri framtíð. Hann var dásamlegur pabbi og yndislegur afi en ekki síst mjög góður vinur. Hann var áræðinn, frumlegur og fylginn sér til sjós og lands. Hann var afburðaskipstjóri, hok- inn af reynslu og kannski ljóð- rænt að hann skyldi gerast hafn- sögumaður þar sem það var honum í blóð borið að nýta sína reynslu og visku til að lóðsa aðra í gegnum lífsins sjó. Hann glímdi lengi við heilsubrest en kvartaði sjaldan. Hann vildi allt fyrir alla gera en bað aldrei um neitt sjálf- ur. Eftir að pabbi hætti að vinna eyddi hann miklum tíma í sam- eiginlegt áhugamál okkar, brids. Við spiluðum mikið saman en hann spilaði líka við fólk um allan heim á netinu og keppti í mótum. Alltaf jafn kynngimagnað hvað tæknin hefur breytt lífi okkar. Hann fór úr sjóara-brids í borð- salnum úti á miðju Ballarhafi í að spila Standard við einn í Kína, annan á Indlandi og þann þriðja í Bandaríkjunum meðan hann sat sjálfur heima í stofu. Alltaf sama brúarsmíðin samt. Við tefldum líka mikið alla tíð og fórum yfir málefni líðandi stundar, allt póli- tíska litrófið – enda var honum mjög umhugað um þjóðarhag og hvað væri öllum fyrir bestu. Nú teflum við Rafn Ibsen sonur minn og höldum hans lífssýn á lofti. Ég elskaði föður minn afskap- lega mikið – hans verður sárt saknað en áhrif hans munu fylgja mér og mínum alla okkar daga. Opnist helgar himna dyr, heiðursvörðinn standið. Megirðu sigla blíðan byr, inn í blessað sumarlandið. (RI) Ríkharður Ibsensson. Elsku afi, innilegar þakkir fyr- ir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Allar skákirnar og skemmtilegu umræðurnar. Ég náði aldrei að sigra þig við skák- borðið en ég stefni að því að vinna pabba. Við munum tefla alla sunnudaga til að halda minn- ingu þinni á lofti. Þetta gekk líka heldur brösuglega í golfinu þeg- ar þú ætlaðir að kenna mér að fara vel í gegn í sveiflunni og ég sló þig niður í einu höggi. Ég biðst enn og aftur afsökunar á því. Líka þegar ég keyrði næst- um golfbílinn í klessu þegar við stukkum fram af brekkunni á ní- undu holu og þitt rólega yfir- bragð breyttist í óttasleginn far- þega á augabragði. Þú varst alltaf svo hlýr, góður og yndis- legur afi. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (G.V.G) Blessuð sé minning þín. Rafn Ibsen Ríkharðsson. Elsku afi minn. Orð fá ekki lýst hversu mikið mér þykir vænt um þig og er mikill missir að þú sért farinn frá okkur. Ég á svo margar minningar um þig sem eru mér svo kærar sem ég mun halda á lofti með mínum börnum. Þegar ég fór í heimsókn til ömmu og afa þá tók hann allt- af á móti mér og kyssti mig á ennið. Þetta hefur hann gert við okkur öll barnabörnin. Það var ekki erfitt að fá afa til að gera hluti fyrir prinsessuna sína. Afi þoldi ekki að fara í búðir og steig aldrei fæti inn í Smáralindina fyrr en ég náði að plata hann með mér að kaupa á mig kápu sem lítil stelpa. Ég man alltaf svo vel eftir honum sitjandi í sóf- anum í Smáralindinni að bíða eftir mér og ömmu á meðan við fórum í búðir. Amma var alltaf að flýta sér svo mikið því afi væri örugglega orðinn pirraður á að bíða eftir okkur. Ég skildi það aldrei því alltaf þegar við vorum tilbúnar að fara þá sat hann þarna sallarólegur. Stundum tók hann bara Morgunblaðið með sér og sat í bílnum að lesa á með- an við amma versluðum. Svona var afi minn, vildi allt fyrir mig gera. Mér leið alltaf best heima hjá ömmu og afa og gisti ég nán- ast allar helgar hjá þeim á Heið- argarðinum sem barn. Afi að segja mér Búkollusöguna fyrir svefninn eða amma og afi að rista handa mér brauð til skiptis á meðan ég horfði á skrípó. Afi gaf mér alltaf blóm á konudag- inn og er ein skemmtilegasta minningin mín af honum þegar ég var unglingur en þá kom hann einn morguninn fyrir utan gluggann á herbergi mínu og flæktist í trjánum fyrir utan og kom pabbi óður út því hann hélt að það væru unglingsstrákar fyrir utan gluggann en þá var það bara afi minn að koma með blóm fyrir mig á konudaginn. Hann gat verið uppátækjasam- ur. Afi minn var mesta ljúfmenni og var alltaf svo góður við mig og bræður mína. Hann var mín helsta fyrirmynd og hafði mikil áhrif á mig. Hann kenndi mér mikilvægi þess að vera góður við annað fólk og sýna öðrum virð- ingu. Öll okkar samtöl um lífið og tilveruna höfðu áhrif á mig þó við værum ekki alltaf sammála. Afi var einfaldlega bestur og er mikill söknuður að missa hann. Börnin mín fá ekki að kynnast þér eins mikið og ég vildi en þau fá að þekkja þig í gegnum mig. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisinn, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Vertu sæll elsku afi. Ég syrgi þig og held í góðu minningarnar um þig. Þín Guðmunda Arína. Ein af æskuminningum mín- um tengist mínum ástkæra bróð- ur Íbsen, sem nú er fallinn frá. Það var á afmælisdegi mínum þegar ég var fimm ára að fjöl- skylda okkar var að flytja frá Keflavík til Reykjavíkur. Mér var komið fyrir aftur í yfirhlaðinni Volkswagen-bjöllu fjölskyldunn- ar, skorðuð niður milli alls konar búsáhalda og fatnaðar. Áttum við langt ferðalag fyrir höndum og slógust föt og kassar í mig með reglulegu millibili þegar Íbsen reyndi að keyra fram hjá stærstu holunum á gamla Keflavíkurveg- inum. Honum tókst að skemmta mér með sögum alla þessa löngu leið, en oft var ég nálægt því að kasta upp og leið alls ekki vel á þessum rykuga vegi þennan sól- ríka sumardag. Í æsku átti ég oft eftir að sitja aftan í „Bjöllunni“ og fá að þvælast með Íbsen þegar hann var að útrétta í landi milli veiðiferða. Ungum var honum falin mikil ábyrgð, en hann var aðeins 22 ára, þá nýútskrifaður úr Sjó- mannaskólanum, þegar hann tók við skipstjórn á Rifsnesinu eftir skyndilegt fráfall föður okkar 1964. Næstu ár á eftir var hann mömmu stoð og stytta, ábyrgð- arfullur, óeigingjarn og sam- viskusamur ungur maður. Það var honum mikið áfall þegar Rifs- nesið sökk undan Raufarhöfn í september 1966. Sem betur fór var allri áhöfn skipsins bjargað. Seinna var hann skipstjóri á Ás- geiri RE og fleiri skipum og fengu bræður mínir Haukur og Ólafur að vera með honum á síld- veiðum í Norðursjó þegar þeir voru í námi. Hann var farsæll skipstjóri og einstaklega veður- glöggur. Á fertugsaldri fékk hann liða- gigt og átti erfitt með að stunda sjómennsku. Fór kuldinn sem fylgir sjómannsstörfum illa í lið- ina. Helst vildi hann þó hvergi annars staðar vera en á sjó. Hon- um tókst að stunda sjómennsku mestan hluta sinnar starfsævi og lauk hann ævistarfinu sem hafn- sögumaður í Keflavík. Hann kvæntist sinni ástkæru eiginkonu Huldu Guðmundsdótt- ur 1968 og man ég enn hvað hún var glæsileg brúður. Þau hjón voru hamingjusöm og áttu alltaf fallegt heimili. Hjónaband þeirra var farsælt og hafa þau ávallt verið náin og samstiga í hvívetna. Íbsen var góður heimilisfaðir. Þau hjón eignuðust þrjá prýð- ispilta sem eiga samhentar fjöl- skyldur. Var einstaklega náið og kært samband milli þeirra hjóna og barnabarnanna, sólargeisl- anna sem þau dekruðu við og nutu þess að fá í heimsókn. Margs er að minnast á löngum tíma en helst standa upp úr fjöl- skylduboðin, þegar Íbsen var með spil í höndum. Hann naut þess að spila brids og varði sein- ustu æviárunum í að spila brids og tefla í heimilistölvunni við vini og kunningja um allan heim. Einnig var hann góður golfspilari og iðkaði það sport í marga ára- tugi. Með einlægri virðingu sendum við Viðar fjölskyldu Íbsens ein- lægar samúðarkveðjur. Megi minning hans lifa. Saknaðarkveðja. Þín systir, Guðrún. Nú þegar Ibsen frændi minn hefur kvatt okkar heim reikar hugurinn til baka um svona 80 ár. Ég var einu ári og þremur vikum eldri en Ibsen og af myndum að dæma frá þessum árum veltumst við hvort um annað sumartíð hjá ömmu og afa á Suðureyri við Súgandafjörð. Þá var Ibsen tveggja ára. Svo skildi leiðir, fjöl- skyldur okkar fóru aftur til síns heima eftir vel heppnað sumarfrí; mín fór aftur á Suðurland en Ib- sens fjölskylda sigldi til Flateyr- ar, trúlega á bátnum hans afa, Sigurvon. Alltaf var þessi frændi minn í huga mér, en við hittumst ekki aftur svo nokkru næmi fyrr en á fullorðinsárum. Síðar, ég þá gift kona með fjöl- skyldu, fluttum til Keflavíkur þar sem Ibsen bjó. Það var ómetan- legt að njóta vináttu hans og fleira frændfólks þar í bæ sem tók á móti okkur opnum örmum. Ég kveð þig, Ibsen minn, með orðum frænda þíns: Brosið stillt og frosið bitur skelfing situr þú ert hlutur á safni sem geymir söguna af hlátrinum. (Árni Ibsen) Huldu minni, strákunum, eft- irlifandi systur, öðrum ættingj- um og vinum sendi ég mína kær- ustu kveðju. Heiðrún Þorgeirsdóttir. Ibsen Angantýsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.