Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNSKUM
MORA HNÍFUM
Karl-Johan
sveppahnífur
Verð kr. 4.950
Tálguhnífur
Verð kr. 4.530
Skeiðarkrókar
Verð frá kr. 6.980
Smiðshnífur/sporjárn
Verð kr. 1.980
Spónhnífur
Verð kr. 6.980
Úrbeinigarhnífur
Verð kr. 4.480
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vinnuhnífar
Verð frá kr. 980
Flökunarhnífur
Verð kr. 6.490
Vefverslun brynja.is
Opi
ð virk
a
dag
a fr
á 9-
18
lau
frá
9-11
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Hver er sinnar gæfu smiður. Kann-
aðu ný hverfi og ný áhugamál eins og að
elda, mála eða leika. Fjölskyldan og heim-
ilið eru í brennidepli hjá þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það kann ekki góðri lukku að stýra ef
þú hefur ekki samráð við þína nánustu um
hluti, sem snerta ykkur öll. Ekki kaupa
óþarfa.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það bíða allir eftir ákvörðun þinni
og þú getur ekki endalaust dregið svarið.
Stattu með þínum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Vinur, þér eldri, er kannski dálítið
gagnrýninn núna. Máttarvöldin leggja þér
lið þegar þú lætur eins og þú eigir stuðn-
inginn þegar vísan.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Nýir vinir gera líf þitt spennandi og
skemmtilegt. Gættu þess að lenda ekki í
deilum um hluti sem skipta engu máli.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Allir uppskera svo sem þeir hafa sáð
til og þú auðvitað líka. Fólk stendur fast á
sínu og því er enginn tilbúin/-n til að hlusta
á þig.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Einhver umskipti eru á næsta leiti og
ef þú ert klók/-ur, þá reynir þú að grípa
gæsina, þegar hún gefst. Reyndu að kom-
ast að því hver ástæðan er fyrir fýlu mak-
ans.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Að vita hvenær maður hefur
færst of mikið í fang er eitt, að viðurkenna
það er annað. Hugmyndirnar fæðast á
færibandi, nýttu þær.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Breytingar geta átt við allt, frá
því að færa húsgögn út í það að skipta um
starfsvettvang. Gakktu þó ekki fram af þér
svo þú eigir einhverja orku aflögu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Skelltu ekki skollaeyrum við því
sem vinir og vandamenn segja þér. Erfitt
samtal sem þú kvíðir mun reynast þér auð-
velt.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hefur byrgt spennuna inni,
en verður að hleypa henni einhvern veginn
út. Reyndu að hafa allt á hreinu þegar þú
ferð í atvinnuviðtal.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Mundu að einvera er nauðsynleg af
og til. Þú gætir þess að fara vel að fólki,
ekki rugga bátnum of mikið.
L
ilja Sif Þorsteinsdóttir
er fædd 16. september
1982 í Reykjavík og ólst
þar upp. „Ég málaði
mikið sem barn og ung-
lingur og fékk nokkrar viðurkenn-
ingar og verðlaun fyrir myndlist á
yngri árum.“
Fyrstu ellefu árin átti Lilja heima
í Hlíðunum og gekk í Hlíðaskóla.
Hún flutti svo í smáíbúðahverfið og
gekk í Breiðagerðisskóla og Réttar-
holtsskóla. Hún var sjálfboðaliði í
Kattholti með 10. bekk. Hún fór svo í
Menntaskólann í Hamrahlíð og út-
skrifaðist þaðan árið 2002. „Samhliða
menntaskóla ritstýrði ég unglinga-
tímaritinu Smelli, sem gefið var út af
Æskunni, var í ritstjórn Benevent-
um eitt árið og var almennt séð í 2-3
störfum í einu, oftast afgreiðslu-
störfum eða ritstörfum, á þessum ár-
um.“
Eftir stúdentspróf fór Lilja beint í
Háskóla Íslands í sálfræði. Hún rit-
stýrði ennþá Smelli samhliða náminu
og vann hina ýmsu aukavinnu með-
fram skóla, aftur mest við af-
greiðslustörf og ritstörf. Lilja út-
skrifaðist með BA-gráðu 2005. Hún
byrjaði þetta sama sumar sem flug-
freyja hjá Icelandair og sinnti því á
sumrin meðfram námi þar til hún út-
skrifaðist sem Cand.psych. árið
2011.
Eftir útskrift fór Lilja að vinna á
Reykjalundi og var þar í tæp fjögur
ár. „Ég var mest á lungnasviði en
starfaði einnig á hjartasviði, offitu-
og næringarsviði og geðheilsusviði.“
Árið 2014 hóf Lilja störf sem sál-
fræðingur hjá Krafti – samtökum
fyrir ungt fólk sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandendur
þeirra. Þá var hún í 80% starfi hjá
Reykjalundi og 20-40% hjá Krafti,
þangað til hún flutti út.
Lilja fór til Noregs árið 2015 til að
vinna á afeitrunar- og endurhæfing-
arstöð fyrir fólk með vímuefnavanda.
Hún sótti sérnám í hugrænni
atferlismeðferð í Endurmenntun HÍ
samhliða því. Hún flutti heim haustið
2017 og hafði stutta viðkomu hjá Sál-
fræðingum Lynghálsi áður en hún
fór að vinna í byrjun árs 2018 hjá
Hæfi endurhæfingarstöð, sem sér-
hæfir sig í þverfaglegri endurhæf-
ingu við langvinnum verkjum.
Í lok árs 2021 stofnaði Lilja Heils-
hugar. „Heilshugar er batamiðað
rými með skaðaminnkandi
áherslum. Við hjálpum fólki að vinna
úr áföllum í öruggu umhverfi þar
sem við blöndum samtals- og líkams-
miðuðum aðferðum saman með leik-
gleði og sköpunarkraft í fyrirrúmi.
Við höfum þá sérstöðu að við þjón-
ustum fólk alls staðar á vímuefnaróf-
inu. Við gerum ekki þá kröfu á fólk
að vera edrú til að fá aðstoð okkar.
Samstarfskona mín þar er Svala Jó-
hannesdóttir, fjölskyldumeðferð-
arfræðingur og sérfræðingur í
skaðaminnkun. Í mánuðinum munu
tveir meðferðaraðilar í viðbót hefja
störf og fleiri bætast við í vetur. Í
Heilshugar bjóðum við einstaklings-
meðferð, handleiðslu, fræðslu, nám-
skeið og hópatíma. Ég held einnig úti
fræðslusíðu fyrir almenning á Insta-
Lilja Sif Þorsteinsdóttir sálfræðingur – 40 ára
Vísindamaðurinn Lilja valin í hraðal á vegum HÍ og American Women Entrepreneurs í vor.
Helsta ástríðan er starfið
Á Spáni Lilja á göngu um Jakobsveginn fyrir nokkrum árum. Samstarfskonur Svala og Lilja.
Heiðurshjónin Gunnar A. Þorláksson og Kol-
brún Hauksdóttir fagna 60 ára brúðkaups-
afmæli en þau voru gefin saman 15. sept-
ember 1962 í Langholtskirkju af séra Árelíusi
Níelssyni. Þau eru og hafa allan sinn búskap
verið búsett í Reykjavík. Börnin eru fjögur,
barnabörnin ellefu og barnabarnabörnin þrjú.
Dans hefur verið stór þáttur í lífi Gunnars og
Kolbrúnar og má því segja að þau hafi dansað
saman í gegnum lífið í leik og starfi. Þau hafa
alla tíð verið virkir félagar í bindindishreyfingu
IOGT og átt mörg sameiginleg áhugamál eins
og að ferðast hvort heldur tvö saman eða með
stærri hópa með sér, að veiða saman, skóg-
rækt og mannrækt.
Við börnin, tengdabörnin, barnabörnin og
barnabarnabörnin þökkum þeim fyrir að hafa fengið að verða samferða þeim í líf-
inu og óskum þeim hjartanlega til hamingju með lífið, ástina og demantsbrúð-
kaupið.
Kristín, Lilja, Aðalsteinn og María Gunnarsbörn.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup